Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Síða 44
Helgarblað 17.–20. janúar 201444 Sport
C
ristiano Ronaldo var á dögun-
um kjörinn besti knattspyrnu-
maður í heimi árið 2013. Sigur-
vegari undanfarinna fjögurra
ára, Lionel Messi, varð annar
í kjörinu. Um knattspyrnuhæfileika
Ronaldo þarf enginn að efast, eða
hvað?
Á vefsvæðinu Bleacherreport birt-
ir dálkahöfundurinn Clark Whitney,
athyglisverðar staðreyndir um
frammistöðu Ronaldo, sem í síðustu
viku var sæmdur nokkurs konar
stórriddarakrossi í heimalandi sínu,
Portúgal. Í greininni er þeirri spurn-
ingu velt upp hvort valið sendi röng
skilaboð til knattspyrnuiðkenda.
Ímynd ofar úrslitum
Whitney segir að í ljósi viðurkenn-
ingarinnar í heimalandinu mætti
ætla að Ronaldo hafi verið að leggja
skóna á hilluna eftir sigursælan feril,
hann hafi til dæmis leitt landslið sitt
til heimsmeistaratitils eða félagslið til
sigurs í Meistaradeild Evrópu. „Nei,
á þessum tímapunkti hefur Ronaldo
ekki unnið neina keppni frá því Real
Madrid vann leik sem sker úr um
meistara meistaranna, (e. Spanish
Supercopa) árið 2012.“ Hann bend-
ir á að útnefningin, besti leikmaður
heims 2013, sé í þessu ljósi svolítið
einkennileg. „Þegar öllu er á botninn
hvolft kemur í ljós að ímynd skiptir
öllu máli. Úrslit hafa lítið vægi.“
Bregst í stóru leikjunum
Ein algengasta röksemdin fyrir því að
Ronaldo fékk Gullknöttinn er að sögn
Whitney sú staðreynd að hann hafi
skorað 69 mörk á árinu. Það sé í sjálfu
sér einstakt afrek. Greinarhöfundur-
inn er ósammála því. Þegar frammi-
staða í mikilvægustu leikjum ársins sé
skoðuð blasi við að framlag Ronaldo
hafi ekki verið merkilegt.
Hann nefnir fimm lykilleiki sem
Ronaldo hefði getað haft úrslitaáhrif
á, ýmist fyrir Real Madrid eða Portú-
gal. „Síðari leikurinn í undanúr-
slitaviðureign Real Madrid og Dort-
mund, úrslitaleikurinn gegn Atletico í
spænska konungsbikarnum, septem-
berleikurinn við Atletico í deildinni,
deildarleikurinn við Barcelona í
október og síðari leikur Portúgal við
Svíþjóð, í umspili fyrir laust sæti á
HM.
Gremja í framlengingu
Á móti Dortmund í fyrravor hafi Real
þurft á hetju að halda, einhvern sem
gæti hjálpað liðinu að snúa við 4–1
tapi í fyrri leiknum. „Þeir voru ná-
lægt því en ekki fyrir tilstilli Rona-
ldo. Karim Benzema lagði upp eitt og
skoraði annað í 2–0 sigri. Liðið féll úr
leik.“ Hann bendir á að Ronaldo hafi
fengið verstu einkunn leikmanna
Real á Goal.com.
Whitney segir að mánuði síð-
ar hafi Ronaldo haft tækifæri á að
bæta fyrir frammistöðu sína. Þá var
úrslitaleikurinn í bikarkeppninni við
Atletico. Ronaldo hafi skorað fyrsta
mark leiksins en mótherjarnir jöfn-
uðu. Í framlengingu
skoraði Atletico ann-
að og Real hafi þurft á
Ronaldo að halda. Í stað
þess að jafna metin hafi
Ronaldo fengið rautt
spjald fyrir að hafa í
gremju sinni sparkað í
kjálkann á Gabi.
Unnu ekkert
Whitney bendir á
að þrátt fyrir að tefla
fram dýrasta liði
knattspyrnu sögunnar,
og besta leikmanni
heims, samkvæmt út-
nefningunni, hafi
keppnistímabilið verið
vonbrigði fyrir Real. Liðið hafi endað
15 stigum á eftir Barcelona í deildinni
og ekki komist í úrslit Meistara-
deildarinnar, ellefta keppnistímabilið
í röð. Liðinu hafi ekki einu sinni tekist
að vinna bikarinn í heimalandinu, í
sárabætur. UEFA hafi svo í ágúst kjör-
ið Franck Ribery bestan í Evrópu.
Lægsta einkunnin
Ronaldo byrjaði yfirstandandi tímabil
af krafti og skoraði mörk. „En sem
fyrr tókst honum ekki að láta ljós sitt
skína á stóra sviðinu,“ segir Whitney
og nefnir máli sínu til stuðnings ná-
grannaslaginn á Bernabeu við Atletico
í september, leik sem gestirnir unnu
1–0. Ronaldo fékk þar lægstu einkunn
leikmanna liðsins fyrir frammistöðu
sína. Goal segir að hann hafi verið
pirraður og áhugalaus um að spila
sig í gegn um vörn andstæðinganna.
