Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Blaðsíða 12
É g sé furðulega lítið eft- ir þessu,“ segir maður sem nefbraut kærustu sína á dögunum. Í kjöl- farið steig konan fram og sendi út neyðarkall í DV, hún óttaðist manninn og taldi sig varnarlausa gagnvart hon- um þar sem hún gat ekki feng- ið nálgunarbann á hann. Þau hættu saman eftir atvikið en sjö ára gömul dóttir hennar var heima þegar þetta gerðist og sá allt. Nefbraut hana í „sjálfsvörn“ Nú vill maðurinn segja sína hlið á málum. „Þetta var frek- ar gróf saga eins og hún sagði hana. En það var ekki allt rétt sem þar kom fram. Jú, ég missti mig aðeins og það endaði með því að ég sló til hennar og lög- reglan kom á staðinn. En þetta var sjálfsvörn þar sem hún réðst á mig með skærum.“ Konan kærði manninn í kjölfar árásarinnar. Hún sagði einnig frá því að hún hefði áður leitað til lögreglunnar og þá verið ráðlagt að leggja ekki fram kæru þar sem slíkt gæti espað manninn enn frekar upp. Eftir að hann nef- braut hana fékk hún hins vegar stuðning skilningsríkrar löggu sem hvatti hana til að kæra, sem hún gerði, og það þótt hún gæti ekki fengið þá vernd sem hún óskaði sér. „Ég vil bara stoppa hann af, svo hann haldi ekki áfram að skaða fólk,“ sagði hún í viðtali við DV. DV ræddi við aðra konu sem hefur verið í sambandi með þessum manni og seg- ir einnig sögu af ofbeldi sem hann beitti hana. „Skiljanlegt í ljósi aðstæðna“ Sjálfur segir maðurinn að það geti ekki staðist, hann hafi hvorki beitt þessa konu né aðr- ar ofbeldi. „Ég er ekki ofbeld- isfullur. Það er ekkert í minni sögu sem bendir til þess,“ segir hann: „Þetta atvik var skiljan- legt í ljósi aðstæðna.“ Konan segir að hún hafi tekið sér skæri í hönd en að hún hefði aldrei beitt þeim gegn honum: „Ég var orðin svo hrædd að í einhverri geðs- hræringu tók ég skæri svo ég gæti notað þau mér til varnar. Ekki það, ég hefði ekki notað þau gegn honum. Hann sló þau úr höndunum á mér og kýldi mig síðan.“ Hann segir það rangt, hún hafi elt hann á milli herbergja með skærin á lofti og stungið hann: „Ég reyndi að slá skær- in úr höndunum á henni en þá stakk hún mig og þá sló ég hana í andlitið.“ Þegar hann er beðinn um að sýna sárin eða örin eftir þau segir hann að þau séu svo lít- il „að það væri hálfkjánalegt.“ Segir svo að sér hafi blætt en það ekki hafi þurft að sauma eða neitt þess háttar. Klippti brjóstahaldarann Konan sagði að áður hefði hann farið inn á bað og klippt brjóstahaldarann hennar í tvennt. Hann staðfestir það. „Ég kom svo til hennar og þeg- ar við vorum að tala saman fór ég inn á bað og klippti brjósta- haldarann hennar í sundur.“ Hún reiddist og bað hann um að fara. „Þá fór hann inn í fataherbergi og reif niður kjól- ana mína. Ég sagði honum að fara út en hann brjálaðist, tók í höndina á mér með þennan geðveikisglampa í augunum.“ Hann segir að hann hafi svo verið á leiðinni út þegar hann réðst á hana vegna þess að hann þurfti að sækja poka sem var fyrir aftan hana en hún hleypti honum ekki að. „Hún var svo brjáluð að hún hleypti mér ekki að pokanum. Kannski var hún að reyna að espa upp einhverja geðveiki á milli okkar með því að haga sér svona, til að geta kastað svona sögu fram og kallað sjálfa sig fórnarlamb.“ Fannst hún eiga þetta skilið Hann viðurkennir að hann sé bæði stærri og sterkari en hún og að sennilega hafi hann átt aðra leið út úr þessum að- stæðum. „En akkúrat á þess- um tíma og í þessum aðstæð- um fannst mér hún eiga þetta skilið. Auðvitað sá ég svo eftir þessu um leið. Ég ætlaði ekk- ert að meiða hana. En heldur þú að hún hefði ekki líka get- að leyst þetta öðruvísi en að hlaupa á eftir mér með skær- um?