Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Side 38
38 Lífsstíll 11.–13. janúar 2013 Helgarblað
S
ushi, ólífuolía og sojamjólk
eru meðal þeirra matvæla
sem eru ekki eins holl og við
höfum haldið. Það er danski
næringarfræðingurinn Per
Brændgaard sem heldur þessu fram
í danska tímaritinu Samvirke, en
hann var beðinn um að leggja mat á
ellefu tegundir matvæla sem mýtan
segir að séu holl.
Sushi
Óhollustan í sus-
hi er fólgin í hrís-
grjónunum og þá
helst í magni þeirra.
Hrísgrjón eru hrein
sterkja og tómar hita-
einingar. Það vantar heil-
korn í hrísgrjónin þar sem hýðið
hefur verið fjarlægt en þar liggur
einmitt hollustan. Það er þó hægt
að fá sushi með svörtum hrísgrjón-
um eða heilkorna grjónum. Annar
kostur er að borða fiskinn eingöngu.
Ávaxtajógúrt
Fólk telur að
jógúrt sé holl og
ávextir eru jú
hollir og þegar
þetta tvennt er
svo sett saman
hljótum við að fá holl
matvæli. Það er þó ekki þannig því í
flestum tegundum jógúrtar er mikið
magn af sykri og fitu. Fólk er því að
neyta nýmjólkur með sykri.
Smoothies
Þessi drykkur hefur
verið mjög vin-
sæll undanfarin ár,
hvort sem hann er
keyptur eða heima-
gerður. Hann er í sjálfu
sér ágætur sem milli-
mál og er ágætis leið til að neyta
meira af ávöxtum og berjum. Það er
þó hollara að borða ávextina eina
og sér. Á smoothies-flöskunum er
hægt að sjá hve mikið af ávöxtum er
í drykknum og áhugavert að íhuga
hve lengi þú værir að borða þetta
sama magn af ávöxtum. Þegar mað-
ur drekkur smoothie þarf maður
ekki að tyggja og innbyrðir töluvert
af hitaeiningum. Þetta þýðir að þú
færð ekki sömu seddutilfinningu og
fleiri hitaeiningar á sama tíma.
Rauðvín
Hún er lífseig mýtan um
að rauðvín sé hollt og
byggir á rannsókn frá
tíunda áratugnum sem
sýndi að fólk sem
drykki eitt glas af
rauðvín á dag lifði
lengur. Það var þó
ekki rauðvínið sem hafði þessi
áhrif heldur var lífsstíll þeirra
sem tóku þátt í rannsókninni
og drukku rauðvín heilbrigðari en
annarra. Rannsóknir sýna að vín og
bjór búa yfir ýmsum sömu eiginleik-
um. Til að mynda geta þessir drykkir
komið í veg fyrir hjartasjúkdóma en
einungis hjá fólki sem neytir þeirra í
takmörkuðu mæli.
Magurt kjöt
Í tengslum við
próteinæðið
sem gripið
hefur líkams-
ræktarfólk er
kjöt mikið lof-
samað. Sagt er að
fólk eigi að borða mik-
ið af próteini og minnka kolvetnin.
Það hefur þó ekki verið rökstutt. Fólk
er því byrjað að borða kjöt í meira
mæli, sér í lagi steikt kjöt og grillað.
Þá er vert að minna á að þegar rautt
kjöt er grillað og brennur geta
myndast krabbameinsvaldandi
efni. Við ættum því frekar að
beina neyslu okkar að grænmeti
og ávöxtum.
Ólífuolía
Sumir halda því fram
að með því að neyta
ólífuolíu minnkir
þú magamálið. Að
þeir sem vilji flatan
maga eigi að borða
sem minnst af kolvetn-
um og meira af próteini og
ein ómettuðum fitusýrum. Margar
konur hafa því löðrar salatið í ólífu-
olíu og skilja svo ekki af hverju þær
grennast ekki. Hvað varðar kólester-
ól þá er betra að nota repjuolíu.
