Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Blaðsíða 10
Helgarblað 14.–17. febrúar 201410 Fréttir Hæfnikröfum breytt í miðju ráðningarferli „Ferlinu var því breytt svo hún fengi vinnuna,“ segir vitni um ráðningu Söru Lindar Guðbergsdóttur S tefán Einar Stefánsson, fyrrverandi formaður VR, hafði bein afskipti af ráðn­ ingarferli núverandi unn­ ustu sinnar þegar hún var ráðin til stéttarfélagsins árið 2012. Afskipti Stefáns Einars fólust með­ al annars í því að hann hafði sam­ band við Capacent, fyrirtækið sem sá um ráðningarferlið, og gerði kröfu um að lögfræðimenntun væri eitt af skilyrðunum sem gera ætti í ráðningarferlinu. Þetta inngrip Stefáns Einars átti sér stað eftir að ráðningarferlið hófst. Núverandi unnusta Stefáns er lögfræðimennt­ uð. Þetta kom fram í aðalmeðferð í héraðsdómi á þriðjudaginn. Stefán Einar og unnusta hans, Sara Lind Guðbergsdóttir, hafa stefnt DV fyrir meiðyrði og krefj­ ast miskabóta vegna umfjöllunar blaðsins um ráðningu Söru Lindar í yfirmannsstarf hjá VR. DV fjallaði um málið í desember 2012 og hélt því fram að ráðningarferlið hefði verið sett á svið en að búið hefði ver­ ið að ákveða að Sara Lind skyldi ráð­ in. Í stefnunni segir að bæði sé gefið í skyn og fullyrt af hálfu DV að Stefán Einar hafi séð til þess að Sara Lind Guðbergsdóttir yrði ráðin til VR og sérstakt ráðningarferli verið sýndar­ leikur á kostnað félagsmanna. Gefið hafi verið í skyn að stefnandi hafi misbeitt valdi sínu og ráðið Söru Lind vegna ástarsambands en ekki verðleika.Aðalmeðferð í málinu fór fram síðastliðinn þriðjudag og var Stefán Einar einn þeirra sem gáfu skýrslu. Stefán Einar hélt því fram í vitnisburði sínum að Sara Lind hefði verið eini umsækjandinn um starf­ ið sem hefði uppfyllt öll skilyrði sem krafa var gerð um. Í máli hans fyrir dómi kom þó ekki fram að hæfni­ kröfum hefði verið breytt eftir að starfið var auglýst en í miðju ferli var bætt við þeirri hæfnikröfu að æski­ legt væri að viðkomandi væri með lögfræðipróf. Stefán Einar beið afhroð í for­ mannskosningum gegn Ólafíu Björk Rafnsdóttur í mars í fyrra. Sara Lind var rekin í júní sama ár og var ástæð­ an sögð vera skipulagsbreytingar hjá VR. Segir Stefán hafa haft sterkar skoðanir Í aðalmeðferðinni í meiðyrðamálinu á þriðjudaginn staðfesti Sigríður Pétursdóttir, sem var ráðgjafi Capacent í ráðningarferlinu, í vitnis­ burði sínum að í starfsauglýsingu sem Capacent hafi séð um að gera hafi hvergi komið fram að æskilegt væri að umsækjandi hefði lögfræði­ próf. „Ég fór á fund með Stefáni og við ræddum hvað ætti að standa í auglýsingunni. Auglýst var eftir að viðkomandi hefði reynslu af at­ vinnumálum, íslenskukunnáttu og háskólamenntun við hæfi; þetta týpíska íslenska,“ sagði Sigríður. Auglýst var í þrjár stöður, annars vegar eftir tveimur aðilum í starf hópstjóra og svo hins vegar einum aðila sem myndi starfa undir þeim. Sigríður sagði að málum hafi verið háttað þannig að Capacent sá um að skoða umsækjendur til hóp­ stjórastarfsins. Sara Lind var ekki meðal þeirra sem Capacent töldu hæfasta og vildu bjóða í viðtal. Sam­ kvæmt Sigríði breyttust þá skyndi­ lega hæfniskilyrðin. „Stefán biður mig um að finna lögfræðing innan hópsins og þá finn ég umsókn henn­ ar,“ sagði Sigríður. Hún sagði Stefán hafa haft sterkar skoðanir á um­ sækjendum og í kjölfar breytinga á hæfniskilyrðum hafi Sara Lind verið tekin inn í þann hóp sem fór í við­ tal. Stefán Einar sagði í vitnisburði sínum að Sara Lind hefði verið sú eina sem hefði uppfyllt öll hæfniskil­ yrði. Sigríður sagðist þó ekki telja að ráðningarferlið hefði verið sýndar­ leikur. Capacent kom ekki nálægt ráðningunni Í vitnisburði Sigríðar kom auk þess fram að Sara Lind hafi ekki sótt um starf deildarstjóra heldur hópstjóra. Starf deildarstjóra var ekki auglýst og má segja að það sé þrepi ofar en starf hópstjóra. „Mér fannst þetta ekki sjónarspil en ég verð að viður­ kenna að mér fannst Sara vera ung og auk þess var hún ekki með stjórn­ unarreynslu. Hún er síðan ráðin í annað starf en var auglýst og það tengist okkur ekki neitt. Við tilkynn­ um Söru að hún hafi fengið starf hópstjóra, svo