Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Side 30
Helgarblað 17.–20. janúar 201430 Umræða
Umsjón: Henry Þór BaldurssonLöggæsla efld.. með löggum?!
Stoð og stytta
F
ullkomið jafnrétti er hugsjón
sem getur orðið að veruleika,
svo lengi sem kyn, kynhneigð,
þjóðerni, litarháttur, stétt
o.s.frv. drepa þá hugsjón ekki. Í þessu
sambandi er rétt að hafa í huga, að
framþróun og fjölbreytni sameinar
okkur, á meðan einsleitni og stöðn-
un sundra okkur. Sérhagsmunir og
stöðugleiki eru svefnlyf sem styrkja
kúgarana í sessi og deyfa mótspyrnu
hinna kúguðu.
Við lifum í heimi þar sem kyn-
bundið ofbeldi er daglegt brauð.
Slíkt ofbeldi er kynbundið í krafti
vöðvaafls, og vegna þess að margt
fólk er þannig gert að það kýs að ráð-
ast á þá sem minna mega sín. Ýms-
ir menn hika ekki við að níða skóinn
af þeim sem haltir eru. Það þykir bók-
staflega flott að vera ríkur og valda-
mikill; einkum ef menn kunna virki-
lega að sýna auð og völd. Efnishyggja
okkar gerir bókstaflega þessa ein-
földu kröfu. Yfir leitt er þessi brenglun
hvorki bundin við kvenhatur né
karlhatur, hún er einfaldlega hegð-
un þess manns sem nýtir krafta sína
til þess að reyna að varpa ljósi á það
sem hann sjálfur telur vera sína eigin
yfirburði.
Þessi hegðun er þannig ekki endi-
lega bundin við hnefarétt, hún getur
einnig birst sem pólitísk valdníðsla,
loddaraskapur, andleg kúgun eða í
öðru formi. En það er akkúrat þessi
hegðun sem hefur í aldaraðir ráð-
ið því, að karlar hafa leyft sér þann
munað að telja sjálfum sér trú um að
þeir einir geti stjórnað heiminum.
Og það merkilega er, að fólk hefur
lært – í nafni einfeldni, undirgefni,
trúar og vísindahyggju – að meðtaka
umrædda hegðun sem hinn eina
sanna veruleika. Sagan var framan
af og allt til okkar daga, nánast ein-
vörðungu, rituð af körlum fyrir karla.
En hér tel ég, að við getum lært af
sögunni og leyft mætti hugvísindanna
að ráða för.
Á einum stað í Reykjavík er stytta
af karlmanni. Þessi stytta er – í mínum
huga – merkileg vegna þess að hún er
í lundi þar sem karlinn og eiginkona
hans höfðu þann ágæta sið að gefa
fuglum. Og víst má telja að spörfugl-
arnir hafi notið matar frá þeim hjón-
um báðum. En engu að síður er stytt-
an af karlinum einum. Væntanlega
hefur tíðarandinn sagt umheiminum
að karlinn teldist merkilegri maður
en kona hans. Kona hans hefur þó
væntanlega verið hans stoð í gegnum
allt hans vafstur og hefði, af þeim
sökum, mátt vera við hans hlið þarna
í lundinum. Í raunheimi birtist hverf-
ul mynd af karli, en í hugarheimi er
varanleg mynd af konu.
Hugvísindin eru – sem betur fer –
grunnur allra vísinda; hið varanlega
verður aldrei áþreifanlegt. Hugsun-
in um stoðina er varanleg, á meðan
styttan molnar í áranna rás.