Ólífuolían er góð en fólk er í vanda
þegar það heldur að því meira sem
notað er af henni því
betra.
Spelt
Fjölmargir
halda því
fram að spelt
sé hollari kostur
en hveiti. Það eru þó
margar tegundir brauðs sem
innihalda venjulegt spelt en ekki
heilkornaspelt. Að borða venjulega
speltbollu er samsvarar í raun því að
borða hvít hrísgrjón. Spelt hefur þá
ímynd að vera hollt en svo er ekki
alltaf raunin og fer eftir því hvort það
er heilkorna eða ekki.
Morgunkorn
Margar tegundir
morgunkorns eru
auglýstar sem
trefjaríkur kostur
en oft er sett
töluvert magn
af sykri á móti til
að trefjarnar renni
auðveldar niður. Það er hollt að
neyta heilkorna og trefja en það
hallar á hollustuna þegar sykur-
inn fylgir með. Þá er betra að borða
hafragraut með mjólk og fá náttúru-
legan sykur úr banana, rúsínum eða
döðlum. Þannig forðast þú viðbætt-
an sykur.
Kókosolía
Nú trúa því margir
að kókosolía sé
hollari fita en önn-
ur. Það er byggt
á þeirra trú að
þegar fita nær
ákveðnu hitastigi
við steikingu, breytist
hún í óholla fitu, ólíkt kókosfit-
unni. Með þessum yfirlýsingum
er fólk fælt frá öðrum tegundum
af olíu og afleiðingarnar eru þær að
fólk neytir meira magns af mettum
fitusýrum og kólesterólið hækkar.
Fólk fitnar í kjölfarið og yfir lengri
tíma litið eykst hættan á hjartasjúk-
dómum.
Kúamjólk
Sumir trúa því að
mjólkin sé með
því hollasta
sem við
neytum og
drekka mik-
ið af henni. Aðr-
ir drekka aldrei mjólk þar sem
þeir telja hana óholla. Báðir að-
ilar hafa rangt fyrir sér. Ný rann-
sókn sýnir að mikil neysla mjólk-
ur hjá mönnum getur aukið líkur
á blöðruhálskrabbameini og Park-
insonsveiki. Ef fólk drekkur enga
mjólk aukast líkur á heilablæðingu,
nokkrum tegundum krabbameina
og sykursýki II. Best er að drekka ¼
til ½ lítra af mjólk á dag. Ef þú borð-
ar töluvert af osti þá getur þú sleppt
mjólkinni en við fáum einnig kalk úr
vörum eins og jógúrt og mjólk í kaffi.
Sojamjólk
Sumir halda því fram
að öll helstu vanda-
mál heimsins
megi rekja til kúa-
mjólkurinnar. Þeir
sömu ráðleggja
fólki að drekka
frekar sojamjólk. Í
henni er þó mikið að
plöntuefni sem líkist estrógeni.
Þetta er slæmt fyrir konur sem eru
í meðferð vegna brjóstakrabba-
meins og það getur beinlínis ver-
ið hættulegt að skipta snögg-
lega frá kúamjólkinni yfir í
sojamjólk fyrir þá sem eru að
nálgast fertugsaldurinn. Þar
að auki getur mikil neysla
á sojamjólkur haft áhrif á
sæðisframleiðslu karlmanna.
Niðurstöður einnar rannsókn-
ar benti til þess að þeir karlmenn
sem drekka mikið af sojamjólk séu
gott sem ófrjóir. Hins vegar sýndi
önnur rannsókn að eistu karlmúsa
sem fengu mikið af kúamjólk,
stækkuðu.
iris@dv.is
Ekki eins hollt
og við héldum
n Ellefu algengar mýtur um hollustu matvæla n Allt er best í hófi
Reynir
Traustason
Baráttan
við holdið
M
ont Blanc er
fyrir heitna
fjallið og ég
les allt sem
ég kemst yfir um
þetta 4.800 metra háa
fjall sem heillar svo marga. Ég hef
komist að því að þar farast allt að
12 manns á ári sem er í sjálfu sér
ekki mjög hátt hlutfall þegar til þess
er litið að þúsundir manna leggja
þangað leið sína.
