Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2014, Síða 21
Umræða 21Vikublað 25.–27. febrúar 2014 Spurningin Á að lögleiða kannabis? Ég hef engan áhuga á ástarmálum Sigríðar Hannes Hólmsteinn Gissurarson um orð Sigríðar Daggar. – Eyjan Almenningur á að ráða þessu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um aðild að ESB fyrir ári. – Sprengisandur Það er verið að svíkja þig Mikael Torfason um ályktun um þjóðaratkvæðisgreiðslu. – Mín skoðun Stöð 2 „Því er fljótsvarað; nei.“ Magnús Björn Brynjólfsson 60 ára lögmaður „Mér finnst það ekki.“ Rósa Margrét Húnadóttir 32 ára heimavinnandi „Já, fyrst og fremst í læknisfræðileg- um skilningi.“ Fríða Jónsdóttir 52 ára rekur fyrirtæki „Nei.“ Jakob Ævar Hilmarsson 58 ára lagerstjóri „Mér finnst mjög mörg góð rök mæla fyrir því og fyrst og fremst þá að þessu sé ekki ýtt neðanjarðar og það sé ekki endalaust verið að refsivæða til dæmis það sem kallast burðardýr. Svo hef ég nú heyrt að það sé ekki mikið meira skaðlegt að nota slík efni en að neyta áfengis óhóflega, sem Íslendingum finnst sjálfsagður hlutur, þannig að það eru ýmis rök fyrir því. Svo eru líka þessi forvarnarrök sem mér finnst líka góð, þannig að ég kannski hef ekki alveg myndað mér endanlega skoðun á þessu.“ Katrín Oddsdóttir 40 ára lögfræðingur Þ ingsályktunartillaga ríkis- stjórnarinnar um að slíta aðildarviðræðum er alvar- leg. Ekki er aðeins verið að svíkja ítrekuð loforð beggja stjórnarflokka heldur er líka verið að loka dyrum sem getur leitt að stöðugu og heilbrigðu efnahags- umhverfi sem Ísland þarf svo á að halda. Ríkisstjórnin býður upp á gjaldeyrishöft, verðbólgu og ein- angrun sem er ekki leiðin að betri lífskjörum. Hagsmunamat Áður en Alþingi tekur ákvörðun um hvort slíta eigi aðildarvið- ræðum er lágmarkskrafa að það leggi mat á kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin vill ekki bíða eftir slíkri vinnu. Hún leggur fram til- lögu um að slíta aðildarviðræðum áður en umræðu um skýrslu Hag- fræðistofnunar er lokið. Í skýrslu Hagfræðistofnun- ar er ekki ráðist í heildstætt hags- munamat heldur er hún lýsing á Evrópusambandinu, hver áhrif þess eru og hvernig það hefur verið að þróast. Hagsmunamat á grunni þeirrar skýrslu þarf að fara fram og við gerð þess er eðlilegt að taka einnig mið af skýrslu Alþjóða- málastofnunar HÍ um Evrópusam- bandið sem aðilar vinnumark- aðarins hafa beðið um og verður skilað nú í apríl. Helsti veikleiki skýrslu Hag- fræðistofnunar er þó ekki skortur á hagsmunamati heldur er hann sá að þar er ekki heildstætt mat á áhrifum þess fyrir Íslendinga að taka upp evru í samvinnu við Evrópusambandið. Spurningin hvort við ætlum að taka upp evru eða búa við laskaða krónu skipt- ir sköpum þegar kemur að úr- lausn stærstu spurninga sem nú eru uppi í íslenskum stjórnmál- um. Afnám gjaldeyrishafta, mót- un peningamálastefnu sem hefur áhrif á vaxtakjör almennings og fyrirtækja, uppbygging nýs hús- næðislánakerfis, afnám verð- tryggingar og svo mætti áfram telja verður mun auðveldara með evru en krónu. Hvað má læra af skýrslu Hagfræðistofnunar? Nýútkomin skýrsla Hagfræðistofn- unar HÍ um Evrópusambandið styður við stefnu Samfylkingarinn- ar um að ljúka við aðildarviðræð- ur. Aðeins þannig fá Íslendingar að vita hvaða sérlausnir standa Ís- landi til boða, hvernig hægt yrði að taka upp evru og afnema gjaldeyr- ishöft og hverjar verða niðurstöður samningaviðræðna um sjávarút- vegs- og landbúnaðarmál. Þegar þessi svör liggja fyrir á þjóðin að ákveða hvort Ísland eigi að vera aðili að Evrópusam- bandinu. Það er besta leiðin til að taka ákvörðun í þessu stóra hags- munamáli og aðeins þannig fæst niðurstaða sem sátt verður um. Ríkisstjórnin hefur ekki umboð til að slíta aðildarviðræðum. Ríkis- stjórnarflokkarnir hétu kjósendum því fyrir kosningar og við stjórnar- myndun að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um framhald aðildar- viðræðna. Þeir hafa því ekkert lýð- ræðislegt umboð til að slíta að- ildarviðræðum án þess að þjóðin fái aðkomu að málinu. Þeir hefðu aldrei fengið það fylgi sem þeir fengu síðasta vor ef þeir hefðu sagst ætla að slíta aðildarvið- ræðum. Tveir af hverjum þremur landsmönnum vill ljúka aðildar- viðræðum og þrír af hverjum fjór- um vilja að haldin verði atkvæða- greiðsla um áframhald viðræðna. Nú á að loka dyrunum, án nokkurra efnislegra raka eða af sýnilegri ástæðu. Það verður ekki gert átakalaust. n Svikin loforð og dyrum lokað án ástæðu Árni Páll Árnason þingmaður Kjallari „Nú á að loka dyrunum, án nokkurra efn- islegra raka eða af sýnilegri ástæðu. Það verður ekki gert átakalaust. Myndin Öflug gæsla Katrín Júlíusdóttir, alþingiskona og fyrrverandi iðnaðarráðherra, þurfti að gera grein fyrir ferðum sínum á leið til vinnu í Alþingishúsinu á meðan mót-mæli stóðu yfir á Austurvelli á mánudag. MynD SiGTryGGur ari Könnun Vilt þú þjóðaratkvæða- greiðslu um framhald viðræðna við ESB? n Já n Nei n Ég vil að aðildarviðræður verði kláraðar án þjóðaratkvæðagreiðslu 2515 aTkvæði 56,5% 12,8% 30,6%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.