Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 58
58 Menning Sjónvarp Helgarblað 17.–20. janúar 2014
Sjónvarpsdagskrá
F
rönsk kvikmyndahátíð hefst í
Háskólabíói í dag, föstudag, og
stendur til 30. janúar næstkom-
andi. Hátíðin er orðin að árlegum
viðburði og í ár verða sýnda níu nýjar
myndir. Opnunarmynd hátíðarinnar
er myndin Eyjafjallajökull.
Myndin er frönsk eins og aðrar
myndir hátíðarinnar. Með aðalhlut-
verk fara Valérie Bonneton og Danny
Boon en þau eru bæði þekktir leikar-
ar í heimalandi sínu. Í myndinni leika
þau fráskilin hjón sem ætla sér að vera
viðstödd brúðkaup dóttur sinnar í apr-
íl 2010. Eyjafjallajökull á Íslandi byrj-
ar hins vegar að gjósa og hefur áhrif á
flugsamgöngur um allan heim. Flugi
hjónanna fyrrverandi er aflýst og þau
neyðast til þess að leigja bílaleigubíl
til þess að ná brúðkaupi dóttur sinn-
ar. Gallinn við það fyrirkomulag er
hins vegar sá að fólkið þolir ekki hvort
annað. Þau þurfa að keyra langa leið í
brúðkaupið – frá Frakklandi til Grikk-
lands, þar sem brúðkaupið fer fram. Á
leiðinni getur allt gerst.
Meðal annarra mynda sem sýnd-
ar verða á hátíðinni má nefna nýju-
stu mynd Romans Polanski, Venus í
feldi sem tilnefnd var til Gullpámans á
Cannes og kvikmyndina Ég um mig og
mömmu eftir leikstjórann Guillaume
Galliane. Sú hlaut Art Cinema-verð-
launin og SACD-verðlaunin á kvik-
myndahátíðinni í Cannes. Þá verða
sýndar tvær teiknimyndir, Málverk-
ið (Le tableau) og verðlaunamyndin
Samþykktur til ættleiðingar (Coleur de
peau – Miel). n viktoria@dv.is
Sunnudagur 19. janúar
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
Stöð 2 Sport 2
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
ÍNN
Eyjafjallajökull opnunarmyndin
Franskir bíódagar í Háskólabíói
Að hata
líkamsrækt 07.00 Morgunstundin okkar07.01 Smælki (6:26)07.04 Háværa ljónið Urri (47:52)
07.15 Tillý og vinir (6:52)
07.26 Ævintýri Berta og
Árna (11:52)
07.31 Múmínálfarnir (32:39)
07.40 Einar Áskell (11:13)
07.53 Hopp og hí
Sessamí (6:26)
08.17 Sara og önd (17:40)
08.25 Kioka
08.32 Kúlugúbbarnir (7:20)
08.55 Disneystundin (2:52)
08.56 Finnbogi og Felix (2:26)
09.18 Sígildar teiknimyndir
09.25 Herkúles (2:21)
09.47 Skúli skelfir (14:26)
09.58 Undraveröld Gúnda
10.11 Mollý í klípu (2:6)
10.35 Fum og fát
10.40 Fisk í dag
10.50 Handunnið: Kristine
Mandsberg (Handmade
by: Kristine Mandsberg)
11.00 Sunnudagsmorgunn
12.10 Þrekmótaröðin 2013
(2:8) (CrossFit - seinni hluti)
12.35 Minnisverð máltíð –
Ritt Bjerregaard (En go'
frokost: Ritt Bjerregaard)
12.45 Hvað veistu? Orka úr hafi
og vítamín úr sól (Viden
om: Drager i strömmer og
bölgeenergi)
13.15 Reykjavíkurleikarnir
2014 (Frjálsar íþróttir)
14.35 EM í handbolta
- Milliriðlar
17.00 Táknmálsfréttir
17.10 Poppý kisuló (46:52)
17.21 Franklín (2:2)
17.43 Engilbert ræður (50:78)
17.50 Fisk í dag 888 e
18.00 Stundin okkar 888
18.25 Basl er búskapur (3:10)
(Bonderøven)
19.00 Fréttir
19.20 Veðurfréttir
19.25 Íþróttir
19.40 Landinn 888 Frétta- og
þjóðlífsþáttur í umsjón
fréttamanna um allt land.
