Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2014, Side 50
Helgarblað 17.–20. janúar 201450 Lífsstíll
Vertu besta útgáfan
af sjálfum þér
María Lovísa hjálpar fólki að ná markmiðum sínum
Þ
að er lykilatriði að vita hvert
þú ætlar þér til þess að kom-
ast þangað og verða besta
útgáfan af sjálfum sér,“ segir
María Lovísa Árnadóttir
markþjálfi. Hún hjálpar fólki að setja
sér markmið og það sem meira er;
ná markmiðum sínum. Hún er það
sem kallast markþjálfi, sístækkandi
starfsstétt hérlendis sem og erlendis.
Stefnumótunarvinna
fyrir framtíðina
„Markþjálfun er í rauninni
ákveðin stefnumótunarvinna fyr-
ir framtíðina, hvort sem það snýr að
einkalífi fólks eða vinnu. Í dag er það
þannig að við erum svo upptekin að
við gefum okkur ekki tíma til þess að
hugsa almennilega hvert við viljum
stefna eða hvernig. Hvað við erum í
rauninni að gera,“ segir hún. Þegar
fólk fær sér markþjálfa þá er byrjað
á því að skoða hvað það er sem hver
og einn vill stefna að. „Við byrjum á
að skoða hver sé óskastaða hvers og
eins. Í vinnunni eða í lífinu. Hvað
vil ég og hvar er ég núna? Svo skoð-
um við hvar bilin eru, eru einhverjar
hindranir og hvar er bilið frá því sem
þú ert núna og þinnar óskastöðu?
Svo vinnum við með styrkleika og
förum í gegnum alls konar skemmti-
legar æfingar og förum í gegnum
lærdómsferli um hvernig við ætlum
að gera hlutina,“ segir María.
Forgangsraða í átt að markinu
Hún segir þetta í raun snúast um að
forgangsraða og finna markið að því
sem hver og einn stefnir að. „Sumir
vilja líka of mikið og þá þarf að skipu-
leggja og forgangsraða hvað það er
og hverju fólk vill byrja á. Ef þú byrjar
á einhverju einu þá kemur oft ann-
að í leiðinni. Þannig að markþjálfun
í heild vinnur að alls konar hlutum.“
Hún segir markþjálfun snúa
að mörgum hlutum; einka-
lífi, fjölskyldu, vinnu, námi,
áhugamálum og fleiru.
Þann 30. janúar næstkomandi
stendur Félag markþjálfunar fyrir
Markþjálfunardeginum þar sem fólk
getur kynnt sér markþjálfun. Dagur-
inn er núna haldinn í annað sinn í
Opna háskólanum í Nauthólsvík. Þar
verða margir af þekktustu og færustu
markþjálfurum landsins með erindi
og hvetur María sem flesta til þess að
koma. „Þetta er fyrir alla þá sem vilja
fræðast um spennandi efni fyrir líf og
starf. Hlusta á áhugaverða fyrirlestra
og fræðast,“ segir hún. n
Hvað er
markþjálfun?
Langtímasamband markþjálfa og
stjórnanda sem byggir á gagnkvæmu
trausti, faglegri nálgun og öflugum
stuðningi við markmið.
Hlutlaus og uppbyggilegur vett-
vangur til þess að þekkja og nýta betur
eigin styrkleika og tækifæri, kortleggja
eigin væntingar og fá stuðning til að
gera framtíðarsýn sína að veruleika.
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
„Við erum
svo upptekin
að við gefum okkur
ekki tíma til þess að
hugsa almennilega
hvert við viljum
stefna
María Lovísa María
Lovísa er markþjálfi
sem hjálpar fólki að
ná markmiðum sínum.
Mynd Sigtryggur Ari
„Markþjálfun
er í rauninni
ákveðin stefnumótunar
vinna fyrir framtíðina
Saunders
aðstoðar Smith
Enski fatahönnuðurinn Paul
Smith hefur ráðið hinn skoska
Jonathan Saunders til starfa
en sá síðarnefndi mun að-
stoða Smith við hönnun nýrr-
ar kvenfatalínu. Margir tísku-
spekingar eru afar spenntir fyrir
þessu væntanlega samstarfi
en þeir Saunders og Smith eru
báðir þekktir fyrir líflega liti,
mynstur og prent og verður því
spennandi að sjá hvernig hin
væntanlega lína verður. Smith
er helst þekktur fyrir hönnun
karlfatnaðar og er einn virtasti
fatahönnuður í heiminum í dag
en hann rekur yfir þrjú hund-
ruð fataverslanir um allan heim.
