Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 2.–5. maí 201446 Lífsstíll
V
insældir þrívíddarprentunar
hafa aukist jafnt og þétt síð
ustu ár. Sumir hafa jafnvel
gengið svo langt að segja að
þrívíddarprentun muni leiða
af sér nýja iðnbyltingu, þar sem allt frá
leikföngum til líffæra verði prentað á
einhvern hátt í slíku tæki.
Þó að þrívíddarprentun hafi fyrst
komið fram á sjónarsviðið fyrir um 30
árum hafa slík tæki ekki verið aðgengi
leg almenningi nema í nokkur ár. Verð
á slíkum tækjum hefur hríðfallið síð
ustu ár og hafa margar tegundir prent
ara skotið upp kollinum. Það er aug
ljóst að það er mikil gróska í þessari
grein.
Myndast hafa stór samfélög áhuga
manna um þrívíddarprentun þar sem
rætt er um tæknina og síðast en ekki
síst skipst á skrám til að prenta og er
vefurinn Thingiverse stærstur í þeim
efnum. Í dag geta þeir sem eiga þrí
víddarprentara búið til ýmsa smá
hluti sjálfir sem þeir þyrftu annars að
kaupa í verslun. Vinsælt er til dæm
is að prenta símahulstur fyrir snjall
síma, einnig er hægt að búa til ýmis
legt nytsamlegt fyrir heimilið eins
og hvítlaukspressu eða jafnvel heilu
ljósakrónurnar. Í stað þess að kaupa
hlutinn á nokkur þúsund krónur
kostar hann nokkrar krónur.
Þó að verð á þrívíddarprentur
um hafi lækkað mikið síðustu ár þykir
mörgum verðið enn of hátt og flækju
stigið of mikið til þess að þeir freist
ist til að kaupa slíka græju. En nú ætl
ar fyrirtækið Micro 3D að breyta því.
Fyrirtækið setti nýlega af stað fjáröfl
unarverkefni á vefnum Kickstarter
þar sem það segist geta boðið upp á
fyrsta alvöru notendavæna þrívíddar
prentarann á lægra verði en áður hef
ur þekkst.
Micro 3D er þegar búið að afla yfir
þremur milljónum Bandaríkjadala og
hafa yfir ellefu þúsund manns styrkt
verkefnið. Fyrirtækið segist geta boð
ið prentarann á 200 til 300 Banda
ríkjadali, sem er mun lægra verð en
á öðrum prenturum sem kosta flest
ir á bilinu 500 til 2.000 dala, sem er
kannski of mikil fjárfesting fyrir flesta.
Í kynningu Micro 3D segir að prentar
inn eigi að virka beint úr kassanum og
að notandinn eigi að geta einbeitt sér
að afurðinni frekar en vandamálun
um. Framleiðendurnir halda því fram
að eftir að þú fáir prentarann í hend
urnar ætti það ekki að taka þig meira
en klukkutíma að geta byrjað að nota
hlut sem þú gerir í prentaranum og
nefna sem dæmi kaffibolla.
En þrívíddarprentun þarf ekki að
einskorðast við litla plasthluti. Þeir
framsýnustu trúa því að þrívíddar
prentun komi til með að bylta lækna
vísindunum og rannsóknir er snúa að
prentun líffæra í lækningaskyni eru í
fullum gangi og telja sumir að innan
nokkurra ára eða áratuga verði mögu
legt að prenta líffæri, til dæmis lifur, á
rannsóknarstofum. n
Prentaðu kaffi-
bolla á klukkutíma
Micro 3D-prentarinn
Micro 3D mun setja þenn-
an ódýra og notendavæna
þrívíddarprentara á
markað á næstunni.
Þrívíddarprentun þokast nær því að verða notendavænni og aðgengilegri
Jón Steinar Sandholt
jonsteinar@dv.is
Þrívíddarprentað
símahulstur
Vinsælt er að prenta
símahulstur og aðra
nytsama smáhluti í
þrívíddarprenturum.
Vertu snjallari
grillari
Það virðist ekkert lát vera á því að
raftækin okkar séu gerð snjallari.
Fyrst voru það símarnir, því næst
sjónvörpin og nú eru það gas
grillin.
Fyrirtækið Lynx hefur fram
leitt snjallgrill sem auðveldar
fólki að fá hina fullkomnu steik.
