Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 45
Helgarblað 17.–20. janúar 2014 Sport 45 verið afkastamikill leikmaður þegar kemur að markaskorun í ein­ stefnuleikjum. „Mörk eru bara mörk; fótbolti snýst um meira.“ Hann segir að áhersla á tölfræði­ þætti ýti undir stórfellda einföldun á nútímaknattspyrnu og hættuna á að leikmenn verði eingöngu metnir út frá fjölda marka og stoðsendinga en ekki framlagi þeirra til liðs­ heildarinnar. Fyrirliði án leiðtogahæfileika Whitney segir að það sorgleg­ asta við útnefninguna sé að með því sé verið að verðlauna eða ýta undir egó leikmanns­ ins, sem sé nóg fyrir, og gefi honum ástæðu til að álykta að hann þurfi ekki að bæta sig sem leikmaður. Ronaldo hafi verið gerður að fyrirliða Portúgal 22 ára, áður en hann hafi sýnt snefil af leiðtogahæfileik­ um. Þrátt fyrir að lands­ lið Portúgal sé stjörnum prýtt hafi því gengið afar illa í undankeppnum fyrir stórmót og end­ að neðar í riðlum sín­ um en Danmörk (í tvígang), Pólland og Rússland, svo dæmi séu tekin. Hlustaði ekki Ronaldo hafi orðið dýrasti leikmað­ ur allra tíma árið 2009 þegar hann gekk í raðir Real Ma­ drid. Hann hafi í kjölfar­ ið byrjað að skjóta á markið úr öllum mögulegum og ómögu­ legum tækifærum, næstum hverri einustu aukaspyrnu innan 40 metra færis. Engu hafi skipt þótt hann hafi sjaldnast skorað úr þessum auka­ spyrnum og hvorki þjálfarinn né aðr­ ir leikmenn hafi haft burði til að grípa inn í. Hann sé sjálfum glaður leik­ maður og þótt hann leggi hart að sér á æfingum á vissum þáttum leiksins, geri hann fátt til að reyna að bæta sig þar sem helst sé þörf á. Hann sé þrjóskur, sjálfselskur og eins og kóng­ ur í ríki sínu. Þessir eiginleikar, segir Whitn­ ey, hafi fælt José Mourinho frá fé­ laginu. Hann rifjar upp að Mourin­ ho hafi gagnrýnt hann opinberlega fyrir að taka ekki leiðsögn. „Hann tók því illa því hann hélt að hann vissi allt og að þjálfararnir gætu ekki hjálpað honum að bæta sig,“ hefur hann eftir Mourinho, sem bæði hefur stýrt Porto og Inter Milan til sigurs í Meistara­ deild Evrópu. Ætti að vera bestur Whitney segir að Ronaldo ætti að vera besti leikmaður í heimi og í honum búi mun meira en hann sýni. Eig­ ingirni og óhóflegt sjálfsöryggi kemur í veg fyrir að hann verði bestur, að mati Whitney. Hann hafi mikla hæfileika, frá­ bæra líkamsbyggingu og afburða skottækni. Hann sé einstaklega góður „einn á einn“. Hann hlaupi hins vegar aldrei á móti bolt­ anum, fórni höndum þegar sendingar rata ekki til hans og áfellist liðsfélagana ef honum gengur ekki vel. Þessir veik­ leikar birtist þegar Real mæti sterkustu liðunum, sem gefi Madrid­liðinu lítinn tíma með knöttinn. „Þess vegna brást Ronaldo í flestum mikilvægustu leikjunum í fyrra. Eins og Mo­ urinho hefur bent á tekur leik­ maðurinn ekki leiðsögn.“ Hann segir að allar hinar stórstjörn­ urnar í Real Madrid hafi sætt sig við að vera í stuðningshlutverki, á meðan hann hugsi eingöngu um eigin hag. Hann lýsir viðhorfi leikmannsins sem eitruðu. „Vitanlega er hart að skella slæmu gengi Real Madrid á einn leikmann. Hann vill hins vegar vera númer eitt og getur þess vegna ekki skorast undan ábyrgð þegar liðinu gengur ekki vel, alveg eins og þegar því gengur vel.