heyri ég að hún hafi verið ráðin sem deildarstjóri ráð­ gjafadeildar og kom Capacent ekki nálægt því,“ sagði Sigríður en mið­ að við orð hennar þá var Sara Lind á endanum ráðin í annað starf en Capacent hafði verið í vinna í. Viðurkennir forskot Sara Lind sagði í vitnisburði sínum að fyrstu kynni hennar af Stefáni Einari hefðu verið þegar hann hafði sam­ band við hana og bað hana um að halda fyrirlestur á vegum Landssam­ bands íslenskra verslunarmanna á Hótel Rangá. Hún sagði að nokkrum dögum eftir fyrirlesturinn hefði Stef­ án Einar haft samband við hana aftur og boðað hana á fund. Á þeim fundi var henni meðal annars bent á að uppstokkun yrði innan samtakanna bráðlega og henni var sagt að sækja um starf þegar það yrði auglýst. Þessi ummæli hennar ganga gegn ummælum Stefáns Einars í um­ ræddri blaðagrein frá árinu 2012 sem stefnt er fyrir í málinu. „Hún sótti bara um þetta eins og annað fólk,“ sagði hann þá en lét þess ekki getið að þau hefðu átt í þeim sam­ skiptum sem Saran Lind upplýsti í skýrslu sinni fyrir dómi. Sara Lind sagði fyrir dómi að hún hefði verið í sambúð með öðrum manni þegar hún var ráðin. Að hennar sögn lauk því sambandi í júní sama ár og fór hún þá að draga sig saman við Stefán Einar. Stefán Einar og Sara Lind eru enn í sambúð í dag. Mælti með Söru Lind Árni Leósson, sviðsstjóri þróunar­ sviðs VR, sagði í vitnisburði sínum að hann hefði bent Stefáni Einari á Söru Lind á sínum tíma en hann hafði áður starfað með henni í úthlutun­ arnefnd Vinnumálastofnunar. Að hans sögn hvatti hann Söru Lind til að sækja um starfið og auk þess mælti hann með því að hún yrði ráð­ in. Árni var ásamt Helgu Árnadóttur, þáverandi framkvæmdastjóra, Sig­ ríði Pétursdóttur, ráðgjafa Capacent, og Stefáni Einari í viðtalsnefnd. Árni viðurkennir þó að hann hafi mælt með henni í starf hópstjóra en ekki deildarstjóra sem var það starf sem hún fékk að lokum. Hann staðfesti að hæfniskilyrðum hefði verið breytt í miðju ráðningarferli en sagði þó ekki frá hverjum þau skilaboð komu. Helga Árnadóttir sem var framkvæmdastjóri VR þegar Sara Lind var ráðin sagði í vitnisburði sín­ um að ekki hafi verið búið að ákveða fyrirfram að ráða hana. Þrátt fyrir það segir hún að Stefán Einar og Árni Leósson hafi lagt sterka áherslu á að ráða hana. Hún sagði það hafa styrkt stöðu hennar. Fjallað um málið á stjórnarfundum Benoný Valur Jakobsson, stjórnar­ maður VR, sagði að ráðning Söru Lindar hefði reglulega komið upp á stjórnarfundum áður en DV fjall­ aði um málið. Töldu stjórnarmenn eitthvað bogið við það að Sara Lind hefði verið ráðin þrátt fyrir að hún hefði ekki verið í hópi þeirra hæf­ ustu til að byrja með. „Menn gerðu athugasemdir við það að henni hafi verið bætt við og ferlinu hafi verið breytt,“ sagði Benoný í vitnisburði sínum. Að hans sögn er óvanalegt að einstök ráðningarmál komi upp á fundum stjórnar en að hans sögn var rætt um ráðningu Söru Lindar þrisvar til fjórum sinnum áður en málið komst í hámæli þegar DV fjall­ aði um það. Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnar­ maður VR, sagði í vitnisburði sín­ um að eftir að DV fjallaði um málið hafi Helga Árnadóttir og Árni Leós­ son viðurkennt að ferlinu hefði verið breytt svo tiltekinn starfsmaður fengi vinnuna. Þetta sagði hann hafa komið fram á sérstökum upp­ lýsingarfundi sem ekki var bókað­ ur. „Á fundinum kemur fram að vilji stjórnenda hafi verið að hún fengi vinnuna. Ferlinu var því breytt svo hún fengi vinnuna. Það var skipt um hest í miðri á,“ sagði Ragnar Þór sem var sakaður um að vera „hatursvitni“ af lögfræðingi Stefáns Einars. Málsmeðferð er lokið og málið bíður nú dóms. Hann verður kveðinn upp á næstu vikum. n Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Stefán biður mig um að finna lögfræðing innan hópsins og þá finn ég umsókn hennar „Það var skipt um hest í miðri á Stefna DV Sara Lind Guðbergsdóttir og Stefán Einar Stefánsson eru í meiðyrðamáli við DV vegna greinar þar sem því er haldið fram að ráðning hennar hafi verið sýndarleikur. Hvorugt þeirra starfar á vegum VR í dag. MynD SiGtryGGur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.