Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Qupperneq 64

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2014, Qupperneq 64
Helgarblað 14.–17. febrúar 2014 13. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Í lessufélaginu n „Er í 20%, er það staðfest að þá sé ég lesbía?“ spyr Kristín Soffía Jónsdóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, á þræði á Facebook þar sem fólk ræðir próf þar sem samkynhneigð hvers og eins er mæld. Gert er ráð fyrir að karlmaður svari prófinu svo í raun er verið að mæla í hversu miklum mæli karlmenn laðast að karlmönnum. Grafíski hönnuð- urinn Svala Hjörleifsdóttir svar- ar spurningu Kristínar játandi og segir hana nú útskrifaða lesbíu. „Farin til Grindavíkur að taka myndbönd af mér að lessast – sjáumst,“ skrif- ar varaborgar- fulltrúinn þá. Hildur Lilli- endahl hefur þó lokaorðið og biður hana vel- komna í lessufé- lagið. Vantaði hann krydd í tilveruna? Formaður í tilvistarkreppu n María Rut Kristinsdóttir, for- maður Stúdentaráðs, er ringluð og í tilvistarkreppu. Ástæðan ku vera sú að senn líður að því að hún hætti sem formaður Stúd- entaráðs. „Er að upplifa þvílíka tilvistarkreppu akkúrat núna og er því tilneydd til að deila henni með ykkur. Ég er nefnilega hægt og rólega að átta mig á því að ég hætti að vera formaður Stúd- entaráðs 1. júní næstkomandi og þarf að finna mér vinnu fyrir sumarið! Viljiði plís hjálpa mér aðeins: HVAR Á ÉG EIGINLEGA AÐ VINNA?!“ spyr hún. Vinir hennar benda henni á að fara í stjórnmál. „DIBS!“ n Brynjar Jökull Guðmundsson, landsliðsmaður í alpagreinum og dyravörður á Kaffibarnum í hjáverkum, er nú staddur á Ólympíuleikunum í Sochi. Á Face- book-síðu sinni deilir hann frétt um fegurstu konurnar sem keppa á Ólympíuleikunum og pantar að eiga þær út af fyrir sig. „DIBS!!! Þess- ar skauta prinsessur eru of langt í burtu en rest er ég með!“ skrifar Brynjar. Hann segist vona að þær séu sem flestar með Tinder sem er nokkurs konar skyndikynna- app. Aðspurður hvort það sé fjör í Ólympíuþorpinu segir Brynjar: „Það er alveg stuð.“ Þjófar hugsa líka um heilsuna Innbrotsþjófur, sólginn í túrmerik og moringa, braust inn í heilsubúð Þ að var hérna skondið innbrot. Hann komst inn og stal aðeins þrjú þúsund krónum af um sjö þúsund sem voru í kassanum. Svo stal hann heilsusjeik, Juvo slim, til að grenna sig, og svo tók hann slatta af moringa-dufti,“ segir Stefán Andri Björnsson, framkvæmdastjóri heilsubúðarinnar Uppskeran í Skeif- unni, í samtali við DV. Brotist var inn í verslunina um síðustu helgi. Hann segir að innbrotið hafi átt sér stað um miðja nótt og að tjónið sé merkilega lítið. „Kælir var tekinn úr sambandi til að minnka ljós í búðinni, annars vantaði bara að hann hafi farið út með ruslið og læst á eftir sér,“ segir Stefán. „Hann var mjög nægjusamur og samt hafði hann allan þann tíma sem hann þurfti. Hann tók ekki allan peninginn úr kassanum svo þetta var voðalega smekklega gert hjá honum,“ segir Stefán Andri. Að hans sögn komst í raun upp um þjófnaðinn vegna þess að bakdyr sem séu alltaf læstar hafi verið opnar. „Löggan átti bágt með að trúa þessu. Þetta var mjög skrýtið innbrot. Þjófurinn tók líka eitthvað krydd sem við erum með í krukkum. Hann tók slatta af því, mikið af túrmeriki sérstaklega. Það hvarf líka mikið af Chia-fræjum. Hann hefur verið mikið í þessum pælingum,“ segir Stefán Andri. Hann segist feginn að þjófurinn hafi ekki tekið meira þar sem búð- in sé ný af nálinni. „Við erum enn að koma okkur fyrir,“ segir hann. Rann- sókn lögreglunnar á málinu stendur enn yfir. n hjalmar@dv.is Kryddbar Innbrotsþjófurinn virðist hafa verið sérstaklega hrifinn af kryddinu túrmer iki. Að sögn Stefáns Andra stal hann sérstaklega miklu af því.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.