Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Síða 23
Fréttir 23Helgarblað 17.–20. janúar 2014
grunlaus um fortíð Karls
Yfirlýsing Yfirlýsing stjórnar Bergmáls. Hér kemur fram að engin rökstuddur grunur
hafi verið um að Karl Vignir væri barnaníðingur.
Greinargerð Greinargerð Unnar Kolbrúnar Karlsdóttur.
n Unnur baðst afsökunarn Bréf ekki næg sönnun fyrir glæpum Karls Vignis n Prestur gekk á Karl sem neitaði öllu
Þokkavæðing
útvegsmanna
Markaðsstjóri Matís svarar fyrir þokkanámskeið LÍÚ
H
áskólinn í Reykjavík og
Landssamband íslenskra út
vegsmanna, LÍÚ, standa fyrir
sameiginlegum námsstofum
í vetur. Þar verður meðal
annars farið yfir ímyndarmál sem
og framkomu í fjölmiðlum. Náms
stofurnar eru ætlaðar stjórnendum
í sjávarútvegi og eru hluti af nýrri
námsbraut sem Háskólinn í Reykja
vík og LÍÚ standa að en alls verða sjö
námsstofur í boði.
Ímynd LÍÚ hefur átt undir högg að
sækja á síðustu árum, ekki síst í kjölfar
þeirrar hörku sem hagsmunasamtök
in þóttu sýna í baráttu sinni gegn sér
stöku veiðigjaldi sem komið var á í tíð
fyrri ríkisstjórnar. Svo virðist sem nú
eigi að breyta þessari ímynd.
María Ellingsen, leikkona, leik
stjóri og stjórnendaþjálfari, mun sjá
um að fræða forkólfa sjávarútvegar
ins um það hvernig eigi að brosa og
sýna af sér þokka fyrir framan mynda
vélarnar. Karen Kjartansdóttir, upp
lýsingafulltrúi LÍÚ, staðfestir í samtali
við DV að María sjái um þennan hluta
námskeiðsins. „Við erum að vona að
hún komi og fari svona aðeins yfir
framkomu í fjölmiðlum.“
„Gera skemmtilega hluti“
Karen svaraði fyrir námskeiðið í sam
tali við Fréttablaðið á dögunum, en
þar sagði hún: „Góð framkoma í fjöl
miðlum er mikilvægur þáttur sem
þarf að leggja mikla áherslu á.“ Að
spurð hvort um eiginlegt „þokka
námskeið“ sé að ræða segir
Karen: „Kannski ekki alveg, en
það er hluti af þessu að reyna
að aðstoða stjórnendur við að
láta ljós sitt skína og segja skýrt
frá því sem það vill koma á fram
færi.“
Varðandi spurninguna um það
hvort framkomu LÍÚmanna í fjöl
miðlum og ímyndarsköpun
hafi verið ábótavant seg
ir Karen: „Einhverj
um kann að hafa
þótt þörf á því að
menn bættu sig á
þessum sviðum
en það er bara
um að gera að
menn þekki
réttu leiðirn
ar til þess að
koma því á
framfæri
hvað þeir
eru að gera skemmtilega hluti, það á
við í sjávarútveginum eins og öðru.
Þannig að við viljum endilega hvetja
stjórnendur í sjávarútvegi til enn betri
verka, en þeir hafa staðið sig frábær
lega hingað til.“
Dr. Valdimar Sigurðsson, dósent
í markaðsfræðum við viðskiptadeild
HR, mun sjá um námsstofu um mark
aðs og ímyndarmál.
Furðuleg atburðarás
Eftir að blaðamaður hefur kvatt upp
lýsingafulltrúa LÍÚ tekur við furðuleg
atburðarás. Karen hefur stuttu síðar
samband við blaðamann og biður
hann um að tala við Steinar B. Aðal
björnsson, markaðsstjóra hjá Matís,
áður en hún réttir honum símann.
Steinar talar vel og lengi um ágæti ís
lensks sjávarútvegar, og það sem bet
ur megi fara, eins og til dæmis með því
að fjölga konum í stjórnunarstöðum.
Aðspurður hvernig þetta tengist
námskeiðinu sem er umfjöllun frétt
arinnar, og þá hvort þar verði eitt
hvað fjallað um þátt kvenna í sjávarút
vegi segir Steinar svo ekki vera. Hann
heldur hins vegar áfram að tala um
ágæti íslensks sjávarútvegar og bendir
meðal annars á að þar sé um að ræða
eitt af stóru atriðunum í lausninni á
heilbrigðisvanda Íslendinga. „Og þá
spyrð þú væntanlega, bíddu hvernig
er það? Jú, í hafinu eru matvæli, sem
geta aðstoðað okkur í baráttunni við,
til dæmis, sykurfíkn.“
Deilum ekki um kvóta
Blaðamaður stopp
ar Steinar stuttu síð
ar, segir hann vera
kominn langt út
fyrir efnið og spyr
hann hvernig
þetta tengist námskeiði LÍÚ og Há
skólans í Reykjavík sem er jú efni frétt
arinnar. „Ja, við hjá Matís höfum verið
í margþátta samstarfi við LÍÚ, og eitt
af því sem við höfum unnið að er að
koma upplýsingum sem skipta máli
áleiðis, ekki bara fyrir sjávarútveginn
heldur fyrir almenning, og þess vegna
er ég að segja að þokki og framkoma
í kringum sjávarútveginn er ekki hvað
síst að kunna að koma frá sér upplýs
ingum með jákvæðum hætti.“
Blaðamaður stoppar Steinar á
nýjan leik og spyr hvernig hann tengist
námskeiðinu. „Ég er hvorki þátttak
andi né kennari á þessu námskeiði.
En það er endalaust til af jákvæðum
upplýsingum um sjávarútveginn sem
ná allt of sjaldan í gegn.“
Hvattir til að breyta ímyndinni
Fjölmiðillinn Skástrik greindi ítarlega
frá aðalfundi LÍÚ í haust. Þar kom
meðal annars fram að þingkona
Bjartrar framtíðar, Björt Ólafsdóttir,
hefði flutt ræðu á fundinum þar sem
hún hvatti stjórnendur í sjávarútvegi
til að kynna starf sitt betur og verða
leiðandi í umræðunni. „Ég hvet til
þess að þið séuð leiðandi í þessu. Þið
eruð komnir með flottan nýjan upp
lýsingafulltrúa, hana Karen Kjartans
dóttur, og þið skuluð endilega nýta
hana og allan ykkar mannafla til þess
að vera jákvæð og flott út á við.“
Svo virðist sem útvegsmenn hafi
tekið Björt á orðinu. Námskeiðið
kostar 245 þúsund krónur og sam
kvæmt upplýsingum DV hafa fjöl
margir skráð sig. n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Þokkinn hluti af þessu Karen Kjartans-
dóttir, upplýsingafulltrúi LÍÚ, segir nám-
skeiðið ekki vera eiginlegt „þokkanámskeið“
en viðurkennir að þokki stjórnenda sé hluti af
því sem farið verður yfir.
„Ég er hvorki þátt-
takandi né kennari
á þessu námskeiði
Ótengdur Steinar B.
Aðalbjörnsson, markaðs-
stjóri hjá Matís, tengist
námskeiðinu ekki á
neinn hátt.
Brosandi stjórnarmenn
Hér má sjá stjórnarmenn LÍÚ
brosa fyrir myndavélina. MYnD LÍÚ