Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 50
Helgarblað 2.–5. maí 201450 Sport
S
pennan á toppi ensku úr
valsdeildarinnar hefur sjald
an, ef nokkurn tímann, verið
jafn mikil og nú. Liverpool
eygir von um að vinna fyrsta
deildartitilinn í 24 ár og er í efsta sæti
með tveggja stiga forskot á Chelsea
sem situr í öðru sæti. Eins og flestum
knattspyrnuunnendum er kunnugt
bar Chelsea sigurorð af Liverpool um
síðustu helgi á Anfield, 0–2, þar sem
Demba Ba og Willian sáu um að koma
knettinum í netið.
Þar sem Liverpool missteig sig er
Manchester City skyndilega orðið lík
legasta liðið til þess að vinna deildina.
City er í 3. sæti og á leik til góða á
keppinauta sína. Mest getur Man
chester City fengið 86 stig, jafn mörg
og Liverpool getur fengið, en þar sem
þeir ljósbláu eru með hagstæðari
markatölu myndu þeir verða Eng
landsmeistarar.
Blár slagur í Liverpool
Everton tekur á móti Manchester City
á laugardaginn. Everton á í harðri bar
áttu við Arsenal um að tryggja sér 4.
sæti deildarinnar en það gefur liðinu
þátttökurétt í undankeppni Meistara
deildar Evrópu á næstu leiktíð. Ev
erton er fjórum stigum á eftir Arsenal,
sem er í 4. sæti.
Stuðningsmenn Liverpool munu
vona að erkifjendurnir í Everton
endurtaki leikinn frá því í fyrra þegar
þeir lögðu City að velli á Goodison,
2–0. Raunar hefur Everton haft ótrú
legt tak á Manchesterliðinu á heima
velli sínum. Liðið hefur unnið fjóra
leiki í röð gegn City og aðeins tapað
einu sinni í síðustu fimmtán viður
eignum liðanna á heimavelli. Líklega
státar ekkert lið í úrvalsdeildinni af
viðlíka árangri gegn City. Hafi einhver
haldið að titilbaráttunni væri lokið eft
ir tap Liverpool gegn Chelsea skjátlast
honum.
Lærisveinar Josés Mourinho í
Chelsea taka á móti Norwich á sunnu
daginn. Norwich berst fyrir lífi sínu
í neðri hluta deildarinnar og verður
fróðlegt að sjá hvort Chris Hughton,
nýráðinn þjálfari liðsins, nái að bjarga
liðinu frá falli.
Á mánudagskvöld halda Liver
poolmenn suður til London og leika
gegn Crystal Palace á Selhurst Park.
Crystal Palace siglir lygnan sjó um
miðju deildarinnar en liðinu hefur
vegnað afar vel eftir að Tony Pulis tók
við stjórnartaumunum.
Sunderland á siglingu
Á hinum enda deildarinnar getur
margt gerst. Cardiff City vermir botns
ætið sem stendur og þarf nauðsynlega
á þremur stigum að halda gegn lán
lausu liði Newcastle á laugardaginn.
Fulham heimsækir Stoke á
Britannia Stadium og er það sama
uppi á teningnum hjá þeim hvít
klæddu. Þeir þurfa stigin þrjú í bar
áttunni um tilverurétt sinn í deildinni.
Til þess þarf hinn umdeildi þjálfari
Fulham, Felix Magath, að finna leiðir
framhjá Stokeliðinu sem hefur vegn
að prýðilega á þessari leiktíð.
Sunderland leikur gegn Eng
landsmeisturunum í Manchester
United á Old Trafford. Sunderland
hefur unnið síðustu tvo leiki sína;
annars vegar Chelsea 1–2 á útivelli og
hins vegar Cardiff City á heimavelli,
4–0. Þá hafa Englandsmeistararnir
verið ansi gjafmildir á heimavelli sín
um í vetur og því ættu Sunderland
menn að geta strítt þeim á laugar
daginn. n
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
Sóknarbolti hjá Mourinho
Páll Kristjánsson, annar tveggja þjálfara KV í 1. deild, er mikill stuðn-
ingsmaður Liverpool og spáir að þeir muni enda sem Englandsmeist-
arar. Blaðamaður fékk hann til þess að rýna í leiki helgarinnar þar sem
hann spáir að Manchester City muni missa niður forskot sitt á
Goodison Park í hádramatískum leik.
West Ham – Tottenham
„Ég ætla að segja að West Ham vinni 2–1.
Gylfi Þór skorar aftur á heimavelli þeirra
en það mun ekki duga Tottenham-
mönnum.“
Aston Villa – Hull
„Ég spái að Aston Villa vinni þennan
leik og sigri Manchester City í næsta leik
á eftir. Aston Villa mun vinna 2–0 og
bjarga sér endanlega frá falli.“
Manchester United –
Sunderland
„Það verður 1–1. Því miður fyrir Sunderland
þá mun það ekki innbyrða stigin þrjú.“
Newcastle – Cardiff City
„Ég ætla að segja 1–2 fyrir Cardiff.
Newcastle hefur ekki að neinu að keppa
á meðan Cardiff er í harðri fallbaráttu.“
Stoke – Fulham
„2–2. Fulham-liðið er einfaldlega slakt
og Stoke er, eins og allir vita, erfitt heim
að sækja.“
Swansea – Southampton
„Það verður boðið upp á markaveislu í
Wales. Leikurinn fer 3–3 í stórskemmti-
legum leik.“
Everton – Manchester City
„Ég held að þessi leikur endi með
jafntefli, 2–2. Það er kannski meira ósk
en spá. Það verður hádramatík. Everton
jafnar seint í leiknum og mun þar af leið-
andi reynast nágrönnum sínum vel.“
Arsenal – WBA
„Það er klassískt Arsenal að fara á smá
skrið í lok tímabils og stuðningsmennirn-
ir verði sáttir með Arsene Wenger
fyrir sumarið. Þetta fer 4–0 og sigurinn
verður aldrei í hættu.“
Chelsea – Norwich
„Chelsea vinnur þennan leik 3–0. José
Mourinho hefur verið gagnrýndur fyrir
leiðinlegan fótbolta og mun leggja upp
með mikinn sóknarbolta í þessum leik.“
Crystal Palace – Liverpool
„Liverpool vinnur þennan leik sann-
færandi, 3–0. Þeir verða að blása
til sóknar til þess að eiga séns á
Englandsmeistara titlinum.“
Ótrúleg spenna
á toppi og botni
n Everton með ógnartak á City n Ekki tapað í 14 af síðustu 15 leikjum á Goodison
Vissir þú …
… að Roberto Martinez,
stjóri Everton, hefur
aðeins hlotið eitt stig
af níu í leikjum gegn
Manchester City.
… að Luis Suarez (25) og
Daniel Sturridge (17) hafa hvor
um sig skorað fleiri mörk en Crystal
Palace (16) úr opnum leik.
… að Newcastle hefur nú tapað sex leikj-
um í röð í fyrsta skipti frá árinu 1987.
… að nú er staðfest að Arsenal endar
fyrir ofan Tottenham í deildinni nítjánda
tímabilið í röð.
… að 19 af 26 mörkum Oliviers Girouds
hefur hann skorað á Emirates.
… að þó að Arsenal verði ekki meistari
í vor hefur ekkert lið verið fleiri daga á
toppi deildarinnar í vetur.
… að Newcastle hefur aðeins skorað
10 mörk í deildinni árið 2014, færri en
nokkurt lið.
Rauði herinn til London
Liverpool þarf sigur gegn Crystal
Palace á mánudagskvöld. Mynd ReuteRS