Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Blaðsíða 47
Helgarblað 14.–17. febrúar 2014 Neytendur 39
Algengt verð 242,60 kr. 242,40 kr.
Algengt verð 241,40 kr. 239,20 kr.
Höfuðborgarsv. 241,30 kr. 239,10 kr.
Algengt verð 241,60 kr. 239,40 kr.
Algengt verð 244,90 kr. 242,40 kr.
Melabraut 242,60 kr. 242,40 kr.
Eldsneytisverð 12. 02. 2014
Bensín DísilolíaLítill afsláttur
með dælulykli
n Frumskógur í afsláttarkjörum olíufélaganna
I
nnan við 1.000 kr. sparast mánað-
arlega á því að nýta sér afsláttar-
kjör olíuverslana við kaup á elds-
neyti sé miðað við meðalakstur
bíls sem eyðir um sjö lítrum á
hundraðið. Hjá öllum bensín stöðvum
er hægt að fá sérstök afsláttarkjör. Hjá
N1 er boðið upp á N1-kortið sem veit-
ir einnar krónu afslátt en auk þess
fást tveir punktar sem gilda sem tvær
krónur við kaup á vörum og þjónustu
hjá fyrirtækinu. Orkulykillinn veit-
ir þriggja króna afslátt á Orkunni en
fjórar krónur af bensíni
á Skeljungsstöðvunum.
Þá getur fólk valið sér
ákveðna stöð sem veit-
ir tveggja króna auka-
afslátt.
stórnotendur fá
meiri afslátt
Til viðbótar við þetta
er veittur þriggja króna
aukaafsláttur fyrir þá
sem kaupa meira en 50
lítra af bensíni á mánuði,
en viðbótarafslátturinn
hækkar upp í fimm krón-
ur ef keyptir eru 150 lítr-
ar af bensíni eða meira.
Að hámarki getur af- sláttur-
inn því orðið 10 krónur af lítranum, að
því gefnu að keyptir séu meira en 150
lítrar og að fólk sé á sinni föstu bens-
ínstöð. Skeljungskortið virkar á sama
hátt og Orkulykillinn og veitir sama af-
slátt.
ÓB lykillinn veitir einnig þriggja
króna afslátt af bensíni, á bensín-
stöðvum ÓB og Olís en til viðbótar
fæst fimmtán króna afsláttur af lítran-
um í tíunda hvert skipti sem keypt er
eldsneyti að því gefnu að keyptir séu
25 lítrar eða fleiri.
Dælulykill Atlantsolíu veitir þrjár
krónur í afslátt af eldsneytisverðinu
en er að auki með viðbótarafslátt
tengdan magni þannig að ef keypt-
ir eru meira en 50 lítrar í mánuði er
gefinn tveggja króna aukaafsláttur en
fimm krónur ef keyptir eru 150 lítrar
eða meira.
Misjafn afsláttur eftir dögum
ÓB, Orkan og Atlantsolía bjóða öll
upp á 10–12 króna afslátt á sér stökum
tilboðsdögum og eins þegar fólk á af-
mæli. Oft er einnig boðið upp á tíu
króna afslátt þegar dælt er í fyrsta
skipti eða fyrstu tvö skiptin.
Öll fyrirtækin bjóða auk þess upp
á viðbótarafslátt fyrir hópa í gegnum
sérstaka samninga, til dæmis fyrir
hópa námsmanna, starfsmannafélög,
íþróttafélög og fleiri. Sá afsláttur get-
ur verið 3–10 krónur til viðbótar við
fyrrnefndan afslátt.
Vill stöðugra verð
„Þessi þróun varðandi afsláttar kort
hefur greinilega haft áhrif á mark-
aðinn þannig að það er minni hluti
markaðarins sem kaupir á fullu verði,“
segir Runólfur Ólafsson fram-
kvæmdastjóri FÍB. „Það sem
gerist reyndar við þessa
afslætti, stundum, er að
fólk áttar sig ekki á hver
er raunkostnaðurinn,“
segir hann. Þá séu til-
viljanakenndir tilboðs-
dagar æ algengari, einn
daginn gangi hand-
boltalandsliðinu
vel en þann næsta
sé Eurovision
og annað slíkt.
Runólfur segir
FÍB hafa mælst
til þess að elds-
neytisverð sé
gagnsærra og
verðlag stöð-
ugra en á sama
tíma vilji það bara sem lægst verð fyr-
ir sína félagsmenn. Hann segir jafn-
framt óeðlilegt hversu lítill munur sé
á eldsneytisverði milli sölustaða. „Það
munar kannski 30 aurum á lítra en
aurar telja ekki einu sinni lengur í ís-
lenskri mynt,“ segir hann.
Fjögur prósent slegið af
Samkvæmt upplýsingum frá FÍB keyr-
ir fólk að meðaltali um 15.000 kíló-
metra á ári. Ef bíllinn eyðir sjö lítrum
á hundraðið þarf að kaupa 87,5 lítra
á mánuði til að keyra bílinn. Neyt-
andi sem nýtir sér alla afslætti
og kaupir bensín á bensínstöð
Orkunnar með fullum tíu króna
afslætti sparar sér aðeins um 875
krónur á mánuði en greiðir 20.238
krónur fyrir eldsneytið. Ef hann
hins vegar kaupir bensínið á þjón-
ustustöð Olís og lætur dæla fyr-
ir sig borgar hann 20.965
krónur fyrir bensínið á
mánuði að því gefnu
að hann framvísi OB-
lykli eða Einstak-
lingskorti Olís.