Ritstjóri er Gísli Einarsson.
20.00 EM í handbolta - Milli-
riðlar Seinni hálfleikur í
milliriðli á EM í handbolta.
20.45 EM stofa Í þættinum fer
Björn Bragi Arnarsson
ásamt góðum gestum yfir
leiki dagsins og stöðuna
á Evrópumeistarmótinu í
handknattleik 2014.
21.05 Erfingjarnir (3:10) (Arvin-
gerne) Glæný, dönsk þátta-
röð um systkini sem hittast
eftir margra ára aðskilnað
og verkefnið er að gera upp
arf eftir móður sína, en það
sem í fyrstu virðist tækifæri
til sameiningar breytist í
uppgjör leyndarmála og
lyga sem tengjast lífi þeirra
í nútíð og fortíð.
22.05 Kynlífsfræðingarnir 8,3
(10:12) (Masters of Sex)
Bandarískur myndaflokkur
um William Masters og
Virginiu Johnson sem voru
frumkvöðlar á sviði kynlífs-
rannsókna. Aðalhlutverk
leika Michael Sheen og Lizzy
Caplan. Atriði í þáttunum
eru ekki við hæfi barna.
23.00 Sunnudagsmorgunn e
00.10 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok
11:35 Undefeated
13:25 La Liga Report
13:55 Spænski boltinn 2013-14
15:35 Sportspjallið
16:15 NBA
17:50 Spænski boltinn 2013-14
19:50 NFL 2014
23:30 NFL 2014
10:00 Liverpool - Aston Villa
11:40 Man. City - Cardiff
13:20 Swansea - Tottenham
15:50 Chelsea - Man. Utd.
18:00 Arsenal - Fulham
19:40 Sunderland
- Southampton
21:20 Swansea - Tottenham
23:00 Chelsea - Man. Utd.
00:40 Man. City - Cardiff
09:55 I Am Sam
12:05 Dear John
13:50 Philadelphia
15:55 I Am Sam
18:05 Dear John
19:55 Philadelphia
22:00 Kingdom of Heaven
00:25 American Reunion
02:15 Ninja
03:40 Kingdom of Heaven
15:30 Extreme Makeover:
Home Edition (12:26)
16:15 Þriðjudagskvöld með
Frikka Dór
16:45 Top 20 Funniest (9:18)
17:25 Make Me A Millionaire
Inventor (8:8)
18:05 Dads (9:22)
18:25 Mindy Project (18:24)
18:45 Mad
19:00 Bob's Burgers (7:9)
19:25 American Dad
19:45 The Cleveland Show
20:05 Unsupervised (1:13)
20:30 Brickleberry (1:10)
20:50 Dads (10:22)
21:10 Mindy Project (19:24)
21:35 Do No Harm (7:13)
22:15 The Glades (4:13)
22:55 Men of a Certain Age
23:40 Bob's Burgers (7:9)
00:00 American Dad
00:20 The Cleveland Show
00:45 Unsupervised (1:13)
01:05 Brickleberry (1:10)
01:25 Dads (10:22)
01:50 Mindy Project (19:24)
17:55 Strákarnir
18:25 Seinfeld (8:22)
18:50 Friends (20:24)
19:10 Modern Family
19:35 Two and a Half Men (17:24)
20:00 Viltu vinna milljón?
20:45 Krøniken (11:22)
21:45 Ørnen (11:24)
22:40 Meistarinn (14:15)
23:35 Ally McBeal (13:23)
00:20 Without a Trace (17:23)
01:05 Viltu vinna milljón?
