Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Qupperneq 43
Helgarblað 2.–5. maí 2014 Lífsstíll 43
Draumur Evu rættist
Stýrir sjónvarpsþættinum Höfðingjar heim að sækja
Þ
að eru mikil forréttindi
að vinna við það sem
manni þykir skemmti-
legast,“ segir sjónvarps-
konan Eva Laufey Kvaran
Hermannsdóttir sem stýrir mat-
reiðsluþættinum Höfðingjar heim
að sækja en fyrsti þáttur fór í loftið
á Stöð 2 í vikunni.
Eva Laufey stýrði áður Í eldhús-
inu hennar Evu sem sýndur var
á Stöð 3 í fyrra. Hún viðurkenn-
ir að það hafi lengi verið draumur
að stjórna eigin matreiðsluþætti
enda hafi mataráhuginn kviknað
snemma. „Ég ólst upp á þannig
heimili þar sem matur og matar-
gerð var í hávegum höfð. Ég komst
ekki hjá því að smitast af áhugan-
um,“ segir hún og bætir aðspurð
við að hún hafi mest gaman af
því að baka. „Bakstur er meiri ná-
kvæmnisvinna og það veitir mér
hugarró. Svo eru kökur bara svo
góðar að ég er meira í sætindunum.
Flest sem ég kann hef ég lært af
mömmu og ömmu. Ég held mik-
ið upp á venjulegan mömmumat
og nota smjör og rjóma enda er
allt gott í hófi. Svo reyni ég líka að
breyta og nútímavæða gömlu upp-
skriftirnar,“ segir hún og bætir við
að þeim gömlu lítist bara vel á til-
raunirnar. „Þær hafa allavega ekki
kvartað hingað til.“
Eva Laufey er ófrísk að sínu
fyrsta barni og á að eiga eftir tvo
mánuði. Hún segir heilsuna góða
og að það sé lítið mál að standa í
tökum svo langt komin á leið. „Við
erum enn að taka þáttinn upp –
gerum þetta bara jafnóðum. Ég
heimsæki þjóðþekkta Íslendinga
og elda með þeim svo þetta er
hvort tveggja spjall- og matar-
þáttur í senn.
Í fyrsta þættinum fór ég til
Svavars Arnar og Daníels eigin-
manns hans en í næsta þætti heim-
sæki ég Hrefnu Sætran. Hrefna er
algjör ofurkona sem hefur afrekað
ótrúlega mikið. Svo er alltaf gam-
an að sjá hvað svona stjörnukokk-
ar elda heima hjá sér.“
Eva Laufey er í viðskiptafræði í
Háskóla Íslands en segist oft hafa
velt fyrir sér að læra kokkinn.
„Kannski á ég bara eftir að gera
það. Hver veit?“ n
indiana@dv.is
Sumarsalat Evu Laufeyjar
n 2 kjúklingabringur
n 1 poki af blönduðu salati, pokinn var 200 gr
n 140 gr Tagliatelle
n 1/2 agúrka
n 1 græn paprika
n 1 rauð paprika
n 1/2 rauðlaukur
n 10 kirsuberjatómatar
n 1/2 krukka fetaostur, gott að setja smá af olíunni líka
n rifinn parmesanostur, magn eftir smekk
n 1 askja jarðarber
n mulið Nachos með saltbragði, magn eftir smekk
n 1 1/2 msk. balsamedik
n 3 msk. Sweet chili-sósa
n sesamfræ, magn eftir smekk
n salt og pipar
Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
Skerið kjúklingabringurnar í bita, hitið olíu á pönnu og steikið bringurnar við vægan hita.
Kryddið til með salti og pipar. Bætið Sweet chili-sósunni og sesamfræjum saman við í
lokin. Það er gott að bæta smá vatni saman við, 1 msk. eða svo. Leyfið þessu að malla á
pönnunni í 2–3 mínútur við vægan hita.
Skerið grænmetið smátt niður, ég reif gúrkuna niður með rifjárni. Skolið allt saman vel og
blandið saman í skál.
