Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 62
Helgarblað 17.–20. janúar 201462 Fólk
Braut tönn á skinkusalati
Leikarinn Hilmir Jenssen er fluttur norður
Þ
etta var svolítið fyndið því
leikmyndin er þvílík klifur-
grind og ég leik í hverju
áhættu atriðinu á fætur öðru.
Svo brýt ég tönn með því að borða
brauðsneið með skinkusalati,“ seg-
ir leikarinn Hilmir Jensson sem fer
með heil fimm hlutverk í Gullna
hliðinu hjá Leikfélagi Akureyrar en
þarf nú að drífa sig til tannlæknis
fyrir frumsýningu.
Á meðal hlutverka Hilmis er djöf-
ullinn þar sem hann fetar í fótspor
ekki ómerkari leikara en Arnars
Jónssonar og Lárusar Pálssonar.
„Það hefur her af flottum leikurum
leikið þetta hlutverk en það þýðir
ekkert að hugsa um það. Ég geri
bara mitt. Tönnin er eins og vígtönn
sem er pínu „bad ass“ fyrir djöfulinn
en ég leik fleiri karaktera og þeir
geta ekki allir verið tannlausir. Þess
vegna þarf ég að láta laga þetta svo
ég líti ekki út eins og Bó Hall. Sem
þarf þó alls ekkert að vera slæmt, ég
er bara nokkrum áratugum of seinn
með þá tísku.“
Hilmir og kona hans, Ingibjörg
Huld Haraldsdóttir leikstjóri, sem
leikstýrði meðal annars Sek, eru flutt
til Akureyrar þar sem þau una sér
vel. „Okkur fannst starfsumhverfið
spennandi hjá leikfélaginu og sótt-
um fast að komast hingað. Ætli við
séum ekki þessar hefðbundnu mið-
bæjarrottur sem vildu breyta til,“
segir Hilmir en þau Ingibjörg eiga
eina dóttur, Hallgerði sem er eins og
hálfs árs. „Hér er þægilegt að vera og
stutt í allt,“ segir hann en bætir við að
það sé óákveðið hvort þau séu kom-
in norður til að vera. „Við erum að
skoða stöðuna og skipuleggja í ró-
legheitum. Við sjáum hvað setur.“ n
indiana@dv.is
Hilmir Leikarinn leikur í fjölda
áhættuatriða en tókst að brjóta
tönn í matartímanum.
Ásgeir fær
EBBA-verð-
launin
Ásgeir Trausti er einn þeirra sem
hlutu EBBA-verðlaunin (Europe-
an Border Breakers Awards)
á hollensku tónlistarhátíðinni
Eurosonic síðastliðinn miðviku-
dag. Alls voru tíu tónlistarmenn
verðlaunaðir fyrir árangur sinn í
tónlistarheiminum í Evrópu á ný-
liðnu ári en það var breski sjón-
varpsmaðurinn Jools Holland
sem afhenti verðlaunin að þessu
sinni. Ásgeir vakti þó nokkra
athygli erlendis á síðasta ári en
líkt og kunnugt er var plata hans,
Dýrð í dauðaþögn, þýdd yfir á
ensku síðasta sumar. Dæmi um
tónlistarfólk sem hlotið hefur
EBBA-verðlaunin á undanförn-
um árum eru Of Monsters and
Men, Adele, Ameli Sandé, Carla
Bruni og fleiri.
Ásdís Rán
boðar í viðtöl
Fyrirsætan og athafnakonan Ás-
dís Rán hefur í nógu að snúast
þessa dagana, en væntanlegur
raunveruleikaþáttur sem hún
mun stýra hefur vakið mikla um-
ræðu undanfarið. Í þáttunum
mun Ásdís hjálpa húsmóður á
aldrinum 30–40 ára að komast í
form auk þess sem viðkomandi
mun gangast undir fegrunarað-
gerðir á borð við bótox og vara-
fyllingu. Líkt og fyrr segir hafa
viðbrögðin ekki látið á sér standa
en Ásdís segir mikinn áhuga fyrir
þættinum og hefur nú tilkynnt að
hann verði enn stærri í sniðum
en upphaflega var ætlað.
„Mig langar líka að taka fram
við ykkur sem hafið sent mér e-
mail að ég er EKKI byrjuð að fara
yfir þetta, það á eftir að taka mig
nokkra daga! Ég boða svo um 10
í viðtöl eftir helgi,“ skrifar Ásdís á
Facebook-síðu sína.
