Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Síða 38
Helgarblað 2.–5. maí 201438 Neytendur Lélegar afsakanir Á vef Arion banka er að finna ýmsan fróðleik um fjármál. Þar á meðal eru ýmis ráð til að byrja að spara en enn fremur eftirfarandi listi af lélegum afsökunum fyrir að spara ekki: 1. Ég er of ung/ur. Ég þarf að njóta lífsins 2. Ég er of gömul/gamall. Það er of seint fyrir mig 3. Peningar hræða mig. Það er of flókið að leggja fyrir 4. Þetta er allt fjármálakerfinu að kenna 5. Vextir eru bara allt of lágir. Ég ætti frekar að slá lán 6. Ég hef bara ekki tíma til að velta sparnaði fyrir mér 7. Ég þarf að sjá fyrir heimili 8. Ég hef ekki efni á því, ég er á kúpunni 9. Ég er svo rík/ur. Ég get hætt að eyða þegar ég vil 10. Það eru engir góðir kostir þegar kemur að sparnaði 11. Ég ætla frekar að vinna í lottóinu 12. Ég ætla alltaf að vinna 13. Ég þarf fyrst að borga af Róvernum mínum 14. Þetta er allt sama tóbakið og ég legg ekki krónu í þetta 15. Það er konunni minni / manninum mínum / hundinum mínum að kenna 16. Rukkararnir munu aldrei ná mér 17. Ég fæ svo stóran arf 18. Ég flyt til suðrænna landa. Þar er allt svo ódýrt 19. Ég geri mig bara gjaldþrota þegar ég næ botninum 20. Hundurinn át umsóknina mína um séreignasparnað 21. Ég dey líklega áður en ég kemst á ellilífeyri, hvort sem er 22. Þetta er allt vinnuveitanda mínum að kenna 23. Mér finnst allt of gaman að eyða 24. Var ég búin/n að minnast á að ég er enn þá ung/ur 25. Skattar á fjármagnstekjur eru allt of háir. Þetta er ríkisstjórninni að kenna Ókeypis ÓkeiPiss Myndasögudagurinn á laugardag L augardaginn 3. maí tekur versl- unin Nexus, ásamt þúsundum myndasagnaverslana um allan heim þátt í að kynna mynda- söguformið með þátttöku í ókeypis myndasögudeginum eða „free comic book day“ sem haldinn er hátíðlegur ár hvert. Þann dag gefur verslunin sérútgefin myndasögublöð frá ýmsum útgefendum. Þetta er þrettánda árið sem haldið er upp á daginn en í tilefni af hon- um gefa Nexus og Ókei-bækur blaðið ÓkeiPiss fjórða árið í röð. „Það hefur alltaf verið þannig að fólk getur sent inn myndasögur og við reynum að fylla blaðið af þeim bestu,“ segir Hugleikur Dagsson hjá Ókei-bókum um útgáfu ÓkeiPiss. „Það er alltaf erfitt því að ár hvert eykst góða stöffið,“ segir hann og bætir við að þó ÓkeiPiss sé ekki eina myndasögublaðið sem gefið er út á íslensku sé það það eina sem gef- ið er út reglulega: „það kemur alltaf blað í maí.“ Blaðið er um 30 síður og nefnir Hugleikur sérstaklega nýja mynda- sögu með hipsteraspæjurunum eftir Jónas Reyni Gunnarsson og Frið- geir Jóhannes Kristjánsson, en fyrsta sagan um hipsteraspæjarana birtist í ÓkeiPiss tvö. Þá eiga Halldór Baldurs- son og Þorsteinn Guðmundsson sögu í blaðinu auk margra annarra. Hugleikur segir að margt fleira verði á boðstólum í Nexus en ÓkeiPiss. „Það er aðallega verið að gefa bandarískar myndasögur en síðast nældi ég mér í Línu langsokk- myndasögu eftir Astrid Lindgren og ég held að ég hafi nýlega rekist á myndasögu um Múmínálfana,“ seg- ir hann. Dagurinn var upphaflega hugs- aður sem leið til að vekja athygli á myndasögum og fjölbreytileika þeirra en eftir því sem mynda- sögur hafa hlotið meiri al- mannahylli hefur umfangið aukist. Lítil fyrirtæki líta á daginn sem tækifæri til að auglýsa sig og lesendur grípa tækifærið til að ná sér í nýtt efni með öðrum áherslum. „Viðburðurinn byrjar klukkan 12.00, laugardaginn 3. maí, í Nóa- túni 17 og blöðin verða gefin á með- an birgðir endast. Það ætti enginn að fara tómhentur heim en reynslan sýnir þó að það er gott að mæta tímanlega. Það mynd- ast að öllu jöfnu ógnarlöng röð og mikil stemming ríkir yfir daginn,“ segir í tilkynningu frá Nexus en bún- ingaáhugafólk er hvatt til að koma í búningum. n fifa@dv.is Ókeypis Búast má við því að margt verði um manninn í verslun Nexus. Samnýta verkfæri og hjálpast að Vefurinn StreetBank eykur samskipti nágranna og stuðlar að betri nýtingu tækja F ólk munar ekkert um það sem það er aflögufært um en fyrir þann sem vantar hlut- inn er þetta himnasending. Það er búið að setja peninga í að kaupa tækin þannig að það þarf bara að láta þau ganga og gjörnýta þannig peningana sem liggja í tækj- unum,“ segir Bragi Halldórsson um nágrannasamfélagið StreetBank. com sem DV sagði frá nýlega og far- ið er að skjóta rótum á Íslandi. StreetBank er alþjóðlegur sam- félagsvefur