Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Blaðsíða 14
Helgarblað 14.–17. febrúar 201414 Fréttir „óttast mjög um hann“ Þ etta er mjög erfitt,“ segir móðir fimmtán ára pilts, grunnskóladrengs sem hefur verið að fikta við kannabisneyslu. Dreng- urinn er að flosna upp úr skóla sem virðist vera að gefast upp á honum. Hann mætir illa og fé- lagsskapurinn sem hann sækir í er slæmur. Móðir hans segir að vegna þessa sé náið samband þeirra mæðginanna nú á kross- götum, enda séu forsendurnar fyrir trausti nú ekki lengur til staðar. „Hann hefur verið að haga sér mjög undarlega og valda okkur foreldrum hans mjög miklum áhyggjum,“ segir hún og segir erfiðleika og bresti í sambandi þeirra vegna þessa. „Hann hefur viðurkennt að hafa reykt kannabis og það er bara alls ekki í lagi fyrir 15 ára krakka.“ Móðir drengsins segir mikilvægt að ná drengnum út úr heimi fíkniefna og slæms félagsskapar sem fyrst og er sannfærð um að ef það takist séu bjartari tímar fram undan hjá fjölskyldunni. Hríðversnaði Eftir jól versnaði ástandið til muna og segist móðir hans finna á drengnum sínum mikl- ar breytingar. „Honum gekk svo miklu betur í skólanum fyrir jól. Fyrir svona tveimur vikum hryn- ur hann niður í mætingu, lokar al- veg á okkur og skilar sér ekki heim. Þetta er mjög einkennileg hegð- un,“ segir hún og tengir það við vinahóp drengsins og félagsskap. „Ég held að það sé alveg ljóst, þetta hefur breyst mikið eftir að hann vingaðist við fólk úr öðrum hverfum. Hann svarar okkur ekki þegar við tölum við hann, hann skellir hurðum og segir okkur jafnvel að þegja.“ Nýir vinir „Hann hefur verið að færa sig hægt og rólega inn í þennan heim. Hann hefur hingað til ver- ið mjög staðfastur og dugleg- ur, en núna er eitthvað að breyt- ast. Hann átti rosalega góða vini, enda er hann vinsæll og mjög fé- lagslyndur. Vinirnir hafa skipt hann öllu máli, eins og svo oft á þess- um aldri. Svo fór hann að kynnast krökkum úr öðrum hverfum. Mörg hver búa þau við vanrækslu heima hjá sér. Þau fá jafnvel að drekka heima,“ segir hún. „Þá fer hann að fylgja með. Hann veit að ég vil koma honum frá þessum hópi, en hann fer á bak við mig og gerir það samt.“ Fann dópsíðu „Strákurinn minn skilaði sér ekki heim eitt kvöldið og við foreldrar hans vorum orðin mjög óróleg. Hann svaraði okkur ekki þegar við n 15 ára á dópsölusíðu n Slæmur félagsskapur og neysla fylla foreldra óhug Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is reyndum að hringja og þetta var mjög erfitt. Ég ákvað að kíkja í tölv- una hans til að reyna að finna út úr því hvar hann gæti verið og þá fann ég þessa síðu,“ segir hún og á þar við dópsölusíðuna Wonderland. Hún segir að stemningin í vina- hóp drengsins sé þannig að það sé eðlilegt að neyta fíkniefna á borð við kannabis. Krakkarnir tali um það sem skaðlaust fíkniefni. „Það er náttúrlega áróður fyrir því rek- inn víða, sérstaklega erlendis og á netinu,“ segir hún og bendir á að með síðum eins og Wonderland sé börnum gert mjög auðvelt að kom- ast í efnin. Berst fyrir honum „Ég er að berjast fyrir honum og gera mitt besta. Það er full vinna að vera á fundum með barna- verndarnefnd og með skólanum. Skólinn virðist vera að gefast upp á honum,“ segir hún. Drengurinn fer brátt á fund SÁÁ, en foreldrar barna á grunnskólaaldri geta ekki sjálf komið þeim í meðferð. Til þess að fara á Stuðla þarf að liggja fyrir ákvörðun barnaverndaryfir- valda. Hún segir að á þessum tíma- punkti sé staðan ekki þar, en ef fari sem fram horfi verði drengurinn að komast í meðferð. „Ég hélt að þetta myndi aldrei koma fyrir. Þetta er svo ólíkt honum og ég hélt að við myndum aldrei lenda í svona löguðu,“ segir hún. „Nú erum við að vinna í því að reyna að koma honum út úr þess- um heimi. Ég óttast mjög um hann.