“ Við höggið sprakk bláæð í nefi konunnar með þeim af- leiðingum að blóð skvettist út um allt, auk þess sem hún nef- brotnaði. Sjö ára gömul dóttir konunnar sá allt, rak mann- inn út og reyndi að þrífa blóð- ið upp. Hann segir að á þeim tveimur árum sem hann hafi verið í sambandi með þessari konu hafi hann myndað sterk tengsl við þessa litlu stelpu. Hann segist oft hafa hugsað til hennar en gefur þó lítið út á það þegar hann er spurður að því hvernig honum líði gagn- vart því að hún hafi séð hann beita mömmu sína ofbeldi. „Mamma hennar var með skærin á lofti. Var það ekki líka fyrir framan hana?“ Tekinn með gras Í viðtali við DV sagði konan að þetta hefði ekki verið í fyrsta sinn sem hann hefði ráðist á hana. Nefndi hún atvik þar sem hann vakti hana með lát- um um miðja nótt vegna þess að einhver hringdi úr ókunn- ugu númeri. Hún sagði að þá hefði hann hrist hana alla til, kallað hana illum nöfnum og dregið hana niður. Daginn eftir hefði hann svo sparkað í bak- ið á henni og kýlt hana svona fimm, sex sinnum í andlitið. „Réðst ég á hana? Nei, ég réðst ekki á hana,“ segir hann. „Það voru strákar í hennar lífi sem hún faldi fyrir mér. Ég vakti hana til að spyrja hver þetta væri. Hún fékk svo mik- ið sjokk yfir því að ég væri bú- inn að komast að því að hún snappaði.“ Lögreglan var kölluð til en konunni var ráðlagt að kæra ekki til að espa hann ekki frekar upp. „Hún hringdi allt- af í lögregluna til að búa til aðstæður. Við rifumst og ég var á leið- inni út þegar ég mætti lögregl- unni í dyrunum . Það endaði með því að ég var böstaður með gras,“ segir maðurinn en hann drekkur afar sjaldan en fær sér stundum jónu. Kastaði tölvu í vegg Hún sagði einnig að hann hefði rústað íbúðinni sinni og kastað tölvunni sinni í vegginn, en hann segir að hann hafi bara tæmt íbúðina og skilið einhver föt eftir á gólfinu. Hann seg- ir að það sé rétt að hann hafi kastað tölvunni hennar í vegg- inn, en það hafi verið annars eðlis. „Það var ekki ofbeldi,“ segir hann. Ástæðan var sú að þegar hann vaknaði einn morgun- inn hafði hún sent fyrrverandi eiginmanni sínum kveðju á Face book. „Það voru skilaboð, spjall og fleira. Hún var alltaf að fela öll samskipti við hann og mér fannst það óþægilegt,“ segir hann og bætir því við að hann hafi verið afbrýðissamur. Var afbrýðissamur Hann segir að sennilega hafi þau bæði verið með bull- andi þráhyggju. „Á milli okk- ar var mikil ástríða og mikið vantraust. Ég var með þrá- hyggju gagnvart henni og hún var líka með endalausa þrá- hyggju varðandi það að ég væri með öðrum stelpum. Það var farið að láta mér líða mjög illa,“ segir hann en skilaboð frá honum gefa til kynna að hún hafi haft ástæðu til að hafa áhyggjur. Þegar hún spurði hvort hann hefði haldið framhjá svaraði hann: „Og vildi óska þess að þær hefðu verið fleiri, því þú átt það skilið. Verst að ég gat ekki smitað þig af eyðni :)“ Hún sagði frá þessu í við- tali við DV en það fannst hon- um lélegt. „Hún er að nefna hluti sem ég segi í bræði. Ég hélt ekki fram hjá henni en af því að hún var endalaust að tala um það sagði ég þetta til að æsa hana upp. Þetta eru orð sem hafa ekkert innihald eða meiningu, aðra en að pirra hana. Og að nefna svona hluti í viðtali er mjög lágkúrulegt. Ég sagði þetta í bræði.“ 12 | Fréttir 9.