01:45 Krøniken (11:22 )
02:43 Ørnen (11:24)
17:30 Skuggaráðuneytið
18:00 Björn Bjarnason
18:30 Tölvur,tækni og kennsla
19:00 Fasteignaflóran
19:30 Á ferð og flugi
20:00 Hrafnaþing
21:00 Auðlindakistan
21:30 Fiskikóngurinn
22:00 Hrafnaþing
23:00 ABC Barnahjálp
23:30 Eldað með Holta
07:00 Barnatími Stöðvar 2
07:01 Strumparnir
07:25 Villingarnir
07:50 UKI
07:55 Doddi litli og Eyrnastór
08:05 Waybuloo
08:25 Algjör Sveppi
08:30 Könnuðurinn Dóra
08:55 Kalli litli kanína og vinir
09:20 Ofurhundurinn Krypto
09:40 Ben 10
10:05 Tom and Jerry
10:15 Grallararnir
10:35 Tasmanía
10:55 Victorious
11:20 The Middle (8:24)
12:00 Spaugstofan
12:25 Nágrannar
12:45 Nágrannar
13:05 Nágrannar
13:25 Nágrannar
13:45 Nágrannar
14:10 The Big Bang Theory (2:24)
14:30 Masterchef USA (3:25)
15:20 The Face (2:8)
16:10 Mike & Molly (8:23)
16:35 Heilsugengið
17:00 Eitthvað annað (4:8)
17:35 60 mínútur (15:52)
18:23 Veður
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:55 Sportpakkinn (21:30)
19:10 Sjálfstætt fólk (18:30)
19:45 Breathless (3:6) Dramat-
ískir þættir um lækna og
hjúkkur á spennandi tímum.
Þættirnir gerast snemma
á sjöunda áratug síðustu
aldar og þeir hafa því verið
bornir saman við bandarísku
verðlaunaþættina Mad Men
en hér er aðalsöguhetjan
kvensjúkdómalæknirinn
Otto Powell. Hann er nýtur
virðingar i starfi og mikillar
hylli hjá hjúkkunum á spít-
alanum. Hann er giftur og
á yfirborðinu lifir hann hinu
fullkomna lífi en undir niðri
krauma leyndarmál og lygar.
20:35 The Tunnel (8:10)
21:25 Banshee (2:10)
22:15 60 mínútur (16:52)
23:00 Daily Show: Global
Edition
23:25 Nashville 7,6 (2:20)
Önnur þáttaröð þessara
frábæru þátta þar sem tón-
listin spilar stórt hlutverk
og fjallar um kántrí-söng-
konuna Rayna og ungstirnið
Juliette Barnes. Með aðal-
hlutverk fara Connie Britton
úr American Horror Story og
Heyden Panettiere.
00:10 Hostages (14:15)
01:00 True Detective (1:8)
01:50 American Horror
Story (1:13)
02:35 Mad Men (3:13)
03:25 The Untold History of
The United States (3:10)
04:25 The Goods: Live Hard,
Sell Hard
05:55 Fréttir
06:00 Pepsi MAX tónlist
11:20 Dr. Phil
12:05 Dr. Phil
12:50 Once Upon a Time (2:22)
13:40 7th Heaven (2:22)
14:30 The Bachelor (12:13)
16:00 Family Guy (12:21) Ein
þekktasta fjölskylda
teiknimyndasögunnar
snýr loks aftur á SkjáEinn.
Peter Griffin og fjölskylda
ásamt hundinum Brian búa
á Rhode Island og lenda í
ótrúlegum ævintýrum þar
sem kolsvartur húmor er
aldrei langt undan.
16:25 Happy Endings (20:22)
16:50 Parks & Recreation
(20:22)
17:15 Parenthood (2:15)
18:05 Friday Night Lights (2:13)
18:50 Hawaii Five-0 (10:22)
19:40 Judging Amy (23:24)
Bandarísk þáttaröð um lög-
manninn Amy sem gerist
dómari í heimabæ sínum.
20:25 Top Gear - NÝTT (1:6)
Bílaþátturinn sem verður
bara betri með árunum.
Tilraunir þeirra félaga taka
sífelldum breytingum og
verða bara frumlegri, og
skemmtilegri.
