Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Blaðsíða 35
Helgarblað 14.–17. febrúar 2014 Rómantík 7
„Svo lengi lærir sem lifir“
Þorgrímur segir mikilvægt að breyta engum nema sjálfum sér
S
vo lengi lærir sem lifir,“ svarar
rithöfundurinn Þorgrímur
Þráinsson aðspurður um lyk
ilinn að gæfuríku ástarsam
bandi tveggja einstaklinga. „Það er
mikilvægt að reyna ekki að breyta
neinum nema sjálfum sér en sumir
gera þau mistök að reyna að breyta
maka sínum.“
Reynsla Þorgríms hefur kennt
honum að virðing og kærleikur séu
mikilvægir þættir í góðum samskipt
um. Annars vegar þurfi að virða tíma
og frelsi þess einstaklings sem búið
er með og hafa í huga að öll erum
við einstaklingar. Hann segir að það
kunni ekki góðri lukku að stýra að
skipta sér mikið af viðkomandi.
Leitum öll að innri frið
„Jafnvel þótt hjón hafi verið lengi
saman hætta þau aldrei að vera
einstaklingar,“ segir Þorgrímur,
en hann hefur verið með eigin
konu sinni í tæpa þrjá áratugi. „Mín
reynsla af lífinu er sú að þegar ein
hver heftir frelsi manns of mikið
kemur upp pirringur og óánægja
sem getur kraumað undir niðri ára
tugum saman – síðan sprungið af
minnsta tilefni.“
„Maður tekur ákvörðun um að líta
björtum augum á tilveruna og vera
jákvæður,“ heldur Þorgrímur áfram.
„Framkoma okkar í garð annarra
endurspeglar líðan okkar. Ég held
að við séum öll innst inni að leita
að innri frið eða okkar sannleika,
en þeir sem tekst það ekki reyna að
fylla upp í tómarúmið með einhverju
lífsgæðakapphlaupi,“ segir hann og
nefnir notkun vímuefna í því sam
hengi.
Mesta glíman við mann sjálfan
Þorgrímur segir að fólki hætti til
að flýja vandamál og ósætti í stað
þess að takast á við það. Margir
halda jafnvel að grasið sé grænna
hinum megin við lækinn. „En það
er sjaldnast þannig,“ segir Þorgrímur
ákveðinn. Hann nefnir að reynslan
sýni að fólk sem skilur í fússi tekur
jafnan saman aftur eftir að hafa dreg
ið djúpt andann og skoðað hlutina í
víðara samhengi.
„Mesta glíman í lífinu er glím
an við mann sjálfan. Ég hef sagt
það ótal sinnum og mun halda
því áfram. Við erum flest að glíma
við fordóma eða dómhörku af því
að fólk er ekki eins og við og ekki
sömu skoðunar. Það er verkefni lífs
ins fyrir hvern og einn að glíma við
sjálfan sig.“ n
ingolfur@dv.is
„Framkoma okkar
í garð annarra
endurspeglar líðan okkar.
Vinsæll fyrirlesari Þorgrímur starfar samhliða ritstörfum við að heimsækja grunnskóla
og ræða við nemendur á efsta stigi um lífið og tilveruna. Mynd Sigtryggur Ari
Nauðsynlegt
að tala saman
n Sigrún og Jónatan eiga stefnumót oft í viku n Eiga 53 ára hjónaband að baki
O
kkur finnst bara gott að
koma hingað og fá okkur
kaffi,“ segir Sigrún Sigur
dríf Halldórsdóttir en hún
og eiginmaður hennar til
53 ára, Jónatan Ólafsson, eiga fjór
um sinnum í viku stefnumót á Baut
anum á Akureyri.
Hjónin hafa komið á Bautann
síðustu árin og eru því fastagestir á
veitingastaðnum og þekkja þjónana
með nafni. „Þau eru uppáhaldsvið
skiptavinirnir okkar,“ segir þjónn
sem kemur aðvífandi með svart
kaffið og kyssir Sigrúnu á kinnina.
ráðleggur hjónum að tala saman
Sigrún og Jónatan kæra sig kollótt
um Valentínusardaginn. „Er hann
í dag,“ spyr Jónatan eiginkonu sína
sem segir svo ekki vera. Hann sé á
föstudaginn. „Ég er ekkert spennt
fyrir honum. Ég vil bara hafa þorra
og góu.“
Aðspurð hvort þau eigi ráð handa
nýbökuðum hjónum segja þau mikil
vægast að tala saman. „Ég ráðlegg
hjónum að tala saman um hlutina,“
segir hún en Jónatan segist eiga fá
ráð. „Maður lifir bara fyrir sig og sína
nánustu,“ segir hann og Sigrún Sig
urdríf bætir við: „Já, svo þarf að taka
tillit til hvors annars. Það er ekki hægt
að fara bara sína eigin leið.“
gott að komast út
Hjónin búa í þjónustuíbúð á Akur
eyri og hafa átt regluleg stefnumót
á Bautanum síðan þau hættu
að vinna. „Við komum alla daga
nema miðvikudaga en þá er hann
að spila, bridds, félagsvist og billj
ard. Það er nauðsynlegt að komast
út og skipta um umhverfi og hitta
annað fólk. Við komum hingað í
hvaða veðri sem er eða svo lengi
sem það er fært á bílnum. Annars
kemst ég lítið í snjó. Ég er löt að
fara í göngutúra í göngugrindinni.“
Eiga sjö börn
Sigrún Sigurdríf er frá Súðavík en
hann frá Bolungavík en þau hafa
búið á Akureyri frá 1971. Börnin
eru sjö talsins en aðeins einn son
ur býr fyrir norðan. Aðspurð segj
ast þau alltaf hafa um nóg að tala.
„Við erum ekkert alltaf að spjalla
heima fyrir. Hún les mikið en ég
ræð frekar krossgátur. Svo þegar
við erum svona úti þá höfum við
nóg að tala um. Þá horfum við í
kringum okkur á fólkið og ræðum
saman.“
Hlæjandi segir hún hann alltaf
jafn skemmtilegan. „Hann er
svona skemmtilega leiðinlegur.
Þetta gengur ágætlega hjá okkur,“
segir Sigrún Sigurdríf og maður
hennar viðurkennir að það sé
gott að koma heim til Sigrúnar
eftir spiladag. „Já, það er ágætt.
Allavega kynni maður ekki við ef
enginn væri heima.“ n
indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is „Hann er
svona
skemmtilega
leiðinlegur
Spjalla saman
Hjónin halda
upp á 53 ára
brúðkaups
afmæli sitt 1.
apríl.
Mynd bjArni EiríkSSon