–11. september 2011 Helgarblað n Fannst hún eiga þetta skilið n „Ég var með þráhyggju gagnvart henni“ n Segir enga ástæðu til að vinna með bræðina n Mér þarf ekki að líða eins og ofbeldismanni n Ég lenti bara í einhverju biluðu þunglyndi, segir konan n Samkvæmt nýlegri íslenskri rannsókn hafa rúmlega 22% íslenskra kvenna verið beittar líkamlegu og/eða kynferðis- legu ofbeldi í nánu sambandi einhvern tíma frá 16 ára aldri. Þetta jafngildir því að á bilinu 23.000-27.000 konur á Íslandi hafi verið beittar ofbeldi af þessu tagi einhvern tíma á ævinni. n Á síðasta ári leituðu 375 konur í Kvennaathvarfið, þar af komu 118 konur til dvalar ásamt 54 börnum vegna þess að dvöl á heimilum þeirra var óbærileg vegna ofbeldis. Það sem af er árs hafa 38 börn dvalið í athvarfinu til lengri eða skemmri tíma. n Þann 5. júní 2011 samþykkti Alþingi frumvarp til laga um nálgunarbann og brottvikningu ofbeldismanns af heimili. Lögin gefa lögreglustjóra heimild til að fjarlægja ofbeldismann af heimili og meina honum að koma þangað í tiltekinn tíma. Lög- unum er ætlað að styrkja stöðu brotaþola ofbeldis á heimilum. n Í 84% tilvika fór ofbeldið fram á heimili konunnar, ofbeldis- mannsins eða öðru heimili. n Þegar þær voru spurðar út í síðasta ofbeldisatvik mátu um 75% kvennanna það sem mjög eða frekar alvarlegt. Engu að síður kærðu aðeins um 13% kvennanna atvikið til lögreglu. Af þeim sem kærðu málið til lögreglu voru 65% þeirra mjög sáttar eða sáttar við það hvernig lögreglan tók á málinu. 11% vildu þó að lögreglan hefði handtekið ofbeldismanninn. Staðreyndir um heimilisofbeldi Nefbraut kærustuNa og sér lítið eftir því Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Viðtal 22 | Viðtal 24. ágúst 2011 MIðvikudagur Viðtal | 23 MIðvikudagur 24. ágúst 2011 Ofsótt af óðum kærasta H vað á ég að gera? Á ég að sitja hér og lifa í ótta þar til hann finnur sér nýtt fórn- arlamb?“ spyr kona á fertugsaldri sem lagði fram kæru á hendur fyrrverandi kærasta sínum til tveggja ára í gær. Sambandinu lauk endan- lega þegar hann nefbraut hana síðasta laugardag fyrir framan sjö ára gamla dóttur hennar. Virkaði bara sætur strákur Þar sem málið er í rannsókn hjá lögreglunni vill konan ekki koma fram undir nafni að svo stöddu, því hún óttast að það gæti eyðilagt fyrir sér. Hún lif- ir þó ekki í skömm vegna þess sem gerðist heldur segir öllum frá því sem gerðist. Enda varla hjá því komist þar sem hún er með glóðarauga á báðum. Og til hvers að ljúga til þess að verja hann spyr hún. „Ég veit alveg að ég gerði ekkert rangt. Ég vil bara stoppa hann af, svo hann haldi ekki áfram að skaða fólk. Mér er sagt að skipta mér ekki af því ef hann finnur sér annað fórnarlamb en hver á þá að láta þessar stelpur vita?“ Þau kynntust fyrir tveimur árum. Hann birtist í lífi henn- ar þegar hún var að skilja við æskuástina og eiginmann sinn til tíu ára. Saman áttu þau tvö börn, en það reyndi á þegar þau urðu fyrir alvarlegu áfalli og að lokum sáu þau sér ekki fært að halda áfram. Svo þau skildu. En þá hitti hún þenn- an strák, sem virkaði svo heil- brigður og flottur. Hann var í háskólanámi og stundaði úti- vist af kappi, gekk á fjöll og renndi sér á snjóbretti. „Þetta hljómar rosa vel,“ segir hún og bætir því við að hann sé voða sætur strákur. „Hann lítur ekki út fyrir að vera einhver geð- sjúklingur.“ Bréf sem kom á óvart Þar að auki bjó hann erlendis þar sem hann stundaði nám. Það hentaði henni fínt því hún ætlaði sér ekki strax aft- ur í alvarlegt samband. „Fyr- ir mér var hann eins og plást- ur á meðan ég var að ganga í gegnum skilnaðinn. Þetta átti aldrei að verða neitt alvarlegt. En hann byrjaði strax að þjösn- ast á mér og segja að ef ég elsk- aði hann, ef ég væri hrifin af honum þá kæmi ég út til hans í heimsókn.