21:15 Law & Order: Special
Victims Unit (21:23)
Bandarískir sakamálaþætt-
ir um kynferðisglæpadeild
innan lögreglunnar í New
York borg. Hatursglæpur er
framinn og lögreglan þarf
að bregðast við áður en
ástandið fer úr böndunum.
22:00 The Walking Dead 8,8
(3:16) Þættir sem hafa
slegið öll fyrri áhorfsmet
áskriftarstöðva í Banda-
ríkjunum. Rick Grimes og
félagar þurfa að glíma við
uppvakninga utanfrá og
svikara innanfrá í þessum
hrollvekjandi þáttum sem
eru alls ekki fyrir viðkvæma.
Hluti hópsins ætlar að auka
matarbirgðirnar en það ger-
ir hópinn veikari á meðan.
22:50 Elementary (2:22) Sher-
lock Holmes og Dr. Watson
leysa flókin sakamál í New
York borg nútímans.
23:40 Necessary Roughness 6,9
(7:10) Vinsæl þáttaröð um
sálfræðinginn Dani sem
aðstoðar marga af bestu
íþróttamönnum Bandaríkj-
anna þegar andlega hliðin
er ekki alveg í lagi.
00:30 The Walking Dead (3:16)
01:20 The Bridge (2:13)
02:10 Beauty and the
Beast (8:22)
03:00 Excused
03:25 Pepsi MAX tónlist
Í
janúar fyllist meirihluti lands-
manna óútskýrðri orku og
metnaði, kaupir sér kort í rækt-
inni og byrjar að borða hollan
mat. Kók víkur fyrir vatni,
nammi fyrir ávöxtum og brauð
fyrir grænmeti. Fyrir fólk eins og
mig sem hefur enga ánægju af því
að hreyfa sig er þessi tími erfiður.
Það er nefnilega helmingi erfiðara
að hundsa ræktina og auðvelt að
sogast inn í heilsubrjálæðið sem
tröllríður öllu. Heilsubrjálæðingar
sem eru eins og sértrúarsöfnuður
ná að hrella alla með visku sinni og
þú verður að vera samviskulaus til
þess að láta ekki glepjast.
Sykur og súkkulaði
Íþróttaferill minn er ekki glæsilegur.
Það kom mjög snemma í ljós að
líklega væru íþróttir ekki mjög of-
arlega á hæfileikaskalanum mín-
um. Ég hef eiginlega aldrei þolað
íþróttir af nokkru tagi og hata lík-
amsrækt. Þegar vinir mínir voru
í boltaleikjum eða snú snú sat ég
yfir leitt á kantinum og var sykur og
súkkulaði. Ég minnist þess ekki að
hafa verið neitt sérstaklega súr yfir
því heldur eiginlega bara glöð að
sleppa við að þurfa vera með. Svo
var fínt að hafa mig á kantinum
ef það þurfti að rífa kjaft við eldri
krakka sem voru með eitthvert
vesen.
Það var nefnilega þannig að mér
fannst bara ótrúlega leiðinlegt að
hreyfa mig. Það vantaði allt keppn-
isskap og ég hafði enga unun af
því að þreytast. Þegar fólk talar um
hvað það sé frábært að svitna við
erfiða æfingu eða hversu endur-
nært það sé eftir góðan tíma þá
er ég ekki að tengja. Ég veit ekkert
óþægilegra en að ná ekki andan-
um eða reyna það mikið á mig að
ég geti ekki staðið. Nei takk. Í skóla-
leikfimi notaði ég allar heimsins af-
sakanir til þess að sleppa við tím-
ann. Í útileikfimi stytti ég mér leiðir
eða tók leigubíl til baka (já, það
gerðist og ég var reyndar ekki ein
að verki). Í skólasundi kom sér vel
að vera með munninn fyrir neðan
nefið og með góðum klækjum tókst
mér að sleppa við að synda ótelj-
andi ferðir í sundprófinu í 10. bekk
en útskrifaðist samt.