Saunders þykir einnig afar fær
en hann er álitinn meðal fremstu
fatahönnuða Lundúna um þess-
ar mundir og er afar vinsæll
meðal stórstjarna í Hollywood.
Alltof mikið
Photoshop
Snyrtivörumerkið L’Oreal hefur
verið sakað um að hafa lagað
leikkonuna Diane Keaton alltof
mikið til í Photoshop fyrir nýja
auglýsingu fyrirtækisins. Diane
kom fram á Golden Globe-hátíð-
inni og strax á eftir kom auglýs-
ingin sem Diane situr fyrir í. Það
sást mikill munur á Diane uppi
á sviði í beinni útsendingu og á
mynd í auglýsingunni. Hún var
töluvert krumpaðri í framan á
sviðinu en í auglýsingunni. Fyrir-
tækið hefur verið harðlega gagn-
rýnt fyrir að breyta henni svo
mikið á myndinni.
Lena Dunham
í Vogue
Bandaríska leikkonan og grínist-
inn Lena Dunham prýðir nýjasta
tölublað bandaríska Vogue, en
þetta er í fyrsta sinn sem hún
verður þess
heiðurs að-
njótandi.
Dunham
hefur heldur
betur slegið
í gegn með
gamanþátt-
unum Girls og
er af mörg-
um talin einn helsti grínisti heims
um þessar mundir en hún hefur
ekki eingöngu vakið athygli fyrir
gott skopskyn heldur einnig vaxt-
arlag sitt, sem óhætt er að segja
að sé afar ólíkt því sem almennt
gengur og gerist á meðal kvenna í
Hollywood. Sögusagnir þess efnis
að Dunham myndi prýða forsíðu
febrúarheftis Vogue fóru á kreik
í október síðastliðnum, eftir að
Anna Wintour, ritstjóri tímarits-
ins, boðaði leikkonuna á fund.
Forsíðumyndin var svo frumsýnd
síðastliðinn miðvikudag en hún er
tekin af hinni virtu Annie Leibovitz
og er með eindæmum flott.
tíska eða klám?
Leikurinn er erfiðari en
margan hefði grunað.
Tíska eða klám?
Nýr tölvuleikur vekur fólk til umhugsunar
T
ölvuleikurinn Fashion or
Porn?, eða Tíska eða klám?
hefur farið eins og eldur í
sinu um netheima undan-
farið. Leikurinn var hann-
aður af ítalska tískutímaritinu
NSS Magazine og er hægt að spila
hann á vefsíðu tímaritsins. Um er
að ræða ágætis vitundarvakningu
fyrir tískuheiminn, en leikurinn
gengur þannig fyrir sig að notend-
um birtist lítið brot af ljósmynd
og þurfa þeir að ákveða hvort þeir
telji brotið tilheyra tískuljósmynd
eða klámmynd. Þótt ótrúlegt megi
virðast er verkefnið síður en svo
auðvelt því allflestar tískuljós-
myndirnar eru heldur klámfengn-
ar og það eina sem spilendur leiks-
ins sjá er ýmist andlit eða brot af
nakinni húð.
Það sem gerir leikinn hvað erf-
iðastan eru auglýsingar frá tísku-
risanum American Apparel, en fjöl-
margar ljósmyndir í leiknum eru frá
fyrirtækinu sem hefur löngum verið
gagnrýnt fyrir grófar auglýsingar
sem oftar en ekki prýða fáklæddar
fyrirsætur í klámfengnum stelling-
um. Það ætti einnig að rugla spilend-
ur leiksins talsvert að í honum eru
þó nokkrar myndir sem flokkast sem
tískuljósmyndir þrátt fyrir að fyrir-
sæturnar klæðist ekki einni einustu
flík og kynfæri þeirra sjáist skýrt og
greinilega. Tíska eða klám? gæti
því reynst mörgum erfiðari en þá
hefði grunað og það er augljóst að
margir af stærstu tískufataframleið-
um heims þurfa að hugsa sinn gang
þegar kemur að auglýsingaherferð-
um. n horn@dv.is