Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Page 44
Helgarblað 2.–5. maí 201444 Lífsstíll
P
áll Ásgeir Ásgeirsson er úti-
vistarmaður af lífi og sál.
Hann hefur ferðast um
landið í þrjá áratugi og þekk-
ir marga áhugaverða staði.
Árið 2008 gaf hann út bókina 101 Ís-
land – Áfangastaðir í alfaraleið. Nú
nýlega gaf hann út uppfærða útgáfu
af bókinni sem inniheldur upplýs-
ingar um 155 staði víðs vegar um
landið. DV spjallaði við Pál um bók-
ina og ferðalög hans um landið í leit
að áhugaverðum og fallegum stöð-
um sem margir vita kannski ekki um.
Páll segir tilgang bókarinnar fyrst
og fremst að kynna staði sem væru
ekki almennt þekktir áfangastað-
ir meðal ferðamanna. „Leitast var
við að beina athygli ferðamanna að
þeim stöðum sem voru síður þekkt-
ir og að mestu sniðgengnir, í stað
svona þekktra ferðamannastaða
eins og við Gullfoss og Geysi og þess
háttar. Það var frekar reynt að tína til
áhugaverða en jafnframt aðgengi-
lega staði og dreifa þeim sem jafnast
um landið,“ útskýrir Páll.
„Það var þá lagt til grundvallar
að annaðhvort ættu þessir staðir
sér einhverja áhugaverða sögu eða
að þeir væru frá náttúrunnar hendi
sérstakir og lítið þekktir. Þessari bók
var ákaflega vel tekið og þess vegna
réðumst við í það, ég og Forlagið, að
stækka hana verulega, um rúmlega
fimmtíu prósent,“ segir Páll og er út-
koman ítarleg og fræðandi bók.
Uppljóstrar leyndarmálum
heimamanna
Páll segist stundum hafa mætt dálitlu
mótlæti þegar hann var að safna efni
í bókina. Hann segir það koma fyrir
að heimamenn vilji ekki að skrifað
sé um staði eða þeir auglýstir mik-
ið. „Stundum hefur verið sagt að við
séum að segja frá leyndarmálum
en það er ekki svo, þetta eru staðir
sem eru kannski mjög þekktir í sinni
heimasveit og eru ýmist söguslóðir
eða sérkennilegir staðir. Við setjum
okkur alltaf í samband við heima-
menn og ef við erum að vísa á staði
sem eru í landareign einhverra þá
viljum við fá góðfúslegt samþykki.
Innan þeirra marka að það er ekki
beinlínis heimilt að hamla för gang-
andi manna. En í þessari bók líkt og
fyrri útgáfunni erum við að benda
ókunnugu fólki á staði sem fólk í við-
komandi sveit hefur lengi þekkt en
eru lítið þekktir utan sveitar. Það eru
nokkur dæmi um staði sem rötuðu
ekki í bókina vegna þess að heima-
menn vildu ekki að það væri vísað á
þá. Við erum svo friðsöm að eðlisfari
að við kusum að fara þá leið.“
Ísland hættir aldrei að koma
á óvart
„Ég er náttúrlega búinn að ferðast
um Ísland í þrjátíu ár og er alinn upp
úti á landi og hef búið þar í mörg ár,
þannig að ég þekki landið allvel og
hef alltaf haft gaman af því að lesa
þjóðlegan fróðleik og sagnfræði.
Þetta gerist oft þannig að maður fer
af stað með lista yfir einhverja staði
sem maður heldur að séu áhuga-
verðir. Svo fer maður og skoðar þá
vandlega og stundum kemur í ljós að
staðurinn er ekki eins áhugaverður
og maður hélt að hann væri,“ útskýrir
Páll, aðspurður hvernig hann aflaði
sér heimilda fyrir bókina. „Svo gerist
það mjög oft að þegar maður kemur
á staðinn sér maður eitthvað annað
sem maður hefur ekki leitt hugann
að eða þá að maður fer á bæi og set-
ur sig í samband við heimamenn og
veiðir upp úr þeim ábendingar um
staði,“ bætir Páll við.
„Það segir í frægu kvæði að hver
einn staður á sína sögu og það er
þannig. Þessi saga liggur ekki alltaf á
yfirborðinu og hún er ekki alltaf aug-
ljós en með því að segja sögu staðar-
ins og draga athygli fólks að því sem
að þar hefur gerst höfum við oft séð
hvernig tiltölulega látlausir staðir
lifna við um leið og þú þekkir söguna.
