Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Page 6
6 Fréttir Helgarblað 17.–20. janúar 2014
Ráðin án auglýsingar
Skrifstofustjóri segir ráðninguna ekki fara gegn reglum
V
ilborg Ása Guðjónsdóttir hef
ur verið ráðin sem alþjóðarit
ari til Alþingis án auglýsingar
að því að fram kemur á vef Ei
ríks Jónssonar. Þar er greint frá því að
Vilborg Ása hafi nýverið verið ráðin
aftur til Alþingis, en hún starfaði þar
áður um árabil. Helgi Bernódusson,
skrifstofustjóri Alþingis, segir málið
einfalt og að ekki hafi þurft að auglýsa
stöðuna. „Vilborg hafði gegnt þessu
starfi í tvö ár í stað Magneu Marinós
dóttur sem fór til starfa erlendis í
þrjú ár. Magnea kom svo til baka og
hafði þá samkvæmt reglum rétt á sínu
gamla starfi og þá hætti Vilborg en var
síðan kölluð aftur til þegar Magnea
ákvað að fara aftur út til friðarstarfa
og sagði um leið starfinu lausu og
kemur því ekki aftur,“ segir Helgi sem
segir að þegar starfið var auglýst fyrst
hafi það verið gert samkvæmt ströng
ustu reglum um ráðningar opin
berra starfsmanna, því hafi ekki verið
ástæða til að auglýsa það að nýju.
„Jú, það var auglýst í fyrra skiptið
samkvæmt ströngustu reglum og þá
var Vilborg ráðin. Í ljósi þess töldum
við ekki nauðsynlegt að fara í gegn
um allan þann prósess aftur enda
hefði Vilborg líklega sótt um og feng
ið starfið því hún uppfyllti öll skilyrði
og hafði staðið sig mjög vel þau tvö ár
sem hún gegndi starfinu,“ segir Helgi
að því að fram kemur á vef Eiríks. n
Auglýst í fyrra skiptið „Jú, það var auglýst í fyrra skiptið samkvæmt ströngustu reglum
og þá var Vilborg ráðin,“ segir Helgi.
Vilja fleiri
vegrið
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
ins hafa í bókun hvatt Vega
gerðina til að gera átak í upp
setningu vegriða í borginni.
Mikilvægt sé að þau verði sett
upp þar sem umferðarhraði er
mestur og umferð þyngst. Í sam
antekt Umhverfis og skipulags
ráðs kom fram að enn væri langt í
land, en borgarfulltrúarnir bentu
á að auðveldlega mætti hanna
vegrið þannig að þau fari vel í
borgarumhverfinu. Aðalatriðið
væri þó umferðaröryggi.
Svara kalli for-
sætisráðherra
„Forsætisráðherra kallaði eftir
sóknaráætlun skapandi greina í
áramótaávarpi. Við tökum hann
á orðinu og látum reyna á hvort
eitthvað er að marka fögur orð
um sátt og samstöðu,“ segir Árni
Páll Árnason, formaður Sam
fylkingarinnar. Árni Páll, Katrín
Jakobsdóttir, Guðmundur Stein
grímsson og Birgitta Jónsdóttir
hafa lagt fram þingsályktunar
tillögu um að Alþingi feli Illuga
Gunnarssyni, mennta og menn
ingarmálaráðherra, að undirbúa
og leggja fram þriggja ára sóknar
áætlun skapandi greina. Þetta á
að gera á grundvelli greiningar
og stefnumótunarvinnu sem
unnin hefur verið á liðnum árum,
en sem kunnugt er kom út skýrsla
árið 2011 um hagræn áhrif skap
andi greina og einnig var sam
þykkt þingsályktun á Alþingi um
eflingu þeirra. Árið 2012 var gefin
út skýrsla með tillögum að bættu
starfsumhverfi skapandi greina
sem getur legið til grundvallar
þessari vinnu.
