Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2011, Blaðsíða 44
K onur sem fá sér áfeng­ an drykk á kvöldin eru hamingjusam­ ari í ellinni en aðrar. Í læknaritinu PLoS kemur fram að konur sem fá sér glas af bjór, léttvíni eða einföldum sterkum drykk daglega eru líklegri til að við­ halda góðri heilsu um sjö­ tugt en þær konur sem drekka mikið áfengi eða snerta aldrei áfengi. Í ljós kom að fimmtug­ ar konur sem drekka einn til tvo áfenga drykki á dag eru 28 prósentum líklegri til að vera heilsuhraustar og lausar við sjúkdóma líkt og krabbamein, sykursýki og hjartakvilla þeg­ ar þær ná sjötugu. Konur sem drekka 5–7 daga vikunnar eru tvöfalt líklegri til að vera heilsuhraustar í ellinni en þær sem drekka aldrei. Vísindamenn vita ekki hvort góða heilsan sé áfeng­ inu sjálfu að þakka eða hvort það sé eitthvað annað í lífi kvennanna sem geri þær hraustari. Breytur sem gætu haft áhrif á útkomuna, líkt og reykingar, voru teknar með í reikninginn. „Hófleg drykkja veitir ein­ hverja vörn gegn hjartasjúk­ dómum, sérstaklega fyrir konur sem komnar eru yfir breytingarskeið. En mikilvægt er að halda drykkjunni í hófi,“ segir Natasha Stewart hjá bresku hjartasamtökunum. „Of mikil drykkja veitir enga vörn og getur frekar skemmt hjartað. Og ef þú drekkur ekki áfengi er engin ástæða til að byrja núna. Til eru mun betri leiðir til að huga að heilsunni, eins og að hætta að reykja, borða hollan mat og hreyfa sig.“ Bill Clinton þurfti að gjörbreyta mataræði sínu eftir að hafa gengist undir tvær hjartaað­ gerðir árið 2004. Nú borðar for­ setinn fyrr­ verandi mikið af grænmeti og ávöxtum en forðast kjöt, mjólk­ urvörur og egg. Það er engin „ein með öllu“ handa Clinton í dag. Grínistinn Ellen DeGeneres borðar engar dýraafurðir. „Ég geri það af því að ég elska dýr,“ sagði Ellen í viðtali við Katie Couric. Eiginkona Ellenar, leikkon­ an Portia de Rossi, er einnig grænmetisæta en matseðillinn í brúðkaupi þeirra árið 2008 samanstóð af alls kyns græn­ metisréttum. Leikkonan Alicia Silverstone gerðist grænmetisæta fyrir ára­ tug síðan eftir að hafa horft á heimildarmynd um bandaríska matvælaiðnaðinn. Árið 2009 gaf hún út bókina The Kind Diet þar sem hún gaf lesendum sniðug ráð og uppskriftir. Leikarinn fyndni Russ­ ell Brand hefur verið grænmetis­ æta frá 14 ára aldri. „Það er ljótt að borða dýr,“ lét leik­ arinn eitt sinn hafa eftir sér. Bítillinn fyrrverandi Paul McCartney hefur verið virkur í starfi fyrir PETA. Hann segir eitthvað hafa gerst innra með sér þegar hann var á veiðum. „Ég var að draga grey fisk­ inn á land og hugsaði með mér að ég væri að drepa hann vegna gleðinnar sem það færði mér. Á meðan ég horfði á hann berjast fyrir lífi sínu skildi ég að hans líf var honum jafnmikilvægt og mitt er mér.“ Frægar græn- metisætur 44 | Lífsstíll 9.–11. september 2011 Helgarblað Allt á einum stað! Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir Þú færð fría olíusíu ef þú lætur smyrja bílinn hjá okkur Komdu með bílinn til okkar og þú færð fría ástandsskoðun Skál! Þær konur sem drukku daglega mældust heilsuhraustari um sjötugt en þær sem drukku aldrei áfengi. n Samkvæmt rannsókn borgar sig fyrir konur að drekka áfengi daglega. Konur sem drekka eru hraustari V ið vorum orðin úr­ kula vonar um að geta eignast barn og vorum farin að gæla við að ættleiða. Ég þoldi ekki að þurfa að dæla í mig öllum þessum hormónum og upplifa þessi svekkelsi æ ofan í æ,“ segir Elísa Dröfn V. Tryggvadóttir hjúkrunarfræði­ nemi en hún og maður hennar, Ríkarð Svavar Axelsson stýri­ maður höfðu lengi reynt að eignast saman barn án árang­ urs. „Við vorum hjá Art Medica í þrjú ár og fórum í þrjár tækni­ sæðingar og þrjár glasameð­ ferðir. Það tókst aldrei – nema í síðustu meðferðinni. Þá kom strákurinn okkar undir,“ seg­ ir Elísa en Tryggvi Fannar er tæplega þriggja ára. „Við vor­ um mjög hamingjusöm að fá hann en planið var alltaf að eignast annað barn saman en við ákváðum að geyma næstu meðferð aðeins þar sem þetta er dýrt. Okkur til undrunar varð ég svo óvænt ófrísk án hjálpar,“ segir Elísa sem fæddi litla stelpu fyrir 14 mánuðum sem hefur fengið nafnið Hrafn­ hildur Freyja. „Eftir að hún kom í heiminn vorum við ákveðin í að eignast ekki fleiri börn og Ríkharð var á leið í herraklippingu. Samt vorum við nokkuð viss um að Hrafnhildur Freyja væri krafta­ verkabarn enda pössuðum við okkur ekki nægilega mikið og ég varð aftur ófrísk,“ segir Elísa brosandi en hún er nú komin 22 vikur á leið. Hún segir ófrjósemina hafa reynt virkilega á. „Það versta var að þurfa að hlusta á að við ættum bara að vera ánægð þar sem við ættum bæði börn fyr­ ir, en ég á son og hann dótt­ ur úr fyrri samböndum. Þetta var samt alveg jafnerfitt. Okkur langaði að eignast barn saman. Við fengum líka mörg misgáfu­ leg ráð, eins og að hætta bara að hugsa um þetta, fá okkur hund eða fá önnur börn lánuð. Ég var ekkert alltaf að hugsa um þetta. Stundum var ég komin með virkilegt ógeð og langaði ekki einu sinni til að verða ófrísk svo ef þetta væri það einfalt þá hefði ég eignast barn fyrir löngu. Fólk er alltaf tilbúið með ráð handa manni og auðvitað vill maður ekki vera dónalegur en ég viðurkenni að þessi ráð hafa stundum farið fyrir brjóst­ ið á mér,“ segir hún og bætir við að læknarnir hafi aldrei fund­ ið neitt líkamlegt að þeim sem hindraði að hún yrði ófrísk. „Okkar vandi var „óútskýrð ófrjósemi“ sem mér skilst að eigi við 15 prósent para sem þjást af ófrjósemi. Læknirinn hafði sagt okkur að það væru svona 7 prósent líkur á að þetta tækist hjá okkur og að þær lík­ ur færu minnkandi þar sem við vorum búin að reyna svo lengi án getnaðarvarnar. Það er ótrú­ leg kaldhæðni að vera orðin 34 ára þegar fjórða barnið kemur í heiminn og þurfa þá loksins að fara að huga að getnaðarvörn­ um eftir að hafa aldrei þurft að vera á neinu. Nú virðumst við vera ofurfrjó,“ segir hún og bætir brosandi við að eftir þetta barn verði þeim báðum kippt úr sambandi. indiana@dv.is n Draumur Elísu og Ríkarðs um barn rættist eftir sex meðferðir hjá Art Medica n Nú er fimmta barnið á leiðinni „Það versta var að þurfa að hlusta á að við ættum bara að vera ánægð þar sem við ættum bæði börn fyrir, en ég á son og hann dóttur úr fyrri samböndum. Úr ófrjósemi í ofurfrjósemi Stór fjölskylda Elísa segist hafa talið Hrafnhildi Freyju kraftaverkabarn en nú er hún aftur ófrísk. MyND: BjARNi EiRíkSSoN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.