Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Page 2
Helgarblað 2.–5. maí 20142 Fréttir
50% afsláttur af nammibarnum
alla föstudaga og laugardaga
Ódýrasti
ísinn í
hverfinu!
Söluturn
Ísbúð
Vídeóleiga
Réttarholtsvegi 1 • 108 Reykjavík • Sími 553 5424
Kúlan
KÚLAN KLIKKAR EKKI
„Erum samt sem áður heimilislausar“
Sædís Hrönn og dóttir hennar fengu inni hjá ættingjum
É
g mun ekki þurfa að sofa í bíln
um eða á götunni,“ segir Sædís
Hrönn Samúelsdóttir, einstæð
móðir í Hafnarfirði, sem í rúm
fjögur ár hefur beðið eftir að fá fé
lagsíbúð hjá sveitarfélaginu. DV hef
ur greint frá vandræðum Sædísar og
dóttur hennar við leit á íbúð, en nú er
svo komið að Sædís hefur misst íbúð
sem hún hafði tímabundið til afnota.
Síðastliðinn sunnudag sá hún fram á
að þurfa að gista í bílnum með dóttur
sinni, en hún hefur nú fengið inni í
íbúð hjá ættingja sínum. Sædís hefur
sett allar eigur sínar í geymslu á með
an hún leitar að húsnæði.
Hún hringir reglulega í félags
fulltrúa sveitarfélagsins en fær iðu
lega þau svör að engin íbúð sé laus
fyrir hana og dóttur hennar. DV sagði
frá því í mars síðastliðnum að al
mennt sé talað um tveggja ára bið
eftir félagsíbúð í Hafnarfirði en Sædís
Hrönn hefur beðið í rúm fjögur. Sæ
dís er bæði einstæð móðir og öryrki
og henni hefur verið tjáð að í Hafnar
firði séu einfaldlega ekki nógu margar
íbúðir. Um 250 manns eru á biðlista
eftir íbúðum og bærinn á rúmlega
200 íbúðir sem allar eru í útleigu.
„Ég var búin að fá boð frá alls kon
ar fólki, ókunnugum og allt, en við
munum ekkert þurfa að vera í bílnum
en erum samt sem áður heimilislaus
ar,“ segir Sædís og segir íbúðarleitina
halda áfram. n birgir@dv.is
Páfagaukur
í óskilum
Hjá lögreglunni á höfuðborgar
svæðinu dvelur nú gulur páfa
gaukur sem bíður eftir því að
eigandi hans komi og sæki
hann. Það var síðastliðinn
laugardag sem umhyggjusamur
borgari hafði samband við lög
regluna en hann hafði hand
samað fuglinn í Bjarmalandi í
Reykjavík. „Gaukurinn guli er
nú í höndum lögreglu en við
hefðum endilega viljað koma
honum heim til sín. Ef einhver
kannast við að hafa týnt gulum
páfagauk er sá hinn sami beðinn
um að hafa samband,“ segir lög
reglan.
Fengu inni
Leit Sædísar að íbúð
heldur áfram.
L
andeigendafélag Reykjahlíðar
hyggst hefja gjaldtöku við helstu
ferðamannastaði Mývatns
sveitar; Dettifoss, Leirhnjúk og
við Hveri. Til stendur að rukka
átta hundruð krónur við hvern stað,
en einungis erlendir ferðamenn sem
ferðast ekki með rútu verða rukkað
ir. Innan landeigendafélagsins er ekki
samhugur um áformin. Nokkuð víð
tæk óánægja er meðal aðila ferða
mannaiðnaðar Mývatnssveitar vegna
áformanna sem eru sögð vera óvönd
uð og handahófskennd. Minnir málið
allmikið á umdeilda gjaldtöku Land
eigendafélags Geysis. Í lögbannskröfu
ríkisins ákvað landeigendafélagið að
hætta gjaldtöku eftir aðeins mánuð.
Rukkun landeigendafélagsins fór
fram í óþökk íslenska ríkisins sem á
tuttugu og fimm prósenta hlut í svæð
inu í kringum Geysi. Stefnt er á að
gjaldtaka hefjist 1. júní næstkomandi.
Gæti haft neikvæð áhrif
Á aðalfundi Mývatnsstofu á dögunum
var lýst yfir þungum áhyggjum af
gjaldtöku landeigendafélagsins. Skor
ar Mývatnsstofa á yfirvöld að beita
sér fyrir því að gjaldtöku verði fre
stað. Er talið að það gæti haft neikvæð
áhrif á ferðamannaiðnað sveitarfé
lagsins sem hefur verið burðarás í at
vinnulífi Mývatnssveitar. „Ljóst er að
mikil óánægja er með gjaldtöku sem
þessa og alls ekki einhugur um hana í
sveitarfélaginu.