Bætið kjúklingabringunum, balsamedikinu, fetaostinum og jarðarberjum saman við
grænmetið og blandið mjög vel saman.
Berið salatið fram á fallegu fati eða í skál, myljið nachos-flögur yfir og sáldrið ljúffengum
parmesanosti yfir. (Ekki spara ostinn, hann setur punktinn yfir i-ið.) Berið salatið fram
með góðu brauði og njótið vel.
Skiptu út sætindunum
Gómsætar og glæsilegar ávaxtakökur
E
r ekki kominn tími til að
skipta út sætindunum sem
við vitum öll að gera okkur
ekki gott? Hér má sjá nokkr-
ar sniðugar kökur sem hægt er að
bjóða upp á í næstu veislu. Ávext-
ir eru svo litríkir og skemmtileg-
ir og koma einstaklega vel út
á borði. Það er um að gera
að leika sér með alls kyns
ávaxtategundir og búa
til glæsilega rétti. Þessar
hugmyndir eru fengnar af
síðunni Pinterest.com. n
6 nauðsynleg
eldhúsáhöld
Margir ástríðukokkar verða að
eignast allt það nýjasta þegar
kemur að tækjum og tólum í eld-
húsi. Það er hins vegar ekkert
skemmtilegt að vinna þar sem
plássið er ekkert sökum drasls.
Hér er listi yfir sex hluti sem
nauðsynlegt er að eiga.
Gatasigti
Sigti eru einfald-
lega skálar með
götum á svo
hægt sé að veita
burtu vökvanum
þegar þú ert búin/n
að sjóða pasta og einnig til að
þrífa grænmeti. Svo geturðu líka
notað sigtið til að sáldra flór-
sykrinum þegar uppskriftin kallar
á slíkt.
Trésleif
Að hræra í potti eða skál er lík-
lega eitt algengasta
verkið í eldhúsinu.
Þú getur keypt
sleif úr plasti, si-
líkoni eða stáli
en margir kokk-
ar velja trésleifina.
Með trésleif geturðu
hrært hraustlega í pottum og
pönnum án þess að rispa pott-
inn, tréskaftið leiðir ekki hita svo
þú brennir þig ekki og efnið gefur
ekki frá sér neitt bragð.
Hitamælir
Stórfjölskyldan er
mætt við matar-
boðið enda lítur
steikin girnilega
út á fatinu. Þú
tekur þér stöðu
og byrjar að skera
en viti menn – blóðið vell-
ur. Steikin er hrá. Kjöthitamælir
kemur í veg fyrir slíka vitleysu.
Þeytari
Þeytarar hafa ýmsan tilgang: til
að blanda efnum vel saman, til
að auka loft eða til að sameina
efni sem blandast
illa saman eins
og vatn og olía.
Einn vinsælasti
þeytarinn er sá
sem minnir helst
á ljósaperu.
Mæliglös og
-skeiðar
Þegar þú bak-
ar skiptir ná-
kvæmnin öllu.
Fjárfestu í góð-
um mæliskeiðum
og -glösum.
Hnífar
Þú getur ekki eldað án þess að
nota hníf. Hnífar koma í ýmsum
stærðum og gerð-
um. Kokka-
hnífurinn hefur
fjölbreyttasta
hlutverkið og er
oftast notaður til
að saxa og brytja.
Aðrir góðir eru flysj-
arinn sem hentar best í lítil verk-
efni og svo sagtenntur hnífur sem
gerir brauðskurðinn mun auð-
veldari.
Melónukaka Hér má sjá
hvernig melónukaka er gerð.
Skorið er utan af melónunni.
Steinarnir fjarlægðir. Melónan
er þakin rjóma og svo skreytt
með ávöxtum.
Girnilegt Hér er melónan skorin
í bita, henni svo raðað upp eins
og köku og skreytt með berjum
og öðrum ávöxtum. Glæsilegt og
gómsætt!
Afmæliskaka Hver segir að afmæliskökur þurfi að
vera úr súkkulaði? Hér er litrík og skemmtileg eins árs
afmæliskaka. Bara úr ávöxtum.