Fullur afsláttur af
eldsneytisverði er
því aðeins rúm-
lega 4%. n
auður alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
„Þessi þróun varð-
andi afsláttarkort
hefur greinilega haft áhrif
á markaðinn þannig að
það er minni hluti mark-
aðarins sem kaupir á fullu
verði.
Sparakstur
Á heimasíðu Orkuseturs má
lesa nokkur ráð til sparaksturs.
Eitt þeirra er að forðast öfgar í
aksturslagi. Ef aksturslagið miðast
við að taka hratt af stað og snögg-
hemla þá getur eyðslan aukist um
allt að 40%. Rannsóknir sýna að
slíkt aksturslag dregur úr ferða-
tíma um aðeins 4%. Hagkvæmast
er að taka rólega af stað og koma
bílnum í háan gír sem fyrst.
Áður en lagt er af stað er líka
gott að velta fyrir sér hvort mað-
ur þurfi að fara þessa ferð, hvort
maður geti fengið far hjá öðrum,
hvort betra sé að fara gangandi
eða hjólandi þessa ferð eða hvort
maður geti sinnt fleiri en einu er-
indi í ferðinni.
Verðmyndun
eldsneytis
Rétt tæplega helmingur verðs
bensínlítrans er skattar en þeir
eru í formi vörugjalda, flutn-
ingsjöfnunarkostnaðar, bensín-
gjalds, kolefnisgjalds og og
virðisaukaskatts. Álagning olíufé-
lagsins er tæp 16%. Hér fyrir neð-
an má sjá töflu yfir verðmyndun
eldsneytis.
n Innk.verð kr. á l. 83,00 kr. 34,35%
n Vörugjöld 25,20 kr. 10,43%
n Flutningsjöfnun 0,46 kr. 0,19%
n Bensíngjald 40,70 kr. 16,85%
n Kolefnisgjald 5,15 kr. 2,13%
n VSK 25,5% 49,09 kr. 20,32%
n Álagning, 38,00 kr. 15,73%
n Útsöluv. í sjálfsafgr. 241,6 kr. 100%
Aukið öryggi á internetinu
Markaður með stolin lykilorð en einsskiptis lykilorð öruggust
G
oogle, Facebook og Drop-
box eru vefir sem margir
Íslendingar nota mikið.
Fæstir leiða hugann að því
hvernig þeir geta hindrað
aðgang óviðkomandi aðila að
þessum síðum og þeim persónu-
legu gögnum sem þeir geyma þar.
Samkvæmt tölum frá 2011 er yfir
600.000 aðgöngum að Facebook
„stolið“ á heimsvísu á hverjum
degi. Þetta er meðal þess sem fram
kemur í grein á vef Advania.
Þar segir að einfaldasta leiðin
til að finna lykilorð sé að giska á
það. Til er margs konar hugbún-
aður sem gerður er með það í huga
að finna út (eða „cracka“) lykilorð.
Á undanförnum árum hefur orðið
til markaður fyrir óprúttna aðila
þar sem innskráningarupplýsingar
á netinu, notendanöfn og lykilorð,
ganga kaupum og sölum. Almennt
er góð regla að gefa sér að allar tölv-
ur innihaldi einhvern spillibúnað
og að notendanafn og lykilorð ein
og sér séu ekki nægjanleg vörn.
„Skiptu reglulega um lykilorð:
Því lengur sem þú notar sama lykil-
orðið þeim mun meiri líkur eru á að
því hafi verið stolið. Notaðu sterkt
lykilorð: Margir nota bara einfalt
lykilorð á netinu en það er ein-
föld leið til að auka öryggið að nýta
„sterk lykilorð“ en slík lykilorð inni-
halda tölustafi, hástafi og tákn. Því
lengra sem lykilorðið er því betra.
Notaðu einsskiptis lykilorð: Önn-
ur einföld öryggisráðstöfun er að
nýta einsskiptis lykilorð þar sem
þau eru í boði. Auðkennislyklar
heimabankanna eru ágætt dæmi
um einsskiptis lykilorð sem flestir
þekkja. Margir vefir og þjónustur á
netinu styðja einhvers konar eins-
skiptis lykilorð, til dæmis í SMS eða
með snjallsímaappi.“ n
fifa@dv.is
lykilorð Best er að
skipta reglulega.
Rafhleðsla á bíl
kostar lítið
Kostnaður við notkun rafbíls er
um 31.200 krónur á ári miðað
við ársnotkun upp á 18.000 kíló-
metra akstur og að hver hleðsla
dugi í 150 kílómetra, ein kílóvatt-
stund kosti 13 krónur og um 20
kílóvattstundir þurfi til að fylla raf-
geymana. Hver hleðsla kostar þá
um 260 krónur.
Þó má ekki gleyma því að
kostnaður við viðhald og endur-
nýjun rafgeyma kemur á móti lág-
um eldsneytiskostnaði. Eftir um
5–6 ár minnkar geta rafgeymanna
smátt og smátt til að geyma orku.
Erfitt er að áætla líftíma einstakra
íhluta svo sem rafgeyma en áætl-
anir framleiðanda gera ráð fyrir
að virkni rafgeymanna verði um
70–80% eftir 10 ár, það er að þeir
hafi um 70–80% af upphaflegri
hleðslugetu.