F
lest banaslysin eiga sér þá skýr-
ingu að fólk gerir mistök og fer
ekki eftir reglum. Auðvitað eru
svo dæmi um veikindi eða að
snjóflóð skelli fyrirvaralaust á og
kosti fólk lífið. Þar er sjálfsagt ekki
hægt að kenna neinu um. Slysin
einfaldlega gerast.
T
il þess að lágmarka áhættuna
við gönguna á Hvíta fjallið
mun ég gæta þess að halda
mér í líkamlegu formi. Það
þýðir þrotlausar æfingar næstu
mánuði. Þannig tekst vonandi
að fyrirbyggja að hjartað gefi sig í
átökunum. Meiri óvissa ríkir um
það hvernig þunna loftið í 4.800
metrum fer í mig. Á síðasta ári
fékk ég forsmekkinn af þeirri líðan
þegar ég gekk á eldfjallið Teide á
Tenerife. Það fjall er 3.800 metrar.
Þegar ég kom í hæðina fór ég að
finna fyrir svima og léttri ógleði.
Úthaldið á síðustu metrunum
snarminnkaði.
Þ
að skondna við
háfjallaveikina
er að hún
leggst jafnt á
þrautþjálfað fólk sem
óreynt. Það virðist ekki
vera nein leið að sjá fyrir
hver þoli þunna loftið og hver ekki.
Þó virðast menn vera á einu máli
um að fyrrverandi reykingamenn
eigi einna best með að yfirstíga
fylgikvillana. Ég hef þá forgjöf að
hafa reykt í 30 ár. Því skal þó haldið
til haga að þegar gangan á fjallið
hefst verða meira en þrjú ár síðan
ég hætti.
E
n þótt Mont Blanc sé ennþá
aðeins hluti af áætlun er ég
þegar kominn með annað og
hærra fjall á heilann. Aftur
og aftur hefur skotið niður þeirri
hugsun í kollinn á mér að það
væri gaman að komast á Everest,
hæsta fjall heims. Þar erum við að
tala um tæplega 8.000 metra hæð
sem einungis örfáir Íslendingar í
toppformi hafa klifið. Dánartíðnin
á Everest er svipuð og á Mont
Blanc en auðvitað miklu hærri ef
miðað er við að miklu færri leggja
á fjallið. Vandinn í 8.000 metr-
um er súrefnisskorturinn sem er
langtum meiri en á Mont Blanc.
Ég hef reifað hugmynd mína um
að fara á hæsta fjall heims við
nokkra aðila og flestir vara mig
við.
Á
efsta hluta Everest eru stokk-
freðin lík sem engin leið er að
ná niður. Það kaldranalega er
að sum líkanna eru eins kon-
ar vegvísar. Þarna eru „Grænu stíg-
vélin“ til dæmis þar sem menn geta
staðsett sig.
Kannski er það tómt rugl að
hugsa um Everest sem viðkomu-
stað árið 2014. Margir úrtölu-
manna hafa nefnt að ég verði þá
rúmlega sextugur og þannig fólk
eigi að halda sig á jafnsléttu. Af
því tilefni gúgglaði ég hverjir væru
þeir elstu sem farið hafa á Everest.
Svarið er að tveir voru 75 ára þegar
þeir toppuðu. Mitt markmið gæti
verið að verða elsti Íslendingurinn
sem kemst á hæsta fjall heims. En
þetta eru vangaveltur. Fyrst er það
Mont Blanc og hugsanlega Matter-
horn.
Dáið fólk vísar leið