“ Svo hún splæsti í flugmiða. Skömmu seinna fékk hún svo bréf og efni þess kom henni verulega á óvart. „Þetta var frá stelpu sem sagðist vera barnshafandi eftir hann og búa með honum. Ég kom af fjöllum því hann hafði aldrei minnst á annan kvenmann og ég var ekki bara orðin hrifin af hon- um heldur var ég einnig búin að sofa hjá honum. Ég sendi honum því bréf og spurði hvort þetta væri rétt en hann laug því þá að mér að þau væru ekki í eiginlegri sambúð heldur hefði hann leyft henni að búa hjá sér þar sem hún væri orðin ólétt eftir hann. Hann hefði frekar kosið að hún færi í fóstureyð- ingu því það væri ekkert á milli þeirra. Ég vildi trúa þessu og gerði það í blindni.“ Fleiri reyndu að vara hana við. Hún fékk til dæmis SMS þar sem hún var beðin um að kynna hann ekki fyrir börnun- um sínum. En aftur náði hann að sannfæra hana um að þetta væri afbrýðisöm fyrrverandi kærasta. Aldrei kynnst eins ljúfum manni Hún fór svo út að hitta mann- inn. Seinna frétti hún að hann hefði hent hinni konunni út og jafnvel verið „vondur við hana“, eins og hún orðar það. „En hann var svo góður við mig að ég gat ekki trúað því að það væri eitthvað vont í honum. Eftir ellefu rómantíska daga fór ég aftur heim og var þá alveg í skýjunum yfir því hvað hann væri æðislegur.“ Viku seinna kom hann heim til Íslands og bauð henni upp í bústað. „Ég hafði aldrei kynnst eins ljúfum manni.“ Tveimur vikum eftir að hann fór aftur út hringdi hann og sagðist vera hættur í skólan- um, hann væri að flytja aftur til Íslands því hann gæti ekki lifað án hennar. „Ég vissi ekki hvað ég var komin út í en ég var skotin í honum og brotin eftir skilnaðinn.“ Henni gafst heldur aldrei færi á að jafna sig almenni- lega á skilnaðinum því kær- astinn varð strax afbrýðisam- ur út í hennar fyrrverandi. „Mjög fljótlega var þetta orðið þannig að ég mátti ekki tala við minn fyrrverandi án þess að hann væri með mér og þá bara um börnin. Mér fannst þetta mjög skrýtið því okkar sam- skipti voru ekki á þeim nótum að hann þyrfti að vera afbrýði- samur. Við höfum samt allt- af verið góðir vinir og vorum í sama vinahópi í mörg ár áður en við tókum saman.“ Hataði alla vinina Hún lét þetta ekki slá sig út af laginu. Eftir á að hyggja sér hún samt að smám saman var hún að einangrast frá bæði fjöl- skyldu sinni og vinum. En þar sem hún vildi gera allt rétt ákvað hún að kynna hann fyrir öllum vinum sínum, strákum jafnt sem stelpum. Svo hún tók rúnt- inn. Honum hugnaðist þó fæst- ir af hennar vinum: „Eftir smá tíma var hann farinn að tala um að hann hataði þennan og svo hinn. Smám saman einangrað- ist ég. Að lokum var hann hætt- ur að þola alla mína vini. Hann varð að finna eitt- hvað á mig og bannaði mér að drekka. Hann komst líka upp á kant við systur mína vegna þess að við nutum þess að spjalla saman yfir góðum mat og rauð- vínsglasi. Hann tók hana afsíð- is og sagði að hún ætti ekki að vera með vín í kringum mig. Hún kom af fjöllum og skildi ekki hvað hann var að fara með þetta. En þar sem þetta skipti mig ekki öllu máli samþykkti ég að sleppa því bara að fá mér vín með matnum.“ Rústaði íbúðinni Stjórnsemin ágerðist stöð- ugt. „Hann þoldi ekki þegar ég skrapp út. Ein vinkona mín átti það til að draga mig með sér í bæinn á búðarölt eða á kaffi- hús en fyrir vikið fór hún alveg agalega í taugarnar á honum. Málið er bara að ég er mikil félagsvera og hef gaman af því að vera í kringum fólk.