Grillið spyr þig hvað þú ert að
grilla og mælir með stillingu sem
skilar steikinni eins og þú vilt
hafa hana. Grillið gerir þetta með
því að tengjast þráðlausa netinu
á heimilinu og leitar í gagna
grunni fullum af uppskriftum og
eldunarupplýsingum. Grillið mun
líklega kosta skildinginn þannig
að margir munu halda áfram að
grilla á gamla mátann, sem flest
um þykir líklega skemmtilegra.
Sala Nokia
hríðfellur
Farsímaframleiðandinn Nokia
má muna fífil sinn fegurri ef
marka má nýjar tölur sem fram
leiðandinn birti nýverið. Þar
kemur fram að sala á símum
Nokia hefur fallið um þrjátíu pró
sent miðað við sama tímabil í
fyrra. Nokia kennir því um að lít
ill áhugi hafi verið á ódýrari sím
um félagsins á meðan Android
framleiðendur og Apple tróna á
toppnum í dýrari símum.
Microsoft keypti farsímahluta
Nokia í fyrrahaust og hyggst
halda framleiðslu þeirra áfram í
svipaðri mynd en augljóst er að
Microsoft þarf að spýta í lófana
ef fyrirtækið vill halda einhverri
markaðshlutdeild.
Sjálfhreinsandi
bílar framtíðin?
Að halda bílnum sínum hrein
um er mikil vinna og getur kost
að tíma og fyrirhöfn. Bílafram
leiðandinn Nissan vill vinna bug
á því og hefur gert tilraunir með
bílamálningu sem er gríðar
lega vatnsfælin og sér til þess að
bíllinn haldist tandurhreinn þó
að honum sé keyrt í drullu og
bleytu.
Málningin kallast Ultra Ever
Dry, en hún virkar þannig að
hún myndar loft á milli sín og
óhreinindanna þannig að í stað
þess að festast við bílinn renna
þau af og skilja ekki eftir um
merki. Málningin verður þó að
öllum líkindum ekki staðalbún
aður en fyrirtækið er að íhuga að
bjóða hana sem aukabúnað.
Munu nýta sér sýndarveruleikatækni
Gerir fólki kleift að upplifa kvikmyndir á byltingarkenndan hátt
S
ýndarveruleikagleraugun
Oculus Rift hafa slegið í gegn
í tölvuleikjaiðnaðinum frá
því að þau voru fyrst kynnt
árið 2012. Mikið vatn hefur
runnið til sjávar síðan, betrumbætt
ar þróunarútgáfur hafa litið dagsins
ljós og það styttist í að hægt verði að
kaupa gripinn, sem á að koma í versl
anir seint á þessu ári eða snemma á
því næsta.
Kaup Facebook á fyrirtækinu fyrir
skemmstu vöktu einnig mikla athygli
og veltu einnig upp spurningum
um framtíð þess og hvert notagildið
muni koma til með að verða. Mark
Zuckerberg nefndi til að mynda í
fréttatilkynningu um málið að tækn
in muni opna nýjar víddir í notenda
upplifun og að til dæmis væri hægt
að nýta tækið í skólastofum eða í
læknavísindum.
Á ráðstefnu í Hollywood nýlega
snerti Cory Ondrejka, yfirmaður hjá
Facebook, einnig á því hvernig kvik
myndaframleiðendur geti nýtt sér
tæknina. „Ég er bæði kvíðinn og
spenntur fyrir því hvað gerist þegar
Hollywood nýtir sér sýndarveruleika
tækni. Það er auðvelt að taka efni sem
er framleitt fyrir kvikmyndir og sam
tvinna það við sýndarveruleika og
búa til nýja upplifun fyrir áhorfand
ann,“ sagði Ondrejka.
Það er því spurning hvort áhorf
endur geti í mjög náinni framtíð sett á
sig sýndarveruleikagleraugu og upp
lifað kvikmyndir á nýjan og enn öfl
ugri hátt en hægt hefur verið hing
að til. Oculus Rift gleraugun koma til
með að kosta um 300 Bandaríkjadali,
sem samsvarar um 35.000 krónum. n
Oculus Rift Kvikmyndaunnendur geta hugsanlega nýtt sér gleraugun í náinni framtíð og
upplifað kvikmyndir á byltingarkenndan hátt.