Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Blaðsíða 10
10 Fréttir Helgarblað 17.–20. janúar 2014
vegna lekamálsins
n Beitir sér gegn umræðu um lekamálið n Skaut Rauða krossinum skelk í bringu
F
orseti Alþingis hefur ekki
orðið við beiðni þess efnis
að sérstök umræða um trún-
aðarbrest innanríkisráðu-
neytisins gagnvart hælisleit-
endunum Tony Omos og Evelyn
Glory Joseph verði tekin á dagskrá.
Valgerður Bjarnadóttir, þingkona
Samfylkingarinnar, óskaði eftir um-
ræðunni fyrir jól og hefur ítrekað
beiðnina eftir að þing hófst að nýju.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Al-
þingis, neitaði því á miðvikudag að
beiðnin hefði verið lögð fram fyrir
jól en Valgerður, auk fleiri þing-
manna sem DV hefur rætt við, stað-
festa að sú hafi verið raunin.
Hanna Birna Kristjánsdóttir inn-
anríkisráðherra þurfti að svara fyrir
trúnaðarbrestinn á fundi stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar um miðjan
desember en svör hennar þóttu ekki
fullnægjandi. Þá hafa bæði Katrín
Jakobsdóttir, formaður Vinstri
grænna, og Birgitta Jónsdóttir, þing-
kona Pírata, spurt Hönnu Birnu um
málið í óundirbúnum fyrirspurna-
tímum.
Viðbrögð ráðherrans við fyrir-
spurnum þeirra voru óvenjuleg.
Hún ávítti Birgittu fyrir að vekja
máls á trúnaðarbresti ráðuneytis-
ins og reyndi síðar að koma í veg
fyrir að Katrín legði fram fyrirspurn
vegna málsins. Þeir þingmenn sem
DV hefur rætt við eru sammála um
að þetta séu afar óvenjuleg viðbrögð
ráðherra, enda starfi framkvæmda-
valdið í umboði löggjafans. Alvar-
legt sé að framkvæmdavaldið reyni
með þessum hætti að koma í veg
fyrir að löggjafinn geti sinnt eftirlits-
skyldu sinni. DV leitaði viðbragða
ráðherra vegna málsins en engin
svör bárust. Ráðuneytið tilkynnti DV
síðasta föstudag að það myndi ekki
svara frekari fyrirspurnum varðandi
málið.
Óvenjuleg viðbrögð ráðherra
Birgitta Jónsdóttir lagði fram fyrir-
spurn í óundirbúnum fyrirspurna-
tíma á Alþingi þann 3. desember þar
sem hún spurði ráðherra út í minnis-
blað sem í frétt Morgunblaðsins var
sagt eiga uppruna sinn í innanríkis-
ráðuneytinu. Í kjölfarið tók Hanna
Birna hana á tal inni í fundarher-
bergi þingsins. „Hún skammaði
mig,“ segir Birgitta sem tekur fram
að sér hafi orðið verulega brugðið
við þessi viðbrögð ráðherrans.
Þann 16. desember spurði Katrín
Jakobsdóttir um málið í óundirbún-
um fyrirspurnatíma. Þingmenn urðu
vitni að því, í eldhúsi Alþingis, þegar
Hanna Birna reyndi að sannfæra
Katrínu um að leggja fyrirspurnina
ekki fram. Er þessu lýst þannig að
Hanna Birna hafi „ekki tekið því
mjög vel“ þegar hún áttaði sig á því
að Katrín hugðist spyrja um trúnað-
arbrestinn. Vildi hún meina að það
væri óþarfi þar sem Birgitta hefði
þegar gert það. Fyrirspurn Katrínar
snéri hins vegar að athugun innan-
ríkisráðuneytisins vegna málsins,
þeirri sömu og ríkissaksóknari hefur
nú spurt innanríkisráðuneytið um.
