Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Blaðsíða 54
54 | Fólk 9.–11. september 2011 Helgarblað H eilsudrottningin Linda Pétursdóttir virðist hafa fundið ást- ina eftir að hafa verið einhleyp árum sam- an. Skoski leikarinn Tav Mac- Dougall hefur dvalið á land- inu síðan um liðna helgi. Kom hann í heimsókn til Lindu sem býr á Álftanesi. Víða hefur sést til parsins sem leiðst hefur um miðborg Reykjavíkur og víðar. Leið þeirra lá meðal annars á Kaffi París þar sem þau gæddu sér á cappucino. Þá sást til þeirra í innkaupum í verslun- inni Kosti í Kópavogi. Heimildum DV ber saman um að ekki hafi leynt sér að ást- in hafi tekið sér bólfestu í hjört- um beggja. Uppfærslur Lindu á Facebook þykja staðfesta að ástin sé komin í líf hennar. Sjálf vildi Linda fátt um málið segja þegar DV hafði samband við hana. „Ég get staðfest að ég er hamingjusöm kona. Meira fáið þið ekki að vita,“ sagði Linda. MacDougall, sem er rúmlega fertugur eins og Linda, á að baki langan feril sem leik- ari. Hann starfar fyrst og fremst í leikhúsum en hefur einnig komið fram í kvikmyndum og fjölda sjónvarpsmynda. Þeirra á meðal eru hinir vinsælu þættir Taggart og Rebus. Hann var í aukahlutverki í einni af Harry Potter-myndunum. Linda hefur undanfarin ár einbeitt sér að rekstri Baðhúss- ins sem hún stofnaði um það leyti sem hún var kjörin Miss World. Djarfar auglýsingaher- ferðir fyrirtækisins hafa jafnan vakið athygli. Í yfirstandandi herferð kemur Linda fram á sundbol og hvetur konur til að mæta í Baðhúsið. Uppeldi einkadótturinnar, Ísabellu, hefur átt hug henn- ar undanfarin ár. Þrátt fyrir að vera ein eftirsóttasta kona landsins hefur hún lítið gef- ið sig að karlmönnum und- anfarin ár fyrr en nú þegar Skoti virðist hafa fangað hjarta hennar. n Heilsudrottningin Linda P. ástfangin n Nýi kærastinn skoskur leikari n Lék í Harry Potter-mynd Linda með nýjan kærasta Glæsilegt par Linda er hamingjusöm með Skotanum Tav MacDougall. myNdir GuNNar GuNNarssoN róleg á range Linda og Tav hafa sést leiðast um miðborg Reykjavíkur. Ánægð Linda segist hamingjusöm kona. I nnkoma framherjans stór- efnilega Björns Bergmanns Sigurðarsonar hjá íslenska landsliðinu gegn Kýpur á þriðjudagskvöldið var ekki bara merkilegur áfangi á hans ferli en þetta var hans fyrsti A-lands- leikur. Björn varð þar með fjórði sonur Skagakonunnar Bjarn- eyjar Þórunnar Jóhannesdóttur sem spilað hefur með íslenska landsliðinu í fótbolta. Bjarney eignaðist synina Þórð, Bjarna og Jóhannes Karl með fyrrverandi landsliðsþjálf- aranum Guðjóni Þórðarsyni og Björn Bergmann eignaðist hún síðan í seinna hjónabandi. All- ir fjórir hafa nú spilað landsleik fyrir Íslands hönd. „Þetta var al- gjörlega frábært. Ég hefði bara viljað að hann kæmi fyrr inn á,“ segir Bjarney sem var á vellinum gegn Kýpur og sá yngsta soninn skjóta í stöngina í sínum fyrsta landsleik. „Það er mjög gaman að allir hafa spilað landsleik. Það þýðir að þeim hefur öllum gengið vel,“ segir Bjarney. Sem ungir dreng- ir ólu þeir sig að stóru leyti upp sjálfir á Jaðarsbökkum þar sem þeir spiluðu fótbolta frá morgni til kvölds. „Þeir voru allir, alltaf úti í fótbolta. Það þurfti nú samt stundum að hafa fyrir þeim en allir eru þeir afskaplega viðráð- anlegir strákar.“ Björn Bergmann er lang- yngstur og spilar sem atvinnu- maður með Lilleström í Nor- egi en allir fjórir hafa spilað sem atvinnumenn. Þórður og Bjarni komu heim fyrir fimm árum og von er á Jóhannesi Karli heim næsta sumar. „Það er mjög mikill munur að hafa þá heima. Það er mjög erfitt þeg- ar öll barnabörnin eru erlend- is,“ segir Bjarney en Jóhannes á fjóra syni. „Hann ætlar bara að verða eins og ég,“ segir Bjarney og hlær. Er Björn Bergmann, nýjasti landsliðsmaðurinn mjög ólík- ur bræðrum sínum? „Þeir eru allir ólíkir. Enginn af þeim er eins,“ segir Bjarney en aðspurð hver hafi verið mesti grallarinn í æsku var fótboltamamman ekki lengi að svara: „Ætli það séu ekki Jói Kalli og Bjarni saman. Það munar bara einu ári á þeim þannig að þeir voru alltaf eitt- hvað að bralla.“ Með fjóra fótboltamenn í veislu myndu eflaust margir búast við einhverjum metingi en Bjarney segi svo ekki vera hjá þessum strákum. „Nei, alls ekki. Það er afskaplega gott á milli þeirra og þeir eru voða já- kvæðir hver fyrir annars hönd,“ segir fótboltamamma Íslands, Bjarney Þórunn Jóhannesdóttir. tomas@dv.is Er móðir fjögurra landsliðsmanna n Bjarney Jóhannesdóttir er fótboltamamma Íslands mögnuð mamma Bjarney hefur alið fjóra landsliðsmenn í fótbolta. myNd siGtryGGur ari Landsliðsmenn Synir Bjarneyjar, þeir Þórður, Bjarni og Jóhannes Karl, hafa allir leikið með landsliðinu. myNdir reuters yngsti sonurinn Björn Bergmann varð nýlega fjórði sonur Bjarneyjar til að spila með íslenska A-landsliðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.