Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Side 26
Helgarblað 17.–20. janúar 201426 Fréttir Erlent
L
ögreglan á Indlandi hefur
handtekið hóp heimilislausra
manna í Nýju-Delí grunaða
um að hafa nauðgað danskri
konu síðastliðinn þriðjudag.
Fórnarlambið hafði týnt samferða-
mönnum sínum og spurt heima-
mann til vegar. Samkvæmt danska
miðlinum Politiken tældi maðurinn
hana með sér á afskekktan stað þar
sem félagar hans biðu og héldu þeir
henni fanginni í þrjár klukkustundir
og beittu hana ofbeldi með margvís-
legum hætti. Auk þess stálu þeir
verðmætum sem hún var með í fór-
um sínum.
Konan, sem er 51 árs, gat lýst
mönnunum með greinagóðum hætti
og í kjölfarið handtók lögreglan hóp
grunaðra, sex unga karlmenn. Sam-
kvæmt frétt AFP lét konan samferða-
menn sína vita af árásinni þegar hún
komst á hótel sitt, sem er skammt
frá miðborginni. Konan var í miklu
áfalli og veitti sendiráð Danmerkur
henni alla þá aðstoð sem hún þurfti.
Danskir fjölmiðlar hafa greint frá því
að konan hafi haldið aftur til heim-
kynna sinna á miðvikudaginn.
Nauðgað við hlið dóttur sinnar
Reglulega berast hrottalegar fréttir
af nauðgunum á Indlandi, en að
meðal tali er tilkynnt um nauðg-
un á 20 mínútna fresti þar í landi. Í
byrjun árs var 24 ára gamalli konu
haldið nauðugri í bifreið með fjór-
um karlmönnum sem nauðguðu
henni á sama tíma og þeir óku um
götur Nýju-Delí. Lögreglan stöðvaði
bifreiðina þar sem ökumaðurinn fór
ekki eftir umferðarreglum og kom
þá í ljós að konunni var haldið þvert
gegn vilja hennar.
Þessar fréttir bárust skömmu eftir
að pólskri konu var byrlað eitur lyf
í leigubíl í borginni og nauðgað af
leigubílstjóranum. Það sem vekur
sérstakan óhug við verknaðinn er
að tveggja ára dóttir konunnar var
með meðvitundarlausri móður sinni
í bílnum.
Á Þorláksmessu kviknaði í 16 ára
stúlku, sem hafði verið nauðgað tvo
daga í röð í október á síðasta ári, og
lést hún af sárum sínum á gamlárs-
dag. Talið er að sex menn hafi kveikt
í stúlkunni með það fyrir augum að
myrða hana. Mennirnir hafa nú ver-
ið handteknir af lögreglunni sem
hefur verið gagnrýnd fyrir aðgerða-
leysi vegna málsins.
24 þúsund nauðganir árið 2011
Þekktasta hópnauðgunarmál Ind-
lands var þegar 23 ára kona lést
af sárum sínum eftir líkams-
árás og hópnauðgun í desember
2012. Konan var nýkomin úr kvik-
myndahúsi með unnusta sínum
þegar árásin átti sér stað. Þau voru
í strætisvagni þegar sex menn veitt-
ust að þeim. Unnustinn var bund-
inn niður og laminn með járnröri
áður en þeir sneru sér að konunni.
Þeir hópnauðg uðu henni í klukku-
stund og misþyrmdu kynferðislega á
marga aðra vegu, meðal annars með
járnröri. Parinu var síðan hent út úr
strætisvagni og mennirnir reyndu að
aka yfir þau, án árangurs.
Konan, sem var langt komin í
læknisfræði og þótti afburðanem-
andi, lést á sjúkrahúsi í Singapúr
þrettán dögum síðar. Forsprakki
nauðgunarinnar lést í öryggisfang-
elsinu í Tihar í mars og er talið að
hann hafi verið myrtur af samföng-
um sínum.
Í kjölfar nauðgunarinnar var
hrundið af stað bylgju mótmæla í
Indlandi. Árið 2011 voru rúmlega
24 þúsund nauðganir tilkynntar í
landinu. Mannréttindasamtök telja
að það sé aðeins brot af þeim kyn-
ferðisglæpum sem eiga sér stað þar
á hverju ári. Ferðalangar til Indlands,
sem telja 6,6 milljónir árlega, upplifa
sig margir hverjir óörugga í landinu
og forðast í lengstu lög að vera einir á
götum Indlands. n
n Danska sendiráðið veitti henni hjálp n Ekkert lát á nauðgunum á Indlandi
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
Mótmælabylgja Íbúar Indlands
hafa reglulega mótmælt kynferðis-
glæpum eftir hrottalega hóp-
nauðgun 2011. MyNd ReuteRS
„Tilkynnt er um
nauðgun á 20
mínútna fresti á Indlandi
L
ögreglan í Edinborg í Skotlandi
leitar nú ljósum logum að
þriggja ára gömlum dreng sem
hvarf frá heimili sínu aðfara-
nótt fimmtudags. Málið er allt hið
furðulegasta, en Mikaeel Kular fór að
sofa um klukkan níu á miðvikudags-
kvöld. Þegar móðir hans ætlaði að
vekja hann á fimmtudagsmorgun var
drengurinn horfinn og var hvergi að
finna í húsinu eða garði þess. „Þegar
hún vaknaði klukkan sjö í morgun
var Mikaeel ekki í rúminu sínu og
ekki í húsinu.
