Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 22
22 Fréttir Helgarblað 17.–20. janúar 2014 grunlaus um fortíð Karls Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is U nnur Kolbrún Karlsdóttir, formaður Bergmáls, líkn- ar- og vinafélags, segist ekki hafa haft rökstuddan grun um að Karl Vignir Þorsteinsson, hafi misboðið skjól- stæðingum eða starfsfólki Bergmáls á einn eða annan hátt á starfstíma Karls hjá félaginu. Karl Vignir var strikaður út af félagaskrá Berg- máls árið 2007, en ári áður var hon- um sagt upp störfum. Í yfirlýsingu frá Unni segist hún ekki hafa haft ástæðu til að ætla að Karl Vignir væri barnaníðingur þrátt fyrir að henni hafi borist bréf þar sem fram kom að Karl Vignir hefði misboðið ungri stúlku. Stofnuðu Bergmál saman Forsaga samstarfs þeirra Unnar Kolbrúnar og Karls Vignis er sú að þau kynntust í grunnskóla og voru skólafélagar í Hlíðardalsskóla árið 1959. Þar stofnuðu þau kórinn Bergmál. Mörg ár liðu þar til leiðir þeirra lágu saman að nýju að sögn Unnar Kolbrúnar, eða rúm þrjátíu ár. Það var árið 1994 þegar líknar- félagið Bergmál var stofnað. Félagið hóf starfsemi ári síðar og voru stofnfélagar meðal annars félagar úr samnefndum kór, þeirra á meðal Karl Vignir. „Á þessum tíma hafði ég ekki heyrt um að Karl Vignir hneigðist til barnagirndar eða annars ólögmæts athæfis. Hefði ég haft vitneskju um slíkt, hefði að sjálfsögðu aldrei kom- ið til greina að skrá hann sem stofn- félaga eða þiggja aðstoð hans sem sjálfboðaliða þá örfáu daga á ári sem um var að ræða,“ segir hún. Fékk bréf Í upphafi árs 2013 var í Kastljósi greint frá því að Unnur Kolbrún hefði hundsað ábendingar þess efnis að Karl Vignir hefði beitt börn kynferðisofbeldi. Þar greindi María Björk Haraldsdóttir frá því að hún hefði mátt sæta langvarandi og ít- rekuðu ofbeldi af hendi Karl Vignis frá níu ára aldri og þar til hún varð fjórtán ára. Hún greindi einnig frá því að hún væri mjög ósátt við að Karl Vignir hefði starfað áfram hjá Bergmáli eftir að formanni félags- ins, Unni Kolbrúnu, hefði borist bréf frá Haraldi, föður Maríu Bjarkar. Í bréfinu kom fram að Karl Vignir hefði brotið trúnað gegn henni og foreldrum hennar. Þess má geta að María Björk var önnur kvennanna sem afhjúpaði Karl Vigni í Kastljósi, með því að fara með falda mynda- vél heim til hans árið 2009. Unnur hefur ekki tjáð sig um bréfið áður. Hún bar því við að þeir sem segðu hana hafa haft vitneskju um það væru ekki að segja satt. Í greinargerð sem DV hefur undir höndum nú segist Unnur Kolbrún hafa fengið bréf frá félaga sínum sem hún átti í bréfaskriftum við. Í einu bréfanna hefði bréfritari greint því að Karl Vignir hefði „misboðið“ dóttur hans, þ.e. Maríu Björk. Taldi það ekki tengjast sér Unnur Kolbrún segir í yfirlýsingu sinni að hún hefði ekki fengið séð að þetta mál eða upplýsingar bréfs- ins ættu erindi við sig eða líknarfé- lagið. Í greinargerðinni staðfestir bréfritari frásögn hennar. Þar segir Unnur Kolbrún: „ Eftir stofnun líknarfélagsins var ég í bréfaskriftum við sameiginlegan vin okkar Karls Vignis sem þá var í námi erlendis. Í einu bréfanna sem hann skrifaði mér kom fram að Karl Vignir hefði á einkverjum [sic] tímapunkti fyrir tugum ára misboðið dóttur hans og fjölskyldunni allri.