“ Oft kom það henni í bobba. Einu sinni frétti hún það frá vinum sínum að hann hefði talað illa um hana, borið hana saman við sína fyrrverandi þannig að hún kom illa út. „Ég varð rosalega sár og hringdi í hann til að segja að ég gæti ekki verið með honum ef þetta væri hans álit á mér og hann væri að tala svona um mig. Hann trylltist.“ Daginn eftir átti dóttir hennar afmæli. Svo hún fór til barnsföður síns og fyrrverandi eignmanns til að halda henni smá veislu. „Þá tapaði hann sér algjörlega. Samt var ekki eins og ég væri að fara að byrja aftur með fyrrverandi eigin- manni mínum. Það var ég sem skildi við hann á sínum tíma. En þegar ég kom heim þá var hann búinn að rústa íbúðinni minni, það voru föt og dót úti um allt. Svo ég hringdi í lög- regluna.“ Sonurinn er farinn „Sonur minn er farinn frá mér út af þessum manni,“ segir hún svo. Hann er enn í grunn- skóla og fékk að flytja aftur í gamla heimabæinn þeirra. Það var nefnilega þannig að þegar fyrrverandi eiginmaður henn- ar átti afmæli sendi hún hon- um kveðju – „til hamingju með daginn, njóttu hans.“ Kærastinn sem hafði auðvitað aðgang að Facebook-svæðinu hennar sá kveðjuna þegar hann vaknaði og kastaði tölvunni í vegginn. „Sonur minn varð svo hrædd- ur að hann bað frænku sína um að sækja sig og vildi ekki koma aftur heim. Ég gat ekki gert barninu mínu það að lifa í ótta hjá mér. Svo ég leyfði honum að fara. Hann þekkir sig líka best í okkar gamla bæ. En mér finnst það auðvitað hræðilegt. Það er líka hræðilegt að systkinin séu ekki saman.“ Tveimur dögum seinna fór hún sjálf. Þá kom frænka hennar í heimsókn og hann rauk upp, öskraði á þær báðar, fór út og skellti hurðinni á eft- ir sér. „Þá bað ég frænku mína um að staldra við og pakkaði dótinu mínu niður og fór frá honum til hennar. En í ein- hverjum einmanaleika hætti ég við þegar hann kom aftur með skottið á milli lappanna og lofaði öllu fögru. Ég hafði samt varann á og hleypti honum ekki alveg að mér. Hann borgaði til dæmis aldrei húsaleigu.“ Sjúklegt lostasamband Eftir að hann öskraði á bróður hennar í fjölskylduboði hafa for- eldrar hennar ekki heldur viljað koma í heimsókn. Í raun hafa nánast allir í kringum hana sagt henni að hætta að hitta þennan mann, því það sé greinilega eitt- hvað að. „Um leið finnst mér ég svo lítillækkuð því ég tek alltaf við honum. En hann ber enga virðingu fyrir einu né neinu.“ Hún hrífst ekki af mönn- um sem eru með machostæla, enda kom hann ekki þannig fyrir í byrjun. Þegar sambönd eru svona sjúk getur líka verið erfitt að slíta þeim, segir hún. „Þetta var sjúklegt lostasam- band, hatur og ást. Kynlífið var alveg geðveikt og þegar allt lék í lyndi gat ég ekki hugsað mér að hann veitti annarri stelpu þennan unað sem hann veitti mér. Það er mjög erfitt að losa sig út úr þessu og ég get alveg sagt þér að ég er búin að gráta mikið síðustu daga,“ segir hún klökk. „Það kemur alveg upp hjá mér söknuður eftir því góða sem við áttum saman en ég vil ekki sjá hann. Ég vil ekki að hann komi nálægt mér eða mínum.