Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Síða 8
Helgarblað 17.–20. janúar 20148 Fréttir
Fagna 100 ára afmæli
á tíu ára kennitölu
n Afskrifuðu 177 milljarða árið 2009 n Stórskotalið tónlistarmanna í Eldborg
Ó
skabarn þjóðarinnar“ var
viðurnefni Eimskipa þegar
félagið var stofnað árið 1914,
þann 17. janúar. Flutninga-
fyrirtækið heldur í dag, föstu-
dag, upp á hundrað ára afmæli sitt
en saga fyrirtækisins hefur þó ekki
verið eintómur dans á rósum. Árið
2009 varð fyrirtækið nánast gjald-
þrota og skipuleggja þurfti starfsem-
ina upp á nýtt. Rekstur fyrirtækisins
á Íslandi var þá færður í nýtt félag
sem stofnað var þá um sumarið og
lánardrottnar eignuðust fyrirtækið.
Sama kennitala í tíu ár
Í samtali við DV sagði forstöðumaður
kynningar- og markaðsdeildar Eim-
skipa, Ólafur William Hand, að fé-
lagið hefði aldrei farið í þrot. „Eim-
skipafélagið hefur aldrei farið í þrot,
árið 2009 var félagið endurskipulagt
og það komu nýir hluthafar inn í fé-
lagið, bæði innlendir og erlendir,“
sagði Ólafur. Nýtt félag var stofnað
árið 2009, í kjölfar aðalfundar Eim-
skipa, og fékk nafnið Eimskipafélag
Íslands hf. Þá var hluti af starfsemi
Eimskipa fluttur í dótturfélagið Eim-
skip Ísland ehf., sem varð síðar að
fullu í eigu lánardrottna. Skilanefnd
Landsbankans átti þar fjörutíu pró-
senta hlut, en á í dag um fimm
prósent. Stærsti eigandinn í dag
er fjárfestingarfyrirtækið Yucaipa
American Alliance Fund sem á sam-
tals rúmlega fjórðungshlut í félaginu
Eimskipafélag Íslands hf. Rekstur
fyrirtækisins hefur ekki verið alla
tíð á sömu kennitölu, en hún hefur
nú haldist óbreytt í tíu ár þrátt fyrir
þær breytingar sem orðið hafa á
eignarhaldi á þessum tíma.
Töpuðu 177 milljörðum
Á vefnum mbl.is kom það fram í
ágúst 2009 að þeir sem áttu ótryggð-
ar kröfur í Eimskipafélag Íslands
hefðu tapað um 177 milljörðum
króna vegna gjaldþrots fyrirtækisins.
Þrátt fyrir að ekki hafi verið um gjald-
þrot að ræða, eins og fram kom hjá
mbl.is, var tap kröfuhafanna raun-
verulegt. Í samtali við Viðskipta-
blaðið í mars 2011 sagði forstjórinn,
Gylfi Sigfússon, að kröfuhafar hefðu
þurft að gefa eftir stóran hluta krafna
sinna. Þeir fengu í staðinn hlutafé í
nýja félaginu sem svaraði tæplega
12 prósentum af verðmæti kröfunn-
ar. Jafnframt voru nauðungarsamn-
ingar samþykktir sem fólu í sér af-
skriftir á þessum skuldum félagsins.
Stórskotalið á árshátíð
Vegleg veisla verður haldin í
stærsta salnum í Hörpu, Eldborg,
í dag, föstudag, og á morgun. Í
dag verður erlendum starfsmönn-
um og viðskiptavinum boðið að
koma og njóta tónleika. Þar koma
fram margir af þekktustu tónlistar-
mönnum þjóðarinnar, meðal
annars Björn Jörundur, Valdimar,
KK, Bubbi Morthens, Sigríður
Thorlacius, Egill Ólafsson, Magnús
Eiríksson, Unnsteinn Manuel,
Eyþór Ingi og Pálmi Gunnarsson.
Þessir tónlistarmenn stíga aftur á
svið á morgun, en þá verður árshá-
tíð fyrirtækisins haldin, svokölluð
afmælisárshátíð. Í fréttatilkynn-
ingu frá fyrirtækinu segir að saga
Eimskipa sé samofin þjóðarsögu
20. aldar, „langt umfram það sem
gerist og gengur með fyrirtæki.“
Félagið sé elsta skipafélag lands-
ins og hafi frá upphafi lagt höfuð-
áherslu á skipaflutninga til og frá
landinu, og bjóði í dag upp á al-
hliða flutningaþjónustu um allan
heim. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Árið 2009 var
félagið endur-
skipulagt og það komu
nýir hluthafar inn í félagið.
Gylfi Sigfússon
Forstjórinn lét hafa eftir
sér að kröfuhafar hefðu
þurft að gefa eftir „stór-
an hluta krafna sinna.“
Þær kröfur voru upp á 177
milljarða króna.
„Eimskipa-
félagið hefur
aldrei farið í þrot
„Við höfum fengið nóg“
Þórkatla og Sandra halda eineltisviðburð
V
ið þekkjum báðar krakka
sem hafa verið lagðir í ein-
elti auk þess sem við vor-
um báðar lagðar í einelti.
