Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Qupperneq 31
Helgarblað 2.–5. maí 2014 Umræða Stjórnmál 31
Vill ókeypis leikskóla
Sóley vill afnema gjaldskrár leik- og grunnskóla, og frístundaheimili – Vill flugvöllinn burt
Jón Hjörtur Brjánsson Hvaða
hugmyndir hefur þú um
þjónustu við útigangsfólk í
Reykjavík?
Sóley Tómasdóttir
Komið þið sæl – og sér í lagi þú Jón
Hjörtur með fyrstu spurningu. Það
er margt sem þarf að gera fyrir
utangarðsfólk í Reykjavík. Borgin á að
reka gistiskýli með nægum gistirýmum
fyrir alla og fjölga þarf virkni- og með-
ferðarúrræðum. Sér í lagi þarf að huga
að tvígreindum konum og við erum
spennt fyrir skaðaminnkandi nálgun
þar sem það á við.
Bergmann Guðmundsson
Nú hafa grunnskólakennarar
verið samningslausir í tvö ár.
Laun þessarar stéttar eru ykkur
sveitarstjórnarmönnum til háborinnar
skammar og lítill vilji virðist vera til að
bæta úr því. Hvernig hefur þú beitt þér í
þínu starfi sem borgarfulltrúi stærsta
sveitarfélagsins til þess að laga þessi
mál?
Sóley Tómasdóttir Við Vinstri
græn höfum staðið með kennurum
allt kjörtímabilið – með áþreifan-
legustum hætti þegar samein-
ingarnar stóðu yfir og vilji og
þekking kennara var hunsuð. Við
stóðum líka gegn kjaraskerðingu
leikskólakennara varðandi
neysluhléið og höfum talað fyrir
því í umræðum um kjaramál að
undanförnu að kjör grunnskóla-
kennara verði leiðrétt – enda mikil
þörf á því.
Sigurður Eggertsson Hvað
finnst þér um fyrirhugaðar
breytingar á einu rótgrónasta
hverfi bæjarins (107) (Melar og Hagar
og nágrenni)? Er kosnum fulltrúum
alveg sama um hvað íbúum hverfisins
finnst? Almennt vill fólk ekki þéttingu
byggðar.
Sóley Tómasdóttir Hæ Siggi :)
Ef þú ert að vísa í hugmyndir úr
lýsingu fyrir hverfisskipulagið, þá
eru þær mjög hráar og alveg ljóst
að þær eiga eftir að taka miklum
breytingum. Ég kannast ekki við að
fólk vilji ekki þéttingu – skynsam-
leg þétting (ekki turnavæðing)
er nauðsynleg ef við ætlum að
tryggja góða nærþjónustu, al-
menningssamgöngur og almennt
umhverfisvænni lifnaðarhætti í
borginni.
Magnús Guðmundsson
Sæl Sóley. Hvaða sýn hefur
þú og þinn flokkur á starfsemi
félagsmiðstöðva fyrir unglinga? Fyrir
nokkrum árum var ákveðið að bjóða
upp á heilsársstarfsemi á frístunda-
heimilum borgarinnar en félags-
miðstöðvarnar loka flestar í byrjun
júlí. Er ekki mikilvægt að unglingar
borgarinnar hafi einhvers konar sama-
stað undir handleiðslu fagfólks þegar
skólarnir eru í sumarfríi? Einnig langar
mig að spyrja þig hvaða sýn þið hafið á
skipulagða tómstundastarfsemi fyrir
16–18 ára unglinga?
Sóley Tómasdóttir Hæ Magnús.
Nú gæti ég skrifað heila ritgerð.
Við teljum brýnt að fara í allsherjar
stefnumótun varðandi frístunda-
starf í borginni með sérstakri
áherslu á 10–12 ára og 16–18 ára
sem hefur ekki verið sinnt sem
skyldi. Við værum líka alveg til í að
skoða það að frístundamiðstöðv-
arnar tækju að sér alla frístunda-
þjónustu borgarinnar, líka fyrir
fjölskyldur og eldra fólk enda sér-
stakt hvernig þessum málaflokki
er dreift á sviðin. Sumarfrístund
og sumarfélagsmiðstöðvar þarf
að efla og þróa – með hliðsjón af
frekari þróun Vinnuskólans líka.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Hæ Sóley. Af hverju hættir þú
við að hætta í pólitík?
