Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Side 4
Vikublað 25.–27. febrúar 20144 Fréttir
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
Bifreiðin
varð alelda
Eldur kom upp í bifreið í Þrengsl-
um í síðustu viku. Í dagbók lög-
reglunnar á Selfossi kemur fram
að ökumaður bifreiðarinnar hafi
orðið var við reyk sem steig upp
frá gírstöng bifreiðarinnar. Mað-
urinn stöðvaði bifreiðina en ekki
vildi betur til en svo að skömmu
síðar blossaði upp eldur í mæla-
borði hennar. Slökkvilið Bruna-
varna Suðurnesja fór á staðinn
og slökkti eldinn. Bifreiðin er þó
líklega ónýt eftir brunann, að
sögn lögreglu.
Gerðu rétt með
að fara til Sochi
Meirihluti landsmanna telur að
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
og Illugi Gunnarsson, mennta-
og menningarmálaráðherra,
hafi gert rétt í að vera viðstaddir
opnunarhátíð Ólympíuleikanna
í Sochi í Rússlandi. Þetta er sam-
kvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar MMR. Á vef MMR
kemur fram að skiptar skoðanir
hafi verið á þessu. Niðurstaðan
var engu að síður sú að 55,1 pró-
sent töldu að Ólafur Ragnar hafi
gert rétt en 44,9 prósent að hann
hafi gert rangt. Niðurstöðurn-
ar voru svipaðar hvað varðar Ill-
uga. 54,1 prósent töldu að hann
hefði gert rétt en 45,9 prósent
að hann hefði gert rangt með að
fara til Sochi. Þá vekur athygli
að meirihluti þeirra sem studdu
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokk-
inn töldu að bæði Ólafur Ragnar
og Illugi hafi gert rétt með að
vera viðstaddir opnunarhátíðina,
en meirihluti þeirra sem studdu
Samfylkinguna, Vinstri græn,
Bjarta framtíð og Pírata töldu að
báðir hefðu gert rangt.
Bílstjóri fær 19 milljónir
VÍS taldi hann ekki eiga að fá bætur enda væri ekki um slys að ræða
Héraðsdómur Flutningabílstjórinn
stefndi VÍS þar sem hann taldi sig eiga
rétt á bótum. Héraðsdómur var sammála
manninum. Mynd Rakel ÓSk SiguRðaRdÓttiR
Ö
kumaður flutningabíls sem
valt á hliðina í september árið
2008 fær greiddar tæpar 19
milljónir króna í bætur, auk
vaxta og dráttarvaxta. Þetta er niður-
staða Héraðsdóms Reykjavíkur, en
maðurinn stefndi Vátryggingafé-
lagi Íslands vegna málsins. VÍS taldi
hann ekki eiga rétt á bótum þar sem
hann hafði ekki slasast í slysi, að
þeirra mati.
Maðurinn ók flutningabíl fá Pat-
reksfirði til Suðureyrar í slæmu veðri
um nótt, þegar hann sá skarð í veg-
inum. Hann reyndi að keyra framhjá
því en festi bílinn. Smám saman gróf
vatn undan bílnum með þeim af-
leiðingum að hann lagðist á hliðina.
Vatn fór að flæða inn í bílinn og mað-
urinn missti símann sinn í vatnið,
svo hann varð sambandslaus. Mað-
urinn gat ekki yfirgefið bifreiðina og
þurfti því að halda til í henni þar til
vegfarendur komu að bílnum um
morguninn. Hann beið í átta tíma
og varð fyrir tjóni á þeim tíma vegna
þess hve erfiðlega honum gekk að
koma sér fyrir.
VÍS taldi það ekki sannað að hann
hefði ekki verið við stjórn ökutæk-
isins þegar hann varð fyrir tjóninu,
jafnvel þótt hann hafi setið undir
stýri. Til að hann teljist hafa verið við
stjórn þurfi ökutækið að vera í gangi
og á ferð, og því hafi hann ekki verið
að nota ökutækið sem slíkt.
Dómurinn var þessu ekki sam-
mála og dæmdi VÍS til að greiða sem
fyrr segir, tæplega 19 milljónir króna
í bætur. n
Í
slensku sjónvarpsþættirnir Biggest
Loser ala á fitufordómum og sam-
rýmast ekki faglegum vinnubrögð-
um að mati heilbrigðisstarfsmanna
og fagmanna í heilbrigðisstéttinni.
Félag fagfólks um átraskanir, Félag fag-
fólks um offitu, Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga, Matarheill, Matvæla- og
næringarfræðafélag Íslands, Samtök
um líkamsvirðingu og Sálfræðinga-
félag Íslands sendu frá sér yfirlýsingu
um helgina sem vakti viðbrögð um
leið. Í henni gagnrýna þeir þá hug-
myndafræði sem sett er fram í Biggest
Loser og segja að þátttakendum sé
ekki sýnd virðing og telja að þættirnir
ali á fitufordómum. „Þessir þættir hafa
sætt mikilli gagnrýni í gegnum tíðina
þannig að það er ekkert nýtt að þetta
efni sé umdeilt,“ segir Sigrún Daníels-
dóttir sálfræðingur, formaður samtaka
um líkamsvirðingu. „Þetta er umdeilt
vörumerki sem er verið að vinna með.