Þeir þingmenn sem DV hefur rætt
við eru sammála um að þessi við-
brögð ráðherrans komi á óvart enda
sé ofureðlilegt að rætt sé um mál sem
þessi í óundirbúnum fyrirspurna-
tímum. Þá séu átökin yfirleitt fyrir
opnum tjöldum, það er í ræðustól
Alþingis, en í tilviki Birgittu annars
vegar og Katrínar hins vegar, hafi
ráðherra beitt sér á bak við tjöldin.
Ótti Rauða krossins
Áhugavert er að skoða viðbrögðin
við fyrirspurnunum í ljósi annarra
viðbragða ráðuneytisins vegna
málsins. Aðstoðarmaður Hönnu
Birnu var tvísaga um málið í upp-
hafi og þá hafa opinber svör ráðu-
neytisins ekki þótt tæmandi. Það
lýsir sér best í því að ríkissaksóknari
hefur beðið ráðuneytið um svör og
meðal annars spurt um þá athugun
sem Hanna Birna segist hafa látið
gera innanhúss vegna málsins. Eins
og DV greindi frá fyrir viku liggur
einnig kæra á hendur Hönnu Birnu
og starfsmönnum innanríkisráðu-
neytisins á borði lögreglu. Ráðu-
neytið hefur hafnað tilvist þessarar
kæru þrátt fyrir að lögregla staðfesti
að hún hafi borist.
Þann 19. desember birtist frétt
á DV.is um að Hanna Birna hefði
bendlað Rauða krossinn við lekann
á minnisblaði ráðuneytisins. Starfs-
maður Rauða krossins gagnrýndi
Hönnu Birnu harðlega og sagði
ummæli hennar „fyrir neðan all-
ar hellur“, enda hefðu samtökin
hvorki verið búin að fá í hendur úr-
skurð innanríkisráðuneytisins um
hælis umsókn Tony Omos né um-
rætt minnisblað þegar skjalið var af-
hent Fréttablaðinu og Morgunblað-
inu. Um svipað leyti og fréttin birtist
var Hanna Birna stödd í húsakynn-
um Rauða krossins að tilkynna um
styrkveitingar til samtakanna.
DV hefur rætt við starfsfólk sem
var í húsinu þennan dag. Einn við-
mælandi sagði að aðstæðurnar
hefðu verið óþægilegar og hálfvand-
ræðalegar. Starfsfólk hefði orðið
taugaóstyrkt þegar frétt DV barst í
tal, enda væri fátt mikilvægara en að
Rauði krossinn ætti í jákvæðum sam-
skiptum við innanríkisráðuneytið.
Vísaði starfsmaðurinn sérstaklega til
þess að mikið væri um niðurskurð og
halda þyrfti ráðherra góðum. n
Jóhann Páll Jóhannsson
Jón Bjarki Magnússon
johannp@dv.is / jonbjarki@dv.is
„Hún skamm-
aði mig
Skömmuð Birgitta Jónsdóttir segir að
Hanna Birna hafi skammað hana eftir að
hún lagði fram fyrirspurn varðandi trúnaða-
brest ráðuneytisins.
Vitni að samtali Þingmenn urði vitni að
því þegar Hanna Birna reyndi að sannfæra
Katrínu Jakobsdóttur um að spyrja ekki út
í málið.
Ósátt við fyrirspurnir Hanna Birna Kristjáns-
dóttir innanríkisráðherra var ósátt við fyrirspurn
Birgittu Jónsdóttur og reyndi að sannfæra Katrínu
Jakobsdóttur um að spyrja ekki út í málið.
Átök bak við tjöldin
BÍL setur RIFF út í kuldann
Kölluðu eftir breytingum á RIFF í svartri skýrslu fyrir ári - Kvikmyndahátíð Reykjavíkur fær styrk
A
lþjóðlega kvikmyndahátíðin í
Reykjavík, RIFF, fær ekki styrk
frá menningar- og ferðamála-
ráði Reykjavíkurborgar í ár líkt
og öll þau ár sem hátíðin hefur verið
starfrækt. Þess í stað fær Kvikmynda-
hátíð Reykjavíkur, sem Bíó Paradís
stendur fyrir, styrk upp á átta milljónir
króna. DV greindi frá því í fyrra að ráð-
ið hefði fengið skýrslu frá eftirlitsnefnd
um RIFF og færi með hana sem trún-
aðarskjal. Þar voru tilgreindar ástæður
fyrir því að hátíðin ætti ekki að fá styrk,
en hún fékk þó styrkinn að lokum eft-
ir að breytingar voru gerðar á hátíðinni
og stjórn hennar.