Lengi hefur legið fyrir að fjármuni
vantar til uppbyggingar og viðhalds
á ferðamannastöðum en sú leið sem
Landeigendafélag Reykjahlíðar ehf.
hefur kosið að fara er ekki til þess fall
in að leysa þann vanda,“ segir í álykt
un Mývatnsstofu vegna málsins.
Þriðjungur ósáttur
Daði Lange, einn hluthafa í Land
eigendafélagi Reykjahlíðar, segir að
tæplega þrjátíu prósent hluthafa séu
ósátt við gjaldtökuna. „Þegar land
eigendur eru ekki allir sammála, og
er það í lögum, þá er óheimilt að fara
í svona stórar aðgerðir í óskiptu landi.
Það komu strax fram landeigendur
sem voru á móti þessu í janúar. Miðað
við hvernig er búið að ganga fram, auk
þessa útspils að rukka bara útlending
ana, er þeim búið að fjölga,“ segir Daði
í samtali við DV. Hann telur að heppi
legra væri ef íslenska ríkið myndi veita
landeigendum styrki fyrir almennu
viðhaldi.
Líkir gjaldtöku við gullæði
Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri á
Hótel Reynihlíð, segir í samtali við DV
að framkvæmd fyrirhugaðrar gjald
töku hafi verið mjög klaufaleg. Að
hans sögn geti núverandi fyrirkomu
lag raskað háþróuðum ferðamanna
iðnaði í Mývatnssveit. Hann líkir
hugsunarhætti margra hvað varðar
ferðamannaiðnaðinn við gullæði.
„Þetta er bara illa hugsað og reifað og
ekki tilbúið til framkvæmda. Það er
mjög mikil óánægja í sveitar félaginu
vegna þessa. Bæði eru hreppsnefnd
og Mývatnsstofa búin að álykta gegn
þessu og allir sem eru spurðir að
þessu eru alls ekki sáttir við þetta,
enda hefur enginn verið með í ráðum.
Það er ekki deilt um að það þarf að fá
fjármuni til að halda þessum stöðum
við. Það er verið að deila um þessa að
ferð, að rjúka til og ætla að seilast ofan
í vasa fólks sem er borga uppistöð
una í neyslusköttum á Íslandi, ferða
mönnum,“ segir Pétur. Hann segir auk
þess að það fyrirkomulag að rukka
aðeins ákveðna hópa ferðamanna sé
hlægilegt. „Eins og þetta lítur út núna
þá vantar bara að það fylgi með að
þeir sem eru með blátt naglalakk fái
líka frítt.“
Sveitarstjóri á hlut í félaginu
Guðrún María Valgeirsdóttir, sveitar
stjóri Skútustaðahrepps, á fjórðungs
hluta í Landeigendafélagi Reykja
hlíðar. „Þú verður að tala við aðra um
hana,“ svaraði Guðrún María spurð um
gjaldtökuna. Hún harðneitaði að tjá
sig um málið, hvorki fyrir hönd land
eigenda né fyrir hönd sveitarfélagsins
sem hún fer þó fyrir og gæti mögulega
misst spón úr aski sínum með gjald
tökunni. Að sögn viðmælenda DV
er Guðrún, ásamt Ólafi H. Jónssyni,
tengdaföður Björgólfs Thors Björgólfs
sonar, helsti talsmaður gjaldtöku. Bæði
sitja þau í stjórn félagsins. n
Víðtæk óánægja
vegna gjaldtöku
Sveitarstjóri berst fyrir að rukkað sé inn á ferðamannastaði í Mývatnssveit„Eins og þetta lítur
út núna þá vantar
bara að það fylgi með að
þeir sem eru með blátt
naglalakk fái líka frítt.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Sveitarstjóri og hluthafi Guðrún María
er sögð vera driffjöðrin í gjaldtökuáformum.
Hún neitaði alfarið að tjá sig um málið.
Dettifoss Verði af áformum Landeigendafélags Reykja-
hlíðar munu erlendir ferðamenn sem ekki ferðast í rútum
þurfa að greiða átta hundruð krónur til að sjá fossinn.
Reyndu
að stela
golfsetti
Íbúi í Breiðholti hafði samband
við lögreglu snemma á mið
vikudagsmorgun vegna tveggja
drengja sem brotist höfðu inn
í bílskúr við heimili hans og
voru á leið brott með golfsettið
hans. Er lögreglu bar að garði
benti nágranni þeim á að íbúinn
hefði farið á eftir drengjunum.
Lögreglumenn komust á spor
ið og hittu íbúann sem sagði að
drengirnir hefðu hent frá sér
golfsettinu er þeir urðu hans var
ir. Mikil leit fór fram að drengj
unum en þeir fundust ekki þrátt
fyrir leit. Íbúinn endurheimti þó
golfsettið.