Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Síða 6
Helgarblað 2.–5. maí 20146 Fréttir Jabohús • Ármúla 36 Rvk • s. 581 4070 • jabohus.is Geymsluhús Gestahús Garðskáli Vönduð sænsk timburhús. Löng og góð reynsla hér á landi. Þjóðkirkjan sver af sér hörku Landeigandi dreginn fyrir dóm vegna æðardúns Þ að er ekki rétt að kirkjan gangi hart fram í þessu máli. Þvert á móti hefur hún farið vægilega í sakir og eingöngu leyft sér að leita úrlausnar dómstóla.“ Þetta segir í athugasemd frá lögfræðingi Biskupsstofu vegna fréttar DV af því að Þjóðkirkjan hefði stefnt Kára H. Jónssyni vegna dúntekjuhlunninda af æðarvarpi á jörð Kára. Kirkjan lítur svo á að um aldir hafi dúntekjuhlunnindi í Gamlahólma í Hagavatni tilheyrt prestinum á Staðarstað. Árið 1952 setti Alþingi lög um að kirkjan og aðrir þeir sem teldu sig eiga ítök í jörðum sem eru í annarra eigu yrðu að lýsa þeim ítökum form- lega. Þau áttu þó ekki að taka gildi fyrr en sýslumaður væri búinn að þinglýsa þeim. Biskup Íslands lýsti skömmu síðar ítaki í Gamlahólma. Kári eignaðist jörðina Haga árið 2007 og fór þá að vinna í því að fá hlunnindi vegna æðarvarps skráð á jörð sína. Svo fór að Þjóðskrá Ís- lands féllst fyrir nokkrum árum á beiðni hans um að skrá fjögur kíló dúntekjuhlunninda á jörðina. Þjóð- kirkjan lítur hins vegar svo á að Kári hafi ákveðið einhliða að hefja afnot hlunnindanna sjálfur, þrátt fyrir að Kári telji sig hafa það staðfest að hann sé í rétti. „Var því um að ræða að viðkom- andi jarðareigandi tók sér meintan rétt sinn sjálfur án atbeina yfirvalda. Málið hefur því ekki verið útkljáð formlega,“ segir í athugasemd lög- manns Biskupsstofu. Nánar er fjall- að um málið á vef DV, DV.is. n mikael@dv.is Atvinnuleysi eða að flytja Starfsmenn Vísis munu flytja í einu blokk Grindavíkur Ö llum starfsmönnum Vísis hf. á Djúpavogi og Húsavík var á dögunum boðið að fara í kynningarferð til Grindavíkur. Þar fengu starfsmenn að sjá nýjan vinnustað sem og íbúðir sem þeim bjóðast séu þeir tilbúnir að flytja suður. Stjórnendur Vísis hyggjast flytja alla starfsemi fyrirtækisins til Grinda- víkur og hafa boðið starfsmönn- um á Djúpavogi og Húsavík að fá þar vinnu. Ástæðan er sögð vera að versnandi kjör á erlendum mörkuð- um fyrir íslenskan fisk. Talið er að um tuttugu og fimm starfsmenn Vísis hf. muni flytja búferlum til Grindavíkur. Ljúft að fá nágranna Einn starfsmanna Vísis staðfestir í samtali við DV að umræddar íbúðir sé í einu blokk Grindavíkur við Stamp- hólsveg 3. Tuttugu og fimm íbúðir eru í blokkinni en síðastliðin ár hefur að- eins ein íbúi búið í blokkinni, Birna Sverrisdóttir. „Það væri ekkert leiðin- legt að fá fullt af fólki. Það væri bara ljúft. Ég hef að mestu verið hér ein. Það yrðu svo sem viðbrigði þar sem ég er búin að búa hérna svo til ein í sex ár. Það verður ljúft að fá umgang og sjá húsið og svæðið í kring klárað, það væri æðislegt,“ segir Birna í sam- tali við DV. Heimamenn setja ekki í eina ferðatösku Starfsmaður Vísis hf. á Húsavík sem DV ræddi við segist meta stöðuna svo að annaðhvort verði hann að flytja til Grindavíkur eða missa vinnuna. „Það er annaðhvort að flytja eða missa vinnuna, við metum það þannig alla- vega. Annaðhvort kemurðu með eða þá að þú segir upp,“ segir starfsmað- urinn. Hann segist ekki hafa gert upp hug sinn. „Það er nú ekkert ákveðið, við tökum bara einn dag í einu. Ég ætla að sjá til. Það er nú ekki alveg svo einfalt að ætlast til að heimamenn setji í eina ferðatösku og fari. Menn eiga hér eignir og fjölskyldur.