En bæði við leitina að stöðum sem
áttu að fara í bókina og við mörg önn-
ur tækifæri hef ég oft staðið undrandi
á stöðum sem ég hafði ekki hugmynd
um að væru til og heilla mann þegar
maður kemur þangað.“
Það er allt fallegt á Ísafirði
Þegar Páll er beðinn um að nefna
einn stað á landinu sem allir verði
að sjá á lífsleiðinni fást heldur loðin
svör. „Það er mjög illa gert að spyrja
þann sem þekkir Ísland mjög vel
svona spurningar og ég er alltaf í
vandræðum með svarið,“ segir Páll
og hlær. „En ég er alinn upp vestur í
Ísafjarðardjúpi og er Vestfirðingur og
hef mikið dálæti á þeim landshluta.
Vestfirðir toga sterkar í mig en flest-
ir aðrir staðir á landinu. Mér finnst
allt fallegt á Vestfjörðum,“ segir Páll
að lokum. n
„Hver einn
staður á sína sögu“
Páll Ásgeir Ásgeirsson skrifaði bók um áhugaverða og oft leynda staði á Íslandi
Í
bókinni er að finna marga áhuga-
verða lista um ýmsa staði sem
hægt er að skoða víðs vegar um
landið. Sem dæmi má nefna
dvalarstaði skrímsla, fæðingar- eða
uppeldisstaði sögufrægra Íslendinga
og margt fleira. Hér koma nokkur
dæmi um áhugaverða lista í bókinni.
10 bestu villiböðin á Íslandi
n Hveraborg á Holtavörðuheiði – Afskekkt-
ur hlaðinn pottur í farvegi Síkár í Hrútafirði
n Hveravellir – Upphlaðin laug undir vegg
gamla sæluhússins
n Klambragil á Hellisheiði – Vanmetin
perla við bæjardyr Reykvíkinga
n Landmannalaugar – Frægasta villibað
á Íslandi
n Laugarfell – Vinsæl hlaðin laug norð-
austur af Hofsjökli
n Laugarfell við Snæfell – Hringlaga
steinhlaðin laug við Laugarfell á Fljóts-
dalshéraði
n Marteinslaug eða Syðri-Hitulaug – Ekki
mjög heit og ekkert skjól en fáir gestir
n Nautseyrarlaug – Fáfarinn staður í landi
Nauteyrar í Ísafjarðardjúpi
n Strútslaug – Við Hólmsá innst í Hólmsár-
botnum norðan Mælifellssands
n Víti í Öskju – Sprengigígur með grænleitu
vatni
10 áhugaverðustu eyjarnar
n Drangey á Skagafirði
n Flatey á Breiðafirði
n Flatey á Skjálfanda
n Grímsey
n Papey
n Vestmannaeyjar
n Viðey
n Vigur
n Æðey
10 bestu sundlaugar landsins
n Árbæjarlaug – Besta útsýni í þéttbýli
n Bændalaugin við Hörgshlíð í Ísafjarðar-
djúpi – Ein sú allra minnsta
n Krossnes í Árneshreppi – Miðnæturferð
að sumri með útsýni yfir brimölduna er
ógleymanleg
n Laugarhöll í Bjarnarfirði – Heiti potturinn
er mjög sérstakur
n Lýsuhóll – Eina laugin á Íslandi ef ekki í
heiminum með ölkelduvatni
n Reykjanes við Ísafjarðardjúp – Var lengi
stærsta sundlaug landsins
n Reykjarfjörður í Arnarfirði – Algert
villibað
n Selárdalur í Vopnafirði – Stórbrotið
útsýni, hrein og fín og engin gæsla
n Seljavallalaug – Elsta sundlaug á Íslandi
og ekki hægt að sleppa henni
n Sundlaug Kópavogs – Sú stærsta, besta
og hreinasta
Skemmtilegir topp 10 listar
sem finna má í bók Páls
Seljavallalaug Elsta sundlaug lands-
ins og ein sú besta líka, að mati Páls.
Mynd Bragi Thor JoSefSSon
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is
Páll Ásgeir Ásgeirsson Páll
hefur ferðast um landið í þrjá
áratugi og hefur skrifað margar
bækur fyrir ferðalanga.
Bjartmarssteinn Bjartmarssteinn við Berufjörð í Reykhólasveit er sagður vera álfakaup-
staður. Mynd PÁll ÁSgeir ÁSgeirSSon
arnarnúpur Fjallið Arnarnúpur við
Keldudal í Dýrafirði séð gegnum sáluhlið
yfirgefinnar kirkju.
Í Ísafjarðardjúpi Kirkjan í Unaðsdal á
vegarenda við Ísafjarðardjúp. Mynd PÁll ÁSgeir
ÁSgeirSSon
náttúrufegurð Sérkennilegt stuðlaberg í
farvegi Jökulsár á Dal. Mynd PÁll ÁSgeir ÁSgeirSSon
„Ég hef oft staðið
undrandi á stöðum
sem ég hafði ekki hug-
mynd um að væru til og
heilla mann þegar maður
kemur þangað.