fyrir fólk sem vill gefa, aðstoða og lána hluti, sem og þiggja slíkt hið sama, án þess að þiggja nokkra greiðslu fyrir og eru því engir peningar notaðir. Bragi segir mikið um að fólk samnýti garðáhöld og verkfæri eins og sláttuvélar, garðslöngur og ann- að slíkt. „Í einni götu eiga kannski allir sláttuvél og nota hana þrisvar til fjórum sinnum á ári. Það er al- gjör sóun á tæki sem kostar kannski 120.000 kr,“ segir hann. Greiðasamlagið Bragi heldur úti vefnum greida- samlagid.org sem er upplýsingavef- ur fyrir íslenska hluta StreetBank. Hann segir svona vefi þurfa að ná ákveðinni stærð til að geta farið að rúlla af sjálfu sér. Þegar þetta er skrifað eru notendur um 90 en Bragi segir að vefurinn sé nú þegar farinn að sjá um sig sjálfur að nokkru leyti. Áður var Bragi hluti af netsam- félagi sem kallaðist Freeconomy og haldið var úti af Mark Boyle sem er þekktur fyrir tilraunir sínar til að lifa án þess að nota peninga í meira en tvö ár. Þegar StreetBank var stofnað í Bretlandi ákvað Boyle að sameina Freeconomy þeim vef og þannig kynntist Bragi samfélaginu. Nágrannar Vefurinn er settur þannig upp að fólk gefur upp hvar það býr og aðrir notendur eru gefnir upp miðað við fjarlægð frá heimilinu. Það er vegna þess að hluti hugmyndarinnar er að tengja nágranna, en 10 mílna radíus, sem er hæsta stilling á vefn- um, fer þó langt með að tengja allt höfuðborgarsvæðið. Gluggaþvottur Á síðunni er boðið upp á lán á sláttu- vél og sláttuorfi, borvél og járnkarli en rúm, moltutunna og baðkar eru meðal þess sem boðið er gef- ins auk fjölda afleggjara og plantna. Auk þess að lána eða gefa hver öðr- um hluti geta notendur StreetBank boðið aðstoð sína við ýmislegt. Þannig er nú þegar einn notandi sem býðst til að líta á reiðhjól og „tjúna þau upp“ og eins „ýmislegt tengt smíðum og viðhaldi“ auk þess sem boðið er upp á „ráðleggingar og kennslu í notkun rúna, sérstak- lega fyrir handverksfólk“. Bragi segir notendur strax farna að hjálpast að. „Til dæmis var ein að leita eftir stiga svo hún gæti þveg- ið glugga á annarri hæð. Engin stigi fannst, en þá mundi ég eftir því að ég átti einhvers staðar fram- lengingu á bílaþvottakústi og óskaði eftir einum slíkum til láns ef ein- hver ætti. Jú, kústurinn fannst og passaði akkúrat á framlenginguna, sem er með tengi fyrir garðslöngu, svo núna er hægt að þvo gluggana þótt stiginn hafi ekki fundist. Ég ákvað að nota tækifærið í leiðinni og þvo gluggana hérna hjá okkur, fyrst maður var komin með þessa fínu græju. Svona er hægt að leysa flest öll verkefni án tilkostnaðar ef allir leggjast á eitt. Og því fleiri sem eru með, því auðveldara að finna það sem mann vantar eða aðstoða aðra.“ Gefandi að hjálpast að „Þegar fólk skiptist á hlutum, augliti til auglitis þá er það rosalega gef- andi og fólki líður betur,“ segir Bragi og bætir við að þeir sem séu dug- legir að nýta sér þetta komist auk þess af með minni tekjur. „Fólk er í þessu af mjög mismunandi ástæð- um. Sumir eru í þessu af hugsjón, sumir af því að þeir vilja endurnýta sem mest, sumir af því að þeir eru blankir.“ n Auður Alfífa Ketilsdóttir fifa@dv.is Sláttuorf Sláttuorf kosta frá 19.995 kr. en er líka hægt að fá lánuð endurgjaldslaust á StreetBank. Borgar sig að fá lánað Einn notandi býður til láns rafmagnssláttu- vél. Með því að fá hana lánaða frekar en að kaupa má spara 28.995 kr. Bragi Bragi Halldórsson er áhugamaður um gjafahagkerfi. MyNd SiGtryGGur Ari„ Í einni götu eiga kannski allir sláttu- vél og nota hana þrisvar til fjórum sinnum á ári. Heimsókn í efnalaugar Fulltrúi Neytendastofu heimsótti í mars síðastliðnum efnalaugar höfuðborgarsvæðisins í þeim til- gangi að athuga hvort verðskrár yfir alla þjónustu væru í samræmi við lög og reglur. Á vef Neyt- endastofu kemur fram að þess- um heimsóknum hafi verið fylgt eftir í apríl. Farið var í Þvottahús- ið Faghreinsun, Fatahreinsun Kópavogs og Efnalaugina Geysi. Öll höfðu þessi fyrirtæki fengið tilmæli frá Neytendastofu um að koma verðmerkingum í betra horf. Þvottahúsið Faghreinsun var eina efnalaugin sem enn hafði enga verðskrá til sýnis. Á vef Neytendastofu kemur fram að stofnunin muni í framhaldinu taka ákvörðun um hvort beita skuli Þvottahúsið Faghreinsun sektarákvæðum fyrir að virða að vettugi tilmæli og ábendingar Neytendastofu um bragarbót á ástandi verðmerkinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.