“ Hún segir enn fremur að hún hafi ekki séð að málið ætti erindi til sín eða Bergmáls. Málið hefði verið útkljáð fyrir mörgum árum án íhlutunar þriðja aðila og hún fór ekki fram á frekari útskýringar vegna málsins. „Bréfritari sagði málið löngu fyrnt fjölskyldumál sem viðkomandi aðilar afgreiddu á sínum tíma að eigin ákvörðun og á eigin ábyrgð,“ segir Unnur Kolbrún. Fór til fundar við Karl Vigni Þrátt fyrir þessa afstöðu ákvað Unn- ur Kolbrún að ræða bæði við prest og Karl Vigni um innihald bréfsins. Hún sýndi prestinum bréfið sem trúnaðarskjal, en hann mun þekkja til Karls Vignis. „Í framhaldi af því heimsóttum við bæði Karl Vigni, sem aðspurður af presti sór og sárt við lagði að alls ekkert saknæmt hefði komið fram milli hans og þeirra fjölskyldumeðlima sem um var að ræða,“ segir Unnur Kolbrún í yfirlýsingunni. Vísað burtu 2007 Sem áður sagði hafði Unnur Kolbrún vísað málinu alfarið á bug og sagði að það væri ósatt að halda því fram að hún hefði haft upplýsingar um brot Karls Vignis fyrr en árið 2007, árið sem Karli var vísað úr félaginu endanlega. Þegar að því kom að vísa honum úr félaginu var ástæða brottvísunarinnar rökstuddur grunur um kynferðis glæpi gegn börnum og unglingum. Þá hafði hann starfað í tvær vikur á ári við störf í eldhúsi og þrif á húsnæði, segir Unnur Kolbrún, sem tekur sérstaklega fram að Bergmál hafi aldrei komið að barna- starfi á einn eða neinn hátt. Baðst afsökunar Í greinargerðinni, sem sjá má hér til hliðar fer Unn- ur yfir samskipti sín við Karl Vigni og Bergmál. Í fyrra baðst hún afsökun- ar fyrir hönd Berg- máls á því að Karl Vignir hefði starfað með félaginu. „Ljóst er að góð- leg framkoma hans blekkti okkur og að við, samstarfsmenn hans, réttarkerfið og samfélagið í heild, brugðumst þolendum ofbeldis hans og fjöl- skyldum þeirra,“ sagði Unnur Kol- brún í tilkynningu sem send var til fjölmiðla í nafni Bergmáls í janúar 2013. „Fyrir hönd Bergmáls viljum við biðja þolendur Karls Vignis Þor- steinssonar og aðstandendur þeirra innilega afsökunar á þeim mistök- um að hafa trúað og treyst þess- um manni til starfa fyrir líknarfélag okkar.“ n Neitaði Unnur Kolbrún fór með presti á fund Karls Vignis. Karl neitaði öllum ásökunum og sagðist ekkert saknæmt hafa gert. MyNd SigTryggur Ari „Á þessum tíma hafði ég ekki heyrt um að Karl Vignir hneigðist til barnagirndar Blaut tuska Ósátt við orðuveitingu Líkt og DV greindi frá í byrjun þessa árs voru margir ósáttir við að Unni Kolbrúnu Karlsdóttur hefði verið veittur riddara- kross á nýjársdag. „Þetta er eins og að fá blauta tusku í andlitið. Ég er enn að reyna að ná mér niður eftir fréttirnar,“ sagði Erna Agnarsdóttir í samtali við DV. Erna er önnur kvennanna sem fóru til fundar við barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteins- son með upptökutæki árið 2009. Sjálf var hún vistuð á Kumbaravogi sem barn og áreitt af Karli Vigni. Það sama má segja um bróður hennar sem dvaldist þar í tíu ár en lést með voveiflegum hætti aðeins 25 ára gamall. Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan gagnrýnir orðuveitinguna harðlega. Helgi var einn þeirra sem vann að umfjöllun Kastljóss í janúar 2013. „Í dag fannst forseta ríkisins þjóðráð að næla riddarakrossi í barm nokkurra einstaklinga. Meðal annars eins sem fyrir sléttu ári varð uppvís að því að hafa skellt skollaeyrum við ábendingum um að einn af stofnendum líknarfélagsins sem hún veitti formennsku, væri barnaníð- ingur. Því hélt hann áfram að starfa með félaginu,“ skrifaði Helgi á nýársdag. Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður, sem sjálfur þurfti að þola kynferðisof- beldi af hálfu Karls Vignis, tók undir með Helga og furðar sig á orðuveitingunni. Erna Agnarsdóttir og María Haraldsdóttir Aðstoðuðu Kast- ljós við að fá játningar frá Karli Vigni Þorsteinssyni barnaníðingi. MyNd Eyþór ÁrNASoN n Bréf ekki næg sönnun fyrir glæpum Karls Vignis n Prestur gekk á Karl sem neitaði öllu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.