Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 33
Helgarblað 17.–20. janúar 2014 Fólk Viðtal 33 „Ég ætlaði að segja upp“ tíminn fyrir mig. Og ég held líka bara að fólkinu sem sat þarna eftir hafi ekki liðið mikið betur á þessum tíma.“ Óöruggt að vinna á fjölmiðlum „Ég hef aldrei vitað svona langt fram í tímann hvað ég er að fara að gera því þegar maður vinnur á fjölmiðl- um þá er ekkert meitlað í stein. Mér finnst líka svo skrýtið að fólk hafi ver- ið svona hissa á uppsögnunum, því þetta er fjölmiðill og ef það er eitthvað sem er óöruggt á Íslandi þá er það að vinna á fjölmiðli. Þegar ég sagði mömmu og pabba að mig langaði að hætta á RÚV sögðu þau við mig: „Það er svo óöruggt. Margrét, þú getur ekki stólað á sirkusinn.“ Þá benti ég þeim á að ég get ekkert stólað á það að vera í Kastljósinu þangað til ég verð fertug. Alls ekki.“ Urðu góðir vinir „Það var ótrúlega gaman í Kastljósinu en líka svolítið erfitt,“ segir Margrét, spurð um reynslu sína af starfinu. „Ég var líka svo glöð hvað hópur- inn tók mér vel. Ég hélt kannski að svo yrði ekki þar sem ég kom bara inn í afleysingar en við urðum rosa- lega góðir vinir og hittumst alltaf reglulega. Ég fann það líka að þegar verið var að vinna að erfiðum mál- um, málum sem ég gat kannski ekki talað um heima hjá mér því við erum auðvitað bundin trúnaði, að þá gat ég alltaf talað opinskátt við sam- starfsmenn sína um hvernig mér leið. Þetta var rosalega gaman og ég fékk frjálsar hendur til að gera inn- slög um það sem mig langaði. Mér fannst skemmtilegast að tala við fólk sem er ekki alltaf verið að tala við og besta hrósið sem ég fékk var þegar fólk sagði við mig: „Hvar finnurðu allt þetta fólk?“. Það fannst mér skemmti- legt að heyra.“ Lenti sjálf í veseni Margrét segist hafa verið ánægð með RÚV sem vinnustað. „Þess vegna kemur mér rosa- lega mikið á óvart þegar verið er að tala um einelti og annað af því að ég varð aldrei vör við slíkt. Ég var alltaf að vinna í litlum, nánum hópum og varð því minna vör við það sem gerist kannski oftar í stærri hópum; að það myndist hjarðhegðun um að ýta ein- hverjum út í horn eða eitthvað slíkt. En ég lenti samt alveg í veseni. Eftir að Ragnhildur kom aftur úr fæðingar- orlofi var á huldu hvort ég yrði áfram í Kastljósinu og mér hafði verið lof- að að staðan mín á Rás 2 myndi bíða mín. Ég hefði aldrei tekið afleys- ingarstarfinu í Kastljósi nema vegna þessa loforðs. Svo kom í ljós að stað- an beið mín ekki því Virkir morgnar voru settir á dagskrá og það var bara vika eftir af samningnum mínum við Kastljós en ekki búið að gera ráð fyrir mér neins staðar. Ég hafði bara gleymst, var orðinn einhvers konar bastarður sem hvorki Sjónvarpið né Rás 2 vildu kannast við, sem heyrðu reyndar bæði undir sömu konuna á þessum tíma. Eftir miklar flækjur og vitleysu var komist að lendingu, en það var eingöngu því ritstjórinn minn og yfirpródúsent gengu í mál- ið. Þetta var fyrir tveimur árum og ég hélt að þetta hefði lagast – að þetta atvik væri einstakt klaufa tilvik – en þetta rímar við hvernig staðið var að uppsögnunum.“ Var byrjuð að leita að vinnu Margrét segir ýmislegt að í samskipt- um innan stofnunarinnar. „Þú veist til dæmis ekki við hvern þú átt að tala í sambandi við ýmis- legt, eins og þetta atvik sýnir. Þetta á samt alls ekki við um fólk sem mað- ur á í daglegum samskiptum við og maður vissi alltaf hvert maður átti að leita með hversdagsleg vandamál. En um leið og það komu kannski stærri spurningar þá var maður svo- lítið týndur í völundarhúsinu. Mál- ið leystist svo eftir að ég talaði við ritstjórann minn sem stóð við bakið á mér og þá var ákveðið að ég myndi halda áfram í Kastljósinu. Það var samt mjög stuttu áður en samningur- inn minn rann út svo ég var byrjuð að hringja út um allt að leita mér að annarri vinnu.“ Kann að redda sér Margrét er ávallt með nóg af verkefn- um í gangi því hún er dugleg að fram- kvæma hluti sem hún hefur áhuga á. „Já, ég er kakkalakki. Ég lifi ýmis- legt af. Mamma og pabbi eru svona fólk líka. Pabbi minn er prestur og kennari og hann hefur líka verið í öllu. Hann var til dæmis leigubílstjóri og plötusnúður þegar hann var í há- skólanum, þannig vann hann fyrir sér þegar hann var í guðfræðinni, og mamma er líka algjör „survivor“. Það reddast allt hjá henni og hún lendir alltaf á löppunum. Svo ég hef þetta frá þeim en það hefur líka haft áhrif að móðurfjölskyldan mín eru mest allt leikarar og listafólk þannig að ég hef séð að það er allt í lagi þó að stundum gangi ekki alveg allt upp því svo kemur kannski bara eitthvað gott verkefni. Kannski gerist það ekki en það jafnar sig alltaf út og ef eitthvað endar ekki vel þá er það ekki búið. Maður getur alltaf reddað sér.“ Hvött til að hætta „vitleysunni“ Ekki hefur þó öllum litist vel á þau fjölmörgu störf og verkefni sem Mar- grét tekur sér fyrir hendur. „Ég hef miklu frekar viljað bera gleði mína á torg en harm Ásamt nemendum sínum Margrét varð ekki ánægð með líkamann sinn fyrr en hún hóf að æfa magadans. Magadansmær Margrét hefur kennt ýmiss konar dansa í Kramhúsinu undanfarin ár. Skinnsemi Margrét verður nú í fullu starfi hjá Sirkus Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.