Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Qupperneq 42
Helgarblað 14.–17. febrúar 201434 Fólk
aðeins ári eftir að þau Kristján
fóru að vera saman. Fimm
árum síðar fæddist Magnús
Hlíðar. Gunna Dís segir að það
hafi vissulega verið áfall fyrir
heimasætuna að fá samkeppn-
ina. „Eðlilega var þetta svolítið
sjokk eftir að hafa verið ein með
okkur svona lengi en í dag er
hún ánægð að vera orðin stóra
systir.
Þau systkinin eru alveg
svakalega ólík. Hún er ljóshærð
með blá augu, ægilega fram-
hleypin, talar við allt og alla og
faðmar fólk í skóbúðum. Hann
dökkhærður með brún augu,
rólegur og lítill í sér.
Ég sé margt í Aðalheiði
Helgu sem er í mér. Hún á
framtíðina fyrir sér, þessi
elska. Hún gat aldrei verið
kyrr og lærði að standa áður
en hún lærði að sitja á með-
an það drýpur ekki af honum. Ætli
það megi ekki segja að við eigum
sitthvort barnið, ég og Kristján,“
segir hún brosandi og bætir við að
hana langi í fleiri börn. „Ég væri til
í heilan her af þeim. Það er bara
spurningin að ná að púsla þessu
saman við vinnu. Það verður víst að
ná að sinna þessum greyjum.“
Erfið fæðing
Eins og frægt er orðið kom Magnús
Hlíðar í heiminn á afmælisdegi
Andra Freys en færri vita að það
var nákvæmlega níu mánuðum eft-
ir að Gunna Dís og Kristján gengu í
það heilaga. „Að eignast hann var
ekki planað. Barneignir hafa líklega
verið það eina í mínu lífi sem ekki
hefur verið skipulagt. Kannski hefði
verið betra að hafa styttra á milli
barnanna en þar sem við lentum
í mjög erfiðri reynslu þegar Aðal-
heiður Helga kom í heiminn treysti
ég mér ekki í annað barn strax. Ég
var svo hrædd um að eitthvað færi
úrskeiðis,“ segir hún og bætir við
að hún hafi ekki fengið að halda á
Aðal heiði Helgu fyrr en hún var
orðin fimm daga.
„Fæðingin gekk illa og barnið
veiktist í kjölfarið. Hjartslátturinn
féll og þótt hún væri með lífsmarki
sýndi hún lítil viðbrögð og því var
brunað með hana á gjörgæslu án
þess að ég fengi að sjá hana. Í ljós
kom að hún var með slæma sýk-
ingu og var henni haldið á gjör-
gæslu vökudeildar í nokkra daga.
Við gerðum okkur ekki fullkomlega
grein fyrir því sem var í gangi enda
foreldrar í fyrsta skiptið en henni
hrakaði mikið fyrstu nóttina. Henni
var vart hugað líf,“ segir hún en
viðurkennir að það hafi verið skrít-
ið að fara heim barnlaus af sjúkra-
húsinu. „Það var ömurlegt en þetta
fór allt á besta veg. Hún braggaðist
ægilega vel og var skírð í höfuðið á
báðum ömmunum sínum.
Þegar ég lít til baka átta ég mig
á því hvað maður er mannlegur og
hvað allt getur verið hverfult. Ég
var alveg rosalega stressuð á síðari
meðgöngunni en þar var vel haldið
utan um mig. Ég var kvíðin gagnvart
fæðingunni og þess vegna var mér
boðið að fara í keisara. Ég, svona
stjórnsöm, hafði enga stjórn á at-
burðarásinni, það á ekki við mig. Ég
þurfti að gefa mér tíma til að vinna
í þessu.“
Of gott til að vera satt
Hún segir móðurhlutverkið hafa
breytt sér. „Að verða mamma hefur
mýkt mig. Ég er rosalega mikið í
þessu hlutverki; að vera mamma
þeirra. Stundum læðist sú hugs-
un að mér að þetta hljóti að vera of
gott til að vera satt; að nú hljóti eitt-
hvað slæmt að fara að gerast. Ég er
einhvern veginn á varðbergi; kvíðin
og hrædd um að missa þá sem ég
elska. Það kemur varla sá dagur
sem ég hugsa ekki svona en rembist
við að hrista þetta af mér og lifa í
núinu.“
Hún segist ástrík móðir en viður-
kennir að vera ekki sú þolinmóð-
asta. „Ég er hér fyrir börnin mín.
Geri ekkert annað en að vinna og
vera til staðar fyrir þau. Að sama
skapi mætti ég alveg vanda mig
betur, vera þolinmóðari og rólegri.
Ég á erfitt með að lifa í núinu og
óttast mest af öllu að einn góðan
veður dag séu þau orðin fullorðin,
og ég gleymdi að lifa í núinu. Ég
mætti líka vera nærgætnari, er alltaf
eins og stormsveipur um allt.“
Tveggja barna móðir á „station“
Hún segir daga sína sem fiðrildi
talda en nýtur sín best í dag heima
með fjölskyldunni. „Ég kláraði kvót-
ann áður en ég hitti manninn minn.
Þá var ég ægileg skellibjalla; það var
allt að gerast. Nú hef ég breyst. Ég
varð ekki móðir fyrr en 28 ára, hafði
þá klárað alls konar hluti og fór
sátt í það hlutverk. Núna er ég bara
heimakær og örugglega ansi leiðin-
leg þegar ég er ekki að vinna. Stað-
an er bara þannig núna enda er fullt
starf að vinna og vera móðir.
