Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Side 53
Fólk 53 Helgarblað 11.–13. janúar 2013
H
allgrímur samdi lagið
Skuggamynd með bresk/
þýska tónlistarmanninum
Ashley Hicklin. „Ég lagði
fram lagið upprunalega en svo
sendi hann mér breytingar sem
gerðu lagið betra. Sumir myndu
kalla það ballöðu þó þetta sé ekki
rólegt eða hægt lag heldur frekar
nútíma „power“-ballaða.“ Hann
segir að lagið megi flokka með
popplögum þar sem elektrónísk
hljóðfæri eru notuð í bland við
klassísk hljóðfæri eins og selló og
píanó.
Hann hafi valið Klöru Ósk því
hún sé einfaldlega ein af bestu
söngkonum landsins í dag. „Það
var mikill happafengur fyrir okkur
að fá Klöru því hún er bæði svo
glæsilegur flytjandi og góð söng-
kona og einnig með hjartað á rétt-
um stað, hógvær og með báðar
fætur á jörðinni.“
H
ann segir að lagið sé gríp-
andi gleðisprengja með
hlýjum og notalegum texta.
Það sé spilað inn með hljóð-
færi sem kallast guitalele sem er
bræðingur af gítar og ukulele.
„Svo er harmonikka og klukku-
spil þannig að hljóðheimurinn er
einfaldur, hlýr og ögn hippalegur.
Þetta er samt „up-tempo“ lag sem
vonandi á að geta kveikt á gleði-
og hamingjutökkum hjá hlustend-
um. Svavar Knútur gerði megnið af
textanum og textinn endurspeglar
alveg hans góðu gildi sem hafa
fært honum tryggan aðdáenda-
hóp.“
Flytjendur eru Svavar Knútur
og Hreindís Ylva. „Svavar Knútur
hefur virkilega snert hjörtu
þjóðarinnar með fallegum laga-
smíðum, heiðarleika og auðmýkt.
Hreindís Ylva er með þennan fal-
lega, náttúrulega sjarma, bæði í
röddinni og einnig í straumunum
sem hún sendir frá sér.“
Lífið snýst
Skuggamynd
n Svavar Knútur og Hreindís Ylfa
n Klara Ósk syngur Skuggamynd
Vel undirbúin Birgitta
Birgitta Haukdal tekur þátt í
Söngvakeppninni í ár og flytur lag
sitt og Sylvíu Haukdal Brynjars-
dóttur og Jonas Gladnikoff.
Lögin sem taka þátt í undankeppninni
öll lögin á vefnum ruv.
is/songvakeppnin.
Fyrirkomulag
keppninnar er með
breyttu sniði í ár, en
haldin verða tvö und-
anúrslitakvöld sömu
helgi, föstudaginn
25. janúar og laugar-
daginn 26. janúar n.k.
í beinni útsendingu úr
sjónvarpssal RÚV.
Sex lög keppa hvort
kvöldið og mun síma-
kosning skera úr um
hvaða þrjú lög frá hvoru
kvöldi komast áfram. Sex
lög munu því keppa á úr-
slitarkvöldinu, en stjórn-
endur keppninnar hafa vald
til að hleypa einu lagi til við-
bótar áfram ef ástæða þykir til.
Úrslitin verða send út beint
frá Eldborgarsal tónlistarhússins
Hörpu laugardagskvöldið 2. febr-
úar kl. 20.00. Dómnefnd hefur
helmings atkvæðavægi á móti
símakosningu á úrslitakvöldinu.
Þegar stigin hafa verið talin munu
tvö stigahæstu lögin keppa innbyrð-
is. Þau lög verða flutt aftur og síðan
kosið um það í hreinni símakosningu
hvort lagið verður framlag Íslands
þegar Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva 2013 fer fram í Svíþjóð í
maí næstkomandi.
Elíza tekur þátt Meðal
keppenda er tónlistarkonan Eliza
Newman en lag hennar flytur
Unnur Eggertsdóttir sem eitt
sinn lék Sollu stirðu í Latabæ.