“ n Grunnskólabörn á dópsölusíðu Á síðu á samfélagsmiðlinum Facebook má finna dópsölu- síðuna Wonderland. Þar ganga eiturlyf kaup- um og sölum, notendur ganga stundum undir fullu nafni og gefa jafnvel upp símanúmerin sín. Áhyggjufull móðir sendi DV myndir af síðunni, en hún hafði sér til mikillar skelfingar kom- ist að því að sonur hennar á ung- lingsaldri var meðlimur í hópnum. Börn á grunnskólaaldri eru því meðlimir á síðunni og hafa að því er virðist auðvelt aðgengi að fíkni- efnum. Algengasta fíkniefnið sem selt er á síðunni virðist vera kanna- bis en einnig má þar finna harðari efni. Síðan virkar þannig að hún er ósýnileg nema annar notandi bjóði þér inn í hana. Um fjögur hundruð einstaklingar eru í hópn- um, stærsti hluti þeirra er ung- menni, grunnskóla- og framhalds- skólanemar. Vantar parkódín „Er með spikfeitar 2 tegundir sem enginn verður svikinn af,“ segir einstaklingur sem kallar sig Bong Ripper og virðist eiga sérstakan að- gang að síðunni aðeins fyrir fíkni- efnaviðskipti. Hann gefur einnig upp símanúmer. Aðrir reyna að selja fíkniefnið MDMA, eða Mollý sem er afbrigði E töflu. Verkjalyf ganga einnig kaupum og sölum og vill einn einstaklingur meðal annars skipta á einni tegund fyrir aðra af contalgini. Þá eru floga- veikilyf einnig föl. Landasalar lifa þar góðu lífi en einnig er eitthvað um að reynt sé að selja það sem virðist vera þýfi og talsvert er um að óskað sé eftir farsímum til sölu. „Vantar parkodín forte fyrir einstakling í lyfjameðferð,“ segir einn aðili á síðunni og segir að viðkomandi fái lyfinu ekki ávísað, hann hafi fengið stimpil um of- notkun hjá læknum. „Sendið á mig ef þið getið hjálpað. Ekkert rugl verð samt, takk fyrir,“ segir ung kona sem kemur fram undir hálf- gerðu dulnefni en samt ekki. Ríkir rannsóknarhagsmunir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við DV að lögreglunni sé kunnugt um þennan sölumáta á fíkniefnum. Hann kaus að tjá sig ekki um það hvort eða hvern- ig tilteknar síður væru til rann- sóknar. Ætla má að það myndi stefna rannsóknarhagsmunum lögreglunnar í hættu. Samkvæmt upplýsingum DV er lögreglunni þó kunnugt um að slíkar síður spretti upp með reglulegu milli- bili. Karl Steinar segir lögregluna skorta heimildir til að krefjast þess af samfélagsmiðlum að slík- um síðum sé lokað. Margar síður DV hefur áður greint frá svipuð- um síðum og virðist sem fíkniefna- sala blómstri á netinu í skjóli sam- félagsmiðla. Sem dæmi má nefna Facebook-síðuna Adidas þar sem fíkniefni ganga kaupum og sölum. Sölumenn og skjólstæðingar þeirra komu þar fram undir fullu nafni, gáfu upp símanúmer og auglýstu fíkniefni og annan varning. Þar mátti finna fólk af ýmsum samfé- lagshópum og aldurshópum sem blygðunarlaust auglýstu fíkniefni til sölu eða vildu kaupa þau. Að auki hafði hópnum verið settar siðarleg- ur. Þar kom meðal annars fram að meðlimir máttu ekki hleypa öðr- um en fíkniefnaneytendum inn í hópinn. Þá var stranglega bannað að greina frá öðrum meðlimum eða ræða það sem fram færi á síð- unni utan hennar. Á síðunni Mucho Grande fór fram umfangsmikil sala á fíkniefnum sem og ólöglegum dýrum á borð við snáka og sama var að segja um hópinn Rebels þar sem ólögleg efni af ýmsu tagi gengu kaupum og sölum. n Lögreglan getur lítið gert n Díla undir fullu nafni „Hann hefur viður- kennt að hafa reykt kannabis og það er bara alls ekki í lagi fyrir 15 ára krakka. Flogaveikilyf og kannabis Alls kyns varningur gengur kaupum og sölum á síð- unni, meðal annars landi og flogaveikilyf. Myndskreytingar Teknar eru myndir af eit- urlyfjunum og þær látnar fylgja auglýsingunum. Blygðunarlaust Kaupendur koma fram ýmist undir nafni eða dulnefni, margir gefa upp símanúmer. Ekki á þeirra valdi Í raun er það ekki á valdi lögreglunnar að loka slíkum síðum og segir Karl Steinar að það sé erfitt að koma því við. Hræðsla Drengurinn neitar að svara foreldrum sínum, skilar sér ekki heim og segir þeim jafnvel að þegja. Hann er að flosna upp úr skóla og mun með þessu áframhaldi ekki útskrifast úr 10. bekk. SViðSEtt MyNd dV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.