Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Blaðsíða 21
Fréttir Erlent 21Helgarblað 14.–17. febrúar 2014
Geymdi lík eiginmannsins í sjö ár
Suðurkóresk kona sætir rannsókn
S
uðurkóresk kona sætir nú
rannsókn vegna hugsan-
legra brota hennar á löggjöf
um meðferð líka. Konan, 47
ára lyfjafræðingur, bjó með látnum
eiginmanni sínum í sjö ár. Maður-
inn lést eftir baráttu við krabbamein
árið 2007, að sögn lögreglunnar í
Seúl.
Konan, sem í fjölmiðlum hefur
verið kölluð Cho, virðist hafa smurt
lík manns síns reglulega til að tefja
fyrir rotnun. Að sögn lögreglunn-
ar var líkið í furðulega góðu ástandi
en menntun konunnar hefur að lík-
indum nýst henni við athæfið. Hún
rekur auk þess lyfjaverslun og hef-
ur þess vegna haft gott aðgengi að
þeim smyrslum sem til verksins hafa
þurft. „Líkið var tiltölulega hrein-
legt og hafði verið vel við haldið. Við
vitum raunar ekki hvernig hún fór
að því,“ hefur AFP-fréttastofan eftir
lögreglumanni. Engum sögum fer
af því hvernig lyktin var í íbúð kon-
unnar.
Líkið fannst í desember en málið
rataði ekki í fréttirnar fyrr en suður-
kóreski fréttamiðillinn YTN greindi
frá því.
Konan hefur ekki verið handtek-
in en eins og áður segir er nú rann-
sakað hvort um brot á lögum um
meðferð líks hafi verið að ræða. Það
verður ef til vill að teljast „líklegt“. n
Að störfum Lögreglunni
í Seúl þótti líkið furðu vel
varðveitt. Mynd ReuteRs
Allt á floti í Bretlandi
n Verstu flóð í manna minnum n Staðan gæti enn versnað n 1,6 milljónir heimila í hættu n Hermenn í viðbragðsstöðu
Kirkjugarður á floti Ástandið í kirkjugarðinum við þorpið
Moorland í suðvesturhluta Englands er nöturlegt, en eins og
sést er hann á kafi í vatni. Mörg svæði í suðvesturhluta lands-
ins hafa verið á kafi svo vikum skiptir, en úrkoma í janúar-
mánuði var sú mesta síðan mælingar hófust. MyndiR ReuteRs
Allt ónýtt Smiðurinn Dave Donaldson, íbúi í Burrowbridge í Somerset Levels í suðvesturhluta Englands, sést hér færa til húsgögn í kjallara húss síns. Vatn hefur flætt inn í kjallara fjölmargra húsa og valdið skemmdum á innanstokksmunum.
Hús úr húsi Breski herinn var fenginn til að kanna hvort íbúar á
flóðasvæðunum væru í hættu staddir og ganga á milli húsa. Hér
sást tveir hermenn ganga um götur Wraysbury, en þorpið fór nánast
á kaf þegar áin Thames flæddi yfir bakka sína.
dýrunum bjargað Slökkviliðsmenn í Devon og Somerset tryggðu öryggi gæludýra sem komust hvorki lönd né strönd
í Burrowbridge vegna flóðanna. Stórvirkar vinnuvélar voru notaðar til að ferja dýrin á milli staða og koma þeim á þurrt.
Líflátinn fyrir
hrottalegt morð
Juan Carlos Chavez, sem dæmd-
ur var til dauða fyrir hrottafengið
morð á níu ára dreng, var tekinn
af lífi í Flórída í Bandaríkjunum á
miðvikudag. Chavez var dæmdur
fyrir að nema á brott, nauðga og
myrða hinn níu ára gamla Jimmy
Ryce árið 1995. Málið vakti mik-
inn óhug á sínum tíma en talið er
að Chavez hafi numið Ryce á brott
á strætóstoppistöð. Chavez var
handtekinn þremur mánuðum
síðar og viðurkenndi hann að hafa
skotið Ryce til bana þegar hann
reyndi að flýja frá honum.
Norðmenn
vilja ekki
ólympíuleika
Mikill meirihluti Norðmanna
kærir sig ekki um að höfuðborgin
Ósló haldi Vetararólympíuleik-
ana árið 2022. Í september gengu
íbúar Óslóar til kosninga um
hvort senda ætti inn umsókn til
að halda leikana. Íbúar sam-
þykktu með 55 prósentum at-
kvæða að senda inn umsókn.
Íbúar utan borgarinnar virðast
ekki jafn áfjáðir í það samkvæmt
nýrri skoðanakönnun. Þannig
eru 81,7 prósent íbúa í Norður-
Noregi mótfallin því að halda
leikana. Þá eru rúmlega sextíu
prósent íbúa á öðrum landsvæð-
um, utan höfuðborgarinnar, mót-
fallin því að leikarnir verði haldn-
ir í Ósló.
Harmleikur í
Ástralíu
Lögreglan í Melbourne í Ástralíu
skaut 54 ára karlmann, Greg
Batty, til bana eftir að hann réðst
á ellefu ára son sinn á krikket-
æfingu. Batty, sem glímdi við
geðræn vandamál, veitti syni sín-
um alvarlega áverka sem drógu
hann til dauða. Fjölmörg vitni
voru að atvikinu, þar á meðal
börn, en Batty veitti syni sínum
áverka með krikketkylfu áður
en hann réðst á hann með hníf.
Þegar lögregla kom á staðinn
ógnaði Batty lögreglumönnum
sem skutu hann til bana.