Styttan af karlinum er eitt af
mörgum dæmum um karlrembu-
samfélagið sem öllu hefur ráðið í
gegnum aldirnar. Og þessi stytta fær
mann óhjákvæmilega til að hugsa
um stoðina sem gerði það að verkum
að styttan var sett á stall. Án stoðar-
innar hefði karlinn væntanlega aldrei
náð að verða stytta. Styttan er þannig
birtingarmyndin í raunheimi og hún
gerir þá kröfu, að konan sem stóð
með karlinum og gaf fuglunum, komi
ávallt fram í huga þess sem styttuna
sér. Þetta er það sem við getum lært af
sögunni: Við getum tekið hugsunina
með; leyft henni að lyfta á stall þeim
stoðum sem virkilega gerðu fram-
vindu sögunnar mögulega. n
Hið illa jafnan á sér stað
og afar víða leynist
en hafa ber í huga það
sem heldur betra reynist.
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
„Hugsunin um
stoðina er varan
leg, á meðan styttan
molnar í áranna rás.
Takk, Guðmundur
S
amkvæmt skilgreiningu
forsætisráðherra á skoð-
anahópum ESB-aðildar er
ég viðræðusinni. Á sínum
tíma, þegar lagt var upp í
þennan ESB-leiðangur, hefði verið
hyggilegra að gera það með þjóðar-
vilja að baki. Þáverandi stjórnvöld,
eða réttara annar stjórnarflokk-
urinn, vildi forðast að sitja uppi
með niðurstöðu sem honum ei
hugnaðist. Því var ákveðið að keyra
á málið í sundrung við samstarfs-
flokk og þjóð. Útkoman hálfkaraðar
viðræður og ekkert sem hönd á
festir.
Núverandi stjórnvöld lofuðu
þjóðaratkvæðagreiðslu um fram-
hald viðræðna. Enda benda skoð-
anakannanir til þess að lungi
þjóðarinnar vilji klára samninga-
viðræður við ESB svo hægt sé
að taka upplýsta afstöðu en ekki
byggða á getgátum. Andstaða nú-
verandi stjórnarmeirihluta við ESB
er augljós og kosningaloforðið strax
farið að skipta litum, gengur nú út á
hugsanlega þjóðaratkvæðagreiðslu
um já eða nei við ESB, án þess að
viðræðum sé lokið. Og segi þjóðin
já, hvað þá? Á þá að hefja viðræð-
ur á ný eða ganga inn í bandalag-
ið án samnings? Svona uppsetning,
án þess að fyrir liggi fullklárað-
ur samningur, hvetur auðvitað til
höfnunar, fáir vilja skrifa undir óút-
fylltan víxil. Svona er málið viljandi
þæft til að fresta málalokum. En
þjóðin á heimtingu á efndum kosn-
ingaloforðsins sem er skýrt: Þjóðar-
atkvæðagreiðsla um það hvort við
viljum klára aðildarviðræður við
Evrópusambandið eða ekki.
Svona blekkingarleikir eru þó
ekkert einsdæmi. Skuldaniðurfell-
ingin hefur heldur betur rýrnað
og fétakan sem átti að vera til
kröfu hafa gömlu bankanna endar
væntan lega í okkar eigin vasa. Síð-
asta ríkisstjórn ætlaði að uppræta
sjálftöku útvegsfyrirtækja á sjávar-
auðlindinni en endaði snautleg
við samningaborð LÍÚ. Formaður
Bjartrar framtíðar toppar þó hrá-
skinnsleikinn með tillögu sinni að
breytingum á stjórnarskrá. Sem
segir að 2/3 hlutar þingmanna geti
samþykkt stjórnarskrárbreytingar
sem þjóðin greiðir síðan atkvæði
um og þurfi meirihlutasamþykkt
og að minnsta kosti 40% kjósenda
segi já. Þessi tillöguskrambi átti
að vera lífsakkeri nýrrar stjórnar-
skrár sem þjóðin blessaði haustið
2012. Auðvitað sjá það allir í hendi
sér að samstaða 2/3 hluta þing-
manna mun aldrei nást um nein
lykilmál enda það ástæðan fyrir
því að stjórnarskrármálið var fært
frá þingi til þjóðar. Árangurinn af
þessari tillögu er því enn ein stjórn-
arskrárnefnd undir forsæti Sigurðar
Líndals. Takk, Guðmundur.
