Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 16
Helgarblað 17.–20. janúar 201416 Fréttir „Vitum ekki hvort hann er lifandi eða dáinn“ n Geir Gunnarsson hvarf inn í kínverskt fangelsi n Ættingjar hafa ekkert heyrt í honum V ið erum viti okkar fjær. Við vitum ekki hvort hann er lif- andi eða dáinn,“ segir Arnar Gunnarsson, bróðir Geirs Gunnarssonar sem dæmd- ur var í ellefu mánaða fangelsi í Dali- an-borg í Kína á Þorláksmessu. Geir var dæmdur fyrir að kýla leigubíl- stjóra og hefur fjölskyldan ekki heyrt frá honum frá því að dómurinn féll. Geir átti 31 árs afmæli daginn sem dómurinn féll og hann fékk aðeins eitt símtal áður en hann hóf afplán- un. Faðir þeirra er nú úti að reyna að vinna í málinu og sendiherra Íslands í Peking, Stefán Skjaldarson, heldur til Dalian í dag, föstudag, til að vinna í máli Geirs. Fá ekki að tala við hann Vinir og vandamenn Geirs fá hvorki að heimsækja hann né hafa sam- band við hann með nokkru móti. „Þeir segja að þannig geti hann feng- ið upplýsingar sem hann má ekki fá, en ég veit ekki hverjar þær væru. Það er búið að dæma í máli hans,“ segir Arnar en þeir bjuggu saman úti í Kína. „Hann fær ekki einu sinni að vita að það er fólk að hugsa um hann; að reyna að hjálpa honum.“ Einangrun af þessu tagi er skýrt brot á mannréttindasáttmála Sam- einuðu þjóðanna um meðferð á föngum. 37. grein um réttindi fanga kveður á um að fangar eigi að fá að hafa samband við fjölskyldu sína og vini með reglulegu millibili, og að þeir eigi rétt á heimsóknum. Fjöl- skylda Geirs segir að honum sé neit- að um hvort tveggja og veit raunar ekki hvort hann sé heill eður ei. Vildi þrefalt verð Líkamsárásin sem Geir var dæmdur fyrir átti sér stað í lok janúar í fyrra. Geir og Arnar voru úti að borða á japönskum veitingastað eitt kvöld ásamt vinum sínum. „Um þrjú, hálf fjögur leytið fer Geir heim,“ segir Arnar. Geir tók leigubíl heim til sín en leigubílstjórinn reyndi að rukka hann um þrefalt eðlilegt verð, um 1.800 krónur íslenskar í stað 600 króna. Það tók Geir ekki mál og pirraðist út í leigubílstjórann, enda tók hann leigubíl þessa leið á nánast hverjum degi. Hann endaði á því að skilja eftir ígildi um 600 króna í fram- sætinu og ganga út úr bílnum. „Bílstjórinn fer brjálaður á eftir honum, togar í hann og hangir á honum. Svo endar hann á því að rífa ermina af jakkanum sem hann er í,“ segir Arnar. Geir sneri sér þá við og reiddi bílstjóranum eitt kjaftshögg til þess að losa hann af sér, áður en hann gekk inn til sín. Vildi 5,2 milljónir króna Þegar Arnar kom svo heim nokkru síðar beið mikill fjöldi lögreglu- þjóna átekta fyrir utan íbúð bræðr- anna, ásamt leigubílstjóranum. „Þeir ryðjast inn og ég spyr þá: „Hvað er í gangi? Hvað er í gangi?!“ Segi þeim að þeir megi ekki ryðjast svona inn,“ segir Arnar. „Þá er Geir vakinn og við dregnir upp á lögreglustöð. Þar var Geir hreinskilinn, játaði og vildi borga manninum skaðabætur.“ Krafðist leigubílstjórinn svimandi hárrar upphæðar. Leigubílstjórann sjálfan hittu þeir aðeins einu sinni, kvöldið sem lög- reglan réðst inn til þeirra. Eftir það áttu þeir einungis samskipti við full- trúa leigubílstjórans. „Fyrst sagði hann bílstjórann hafa misst tvær tennur,“ segir Arnar. „Geir bauð hon- um þá allt það sem hann átti, um 600 þúsund krónur. En hann kom með fullkomlega óraunhæfar kröfur og vildi fá 5,2 milljónir króna. Vanalega eru skaðabætur í svona málum frá um 800 þúsundum og upp í milljón.“ Sagðist vera lamaður Þeir funduðu reglulega með full- trúa leigubílstjórans á árinu sem leið og að sögn Arnars urðu lýs- ingar fulltrúa hans á meiðslunum sífellt ævin týralegri eftir því sem á árið leið. „Leigubílstjórinn laug og laug og laug. Fyrst sagðist hann hafa misst tvær tennur. Svo breyttist það í sjö tennur, en aldrei fengum við nein sönnunargögn, fengum ekki að hitta hann og sáum engar myndir eða neitt slíkt. Á endanum sagðist hann vera lamaður.