Sóley Tómasdóttir Hæ – góð
spurning. Mér fannst þegar að
því kom að það hefði verið synd
að hætta eftir bara fjögur ár, var
komin með reynslu og þekkingu
sem mér fannst ég geta nýtt í þágu
borgarinnar. Ætli ég hafi ekki bara
verið of fljót á mér að segjast ætla
að hætta …
Iðunn Garðarsdóttir Er
raunhæft að bjóða upp á
gjaldfrjálsa leikskóla og
skólamat?
Sóley Tómasdóttir Sæl Iðunn. Já
– það er ekki bara raunhæft, heldur
nauðsynlegt. Með því tryggjum
við öllum börnum aðgang að sjálf-
sagðri grunnþjónustu án tillits til
efnahags foreldra – og aukum ráð-
stöfunartekjur barnafjölskyldna
sem taka á sig allt of þungar byrðar
í samfélaginu í dag. Að gera þetta
í skrefum á kjörtímabilinu kallar
á breytingar á 0,9% af tekjum
borgarinnar milli ára. Ársreikningur
borgarinnar fyrir árið 2013, sem var
kynntur í gær, sýnir svart á hvítu að
Reykjavík er rík borg. Við þurfum
bara að forgangsraða fjármunun-
um með sanngjarnari hætti og við
Vinstri græn höfum kjark og dug til
þess.
Ólafur Arnason Er
mikilvægara í þínum huga að
hugsa um þá sem eru minni
máttar (t.d. öryrkjar og fólk sem á við
ákveðin vandamál að stríða) eða að
halda frjálsum markaði þar sem hver er
sinnar gæfu smiður, og metnaður
einstaklingsins kemur honum áfram í
lífinu?
Sóley Tómasdóttir Sæll Ólafur.
Einfalt svar – já. Ég vil að við búum
í velferðarsamfélagi þar sem við
stöndum saman og tryggjum að
allir geti lifað með reisn og fengið
þjónustu í samræmi við þarfir,
hvort sem það er leikskóli fyrir börn
eða stuðningur fyrir fatlað fólk.
Borgin er ekki fyrirtæki á markaði,
hún er samfélag fólks.
Páll Kristinsson Finnst þér
eðlilegt að aðeins einn
karlmaður er í 5 efstu sætum
hjá ykkur, hefði ekki verið betra að sýna
fordæmi og vera með fléttilista?
Sóley Tómasdóttir Sæll Páll. Nei,
Vinstri græn eru kvenfrelsisflokkur
og eitt af okkar stefnumálum lýtur
að því að tryggja konum aðgang
að stjórnmálum. Það hefur aldrei
þurft á sértækum aðgerðum að
halda til að tryggja körlum þann
rétt, þeir hafa jú verið meirihluti
stjórnmálamanna frá því Ísland
byggðist.
Hlédís Þórdísar-Guðmunds-
dóttir Hvað finnst þér að
borgin geti gert í loftslags- og
umhverfismálum?
Sóley Tómasdóttir Sæl vertu.
Reykjavík verður að gera sér
viðbragðs- og aðgerðaráætlun
vegna loftslagsbreytinga af
mannavöldum. Hún þarf að taka
á öllum sviðum samfélagsins, en
einföldu svörin eru að taka upp
vistvænni samgönguhætti, bæta
almenningssamgöngukerfið og
gera hjólreiðar að raunverulegu
vali. Þetta gerum við meðal annars
með breyttu borgarskipulagi,
þéttari byggð og bættri nærþjón-
ustu þannig að fólk þurfi síður að
ferðast á einkabíl. Ég gæti haldið
áfram í allan dag – og talað um
neyslu og sóun, sorpflokkun og
verndun vistkerfa en læt staðar
numið hér. Aðgerðaráætlun er
málið!
Bergur Benjamínsson Hvaða
afstöðu hefur framboð VG til
veru Reykjavíkurflugvallar í
núverandi mynd?
Sóley Tómasdóttir Ég hef fulla
trú á því að samkomulagið sem
gert hefur verið milli ríkis og borgar
haldi – og að nefnd Rögnu Árna-
dóttur komist að niðurstöðu sem
við getum öll unað sátt við. Það
skiptir máli að flugvöllurinn fari úr
Vatnsmýrinni, þar sem við verðum
að skipuleggja hér þéttari borg
með bættum samgönguháttum
– og það er sannarlega liður í að
axla ábyrgð á loftslagsvandanum
eins og ég talaði um hér að framan.
Flugvallarmálið snýst ekki bara um
borgina og ekki heldur bara lands-
byggðina, heldur heiminn allan þar
sem umhverfismál eru hnattrænt
viðfangsefni.
Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir Hæ. Er eðlilegt
að skólamáltíðir og
leikskólapláss verði gjaldfrjáls fyrir
hátekjufólk og þar með greidd m.a.
með útsvari tekjulægstu borgar-
búanna? Svo vil ég líka vita hversu
uggandi þú ert yfir stöðu ljóðsins?
Sóley Tómasdóttir Ljóðið
Hildur – ljóðið. Ég er mjög uggandi.
Já, mér finnst jafn sjálfsagt að
skólamáltíðir og leikskólapláss
séu gjaldfrjáls fyrir hátekjufólk
og heilbrigðisþjónusta. Þetta er
grunnþjónusta sem við eigum að
greiða fyrir með útsvarinu okkar –
og hátekjufólk á að greiða meira í
sameiginlega sjóði en lágtekju-
fólk. Þar liggur tekjupólitík okkar
Vinstri grænna – en ekki í flötum
jaðarsköttum sem hafa meiri áhrif
á tekjulága en tekjuháa.
Þóra Magnúsdóttir Hæ
Sóley. Finnst þér að það eigi
að draga til baka sameiningar
leikskóla og grunnskóla sem núverandi
meirihluti í borginni stóð fyrir á
kjörtímabilinu?
Sóley Tómasdóttir Blessuð Þóra.
Sameiningarnar á kjörtímabilinu
voru mistök – sem snerust fyrst og
fremst um það að stjórnmálafólk
tók ákvarðanir þvert á vilja og
ráðleggingar fagfólks. Það væri
jafn rangt af mér sem stjórnmála-
konu að segjast ætla að draga
þetta til baka – mikilvægast er að
við vinnum aftur það traust sem
brást – og vinnum að frekari þróun
skólastarfs í samráði við kennara
og starfsfólk. Eðlilegast er að fara
yfir stöðuna í hverjum skóla fyrir
sig og meta hvað sé best að gera
í rólegheitum og með þeim sem
best til þekkja.
Kristinn Traustason Sæl
Sóley. Hverjar eru áherslur
ykkar í málefnum Úlfarsárdals?
Telur þú rétt að borgin endurgreiði því
fólki sem þar keypti dýrustu lóðir
Íslandssögunar til að byggja undir sínar
fjölskyldur það sem greitt var umfram
gatnagerðargjöld? Þar sem þið
samþykktuð nýja aðalskipulagið, sem
verður til þess að þetta nýja og vonandi
glæsilega hverfi verður ekki sjálfbært
um þjónustu. Eins og lýst var í
útboðsgögnum fyrir hverfið.
Sóley Tómasdóttir Ég er viss
um að Úlfarsárdalurinn verður
frábært og glæsilegt hverfi þegar
uppbyggingu lýkur og hef trú á því
að þar byggist upp nærþjónusta
og almenningssamgöngur batni
þegar við höfum tengt saman
Úlfarsárdalinn og Grafarholtið
með skýru hverfisskipulagi. Og
þá efast ég um að fólk hafi áhuga
á að losa sig við lóðirnar, heldur
byggi og búi þarna sælt og sátt.
Auðvitað breyttust forsendur eftir
að uppbygging hverfisins hófst,
bæði með hruninu og breyttum
áherslum í skipulagi borgarinnar.
Því fyrra verður ekki breytt og það
síðarnefnda tel ég vera til bóta
fyrir okkur öll.
Þorsteinn H Gunnarsson
Góðan dag. Ég heiti Þorsteinn
Hallgrímur. Spurningin
er hvenær verður farið í vorverk í
Laugarnesinu, nánar tiltekið í kringum
Laugarnestanga 65. Þar hafa verið
reist mannvirki úr steypu í Laugarnes-
fjörunni sem hvorki eru á deiliskipulagi
eða byggingarleyfi fyrir. Krafan er
að þau verði fjarlægð eins og raunar
embætti byggingarfulltrúa áformaði á
sínum tíma. Hvað tafði þá tiltekt?
Sóley Tómasdóttir Sæll vertu.
Ég hreinlega veit ekki hver staðan
er á málinu í augnablikinu. En mér
finnst mjög mikilvægt að ekki sé
farið út fyrir ramma byggingar-
leyfis eða skipulags, við verðum að
tryggja að allir borgarbúar sitji við
sama borð.
Magnús Guðmundsson Hvað
vilja Vinstri græn gera í
sambandi við hræðilega ásýnd
í og við Fellagarða í Breiðholti? Húsin
eru í slæmu ástandi, drasl er víða og
þetta er mikið lýti á hverfinu. Hvernig
viljið þið mæta þörfum Breiðhyltinga?