Hún kallaði strax til lögregluna
sem hefur verið að kemba nærliggj-
andi götur,“ segir lögreglukonan Liz
McAnish. Lögregla hefur að sjálf-
sögðu áhuga á að ræða við alla sem
telja sig hafa séð litla drenginn. Hún
hefur biðlað til íbúa Edinborgar að
„hafa augun opin gagnvart þess-
um litla dreng.“ Sérstök áhersla er
lögð á að leita í almenningsgörð-
um og á leikvöllum, enda ekki ólík-
legt að hann hafi leitað slíkt uppi til
að leika sér. Talið er líklegt að hann
sé í brúnum skóm og drapplituðum
jakka. Að sögn hefur verið rætt við
alla fjölskyldumeðlimi, bæði þá sem
búa með þeim mæðginum sem og
stórfjölskylduna. Engin virðist skilja
hvernig barnið gat horfið. Þykir mál-
ið allt hið undarlegasta. Lögregla gef-
ur ekkert uppi um það hvort málið
tengist forræðisdeilu foreldra drengs-
ins, en enn sem komið er virðist geng-
ið út frá því að drengurinn hafi sjálf-
viljugur yfirgefið heimili sitt. n
astasigrun@dv.is
Hvarf frá heimili sínu
Lögreglan í Edinborg rannsakar dularfullt hvarf þriggja ára drengs
Var ekki í rúminu Mikaeel var ekki í rúmi sínu á fimmtudagsmorgun. Lögregla telur að
engin ástæða sé til að ætla annað en að hann hafi yfirgefið heimili sitt sjálfviljugur.
Yfirmanni
hersins sparkað
Forseti Nígeríu, Goodluck Jonath-
an, hefur vikið yfirmanni hersins
þar í landi, Ola Ibrahim, frá störf-
um. Ástæðan er meint getuleysi
þess síðarnefnda til að stemma
stigu við auknum umsvifum rót-
tækra íslamista í norður hluta
landsins. Eru það einna helst um-
svif hryðjuverkasamtakanna Boko
Haaram sem valdið hafa forsetan-
um hugarangri en samtökin hafa
látið mikið til sína taka undanfar-
in misseri og myrt fjölda fólks. Nú
síðast á þriðjudag biðu sautján
manns bana þegar bílsprengja
sprakk í borginni Maiduguri í
norðurhluta Nígeríu.
Munntóbak
og meðganga
Börn mæðra sem neyta munn-
tóbaks á meðgöngu eru í meiri
hættu en önnur börn á að fæð-
ast holgóma. Þetta á að minnsta
kosti við í Svíþjóð en vísinda-
menn við Karólínska-sjúkrahús-
ið og við háskólann í Uppsölum
rannsökuðu þessi tengsl. Börn
mæðra sem neytt höfðu sænsks
munntóbaks, sem einnig er kall-
að snus, á meðgöngu voru rann-
sökuð. Rannsóknin stóð yfir um
langt skeið og náði til 975 þúsund
nýbura. Af þeim fæddist 1.761
barn holgóma. Leiddu niður-
stöðurnar í ljós að börn sem áttu
mæður sem neyttu munntóbaks
voru í meiri hættu en önnur
börn. Þess má þó geta að börn
mæðra sem reyktu á meðgöngu
voru einnig í meiri hættu en önn-
ur börn á að fæðast holgóma.
Norskt
fyrirtæki fær
milljarðasekt
Norska áburðarfyrirtækið Yara
International hefur verið sektað
um 295 milljónir norskra króna, 5,5
milljarða króna, vegna spillingar.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
voru fundnir sekir um að múta
hátt settum embættismönnum í
Líbíu og Indlandi, meðal annars
olíumálaráðherra Líbíu í tíð ein-
ræðisherrans Muammar Gaddafi.
Með mútunum tókst fyrirtækinu
að landa stórum samningum í
viðkomandi ríkjum. Forsvars-
menn Yara segja að refsingin sé
hörð en henni verði unað. Yfir átta
þúsund manns starfa hjá Yara um
víða veröld. Norska ríkið á 36,2
prósenta hlut í fyrirtækinu.
Hópnauðgað í 3
klukkustundir