Ég og maðurinn minn erum
bæði í mjög krefjandi störfum og
það er ægilegt púsluspil að láta
allt ganga upp. Ég á því ekki mikla
orku eftir þegar ég er búin að gera
allt sem ég þarf að gera. Svo reyni
ég líka að hugsa vel um mig, sama
hvort það er út af aðsvifinu eða ekki,
og fer mjög snemma að sofa. Ég fer
ekki út eftir myrkur svo það er óhætt
að segja að ég sé heimakær.
Mig hefur alltaf langað að vera
meiri spútnik týpa en ég er að sætta
mig við að það verður aldrei úr
þessu, orðin tveggja barna móðir á
fertugsaldri á „stationbíl“ í úthverfi.
Svona átti þetta ekki að vera. En ég
verð að vera í öryggi. Annars líður
mér illa. Þess vegna er gott að vera
með fræðimann með mér í þessu.“
Mamma grét í bílnum
Þó Gunna Dís sé frá Vopnafirði og
Kristján frá Húsavík og fjölskyldur
þeirra beggja búi úti á landi býst
Gunna Dís ekki við að þau séu að
yfirgefa höfuðborgina. „Kristján
hefur örugglega ekkert á móti því að
flytja aftur heim en ég sé það ekki
gerast í nánustu framtíð. Þar kemur
tvennt inn til, í fyrsta lagi veit ég ekki
hvort ég fengi starf við mitt hæfi og,
þótt ég vildi óska þess að geta gefið
börnunum mínum meira frelsi, þá
vildi ég ekki þurfa að senda þau að
heiman þegar þau eru búin með
grunnskóla.
Ég vil festa rætur hér í borginni
svo börnin mín hafi í framtíðinni val
um að búa ennþá hjá mér á meðan
þau eru í mennta- og háskóla og svo
að ég geti dvalið hjá þeim í ellinni. Ég
veit að mamma greyið grét í bílnum
á leiðinni austur aftur eftir að hafa
sagt bless við dóttur sína þegar ég fór
í menntaskóla. Enda kom ég aldrei
heim aftur, nema tvö stutt sumur.
Það eru kostir og gallar við þetta
allt saman. Við erum bæði náin for-
eldrum okkar og þykir ofboðslega
erfitt að hafa þau hinum megin á
landinu. Ekki af því að við fáum ekki
pössun þegar okkur hentar heldur
vegna þess að ég væri til í að eyða
miklu meiri tíma með þeim.
Ég gæti frekar hugsað mér að
flytja til útlanda tímabundið. Þótt
það væri vita vonlaust fyrir mig að
fá starf þar.“
Í bölvuðu basli
Fyrir kreppu, og áður en börnin
komu í heiminn, flutti Gunna Dís
til Chile. „Mér fannst lífsgæðakapp-
hlaupið hér heima komið út í eitt-
hvert rugl og þótt ég hafi ekkert fyrir
mér í því þá hef á tilfinningunni að
við séum á sömu leið aftur. Ég verð
bara ótrúlega sár og svekkt þegar ég
hugsa um hvernig við höfum farið
með heilbrigðiskerfið og hvernig er
farið með gamla fólkið og börnin
okkar. Við þurfum að fara forgangs-
raða,“ segir hún og bætir við að
margar barnafjölskyldur séu í basli.
„Ég er bara í bölvuðu basli eins og
allir aðrir. Maður ætlaði að ala upp
börnin sín hér en það er spurning
hvort maður þurfi að fara utan til
þess hreinlega að geta borðið börn-
unum sínum þá framtíð sem maður
vill,“ segir hún en bætir við að hún
sé nægjusöm. „En ég er líka mann-
leg og langar að eiga fallega hluti.
Samt sleppi ég frekar að kaupa mér
eitthvað til að vera viss um að ég eigi
fyrir Bónus-ferðunum út mánuðinn
til að geta gefið börnunum mínum
að borða. Ég kvarta ekki en ég veit
um fjölda fólks sem á virkilega erfitt
með að ná endum saman.“
Alls ekki allra
Gunna Dís situr aldrei á skoðunum
sínum og segir það oft hafa kom-
ið henni í bobba. „Ég er fljót upp,
er eins og kínverji, fuðra bara upp.
Og ég er langrækin. Ef fólk særir mig
eða veldur mér vonbrigðum man ég
það.
Ég er líka alls ekki allra og þannig
hefur það alltaf verið. Ég hef alltaf
verið afgerandi karakter, tala mikið,
hef hátt og hef stórar skoðanir á
hlutunum. Ég er algjör óhemja, fer
oft í fýlu en það er mjög grunnt á
því,“ segir hún en bætir við að hún
geti líka verið ljúf sem lamb. „ Undir
þessu hrjúfa yfirborði er ég blíð og
góð; algjör mús, og eftir að ég eign-
aðist börnin mín er mér ekki við-
bjargandi, er grenjandi yfir öllu, al-
gjört tilfinningafjall,“ segir hún en
bætir aðspurð við að hún sé full-
komlega sátt við að það kunni ekki
allir við hana. „Það er ekki hægt að
ætla að gera öllum til geðs. Ég held
að það sé ákveðið þroskamerki að
þurfa ekki lengur að reyna að þókn-
ast öllum. Það er bara nokkuð gott
að vera eins og ég er. Ég er orðin sátt
við mig. Ég vildi samt ekki búa með
mér og ég dáist af Kristjáni að geta
það. Hann ætti skilið friðarverðlaun
Nóbels. Það fer ekki hver sem er í
það starf.“ n
„Hann
var
öruggur með
sig og ekkert
hræddur við
mig, vatt sér
bara upp að
mér.
Nýbyrjuð saman Að sögn Gunnu Dísar
þurfti Kristján að ganga á eftir henni.
Fyrirsæta Þrettán ára í myndatöku hjá módelskrifstofu.
M
y
N
d
S
ig
Tr
y
g
g
u
r
A
r
i