“ Vakin með látum Það var svo í desember sem hann lagði fyrst á hana hend- ur. Þá hafði hún farið út í pók- er með vinkonu sinni og rekist þar á aðra vinkonu. Sú hringdi í hana klukkan tvö að nætur- lagi. „Áður en ég vaknaði og gat svarað vakti hann mig með látum, hristi mig alla til, kall- aði mig öllum illum nöfnum og dró mig niður. Ég reyndi að segja honum að ég vissi ekki hvaða númer þetta væri en þetta væri pottþétt enginn karlmaður þar sem ég var búin að slíta sambandi við alla mína strákavini og meira að segja búin að loka á suma á Facebo- ok. Auðvitað var það algjör geðveiki og ég hefði átt að átta mig á því en ástin getur ver- ið blind og ég hélt að ég gæti hjálpað honum. En hann vildi ekki hlusta. Ég henti honum út en næsta morgun kom hann aftur og sparkaði í bakið á mér, fleygði mér niður og kýldi mig svona fimm, sex sinnum í andlitið.“ Leið eins og hvítu hyski Í kjölfarið hringdi hún aftur á lögregluna. „Ég fékk það á til- finninguna að ég væri bara hvítt hyski sem léti þetta yfir sig ganga, eins og ég þyrfti að verja það hvað ég hefði verið að gera og af hverju hann gerði þetta gagnvart mér. Mér var sagt að lögreglan yrði að tala við barnavernd en börnin voru ekki einu sinni heima þar sem þetta var pabbahelgi. Síðan var sett út það að það væri drasl heima hjá mér, jú, það var drasl en maðurinn hafði líka gengið berserksgang heima hjá mér og ég hafði farið út kvöldið áður og kastað einhverjum föt- um á sófann. En þetta var ekk- ert sem ég gat ekki tekið saman á nokkrum mínútum. Þannig að ég upplifði hroka gagnvart mér.“ Seinna fór hún svo upp á lögreglustöðina í Breiðholti og ræddi við lögreglumann á vakt. Hann var mjög almennilegur en varaði hana þó við því að ef hún legði fram kæru á hendur manninum væri viss hætta á því að hann myndi æsast enn frekar upp. „Ég gaf skýrslu en var ráðlagt að kæra ekki því ég var hvort eð er ekki stórslös- uð, ég var ekki brotin eða neitt slíkt.“ „Vona að þú fáir frið í hjarta“ Nokkrum dögum seinna sendi hann henni svo SMS: „Þú ert svo falleg, yndisleg og frábær bið fyrir ykkur og vona að þú fáir frið í hjarta og líði betur með sjálfa þig og þá sem þér þykir vænt um <3<3<3“ Hann ætlaði ekkert að gef- ast upp og var í stöðugu sam- bandi við hana, með ýmiss konar játningar og yfirlýsing- ar. Þann 20. desember sendi hann til dæmis: „Æj S mín :-* við elskum hvort annað svoo heitt!!! En viljum við halda áfram í stríði við ástina, eða gefa henni frið svo hjartað slái amk rétt?? Því ég get ekki meir af reiði og áhyggjum yfir þér sem ég elska svo heitt <3<3<3“ Hún fór til ráðgjafa sem hjálpaði henni að takast á við afleiðingarnar og vera sterk en með endalausum ástarjátn- ingum og fögrum orðum tókst honum að vinna hana aftur. „Maður verður háður þess- um fögru orðum,“ segir hún og andvarpar um leið og hún hristir husinn af vanþóknun. Þráði fjölskyldulíf Hann stóð sig síðan vel í allan vetur en þegar skólanum lauk í vor byrjaði ballið aftur. „Síð- ustu fjóra mánuði var hann hjá mér, einstæðri móður í lág- launavinnu, án þess að leggja sitt af mörkum til heimilisins. Þannig hefur það verið, mynstrið, síðan við kynnt- umst, hann var góður í þrjá mánuði en sprakk svo. Hann er tifandi tímasprengja og hagaði sér oft eins og vitleys- ingur. Það fór auðvitað í taug- arnar á mér en svona menn eru snillingar í því að eigna sér konur, fyrst með því að ýta vinum mínum frá mér og síð- an fjölskyldunni. Ég veit það, að ef ég hefði haldið þessu áfram hefði ég ekki átt neinn að nema hann.“ Fyrir rúmum mánuði fékk hún svo nóg og henti honum út. Viku síðar komst hún að því að hún væri ólétt. Hann lét sér ekki segjast og hélt áfram að reyna. „Þegar ég sagði honum að ég væri ófrísk en vildi ekki taka við honum aftur þá hringdi hann í barnaverndarnefnd og sagð- ist vera hræddur um að ég væri farin á fyllerí og í dóp. Ég fór ekki á fyllerí. Aftur á móti fór ég strax að taka fólín- sýrur þó að ég vissi ekki hvort ég gæti ekki átt þetta barn. Ég þráði þetta fjölskyldulíf en vissi það innst inni að ég gæti ekki leyft þessum manni að fylgja mér allt mitt líf. Ég var því rosa- lega viðkvæm.