“ Nýr og betri Robben Whitney bendir á að annar framúrskar­ andi leikmaður hafi haft áþekka lesti og Ronaldo. Arjen Robben hafi á umliðn­ um árum ver­ ið einstaklega eigingjarn og hrokafullur leikmaður. Honum brást tvisvar boga­ listin á víta­ punktinum vorið 2012, sem varð til þess að lið hans, Bayern München vann engan titil 2012. Tímabilið eftir hafi hann einfaldlega verið settur í bekkinn. Heilu ári síðar, vor­ ið 2013, fékk hann tækifæri á ný þegar Toni Kroos meiddist. Síðan hafi frammistaða Arjen Robben verið framúrskarandi. Hann hafi skorað 23 mörk og lagt upp önnur 18 fyr­ ir liðsfélaga sína. „Við höfum séð nýjan Arjen Robben, leikmann sem verst af fullum krafti og leyf­ ir liðsfélögum sínum, þegar þeir eiga góð­ an dag, að njóta sviðsljóssins. Það er engin tilviljun að Bayern vann þrennuna eftir að Robben var skot­ ið niður á jörðina. Og það er heldur engin tilviljun að Cristiano Ronaldo hafi unnið sinn eina Meistaradeildartitill þegar hann var púsl í öflugri liðsheild Manchester United – ekki eina púslið. Opnaði eigin verðlaunasafn Whitney er á því að Ronaldo geti tekið álíka framförum og Robben og að þá muni hann vinna stóra titla með fé­ lagi sínu. „En eins og staðan er í dag hefur enginn komið Ronaldo niður á jörðina, eins og Jupp Heynckes gerði við Robben. Þess í stað hefur leikmað­ urinn nýlega opnað sitt eigin verð­ launasafn í Madeira í heimalandinu, sér sjálfum til heiðurs. Í skugga slælegs gengis Real Madrid og Portúgal hefur hann hlotið fjölda viðurkenninga fyrir markamet. Þær viðurkenn­ ingar eru ekki til þess fallnar að stuðla að bættu gengi liðanna sem Ronaldo leikur með. Hann er frábær leikmaður, 29 ára, en það er ekki víst að hann verði nokkurn tímann sigursæll. Þeir sem hafa ljáð honum atkvæði sitt í kosningunni um Gullknöttinn hafa ekki gert leikmannin­ um Cristiano Ronaldo neinn greiða.“ n Þess vegna er hann ekki bestur Ofurtrú á tölfræði Zinedine Zidane hlaut Gullknött- inn í þrígang; 1998, 2000 og 2003, þegar hann lék fyrir Real Madrid og Juventus. Á tíu ára ferli skoraði hann 75 mörk og lagði upp 43 – tölfræði sem Messi og Ronaldo myndu næsta auðveldlega slá út á tveimur árum. Whitney bendir réttilega á að Zidane hafi verið einn besti leikmaður sem sést hafi í boltanum. Hann hafi notið mikillar velgengni og unnið titla hvar sem hann kom auk þess að leiða þjóð sína, Frakkland, til sigurs á EM og HM. Hann hafi meira að segja komið Bordeaux í úrslitaleik í Evrópukeppni. Zlatan Ibrahimovic lét eitt sinn hafa eftir sér að Zidane hafi iðulega gert alla leikmenn í kring um sig betri. Það hafi gert hann að frábærum leikmanni. Whitney gagnrýnir ofurtrú á tölfræði og bendir á að hún segi ekki alla söguna. „ Hvernig fór Portúgal, í riðli með Rússlandi og Ísrael, að því að vinna ekki riðilinn sinn? „Enginn hefur komið honum niður á jörðina, eins og Heynckes gerði við Robben.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.