Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Qupperneq 48
48 Lífsstíll Helgarblað 17.–20. janúar 2014
Heimur
Hendrikku
Þegar ég var rétt tvítug þá fór ég í
borgarferð með vinkonum mín
um og átti þessi ferð að snúast um
jólainnkaup og gleði. Í ferðinni var
verslað, hlegið, drukkið og daðrað.
Ég var reyndar sú eina sem „lenti“
í því að daðra í ferðinni og vil nú
frekar meina að ég hafi bara verið
vingjarnleg frekar en tilkippileg.
Þetta saklausa daður átti eftir að
marka næstu níu ár lífs mín eða svo
á ógeðfelldan hátt að mörgu leyti.
Eitt kvöldið var ég stödd á bar
ásamt vinkonum mínum og tók
um við allar eftir manni sem var á
dansgólfinu. Þessi maður var ekki
það ljótasta sem maður hafði séð
um ævina. Hann dansaði ekki hlið
ar saman hliðar eins og spastískt
gamalmenni og brúnu augun hans
voru sakleysisleg að sjá. Hann
kynnti sig fyrir okkur og sagðist
vera 26 ára gamall kennari í ensk
um bókmenntum. Við spjölluðum í
einhvern tíma og síðan skildi leiðir
okkar og þegar hann bað um síma
númer mitt þá gaf ég honum að
eins hluta af númerinu því eitthvað
sagði mér að treysta honum ekki.
Ég flaug heim daginn eftir og
pældi lítið sem ekkert í þessum
manni. Rúmum hálfum mánuði
seinna hringir heimasími minn
um kvöld. Ég svara og á hinum
endanum er enskumælandi mað
ur sem kynnir sig og spyr mig
hvort ég muni ekki eftir honum.
Mér brá pínu en fannst þetta
líka spennandi. Hinum megin á
línunni var maðurinn sem ég hitti
í borgar ferðinni. Hann var í góðri
stöðu og virtist vera heimsvanur og
skemmtilegur gaur. Eða það hélt ég
að minnsta kosti. Hann kunni alla
bestu frasana og talaði við mig af
virðingu.
Nokkrum vikum seinna ákvað
ég að skreppa út til hans í heim
sókn. Í þetta sinn fór ég ein og hélt
að eitthvert saklaust ævintýri biði
mín.
Fyrstu dagarnir voru örugglega
ágætir, en ég man ekkert eftir þeim.
Hins vegar man ég eftir þriðja deg
inum því þá var ég í fyrsta skipti
barin af karlmanni og já bara barin
yfir höfuð. Við fórum á skemmti
stað og kynnti hann mig fyrir
nokkrum vinum sínum það kvöld.
Ég var bara kurteis og talaði við
þá eins og hvert annað mannfólk
sem ég hef rekist á í gegnum tíð
ina. Þegar við gengum út af staðn
um var ég slegin í andlitið af öllu
afli. Ég lempaðist niður á götuna
og vissi ekki hvað hafði komið fyr
ir. „Deitið“ mitt hafði bara gefið
mér einn utan undir fyrir að hafa
verið svona „vingjarnleg“ við vini
hans. Já, það þykir of vingjarnlegt
að heilsa karlmönnum hjá viss
um hópi manna sem á þessari jörð
búa.
Ég vissi ekki hvernig ég átti að
bregðast við, en þarna var ég ein í
ókunnugu landi rétt tvítug og skít
hrædd. Já, nú hefðu flestir forðað
sér … en ekki ég! Ein ákvörðun sem
ég tók þetta kvöld átti eftir að breyta
lífi mínu næstu níu árin og kannski
um ókomna tíð.
Það sem gerðist næst mun ég
skrifa um í næsta pistli og vonandi
verður það víti til varnaðar ein
hverjum konum þarna úti.
Ég féll fyrir
skrímsli
Hendrikka er heimshornavanur fagurkeri sem
lætur allt flakka. Hún tilheyrir „elítunni“, á nóg af
peningum og er boðin í öll fínustu partíin.
Í
byrjun árs eru megrunarkúrar
mjög vinsælir og úrvalið er mik
ið.
Það sem þótti besti kúrinn í
gær gæti verið úreltur á morgun.
Flestir vita að hollt mataræði og
hreyfing er lykilinn að betri heilsu
og formi.
DV leitaði uppi nokkra vinsæla
megrunarkúra síðustu ára og eru
nokkrir þeirra alls ekki hollir heilsu
manna eins og sjá má hér fyrir neðan.
1 Bananakúrinn Þessi kúr tröllreið hér öllu fyrir um
tuttugu árum. Hann saman
stendur af fimm
banönum og
jafnmörgum
mjólkurglösum
á dag í fimm
daga. Hann má
endurtaka með
fimm daga hléi.