Sóley Tómasdóttir Veistu
Magnús, helst myndi ég vilja að
borgin keypti upp húsin og byggði
þarna upp með sómasamlegum
hætti. En það er víst flóknara gert
en sagt. Algerlega sammála þér
um að þetta er óásættanlegt
ástand – við verðum að aðhafast
eitthvað. Hvað Breiðholtið varðar,
þá eru stefnumál okkar fyrir þá
eins og aðra borgarbúa – en sér-
stakar áherslur í hverfisskipulagi
ættu að geta komið til móts við
staðbundnar þarfir um þjónustu og
uppbyggingu.
Morten Lange Sæl Sóley. VG
eru mjög góðir varðhundar
gagnvart ýmsu bruðli,
mannréttindabrotum, umhverfisspjöll-
um og spillingu. En, hér kemur erfið og
nærgöngul spurning, vona að þú
fyrirgefir. Sú saga gengur að ykkur fylgi
einnig forræðishyggja, meira að segja á
sviðum sem grípa inn í einkalíf fólks, og
hafa ekkert með græn eða rauð mál að
gera, né kvenfrelsi. Vantar stundum
auðmýkt í ykkur hvað varðar að þið
vitið ekki alltaf hvað er fólki fyrir bestu.
Sinnið þið samráðinu nógu vel og
virkilega hlustið?
Sóley Tómasdóttir Sæll. Við get-
um sjálfsagt bætt okkur varðandi
samráð og virka hlustun. En ég
held þó að sú túlkun að stefnumál
okkar byggi á forræðishyggju
sé skilgreining hægri manna og
pólitískra andstæðinga frekar
en þeirra sem eru til í að velta
málunum fyrir sér, ræða við okkur
eða segja okkur hvað mætti betur
fara. Það eru t.d. margir sem vilja
meina að fjölgun hjólreiðastíga sé
aðför að einkabílnum – og snúist
um að við viljum bara að ALLIR
hjóli ALLTAF. En það er auðvitað
ekki raunin, heldur erum við fyrst
og fremst að stuðla að frelsi fólks
til að velja sér samgöngumáta.
Kristinn Traustason Nú
fjölgar barnafjölskyldum í
nágrannasveitarfélögum
Reykjavíkur mun meira en í Reykjavík.
Getur ástæða þess verið hvernig borgin
hefur staðið að uppbyggingu
íbúðahverfa síðastliðna ártugi? Þar
sem þjónustan byggist upp áratugum
eftir að hverfin byggjast.
Sóley Tómasdóttir Sæll vertu.
Það eru án efa margar ástæður
fyrir þessu. Uppbyggingin held ég
þó að sé tiltölulega lítill hluti. Við
verðum að gera betur fyrir börn,
við verðum að standa miklu betur
við bakið á skólunum okkar, bæði
leik- og grunnskólum – og ég efast
ekki um að gjaldfrjálsir leikskólar,
skólamáltíðir og frístundaheimili
komi til með að laða hingað barna-
fólk í ríkari mæli.
Ingvar Örn Gíslason Komið
hefur fram að þú sért á móti
flugvelli í Vatnsmýri þrátt fyrir
að þú sért skynsöm manneskja. Allar
skýrslur sýna fram á ómöguleika þess
að hafa flugvöll annars staðar og þá
hefur Hólmsheiði verið skoðuð mikið
en verið dæmd sem ómögulegur staður
(eitthvað sem flugmenn og
veðurfræðingar vissu áður) en samt er
þráast við að þrengja að vellinum og
eyðileggja hann. Hvers vegna eru allar
skýrslur og álit allra sem hafa vit á flugi
hundsað? Styður þú eyðileggingu
Reykjavíkurflugvallar 2015 þar sem öllu
kennslu- og einkaflugi á að vera úthýst
með valdi. Þar sem viðhaldsstöð og
geymsluhúsnæði flugfélagsins Ernis
sem sinnir innanlandsflugi skal lokað
með valdi. Hvers vegna lítið þið niður á
flugnema og teljið þá annars flokks? Ég
gæti reyndar smellt á þig svona 100
spurningum í von um að þið áttið ykkur
þarna í ykkar háa turni í borgarstjórn en
læt þetta duga í bili.
Sóley Tómasdóttir Ég ítreka svar
mitt hér að ofan Ingvar Örn. Ég er
sannfærð um að Rögnunefndin
mun finna lausn á málinu sem allir
geta fellt sig við.
Fundarstjóri Hvert er stærsta
kosningamálið að þínu viti?
Hvað mun framboðið sem þú
leiðir setja á oddinn ef þið komist til
valda eftir kosningar?