Við höfum fengið nóg,“ segir Þór-
katla Haraldsdóttir, 16 ára nemandi
í Verkmenntaskólanum á Akureyri,
en hún og vinkona hennar, Sandra
Ósk Guðlaugsdóttir, hafa skipulagt
eineltisathöfnina We Care á laugar-
dagskvöldið. „Við verðum með
kertaathöfn niðri á Ráðhústorgi þar
sem útikerti verða seld á 300 krónur
en ágóði kertanna rennur óskertur
til geðdeildar FSA. Síðan verður
viðburður í Rósenborg en þar verð-
ur uppistand og tónlistaratriði auk
þess sem nokkrir hugrakkir einstak-
lingar ætla að deila sinni reynslu.“
Þórkatla segir einelti vandamál
á meðal ungs fólks á Akureyri. „Ég
held samt að ástandið sé skárra en
það var fyrir þremur, fjórum árum
en þetta getur verið svo dulið að
það er erfitt að koma auga á það.
Mikið af einelti á sér stað á netinu
og svo eru margir sem lifa í þögn
og þora ekki að segja frá,“ segir Þór-
katla en bætir við að umburðar-
lyndi gagnvart einelti fari minnk-
andi. „Grunnskólarnir hafa flestir
tekið upp eineltisstefnu og svo hafa
margir fengið nóg. Við verðum að
standa með þeim sem geta ekki
staðið upp fyrir sig sjálfir. Ekki hika
við að ganga á gerandann og segja
honum að hætta. Ekki koma með
dónalegar athugasemdir; bara láta
vita að þetta sé rangt. Svo þarf að
tala við þolandann og vera til staðar
fyrir hann.“
Þórkatla var lögð í einelti þegar
hún bjó á höfuðborgarsvæðinu.
„Sem betur fer var fólk til staðar
fyrir mig. Þetta var mjög slæmt á
tímabili en hefur sem betur fer al-
veg hætt núna. Ég er ennþá að jafna
mig og það gerist hægt en örugg-
lega. Sumir jafna sig hins vegar
aldrei og þess vegna er mikilvægt
að eiga góða að.“ n
indiana@dv.is
Taka málin í
sínar hendur
Stelpurnar
hafa báðar
verið lagðar í
einelti og hafa
fengið nóg.
Eldur borinn
að blöðum
Rétt eftir miðnætti, aðfaranótt
fimmtudags, var borinn eldur að
blöðum, Fréttatímanum og aug-
lýsingapésum, sem voru í sameign
í vesturborginni þannig að nokkur
reykur myndaðist í sameigninni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
segir íbúa í húsinu hafa verið fljót-
an að átta sig og sótt vatn í skúr-
ingarfötu og slökkt eldinn. Nokkur
reykjarlykt var í sameigninni en
mjög óverulegar skemmdir vegna
skjótra viðbragða íbúans. Ekki
náðist í geranda á vettvangi en
málið er í rannsókn.
Ekki var við
áhættuhegðun
„Ég hef ekki orðið vitni að neinni
áhættuhegðun hjá Mýflugi í þessi
ár sem ég hef starfað með þeim
og ber til þeirra fyllsta traust. Ég
veit ekki betur en aðrir læknar og
sjúkraflutningamenn sem starfa
með þeim geri það líka,“ er haft
eftir Sigurði E. Sigurðssyni, lækni
á sjúkrahúsinu á Akureyri í Akur-
eyri Vikublaði. Tveir létust þegar
vél frá flugfélaginu skall á jörðu
í ágúst.
Sigurður segir starfsmenn
Mýflugs taka öryggismálin alvar-
lega og segist ekki skilja hvaða til-
gang fréttaröð 365-miðla um mál-
ið hafi. „Þeirri spurningu verða
þeir sjálfir að svara. Mér fannst
dapurlegt að menn gátu ekki
beðið með þessa umfjöllun þar til
lokaskýrsla rannsóknarnefndar lá
fyrir,“ er haft eftir Sigurði.
Karlar í efstu
þremur
Ekki verða gerðar breytingar
á lista Sjálfstæðisflokksins og
verða því Halldór Halldórsson,
Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan
Magnússon í efstu þremur sætum
flokksins í borgarstjórnarkosn-
ingunum í vor.
Frambjóðendur fyrir neðan
þriðja sætið munu færast einu
sæti ofar vegna þess að Þorbjörg
Helga Vigfúsdóttir mun ekki taka
fjórða sætið á lista flokksins. Í
kjölfar úrslita prófkjörsins sendi
framkvæmdastjórn Landssam-
bands sjálfstæðiskvenna frá sér
tilkynningu þar sem hún harm-
aði hve hlutur kvenna væri rýr í
efstu sætum lista flokksins fyrir
borgarstjórnarkosningar í Reykja-
vík í vor. Kjörnefnd var hvött til
að gera breytingar, því helming-
ur borgarbúa væri konur. Mikil-
vægt væri að þær veldust einnig
til áhrifa. Úr því varð ekki.