Með langloku í spinningtíma
Ég hef aðeins kynnt mér líkams-
ræktarstöðvar í gegnum tíðina en
lítið hreyft mig þar af viti. Ég fór
í fyrsta skipti í líkamsræktarstöð
þegar ég var 14 ára. Við fórum þrjú
vinirnir og enduðum í spinning-
tíma. Okkur fannst mjög merki-
legt að það væri hægt að kaupa
samlokur og gos í þessari stöð og
enduðum aftast í salnum hjólandi
með dietkók og samloku. Þetta var
helvíti fínt en við fórum ekki aftur.
Stanslaust samviskubit
Þó ég hreyfi mig ekki mikið þá er
ég samt með stanslaust samvisku-
bit yfir hreyfingarleysinu. Fólk sem
hreyfir sig er hamingjusamara, lif-
ir lengur og allt það sem er troðið
stanslaust inn í hausinn á manni.
Inn á milli fæ ég þá flugu í höfuðið
að ég verði að drífa mig af stað svo ég
deyi ekki fyrir aldur fram (það gerist
iðulega eftir að ég hef umgengist
heilsutrúarfólkið of mikið). Þegar
þetta gerist þá hef ég vanalega farið
út að hlaupa eða keypt mér líkams-
ræktarkort. Ég á nokkrar skemmti-
legar hlaupaferðir að baki þar sem
ég hleyp út, enda svo á einhverj-
um bekk í hverfinu hristandi höf-
uðið yfir því hvernig mér detti þetta
rugl í hug. Þarna kemur skorturinn
á keppnisskapinu sterkur inn því
þegar ég er þreytt þá bara sest ég
niður. Ég get ekki pínt mig og er yfir-
leitt aldrei lengur en 10 mínútur úti.
Í ræktina til að horfa á Stöð 2
Í eitt þessara skipta sem einhverjir
ræktarbrjálæðingar voru búnir að
heilaþvo mig keypti ég mér kort
í World Class. Ég mætti og vissi
náttúrlega ekkert hvað ég ætti að
gera en var nokkuð örugg með að
labba bara á göngubrettinu. Þetta
gekk vel og ég mætti í nokkrar vik-
ur. Ekki til þess að hreyfa mig held-
ur vegna þess að ég komst að því
að það var hægt að horfa á Stöð 2
í tækjunum. Ég var nefnilega ný-
flutt að heiman og ekki með áskrift.
Þetta var því svona helvíti hentugt
(og ódýrara en að kaupa áskrift) að
mæta þegar Nágrannar voru í gangi
og hjóla hægt eða labba á göngu-
brettinu meðan þátturinn var. Þetta
gekk í nokkrar vikur en svo hætti ég
að nenna.
Blekking?
Þar sem ég er stöðugt með nag-
andi samviskubit yfir því að vera
ekki að hreyfa mig þá ákvað ég að
kaupa mér kort í vikunni. Nú skyldi
aldeilis breyta um lífsstíl í eitt skipti
fyrir öll. Aldurinn færist yfir og það
gengur ekki að vera með bumbu.
Fyrsta skiptið gekk vel – við entu-
mst nánast allan tímann (fyrir utan
að fara út í korter því við náðum
ekki andanum). Í seinna skiptið var
tíminn erfiðari og ég fann gömlu
Viktoríu banka upp á: „Æ, þetta
er svo leiðinlegt. Af hverju ertu að
gera hluti sem þér finnast leiðinleg-
ir? Þú lifir bara einu sinni.“ Ég náði
að þagga niður í henni og ætla mér
að reyna drepa hana. Þriðji tíminn
er á morgun. Sjáum hvor vinnur. Ég
er allavega spennt að sjá hvort það
sé hægt að byrja að elska líkams-
rækt. Lifir þetta fólk ekki bara allt í
blekkingu? n
„Því þegar ég er
þreytt þá bara
sest ég niður.
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Helgarpistill
Eyjafjallajökull Gosið í Eyjafjallajökli verð-
ur til þess að fráskilin hjón þurfa að keyra
langa leið saman í brúðkaup dóttur sinnar.