Mánuði síðar, í október, hafi Ronaldo
enn og aftur brugðist á stóra sviðinu, í
leik gegn Barcelona á Nou Camp. Þar
stal Neymar senunni og leiddi heima-
menn til sigurs.
Í einvígi Portúgal gegn Svíþjóð
fékk Ronaldo uppreisn æru, ef svo
má að orði komast, og það er talið
ein helsta ástæða þess að hann hlaut
Gullknöttinn en ekki Messi eða
Ribery. Hann skoraði sigurmarkið
í fyrri viðureign liðanna og svo frá-
bæra þrennu í síðari leiknum. Whit-
ney segir að fíllinn í herberginu hafi
horfið eins og dögg fyrir sólu. „Hvern-
ig fór Portúgal, í riðli með Rússlandi
og Ísrael, að því að vinna ekki riðil-
inn sinn?“ spyr hann og bætir við
að Ronaldo hafi ekkert gert í
öllum fjórum leikjunum gegn
þessum liðum. Hann hafi að-
eins skorað í tveimur leikjum í
undankeppninni. Gegn Svíum,
viðureign sem til var komin
vegna lélegrar frammistöðu í
riðlakeppninni, hafi Ronaldo
gert það sem hann gerir reglu-
lega á Spáni; skorað mörkin og
verið hetjan. Hann bendir hins
vegar á að samanlagt verðgildi
leikmanna Svíþjóðar sé þrefalt
lægra en leikmanna Portúgal. Úrslitin
hafi því hvorki komið á óvart né verið
sérlega merkileg.
Hversu mikilvæg mörk?
Whitney segir að vissulega sé það
stórkostlegur árangur að skora 69
mörk á einu ári. Fyrir það séu einmitt
veitt verðlaun, Gullskór Evrópu. Af-
hending Gullknattarins eigi að snú-
ast um annað og meira en einfalda
tölfræði. Ekki sé hægt að leggja öll
mörk að jöfnu. Þannig hljóti sigur-
mark gegn toppliði að vega þyngra en
mark, jafnvel tvö, í bursti gegn botn-
liði. Whitney bendir á að 42 prósent
marka Ronaldo hafi verið skoruð
þegar lið hans var með forystu í leikj-
unum. 45 prósent hafi hann skorað
þegar staðan var jöfn en 13 prósent
þegar liðið var undir.
Á síðasta keppnistímabili hafi
Ronaldo aðeins átta sinn-
um skorað fyrsta mark liðs
síns í leikjum sínum.
Marco Reus, leikmað-
ur Dortmund,
sem skoraði
24 mörk í
fyrra, skoraði 15 sinnum fyrsta mark
liðs síns eða næstum tvisvar oftar.
„Ef Ronaldo hefði lagt sig betur fram
og skorað fleiri mikilvæg mörk – eða
hefði einfaldlega lagt sig meira fram
í erfiðum leikjum – hefði Real ef til
vill farnast betur í fyrra,“ skrifar hann.
„Honum hefur ekki gengið vel í mikil-
vægu leikjunum og Real Madrid hef-
ur ekki spilað vel. Það varpar skugga
á fjölda marka sem hann hefur
skorað – oft gegn veikum and-
stæðingum.“ Hann
segir niðurstöð-
una þá að
Ronaldo
geti
Þess vegna er hann ekki bestur
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Mörk
Ronaldo
Mörk skoruð þegar
liðið hans var…
… undir … með jafna
stöðu
… marki yfir … 2 mörkum
yfir
… 3 mörkum
yfir
13% 45% 17% 16% 9%
árið 2013
n Sjálfumglaður leikmaður sem bregst í stórleikjum
Clark Whitney, dálkahöfundur Bleacherreport, er
þeirrar skoðunar að Ronaldo sé alls ekki bestur í
heimi, þrátt fyrir útnefninguna. Hann sé hrokafullur
og hugsi aðeins um eigin velgengni, ekki liða sinna.
Hann standi árangri Real Madrid fyrir þrifum.„Mörk
eru bara
mörk; fótbolti
snýst um meira.
n Cristiano Ronaldo, Lionel Messi og
Franck Ribery voru efstir í kjörinu um
Gullknöttinn. Athygli vekur að Ribery
hefði hlotið knöttinn
ef aðeins atkvæði
blaðamanna hefðu
gilt, en þannig var
fyrirkomulagið frá
árinu 1956, allt til
ársins 2009, þegar
þjálfarar og fyrirliðar
landsliða fengu atkvæðarétt.
Íþróttablaðamenn, sem hafa það
að atvinnu að greina leikinn, hefðu
valið Ribery bestan. 80 blaðamenn
völdu Ribery bestan, 48 völdu Rona-
ldo en 31 Messi.
Franck Ribery
hefði unnið
Blaðamenn á annarri skoðun
José Mourinho Gagnrýndi leikmanninn opinberlega fyrir að taka ekki leiðsögn.
Valinn bestur
Whitney er ekki á
því að útnefn-
ingin hafi gert
leikmanninum
gott. Myndir reUters