Af framansögðu dreg ég þá
ályktun að þinginu sé mjög í mun
að halda öllum valdasprotum inn-
an eigin veggja. Þingmenn kæra
sig ekkert um afskipti þjóðarinnar
og þó endurnýjun verði á fjögurra
ára fresti er þeirri endurnýjun að
mestu stjórnað af flokkunum. En
öll þessi mál sem hér eru nefnd,
ESB, þjóðaratkvæðagreiðslur, sjáv-
arauðlindin og flokksræðið, öll fá
sinn farveg í hinni nýju stjórnarskrá
sem valdhöfum er svo í nöp við.
Með beinu lýðræði gætu kjós-
endur tekið frumkvæðið úr hönd-
um alþingismanna, safnað undir-
skriftum 10% atkvæðisbærra
manna og knúið fram þjóðarvilja
um aðildarviðræður við ESB eða
ekki. Þannig skipti fum 63 einstak-
linga á Alþingi okkur engu máli,
við tækjum málið einfaldlega í
okkar hendur. Og niðurstaðan
yrði óvéfengjanleg, ekkert vesen.
Líklegt er að á þessu þingi komi
fram frumvarp um gjafagjörning
fiskimiðanna til frambúðar og þá,
samkvæmt nýrri stjórnarskrá, gætu
kjósendur samið sitt eigið frum-
varp og skotið því samhliða hinu í
þjóðaratkvæði. Þannig væri búið að
girða fyrir afsal þjóðareigna nema
þjóðarvilji liggi að baki.
Spillingarstjórnmál eru al-
heimsvandamál. Samkrull stjórn-
málamanna og peningaafla er þar
undirliggjandi. Eina vörn almenn-
ings gegn þessari vá er að hafa eitt-
hvað í höndunum sem getur stöðv-
að yfirgang valdhafa þegar svo ber
undir. Í slíku vopnabúri ber hæst
beint lýðræði og persónukjör. Það
er löngu ljóst að landsmenn vilja
aukin áhrif en hagsmunaaðilar sem
eiga sitt undir kyrrstöðunni streit-
ast á móti. Þar er Alþingi Íslendinga
í broddi fylkingar. n
„Samkrull stjórn
málamanna og
peningaafla er þar undir
liggjandi.
Lýður Árnason
læknir og vaktstjóri Lýðræðisvaktarinnar
Kjallari
Mest lesið
á DV.is
Vinsælast á fimmtudaginn
1 Fyrrverandi landsliðs-maður nær dauða en lífi
vegna læknamistaka Hannes
Jón Jónsson, handboltamaður og fyrr-
verandi landsliðsmaður, greindist með
krabbamein á haustmánuðum 2012.
Mistök lækna í Þýskalandi kostuðu hann
nærri lífið.
28.345 hafa lesið
2 20 atriði sem andlega sterkir gera ekki Í upphafi
nýs árs ætla margir að taka sig á, bæði
líkamlega og andlega. DV fjallaði um
ráð rithöfundarins og heimspekingsins
Pauls Hudson um hvernig við getum
hámarkað hamingju okkar og árangur.
16.950 hafa lesið
3 Snautlegur endir á farsælli sögu
Saga útgerðarfyrirtækisins Stálskipa
einkennist af dugnaði en fyrir jól bárust
fréttir af því að hafnfirska útgerðarfyrir-
tækið hefði sagt upp öllum skipverjum á
fyrstitogaranum Þór. DV fjallaði ítarlega
um sögu þessa rótgróna fyrirtækis.
12.671 hefur lesið
4 Langafi var tveggja kvenna maki Sindri Freysson
fagnaði tuttugu ára rithöfundarafmæli
á þar síðasta ári. Í viðtali við DV á dögun-
um ræddi Sindri óvenjulega fjölskyldu-
sögu. Langafi hans var meðal annars
tveggja kvenna maki og var ástmaður
tveggja systra.
11.763 hafa lesið