Þyngdartap getur orðið allt
að fimm kílóum á jafnmörgum
dögum. Ansi mörg fimm í þessum
kúr.
2 Horfa en ekki borða Þessi kúr hefur verið vinsæll hjá
stjörnunum vestanhafs og er
hann þannig að horft er á matinn
og þefað af honum en hann ekki
borðaður. Þetta er líklega einn sá
skrítnasti kúr sem hefur ratað á
vinsældalista yfir
megrunarkúra í
sögunni. Hann
stendur yfir
annan hvern
dag í 30 daga.
Óhollur og
skemmandi fyrir
líkama og sál.
3 Sítrónukúrinn Þessi kúr samanstendur
af sítrónusafa,
cayennepip
ar, sírópi og
vatni. Þetta
er bland
að í tveggja
lítra könnu
og drukkið yfir
daginn. Ekkert annað er borðað
né drukkið í 10 daga. Gríðarleg
vatnslosun á sér stað með þessari
aðferð og eru kílóin fljót að koma
aftur. Þyngdartap getur verið allt
að 10 kílóum á þessum kúr.
4 Nammikúrinn Sætindi eru ekki holl en
hver sagði að
þessir kúrar
væru það. Á
þessum kúr er
bara borðað
nammi sem
samsvarar um
1.000 hitaeining
um á dag. Óhollara gerist það
varla.
5 Ormakúrinn Þessi kúr er þannig að ormur sem finnst
stundum í hráu, sýktu kjöti er
gleyptur lifandi. Allt sem þú borð
ar sér ormurinn um að borða fyrir
þig. Þegar fólk hefur fengið nóg af
þessum kúr þarf
það að gangast
undir skurðað
gerð til þess að
losna við kvik
indið. Asískar
konur eru
sagðar yfir sig
hrifnar af þessum
furðulega kúr.
6 Óléttu-kúrinn
HGGhormón
sem konur
framleiða
þegar þær
eru ófrískar er
sprautað í húð og
aðeins 500
kaloríur eru
borðaðar
daglega.
Við þetta á
þyngdartap
að verða
hratt og
mikill árangur
sjáanleg ur. Þessi kúr er vinsæll
vestan hafs og hafa stjörnur líkt og
Britney Spears farið á þennan kúr.
Sama árangurs má vænta ef vatni
er sprautað undir húð í stað þessa
hormóns því meðalmanneskja þarf
að innbyrða um 2.000 hitaeiningar
á dag til þess að standa í stað í
þyngd. Þess má geta að eðlileg
heilastarfsemi getur ekki átt sér
stað ef aðeins 500 kalóríur eru inn
byrtar á dag. n
Sex skrítnustu
megrunarkúrarnir
Ormar, sítrónur og nammi eru á meðal þess sem tengist undarlegum megrunarkúrum
Þ
að vita allir að það er óhollt
að reykja en þrátt fyrir það
þá eru þó nokkrir sem
stunda það enn. Ný rann
sókn sýnir að reykingafólk hefur
meiri áhyggjur af því hvaða áhrif
reykingarnar hafi á útlitið en heils
una. Reykingafólkið sem tók þátt í
rannsókninni sagðist að meðaltali
fara sjá áhrif reykinganna á eigin
skinni um 32 ára aldurinn.
Helsti ótti reykingafólksins sneri
hins vegar fremur að því hvaða
áhrif það hefði á útlitið heldur en
heilsuna.
Helstu áhyggjurnar sneru að því
að tennurnar yrðu gular eða þær
myndu skemmast, slæmri andfýlu,
krumpuðum vörum og húðvanda
málum.
Einn af hverjum þremur sem
tók þátt í rannsókninni hafði upp
lifað athugasemdir frá öðrum
vegna reykinganna. Meðal annars
snerust athugasemdirnar um
hvaða áhrif reykingarnar hefðu á
útlit þeirra.
Dave Levin, eigandi VIP rafsí
garetta, sem stóð fyrir könnunni
sagði að niðurstöðurnar væri fróð
legar. „Fólki er vel kunnugt um
áhrif reykinga á heilsuna en færri
gera sér grein fyrir því hversu slæm
áhrif þær hafa á útlitið.“ Hann segir
niðurstöður rannsóknarinnar sýna
það svart á hvítu að fólk sé farið að
huga meira að þeim þætti. n
viktoria@dv.is
Meiri áhyggjur af útliti en heilsu
Áhyggjur reykingafólks snúast minna um heilsu en útlit Áhyggjur Margir
þeirra sem tóku þátt
í rannsókninni höfðu
áhyggjur af því hvaða
áhrif reykingar hefðu
á útlitið.