“ „Með geðveikisglampa í augunum“ Í síðustu viku kom hann svo heim til hennar og gekk beint inn á bað þar sem hann klippti brjóstahaldarann hennar í sundur. Morguninn eftir sá hún þetta, reiddist og bað hann að fara. „Þá fór hann inn í fataherbergi og reif niður kjól- ana mína. Ég sagði honum að fara út en hann brjálaðist, tók í höndina á mér með þennan geðveikisglampa í augunum.“ Dóttir hennar var heima og vegna hennar hélt hún ró sinni en var ákveðin í því að hann yrði að fara. Hann lét ekki segj- ast og reyndi að henda óhreina tauinu ofan í klósettið. „Ég var orðin svo hrædd að ég tók skæri sem ég gæti not- að mér til varnar í ein- hverri geðshræringu. Ekki það, ég hefði ekki notað þau gegn honum. Hann sló þau síðan úr höndunum á mér og kýldi mig síðan.“ Óttinn og sárs- aukinn tóku völd- in og það sem gerð- ist næst er í þoku. „Dótt- ir mín segir að hann hafi kýlt mig ítrekað en ég er nán- ast viss um að hann hafi bara kýlt mig einu sinni í andlitið en tekið á mér víðar. Ég er allavega marin og blá bæði á hálsinum og líkamanum.“ Gæti hann drepið? „Ég sá það að hann var tilbú- inn til að drepa mig.“ Hún seg- ir að þegar morð var framið á Íslandi um daginn hafi hann sagt að það væri ekki skrýtið að menn færu þessa leið því af- plánunin er svo stutt. „Ég var sammála því og við ræddum þetta aðeins. Seinna velti ég því fyrir mér hvort hann væri jafnvel maður til þess að gera þetta sjálfur. Hann virðist ekki hafa stjórn á sér svo það gæti endað illa þegar hann byrjar. Hann er svo eigingjarn á mig að ég held að hann sé til- búinn til að gera ýmislegt til að missa mig ekki.“ Henni stóð allavega ekki á sama þegar hún stóð frammi fyrir honum í eldhúsinu Hún átti sér einskis ills von þegar hún kynntist þessum sæta strák sem stundaði háskólanám og gekk á fjöll. Þegar hann sagðist hata meira og minna alla vini hennar runnu þó á hana tvær grímur og ekki skánaði það þegar hann rústaði íbúðinni í afbrýðisemikasti. Með fagurgala tókst honum þó alltaf að vinna hana til sín aftur þar til hann nefbraut hana í síðustu viku fyrir framan sjö ára dóttur hennar. Nú er hún búin að kæra en er óttaslegin og þráir vernd, enda ekkert sem getur haldið honum í burtu og hún veit aldrei upp á hverju hann tekur næst. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Viðtal Áverkarnir Þessi mynd er tekin nokkrum dögum eftir að maðurinn nef- braut hana. Hér sést að áverkarnir voru verulegir þótt erfitt sé að greina skurð við annað augað og stóra kúlu á enninu. Viðvörun! Konan hefur lúmskan grun um að maðurinn sé kominn með nýtt fórnarlamb í sigtið þótt hann sé ekki búinn að sleppa tökunum á henni og reyndi að vara viðkomandi við með því að deila sinni sögu með henni í gegnu m Facebook. Hún fékk ekkert svar. Sláandi status Sonur konunnar setti þennan status inn á Facebook. Hann er enn í grunnskóla og hefur auðvitað áhyggjur af mömmu sinni. Hér sést hvernig langamma hans svaraði honum. „Ég sá það að hann var tilbú- inn til að drepa mig. „Eiga svona menn bara að ganga um lausir þar til þeir drepa einhvern? 24. ágúst síðastliðinn „Mér líður þannig. Eins og allt sé brotið í tætlur. Heimurinn hrundi Konan er enn að glíma við alvarlegar afleiðingar ofbeldisins en hún fór ansi langt niður eftir árásina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.