Markmiðið er auðvitað að selja sjón-
varpsefni og þetta er sett fram í þeim
tilgangi.“
ekki gagnrýni
Sigrún ítrekar að ekki sé um að ræða
gagnrýni á þátttakendur í Biggest
Loser heldur hugmyndafræði keppn-
innar. „Þetta er alls ekki gagnrýni á
keppendur. Við erum að gagnrýna
sjónvarpsefni og það sem er sett fram
þar,“ segir hún. „Þetta eru þættir sem
ganga fyrst og fremst út á sem mest
þyngdartap á sem skemmstum tíma
og þar sem að ákveðin framkoma í
garð skjólstæðinga þykir í lagi. Okk-
ur fannst ástæða til þess að taka fram,
af því að það er verið að blanda fag-
fólki inn í þetta, að þessi framkoma er
ekki eitthvað sem við myndum sætta
okkur við hjá lækni eða hjúkrunar-
fræðingi. Við viljum ekki að það sé
verið að blanda íslensku fagfólki inn í
þetta af þessum ástæðum. Þetta á ekki
við um okkur,“ segir hún.
Sigrún segir það að mörgu leyti
skjóta skökku við að þátturinn láti í
veðri vaka að alhliða heilbrigði þátt-
takenda skipti mestu máli, þegar
þyngdartapið leiki augljóslega stærsta
hlutverkið. „Það er það sem virðist
ráða úrslitum um hvort fólk fær að
vera í þáttunum eða ekki,“ segir hún.
ekki vottað
Í auglýsingum þáttanna kemur fram
að þeir séu vottaðir af heilbrigðis-
starfsfólki og segir fagfólkið að slík
vottun komi ekki frá þeim. Í yfirlýs-
ingu þeirra segir: „Við viljum taka
skýrt fram að meint „vottun“ sem
þættirnir eru sagðir hafa fengið frá
læknum, sálfræðingum og næringar-
fræðingum á ekki við um fagfólk hér
á landi. Enginn íslenskur heilbrigðis-
starfsmaður gæti viðhaft þá nálgun
gagnvart sínum skjólstæðingum sem
einkennir þessa þætti án þess að það
væri brot á siðareglum viðkomandi
fagstéttar og gildandi lögum um heil-
brigðisstarfsmenn.“
118 kíló í 47
Þessi gagnrýni á Biggest Loser er ekki
ný af nálinni. Bandarísku þættirnir
(og sömu þáttaraðir víða um heim)
hafa fengið á sig mikla og alvar-
lega gagnrýni. Síðasta þáttaröðin í
Bandaríkjunum vakti óhug margra
þegar að sigurvegarinn reyndist vera
ung kona, Rachel Fredrickson, sem
var 118 kíló þegar þættirnir byrjuðu
en hafði grennt sig niður í 47 kíló og
var þar með komin úr yfirþyngd og
taldist vera of létt miðað við hæð og
aldur.
Segja keppnina faglega
Í yfirlýsingu frá Skjá Einum og þátt-
takendum í Biggest loser segjast þátt-
takendur ekki hafa orðið fyrir fitufor-
dómum, faglega hafi verið staðið að
þjálfun og mataræði þátttakenda.
„Við framleiðslu þáttanna hér á
landi var fylgt eftir fyrirmælum er-
lendu framleiðendanna hvað varðar
þá þjónustu sem keppendum skyldi
veitt. Allir keppendur fóru í gegnum
ítarlega læknisrannsókn áður en þeir
hófu æfingaferlið og var sú rannsókn
framkvæmd af Heilsuvernd og Teiti
Guðmundssyni, lækni,“ segir Skjár
Einn. „Samkvæmt reglum þáttanna
var ávallt sjúkrahús eða læknisað-
stoð í innan við 15 mínútna fjarlægð
við æfingar, hjúkrunarfræðingur var
alltaf viðstaddur þrautir og keppend-
ur höfðu alltaf aðgang að geðhjúkr-
unarfræðingi. Vottun þessi sem vísað
er í af framleiðendum er því sú vott-
un sem fylgir alþjóðlega formatinu
The Biggest Loser og er yfirfarin af
erlendum sérfræðingum eins og ferl-
ið allt sem er frá Bandaríkjunum.“
Anna Lísa Finnbogadóttir, hjúkr-
unarfræðingur og keppandi í Biggest
Loser, segir að keppnin hafi í alla
staði farið vel fram. „Mín reynsla af
þjálfurunum og öllum þeim sem
stóðu að tökum þáttanna hér á landi
er ekkert nema jákvæð og öll vinnan
í kringum þetta var unnin af einstakri
fagmennsku.“ n
„Umdeilt vörumerki“
Biggest loser samrýmist ekki faglegum vinnubrögðum íslensks heilbrigðisstarfsfólks
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
„Við viljum ekki að
það sé verið að
blanda íslensku fagfólki
inn í þetta.
keppendur Hér má sjá þá keppendur sem taka þátt í íslensku Biggest Loser-sjónvarps-
þáttunum sem sýndir eru á Skjá Einum
Þyngdartapið Sigrún
segir að þyngdartapið ráði
mestu um hvort fólk vinni
Biggest Loser, eða ekki.
Mynd SigtRygguR aRi