Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Síða 44
44 Sport 11.–13. janúar 2013 Helgarblað Svakalegur Sunnudagur n Hörkuleikir á sunnudag n United mætir Liverpool og Arsenal tekur á móti Manchester City M anchester United tekur á móti Liverpool á sunnu- dag í einum stærsta leik tímabilsins í ensku úr- valsdeildinni. Þarna mætast tvö sigursælustu félög Eng- lands og tveir markahæstu leik- menn ensku úrvalsdeildarinn- ar í vetur, Robin van Persie og Luis Suarez. United situr á toppi deildar- innar með 52 stig en Liverpool er í 8. sæti deildarinnar með 31 stig en bæði lið hafa verið á ágætri siglingu að undanförnu. United tapaði síðast í deildinni gegn Norwich þann 17. nóvember og hefur unnið þrjá leiki í röð. Liverpool hefur unnið síðustu tvo leiki sína mjög sannfærandi. Fjórtán rauð spjöld Þó svo að úrslit síðustu ára úr leikj- um þessara erkifjenda segi lítið um hvað koma skal á sunnudag er athyglisvert að skoða þau. United hefur unnið síðustu þrjá deildar- leiki liðanna á Old Trafford, í öll skiptin með einu marki. Síðasti sigur Liverpool á Old Trafford var 4–1 sigur liðsins þann 14. mars 2009 en það tímabil vann United titilinn á meðan Liverpool end- aði í öðru sæti. United hefur unnið átta af síðustu tíu deildarleikjum liðanna á Old Trafford en Liver- pool hefur unnið tvisvar. Athygli vekur að síðasta jafntefli liðanna í deildarleik á Old Trafford kom árið 2000. Frá því að úrvalsdeildin var stofnuð árið 1992 hafa fjórtán rauð spjöld farið á loft í leikjum þessara liða. Liverpool ætti að geta stillt upp sínu sterkasta liði ef undan er skil- inn Jose Enrique sem er meidd- ur. Wayne Rooney, Anderson, Phil Jones og Nani eru frá vegna meiðsla hjá United. Stoke óstöðvandi á heimavelli Það eru fleiri spennandi leikir á dagskránni í enska boltanum um helgina en grannaslagur United og Liverpool. Arsenal tekur á móti Englandsmeisturum Manchester City á sunnudag og þarf nauðsyn- lega sigur til að halda í við Chelsea og Tottenham sem eru í þriðja og fjórða sætinu. Arsenal er í 6. sæti fyrir leiki helgarinnar með 34 stig en City er með 45 stig í 2. sæti. Arsenal hefur verið á þokkalegu skriði síðustu vikur og náð í 13 stig af 15 mögulegum í síðustu fimm leikjum sínum. City hefur unnið síðustu tvo leiki sína eftir óvænt tap gegn Sunderland á öðrum degi jóla. Á laugardag tekur Stoke á móti Chelsea en Stoke hefur ekki tap- að á heimavelli í 17 deildarleikjum í röð. Chelsea er í 4. sæti deildar- innar með 38 stig en Stoke í 10. sæti með 29 stig. n Laugardagur QPR – Tottenham „Harry Redknapp gegn sínum gömlu félög- um. Ég held að Tottenham vinni þetta 3–1 og Gylfi nái að leggja upp eitt mark – í það minnsta.“ Reading – WBA „WBA vinnur þetta, 2–1“ Stoke – Chelsea „Þetta fer 1–1. Þrátt fyrir að hafa misstigið sig upp á síðkastið er Stoke með eina sterkustu varnarlínu deildarinnar og með mjög sterkan heimavöll. Það er ekkert grín að fara á þennan völl. Chelsea verður meira með boltann en ég held að jafntefli verði niðurstaðan.“ Sunderland – West Ham „Þetta er ekki auðveldur leikur að tippa á. Sunderland er eitt leiðinlegasta lið deildarinnar og ég held að West Ham hafi nauman sigur, 1–0.“ Aston Villa – Southampton „Þetta fer 0–0. Steindautt jafntefli hjá tveimur slökum liðum.“ Everton – Swansea „Þetta verður hörkuleikur. Everton-liðið er sterkt á Goodison Park og ég held að þeir vinni þetta 3–1. Þeir eru með hörkulið en ég óttast að þeir muni missa sína sterku- stu menn á næstunni.“ Fulham – Wigan „Þetta eru tvö óútreiknanleg lið. Fulham er á heimavelli og með mann að nafni Dimitar Ber- batov innan sinna raða. Þeir vinna þetta 2–1.“ Norwich – Newcastle United „Ég held að þetta verði mjög fjörugur og skemmtilegur markaleikur sem endar 2–2.“ Sunnudagur Manchester United – Liverpool „Þetta fer 3–1 fyrir United. Ef maður skoðar töfluna þá sést það að getumunur- inn á þessum liðum er mikill. Persie heldur uppteknum hætti og skorar en Suarez djöflar inn einu marki fyrir Liverpool.“ Arsenal – Manchester City „Ég held að Arsenal vinni þetta á sínum heimavelli. Það er kannski óskhyggja en Arsenal á alveg að geta unnið City. Ég segi að þetta fari 2–1 fyrir Arsenal.“ Persie og Suarez á skotskónum DV fékk íþróttafréttamanninn góðkunna, Adolf Inga Erlingsson, til að spá í spilin fyrir leiki helgarinnar. Adolf, sem viðurkennir það fúslega að vera grjótharður stuðningsmaður Manchester United, spáir sínum mönnum sigri gegn erkifjendunum í Liverpool og að grannar þeirra í Manchester City fari tómhentir heim frá Emirates-vellinum í Lundúnum. n Adolf Ingi spáir í leiki helgarinnar í enska boltanum Vissir þú … … að Manchester United hefur unnið sjö heimaleiki í röð í ensku deildinni. … að Harry Redknapp, stjóri QPR, hefur unnið 10 og tapað aðeins 2 leikj- um af 16 gegn liðum sem hann hefur áður stýrt. … að Arsenal er prúðasta lið deildarinnar það sem af er tímabili með aðeins 17 gul spjöld og 1 rautt í 21 leik. … að Liverpool hefur átt 412 skot að marki andstæðingsins í deildinni en Manche- ster United 333. United hefur þó skorað 20 mörk umfram Liverpool. … að Stoke er eina liðið í deildinni sem enn hefur ekki fengið á sig mark úr skoti utan teigs. … að átta varamenn Fulham hafa skorað fyrir liðið á tímabilinu og eru þeir mark- sæknustu varamenn deildarinnar. … að Everton hefur fengið á sig að lág- marki eitt mark í 18 leikjum í röð í öllum keppnum. Síðast hélt liðið hreinu þann 17. september síðastliðinn. … að enginn varnar- maður hefur átt þátt í fleiri mörkum en Leighton Baines hjá Everton frá byrjun leiktíðar 2010/11. Hann hefur skorað 12 mörk og gefið 15 stoðsendingar. … að Robin van Persie hefur skorað 9 mörk í 9 síðustu leikjum sínum fyrir Manchester United. „Það er ekkert grín að fara á þennan völl Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Robin van Persie Þjóðerni: Holland Aldur: 29 Mörk í deildinni: 16 Stoðsendingar í deildinni: 6 Landsleikir/mörk: 71/31 Luis Suarez Þjóðerni: Úrúgvæ Aldur: 25 Mörk í deildinni: 15 Stoðsendingar í deildinni: 3 Landsleikir/mörk: 60/30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.