Gyða á 101 hótel
Gyða Dan Johansen, unnusta
Ara Edwald, er hætt hjá 365 og
farin að vinna á 101 hótel. Gyða
hafði unnið hjá 365 í nokkur ár í
ýmsum verkefnum. Ari er líkt og
kunnugt er, forstjóri fjölmiðla-
fyrirtækisins. Hjónin munu því
ekki vinna lengur saman en 101
hótel er í eigu Ingibjargar Pálma-
dóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, en Ingibjörg á
einnig 365. Parið mun því áfram
vinna fyrir sama fólkið.
Er ekki á bömmer
yfir því að eldast
n Inga Lind nýtur lífsins í Barcelona n Fagnar hverju ári
É
g vona bara að þættirnir
hafi jákvæð áhrif, ekki bara
á þátttakendur heldur líka
þá sem horfa,“ segir Inga
Lind Karlsdóttir, þáttastjórn-
andi Biggest Loser en þættirn-
ir hefja göngu sína á Skjá Einum
á næstu dögum. Inga Lind segist
hafa fengið sönnun þess efnis að
þættirnir hafi jákvæð áhrif út fyr-
ir hópinn. „Flest allir í tökuliðinu
hafa snúið mataræði sínu við og
einn úr hópnum missti tíu kíló og
aðrir eitthvað minna. Menn voru
að nota hádegishléið til að æfa og
það var afar sjaldgæft að sjá ein-
hvern laumast út í sjoppu í pylsu
og kók. Maður smitast nefnilega af
orkunni og áhuganum.“
Gamla góða hófið
Sjálf segist Inga Lind hafa hreyf-
ingu að lífsstíl. „Ég borða allan
mat en ekkert of mikið af neinu
og ég verð ekki ástfangin af matn-
um. Ef ég kemst í góða köku er frá-
bært að geta smakkað hana en ég
þarf ekki að fá mér þrjár sneiðar.
Þetta er bara spurning um gamla
góða hófið. Varðandi hreyfingu þá
eyði ég ekki einum og hálfum tíma
inni á líkamsræktarstöð á hverjum
degi heldur vel ég frekar stigann
en lyftuna og fer í göngutúra með
fjölskyldunni um helgar. Svo bý
ég í Barcelona og hér er auðvelt
að kjósa fæturna frekar en bílinn.
Og svo spila ég tennis en það get-
ur tekið vel á,“ segir hún en er hóg-
værðin uppmáluð þegar hún er
spurð út í getu sína í íþróttinni. „Ég
vildi óska þess að ég væri betri en
tennis er eins og golf. Maður get-
ur notið þess þótt maður sé ekkert
rosalega góður í því. Það sama er
að vísu sagt um kynlíf,“ segir hún
hlæjandi.
Skíðaferð til Sviss
Inga Lind fagnaði 38 ára afmæli
sínu í vikunni. „Ég er búin að
ákveða að halda alltaf upp á af-
mælið mitt þótt það sé gert með
mismunandi hætti. Afmælisdag-
ur okkar þýðir að líf okkar hafi
orðið ári lengra og því ber að
fagna. Ég neita að vera á bömmer
yfir því að eldast,“ segir hún og
bætir við að börnin hafi fært henni
morgunmat í rúmið á afmælis-
daginn. „Ég var vakin af börnun-
um og fékk dásamlegt, nýbakað
brauð, hollar og óhollar kökur og
niðurskorna ávexti í rúmið – algjör
draumamorgunmatur. Svo lagði ég
af stað í ferðalag með manninum
mínum en kosturinn við að búa í
Evrópu er að geta skellt sér upp í
bílinn og keyrt af stað. Nú erum við
á leiðinni til Sviss í skíðaferð.“
Inga Lind nýtur lífsins í
Barcelona með fjölskyldunni en
er ákveðin að koma heim aftur.
„Það er gaman að hafa tækifæri til
að búa annars staðar en á Íslandi í
einhvern tíma en við komum heim
aftur. Ísland er of frábært land til
að vera fjarri því of lengi.“ n
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is „Maður
getur
notið þess þótt
maður sé ekkert
rosalega góður
í því. Það sama
er að vísu sagt
um kynlíf.
Aftur í sjónvarp Inga Lind snýr aftur á
skjáinn sem þáttastjórnandi í þáttunum
The Biggest Looser.