Klofningur
í Kópavogi
Bæjarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins klofinn í tvær fylkingar
M
ikil spenna er í meirihluta
samstarfinu í bæjarstjórn
Kópavogs eftir að Gunnar
Ingi Birgisson, bæjarfull
trúi sjálfstæðismanna og
fyrrverandi bæjarstjóri, stillti sér upp
með minnihlutanum í bæjarstjórn
inni í atkvæðagreiðslu um byggingu
og kaup á íbúðum. Sjálfstæðismenn
í bænum eru klofnir í tvær fylk
ingar sem ýmist styðja bæjarstjór
ann núverandi, Ármann Kr. Ólafs
son, eða bæjarstjórann fyrrverandi,
samkvæmt heimildum DV. Stutt er í
kosningar og eru uppi ásakanir um
að afstaða Gunnars í málinu snúist í
raun um pólitískan leik til að hefnda
gegn Ármanni.
Titringur allt kjörtímabilið
Í raun hefur verið titringur á með
al sjálfstæðismanna í Kópavogi allt
kjörtímabilið. Í prófkjöri fyrir síðustu
sveitarstjórnarkosningar árið 2010
stóð Ármann uppi sem sigurvegari
og nýr oddviti flokksins í bænum eft
ir að hafa att kappi við Gunnar sem
þá hafði verið í brúnni hjá flokknum
um árabil. Kjörtímabilið byrjaði á
því að sjálfstæðismenn sátu í minni
hluta en eftir að deilur komu upp í
meirihlutanum, sem myndaður var
af Samfylkingu, Vinstri grænum, Y
lista og Næst besta flokknum, var
myndaður nýr meirihluti með Ár
mann sem bæjarstjóra.
Gunnar hefur verið gagnrýn
inn meðlimur meirihlutans síð
an hann var myndaður árið 2012
og hefur hann verið í lykil stöðu
innan flokksins en hann nýt
ur stuðnings hóps flokks
manna. Með honum hefur
staðið annar bæjar fulltrúi
flokksins, Aðalsteinn
Jónsson, en flokkurinn
er með fjóra fulltrúa í
bæjarstjórninni. Greint
var frá því á Stöð 2 árið 2012 að
Gunnar og Aðalsteinn hefðu kom
ið í veg fyrir myndun nýs meirihluta
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks
áður en gengið var til viðræðna um
myndun núverandi meirihluta.
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur
hefðu myndað sterkan meirihluta
með sjö fulltrúa af ellefu.
Munu líklega sitja áfram
Líklegt verður að teljast, og
í samræmi við orð leið
toga meirihlutans, að
meirihlutinn haldi velli
fram að kosningum
þrátt fyrir miklar inn
byrðis deilur. Sex mis
munandi flokkar eiga
fulltrúa í bæjarstjórn
Kópavogs en allir hafa
þeir prófað að starfa
í meirihluta í bæjar
stjórninni frá kosning
um. Tiltölulega stutt
er til kosninga og hafa
stærstu málin sem liggja
fyrir bæjarstjórninni
verið
kláruð;
til
að mynda fjárhagsáætlun og að
alskipulag. Það veltur hins
vegar á hvort traust
myndast á ný innan
meirihlutans gagn
vart Gunnari og
Aðalsteini hversu
miklu meirihlut
inn áorkar fram
að kosningum.
Það er þó ekki bara innan bæjar
stjórnarinnar sem hitnað hefur
í kringum Ármann bæjar
stjóra. Sótt er að honum
í prófkjöri flokksins sem
fram fer í febrúar en
Margrét Friðriksdóttir,
skólameistari Mennta
skólans í Kópavogi,
hefur gefið kost á sér í
oddvitasætið sem Ár
mann sækist sjálfur eftir
áfram. Heimildir DV
herma að Margrét bjóði
sig fram með stuðningi
Gunnars. n
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Í vörn Sótt er að
Ármanni í odd-
vitastólnum fyrir
komandi kosningar.
Mynd SigTryggur Ari
Ekki bundinn Gunnar
virðist ekki telja sig bundinn
við álit leiðtoga síns í
flokknum þegar kemur að
afgreiðslu mála í bæjar-
stjórninni. Mynd SigTryggur Ari