“ Dómarinn í málinu sendi leigu- bílstjórann í læknisskoðun og reyndist hann þá ekki vera lamaður. Arnar gagnrýnir að leigubílstjórinn hafi ekki verið látinn sæta ábyrgð fyrir að ljúga. „Svo var hann sífellt að blanda veikri móður sinni í mál- ið, að skaðabæturnar þyrftu að vera hærri vegna hennar. En hún kom þessu máli náttúrlega ekkert við,“ segir Arnar. Hann telur málið snúast fyrst og fremst um peninga. „Þetta gerist rétt fyrir kínversku áramótin, sem eru í febrúar. Þá er siður að menn gefi foreldrum sínum rautt umslag með peningum í og sá sem gefur foreldr- um mínum mestan pening er mesti maðurinn,“ segir Arnar. Sviptur vegabréfinu Bræðurnir misstu vinnuna eftir að vinnuveitandi þeirra var rukkaður um skaðabæturnar. „Það eru all- ir lafhræddir við lögguna,“ útskýrir Arnar. „Hann rak okkur bara sam- stundis. Þannig að við enduðum peningalausir á götunni og Geir ekki með vegabréfið sitt, því lögreglan tók það.“ Geir lifði á þeim fjármunum sem hann hafði safnað sér og bræðurnir fengu inni heima hjá vini þeirra. Arnar kom heim til Íslands þann 8. desember síðastliðinn og frétti síðan þegar dómurinn féll á Þorláksmes- su. Þeir funduðu nokkrum sinnum með dómara vegna málsins yfir árið. „Í hvert skipti var okkur sagt að það væri verið að fara að dæma í þessu. Það var aldrei gert fyrr en ég var kominn heim.“ Óréttlát málsmeðferð Arnar segir að Geir hafi ekki fengið réttláta málsmeðferð. „Þetta er svo langur listi af óréttlæti,“ segir Arnar. „Í fyrsta lagi þá fengum við túlk og hann kunni ekkert ensku. Við feng- um það staðfest frá kínverskum vini okkar að túlkurinn var bara að þýða einhverja vitleysu.“ Þá segir hann að leigubílstjórinn hafi komist upp með að ljúga í mál- inu. Til að mynda hafi verið tekin mynd af blóðblettum nálægt íbúð þeirra, en sú mynd hafi verið tekin langt frá staðnum þar sem Geir kýldi leigubílstjórann. Þá hafi hann sem kunnugt er ýkt meiðsli sín á stór- vægilegan hátt. Fangelsaður á afmælisdaginn Ferlið frá því að hann var sakaður um líkamsárásina fram að því að hann var dæmdur tók tíu mánuði. „Hann mætti í dómsal á afmælisdaginn. Þar fékk hann að vita að dómarinn sem við höfðum fundað oft með og við höfðum útskýrt mál okkar fyrir væri fastur í umferð. Þessi aðstoðardóm- ari dæmdi hann þá bara á staðnum: Ellefu mánuðir í kínversku fangelsi. Geir fékk eitt símtal til að ljúka sín- um málum og síðan var hann bara settur inn. Við höfum ekki heyrt í honum síðan þá.“ Fjölskyldan veit nú ekki einu sinni í hvaða fangelsi Geir er í. Geir hefur ekki þurft að greiða leigubílstjóranum skaðabætur. Óvíst með áfrýjun Aðspurður hvort fjölskyldan hyggist áfrýja máli Geirs segir Arnar að það hafi verið allsendis ómögulegt að fá upplýsingar um það hvernig áfrýjun gangi fyrir sig hjá dómaranum. „Hann sagði bara „hmm“, „jamm“ og „ég veit ekki“. Á dómari að haga sér svona?“ spyr Arnar. Málið þarf að fara í áfrýjun áður en íslensk stjórn- völd geta farið fram á að Geir afpláni dóm sinn á Íslandi. Utanríkisráðuneytið myndi fara með slíkt mál. Þegar DV hafði sam- band við utanríkisráðuneytið í síð- ustu viku fengust þær upplýsingar að ráðuneytið væri ekki að vinna sér- staklega í málinu þar sem það væri fjölskyldan sem tæki ákvörðun um áfrýjun. Sendiherra Íslands í Kína er hins vegar á leiðinni til Dalian til þess að vinna í málinu. n Einangraður í Kína Geir Gunnarsson gaf kínverskum leigubílstjóra eitt kjaftshögg og situr nú í fangelsi og fær hvorki að heyra í né hitta fjölskyldu sína. Mynd Úr EinKaSaFni „Á endanum sagðist hann vera lamaður „Á dómari að haga sér svona? Stórborg Dalian er næstfjölmennasta borg Liaoning-héraðs, á austurströnd Kína. Íbúar hennar eru rúmlega sex milljónir. Símon Örn reynisson simon@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.