Sóley Tómasdóttir
Stærsta viðfangsefni stjórnmálanna
um þessar mundir er að sporna gegn
fátækt og sívaxandi mismunun. Okkar
fyrsta mál verður að setja í gang áætl-
un um afnám gjaldskráa fyrir leikskóla,
grunnskóla og frístundaheimili. Sam-
hliða því verðum við að sporna gegn
loftslagsbreytingum af mannavöldum.
Sem er í sjálfu sér líka spurning um
aukinn jöfnuð – á hnattrænum kvarða.
Kári Emil Helgason Nú hafa
orðið miklar breytingar á
starfsemi mannréttindaskrif-
stofu, velferðarsviðs og sviðinu sem sér
um menntamálin sem er nú á
sautjánda nafni og ég man ekki hvað
heitir lengur. Er VG fylgjandi núverandi
verkaskiptingu eða mundi flokkurinn
beita sér fyrir frekari tilfærslum á
verksviðum? Þá detta mér helst í hug
málefni fatlaðra og eldri borgara.
Sóley Tómasdóttir
Mannréttindaskrifstofan var stofnuð
fyrir tilstuðlan Vinstri grænna í tíð
hundraðdagameirihlutans sem var og
hét. Henni var ætlað að vaxa hraðar
og hafa meiri áhrif en hún gerir í dag
og við munum beita okkur fyrir því. Við
verðum að hætta að blanda saman
mannréttindum og velferð, það er
allt of flókið. Stjórnkerfisbreytingar
eru okkur svo sem ekkert hjartans
mál – aðalmálið er að borgin sinni því
sem hún á að sinna – og við getum
gert betur í mannréttindamálum. Það
munum við leggja áherslu á.
Lilja Sigurðardóttir Sæl
Sóley. Er eitthvað á
stefnuskránni hjá ykkur að
beita ykkur fyrir bættum úrræðum fyrir
börn og ungmenni með áhættuhegð-
un, s.s. misnotkun vímuefna, afbrot og
tengdar athafnir? Nú eru t.d. mörg
þessi börn með tvíþættan og jafnvel
margþættan vanda, en þau virðast fá
ansi takmarkaða geðþjónustu þegar
þau eru komin með fíkniefnavanda
líka.
Sóley Tómasdóttir Fyrst og
fremst þurfum við að leggja
áherslu á forvarnir – en að sjálf-
sögðu eigum við að veita einstak-
lingsmiðaða þjónustu fyrri börn
og ungmenni í vanda. Það þarf
að fjölga úrræðum og grípa fyrr
inn í með aðstoð. Sumt af þessu
verðum við að leysa í samráði við
ríkið – en við getum bætt okkur hér
í borginni líka.
Ingvar Örn Gíslason Þetta er
frekar snubbótt svar finnst
mér. Þú segir í svarinu að ofan
að Rögnunefndin skili niðurstöðu sem
allir geti unað við en þú talar jafnframt
um að völlurinn VERÐI að fara úr
V-mýri. Þetta er þversögn og gefur til
kynna að þú ætlir þér ekki að hlíta
niðurstöðu nefndarinnar ef nefndin
kemst að þeirri niðurstöðu að völlurinn
geti hvergi annars staðar verið. Er það
rétt metið hjá mér?
Sóley Tómasdóttir Ef nefndin
kemst að þeirri niðurstöðu að
flugvöllurinn þurfi að vera áfram
í Vatnsmýrinni þá mun ég fara
yfir það og mögulega endurskoða
afstöðu mína. Fram að því trúi ég
því að betri lausn sér til.
Pétur Jónsson Þannig að þín
skoðun er sú að þú ert fyrst og
fremst að verja hagsmuni VG,
en ekki borgarbúa? Komi sú staða upp
þá munt þú ganga gegn vilja borgarbúa
til að framfylgja stefnu og vilja VG?
Sóley Tómasdóttir
Sæll Pétur. Þetta var of stutt svar.
Ég myndi til dæmis ekki virða vilja
borgarbúa, stæði hann til þess að
neita innflytjendum um leikskólapláss.
En eins og ég hef ítrekað sagt, þá tel
ég brýnt að efla samráð og samtal
við borgarbúa – helst í sem flestum
málum – en niðurstaðan verður alltaf
einhvers konar málamiðlun trúi ég.
Nafn: Sóley Tómasdóttir
Aldur: 39 ára
Starf: Borgarfulltrúi og
oddviti VG í Reykjavík
Menntun: BA-gráða í uppeldis-
og menntunarfræðum