Vernduðu RIFF
Einar Örn Benediktsson, formaður
menningar- og ferðamálaráðs borg-
arinnar, sagði þá við DV að það væri
trúnaðarmál af hverju borgin veitti
ekki áframhaldandi vilyrði fyrir styrk-
veitingu. Sagði hann að viðræður væru
í gangi um framtíðarskipulag hennar
og hvernig ráðið vildi hafa hátíðina,
þrátt fyrir að hafa hafnað umsókninni.
Ástæðan fyrir því að skýrslan var flokk-
uð sem trúnaðarmál var sögð sú að
inntak hennar gæti skaðað aðstand-
endur RIFF og þar með hátíðina sjálfa.
Meðlimir ráðsins fengu ekki afrit af
skýrslunni, sem kölluð var „minnis-
blað“ svo hún yrði ekki háð ákvæðum
um upplýsingalög. Samkvæmt frásögn
ónafngreinds aðila úr stjórnsýslunni
voru upplýsingarnar sem fram komu í
henni, „erfiðar, óvægnar og viðkvæm-
ar.“ Skýrslan var meðal annars byggð
á samtölum við fyrrverandi og þáver-
andi starfsmenn hátíðarinnar, sem
samkvæmt heimildum DV voru gagn-
rýnir á starfshætti stjórnenda RIFF.
Ákvörðun BÍL þvert á samning
Á fundi menningar- og ferðamála-
ráðs í desember síðastliðnum var tek-
ist á um málið, en þar óskuðu fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins eftir því að styrk-
ir til reksturs kvikmyndahúsa og kvik-
myndahátíða yrðu skoðaðir heild-
stætt. Þar er fullyrt að Bíó Paradís fái
rekstrarstyrk upp á fjórtán og hálfa
milljón á ári, en sé þó í rekstrarvanda.
Þá þyrfti að skoða hvernig ákvörðun
faghóps Bandalags íslenskra lista-
manna, BÍL, kæmi þvert ofan í nýlegan
og uppfylltan samning um breytingar
hjá framkvæmdastjórn RIFF, gegnsæi
í fjármálum og fleira. Fulltrúar Besta
flokksins, Samfylk-
ingar og Vinstri
grænna sögðu að
meirihluti ráðsins
færi í einu og öllu
að tillögu BÍL um styrkveitingar og að
ekki væru forsendur fyrir því að hrófla
við mati hópsins. Tillagan var því að
lokum samþykkt, en fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins sátu hjá.
Faglegt mat BÍL
Í samtali við DV sagði Einar Örn að
ráðið hefði undantekningarlaust sam-
þykkt allar tillögur BÍL á þessu kjör-
tímabili. „Þeirra tillaga núna var sú að
annar umsækjandinn fengi hátíðina,
og það var ekki RIFF. Þannig er þetta
tilkomið og það er þeirra faglega mat.
Umsókn Kvikmyndahátíðar Reykja-
víkur var betri,“ segir Einar Örn. Að-
spurður segir hann að upphæð fjár-
styrksins sé eðlileg, en á fyrstu árum
RIFF voru styrkir til hátíðarinnar mun
lægri en á síðustu árum. Fjárhæðin í ár
er átta milljónir króna, en í fyrra fékk
RIFF níu milljónir. „Miðað við þá um-
sókn sem er send inn, þá finnst mér
þetta ekki óeðlileg upphæð. Ég ber
fullt traust til BÍL og vinn eftir þeirra
mati,“ segir Einar Örn. n
rognvaldur@dv.is
Einar Örn „Miðað við þá umsókn sem er
send inn, þá finnst mér þetta ekki óeðlileg
upphæð,“ segir Einar Örn.