“ Starfs- maðurinn telur þó líklegra að fleiri flytji en verði eftir á Húsavík. Hann segir að mikil meirihluti starfsmanna sé ættaður frá Pólandi. „Þeir eru svona áttatíu, níutíu prósent starfs- manna. Þeir hafa svo sem ekki mikið val. Það eru helst Íslendingarnir sem verða eftir.“ Starfsmenn ekki sáttir Starfsmaðurinn segir að áætlanir fyrir tækisins hafi verið lítið kynntar fyrir starfsmönnum, fyrir utan fyrrnefnda skoðunarferð til að sjá íbúðirnar í blokkinni og starfsstöð- ina. Hann segir að sumir starfsmenn muni hafa vinnu áfram í sumar. „Við verðum að vísu eitthvað í vinnu hér í sumar, við að pakka þessu saman og flytja suður. Þeir bjóða upp á það. Ég held að þeir ætli ekki að segja neinum upp strax allavega. Menn er þó ekkert sáttir heldur, þetta er ekki gott mál. Menn láta sig kannski hafa það að flytja í staðinn fyrir að hafa ekki neitt,“ segir hann. n Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Annaðhvort kemurðu með eða þá að þú segir upp Blokkin Íbúða- blokkin í Grindavík verður nýtt heimili þeirra starfsmanna sem kjósa að flytja suður. Blokkin hefur verið tóm að mestu síðastliðin ár. Mynd Sigtryggur Ari gott að fá nágranna Birna fagnar því að fólk flytji í blokkina. Reykjarmökkur yfir miðborginni Þykkur reykmökkur lagðist yfir miðborg Reykjavíkur aðfara- nótt fimmtudags þegar eldur kom upp í færanlegum vinnu- skúrum á horni Frakkastígs og Skúlagötu. Slökkvilið var kallað út um miðnættið til að ráða niðurlögum eldsins og náði fljótt tökum á eldinum sem hafði læst sig í tvo samtengda vinnu- skúra. Engin ummerki voru um innbrot í gámana sem bentu til íkveikju. Slökkvilið þurfti að brjóta sér leið inn í vinnu- skúrana og steig þá upp mikill reykur. Skúrarnir eru ónýtir. Kortlagði níðinga Gagnvirkt kort, sem sagt er sýna búsetu dæmdra barnaníðinga á Íslandi eftir hverfum og bæjum, hefur verið sett upp á íslenskri vefsíðu. Kortið byggir á upp- lýsingum sem gerðar voru að- gengilegar á síðunni „Stöndum saman“ í haust. Þar birti hópur fólks upplýsingar um einstak- linga sem sagðir eru vera dæmd- ir barnaníðingar. Þar kom fram heimilisfang og fullt nafn, myndir af meintum níðingum og upp- lýsingar um afbrot þeirra, meðal annars refsidómar. Kortið mun vera einkafram- tak manns sem þó notaði upp- lýsingarnar sem fram komu á vefsíðunni. Hægt er að smella á hverfi á landinu og sjá þar hvar dæmdir barnaníðingar búa, en ekki er hægt að sjá heimilisföng þeirra, aðeins hversu margir eru í hverju hverfi. Í samtali við RÚV gagnrýnir Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði, heimasíð- una og segir að fátt bendi til þess að skráning sem þessi dragi úr afbrotum eða verji börn fyrir slík- um glæpum. deilir við kirkjuna Kári H. Jónsson hefur staðið í deilum við Þjóðkirkjuna um dúnhlunnindin síðan hann eignaðist jörðina árið 2007. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.