Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Side 18
18 Fréttir Erlent Vikublað 25.–27. febrúar 2014
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður
Sérfræðingar í líkamstjónarétti
Átt þú rétt á
slysabótum?
Verðmætara en gull
n Hamas-liðar tóku 2.500 ára líkneski sem Ghurab fann á hafsbotni n Ekki enn fengið krónu
Í
sraelski sjómaðurinn Jawdat Abu
Ghurab vissi ekki hvaðan á hann
stóð veðrið, þegar hann sá glitta
í mannslíkama á sjávar botni
skammt úti fyrir ströndum Gaza
síðastliðið sumar. Hann var á fisk-
veiðum á árabát sínum þegar hann sá
glitra á eitthvað sem líktist manneskju
á hafsbotni. Það reyndist vera 2.500
ára gömul stytta úr bronsi – líkneski af
gríska sólargoðinu Appolló.
Ghurab var smiður þar til Ísraelar
hófu að hefta innflutning byggingar-
efna árið 2007. Þá keypti hann sér lít-
inn árabát og fór að róa til fiskjar. Hann
fer aldrei langt út, enda ekki vel búinn,
og veiðir aðeins smáfisk. Daginn sem
um ræðir veiddi hann ekki bara fisk.
Einn við veiðar
Frændi hans, sem einnig var við veiðar
þennan dag í ágúst í fyrra, var farinn í
land – því illa fiskaðist. Ghurab, 29 ára,
ákvað að veiða svolítið lengur. „Ég varð
einn eftir úti á sjó, í litla bátnum mín-
um og með árina. Ég hafði veitt tímun-
um saman en gerði mér ekki í hugar-
lund hvað kæmi upp úr sjónum,“ segir
hann í samtali við BBC.
Ghurab ber að stundum, þegar
hann veiði á grunnu vatni, verði hann
þess var að öldurnar hreyfi til botninn.
Þegar það gerist nýta smáfiskar tæki-
færið og leita ætis í sandinum. „Það
var þá sem ég sá móta fyrir mann-
eskju, hálfri ofan í sandi á hafsbotnin-
um.“ Hann varð í fyrstu svolítið hrædd-
ur en stakk sér svo til sunds. Hluturinn
var á um fjögurra metra dýpi. Hann
fann, þegar hann snerti fyrirbærið, að
það var úr einhverju hörðu. Hann fékk
því varla haggað einn síns liðs. Hann
réri því í land og sótti liðsauka.
Verðmætari en gull
Ghurab tókst, í félagi við aðra menn,
að draga styttuna upp úr sjónum.
Hann flutti hana heim til sín. „Kon-
an mín tók fyrir augun og bað mig að
hylja þennan nakta mann, þegar hún
sá hann á stofugólfinu,“ segir Ghurab
og hlær.
Eftir að hafa velt vöngum yfir því
hvort styttan væri verðmæt eða ekki,
afréð Ghurab að leita til frænda síns,
gullsala. Sá taldi að gripurinn væri
úr bronsi og væri líklega verðmætari
en ef hún væri úr gulli. Nú voru góð
ráð dýr. Ghurab datt í hug að smygla
líkneskinu til Egyptalands til að freista
þess að selja það safnara en lagði
ekki í landamæri vöktuð af meðlim-
um Hamas-samtakanna. Fljótt flýgur
fiskisagan og innan fárra daga voru
nágrannar farnir að spyrja Ghurab
um gripinn. Úr varð að Ghurab leitaði
til frænda síns, yfirmanns í herskáum
armi Hamas og bað hann um að sjá til
þess að líkneskinu yrði komið í verð.
„Þeir tveir sem komu og tóku styttuna
fullyrtu að ég fengi væna fúlgu fjár
þegar búið væri að selja. Ég hef ekki
séð eyri enn þá,“ segir hann en hon-
um var sagt að styttan gæti verið 2.500
ára gömul.
Á BBC kemur fram að styttan hafi
um hríð verið tölu sölu á eBay fyrir um
hálfa milljón dollara, litlar fimmtíu og
sjö milljónir króna. Dag einn var hún
horfin af síðunni.
Fékk ekki að sjá styttuna
Ahmed Elburch, yfirmaður hjá ferða-
manna- og fornmunaráðuneytinu,
sem stýrt er af Hamas-liðum á Gaza
segist í samtal við BBC að styttuna
hafi hann síðast séð í október. Þá hafi
hún litið fremur illa út; auga var fallið
úr augnatóft og að hafi verið farið að
falla á hana. Hann segir að hið heims-
þekkta franska safn Louvre hafi ósk-
að eftir að fá styttuna til varðveislu og
verið sé að fara yfir þá beiðni, en stytt-
an er hálft tonn að þyngd. Blaðamað-
ur fékk ekki leyfi til að sjá styttuna,
þegar eftir því var óskað, svo ómögu-
legt er að vita fyrir víst hvað af henni
hefur orðið. Íbúar telja að hún sé enn
í vörslu hersins. Því er ekki víst að
Ghurab, sjómaðurinn eljusami, fái
krónu fyrir fundinn. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Sjómaður Ghurab hélt að hann hefði
fundið lík á sjávarbotni.
150 kíló Líkneskið er í fullri stærð.
2.500 ára gamalt? Styttan hefur látið á sjá.