Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 64
Helgarblað 17.–20. janúar 2014 5. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is … þetta er hann Óli prik! Fengu kökudisk frá vinkonu ráðherra Tæplega 900 þúsund krónum varið í jólagjafir fyrir starfsmenn ráðuneytis R úmlega 896 þúsund krónum var varið í jólagjafir handa starfsmönnum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis- ins nú fyrir jólin. Munaði þar mestu um forláta kökudisk sem starfs- mennirnir 68 fengu en hann er íslensk hönnun og framleiðsla. Samkvæmt upplýsingum frá ráðu- neytinu lagði Ragnheiður Elín Árna- dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, áherslu á að í pakkanum yrði íslensk hönnun og framleiðsla en hún fer með málefni nýsköpunar og hönnun- ar. Svo vill til að listakonan sem býr til kökudiskana, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, er vinkona ráðherrans. DV barst ábending um málið þar sem hermt var að einhverjum innan- húss hafi þótt þessi staðreynd í besta falli óheppilegt. DV spurðist fyrir um málið og fékk þau svör að við val á jólagjöfinni hafi verið sett á fót nefnd þriggja starfsmanna til að hafa um- sjón með því verkefni. Er fullyrt að Ragnheiður Elín hafi hvergi komið nálægt valinu. „Hvorugur ráðherra ráðuneytisins hafði með það að gera hvar viðskiptin fóru fram,“ segir í svari ráðuneytisins við fyrirspurn DV. Um heildarkostnað jólagjafanna segir að ráðuneytið hafi haft ákveðna upphæð til viðmiðunar eins og undanfarin ár og fyrir valinu varð kökudiskur frá RAKIdesign og fékk hver starfsmaður einn disk, alls 68 stykki, sem ekki er hægt að skila eða skipta samkvæmt upplýsingum DV. Um meintan vinskap Ragnheiðar Elínar og Ragnheiðar Ingunnar segir í svarinu: „Iðnaðarráðherra þekkir hönnuðinn og til verka hennar, eins og fjölmarga aðra íslenska hönnuði.“ n mikael@dv.is „Fótóbombaði“ forsetann n Ása Dýradóttir, bassaleikari rokksveitarinnar Mammút og ein þeirra sem reka kaffihúsið Stofuna, „fótóbombaði“ sjálfan forsetann, Ólaf Ragnar Grímsson, á mynda- töku í 20 ára afmæli Sigur Rósar í Iðnó nýverið. „Fótóbomb“, eða ljós- myndasprengja, er gjörningur sem felst í því að lauma sér inn á mynd bak við grunlausar fyrirsætur. Ása birti mynd af afrekinu á Face- book-síðu sinni og vakti hún mikla kátínu meðal vina hennar. Í JÖR í Vogue n Í desemberhefti bandarísku útgáfunnar af tískutímaritinu Vogue birtist viðtal við listamann- inn Ragnar Kjartansson. Þar er meðal annars fjallað um verkið Visitors og leiksýninguna Kraft- birtingarhljómur Guðdómsins sem verður frumsýnd í Volks- bühne-leikhúsinu í Berlín í febrúar og síðar sett upp í Borgarleikhús- inu. Á mynd sem fylgir viðtalinu klæðist Ragnar jakkafötum frá JÖR, merki íslenska fatahönnuðar- ins Guðmundar Jörundsson- ar. Ljósmyndarinn er enginn annar en Anton Corbijn sem hefur leikstýrt fjölda þekktra tón- listarmyndbanda og kvik- myndinni Control. Kenndi Ólafi að teikna n Á fimmtudag talaði Hilmar Þór Björnsson arkitekt á málþingi um mannlíf og byggingarlist í Reykja- vík í tilefni þess að Harpa hlaut Mies van der Rohe- verðlaunin í byggingarlist. Í bloggfærslu þar sem hann auglýsti málþingið birti hann mynd af Ólafi Elías- syni, hönnuði glerhjúps Hörpu, sem var tekin í eldhúsi Hilmars í Kaupmannahöfn árið 1970. Hilm- ar segist stundum halda því fram að hann hafi kennt Ólafi að teikna enda hafi flest börn sem komu við á heimilinu elskað að leika sér með vinnu- tæki arkitekt- úrnemans. Glæsileg íslensk hönnun Starfsmenn atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytis- ins fengu kökudisk frá RAKIdesign. Ragnheiður Elín lagði áherslu á íslenska hönnun og framleiðslu. mynD RaRiKDesiGn.is Skiptu út hveiti & Sykri Uppskriftir á Sukrin.iS Söluaðilar: SamkaUp, Nettó, króNaN, NóatúN, HagkaUp og kjarval Sukrin bökunarvörur – heilsunnar vegna d v e h f. / d a v íð þ ó r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.