Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2014, Blaðsíða 64
Helgarblað 2.–5. maí 2014
33. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Konur með
krafta í
kögglum!
Mæðgur í myndlist
n Steinunn Eldflaug Harðar-
dóttir, sem kemur að jafnaði
fram undir nafninu dj. Flugvél og
geimskip, mun halda myndlistar
sýningu með móður sinni, Þór
unni Harðardóttur, um helgina.
Steinunn hefur lokið myndlista
námi, líkt og móðir hennar, en
fæst þó meira við gerð hljóð
heima. „Ég bý til listaverk og tón
list vegna þess að ég fyllist af orku
og gleði þegar ég bý til eitthvað
nýtt. Ómögulegir hlutir verða
að veruleika í myndlist. Þar eru
engar hindranir – engin lögmál,“
er haft eftir Steinunni í tilkynn
ingu um sýninguna.
Tryggvi aftur
til Eyja
n Eyjapeyinn Tryggvi Guð-
mundsson er ekki dauður úr
öllum æðum á fótboltasviðinu.
Þessi markahæsti leikmaður
efstu deildar frá upphafi hefur
ákveðið að spila í Vestmannaeyj
um í sumar með knattspyrnufé
laginu KFS sem leikur í 4. deild.
„Eyjahjartað slær. ÍBV var ekki
option og þá er það bara hitt
liðið,“ sagði Tryggvi við vefmiðil
inn Fótbolti.net á fimmtudag en
auk þess að spila fótbolta hefur
Tryggvi starfað
við auglýs
ingasölu á
höfuðborgar
svæðinu.
1 . maí ekki úreltur
n Baráttuhugur var í Ögmundi
Jónassyni er hann hélt 1. maí
ávarp á Selfossi. Drjúgur hluti
ræðu hans fjallaði um að verka
lýðsdagurinn væri ekki úreltur.
Lýsti hann því er hann fékk spurn
ingu þess eðlis frá ónefndum út
varpsmanni. „Og jafnvel þótt það
kunni að hafa verið rétt til getið hjá
útvarpsmanninum að dagurinn
hefði heldur föln
að í seinni tíð í
vitund okkar
margra þá er
það ekki svo að
mínu mati, að
hann sé að úr
eldast – síður en
svo,“ sagðir þing
maður
inn.
Gæði fara aldrei úr tísku
Hitastýrð
blöndunartæki
Stílhrein og
vönduð
M
ér finnst þetta ekki karla
sport, þetta er fyrir bæði
kyn. Ég hef stundað kross
fit á nokkrum stöðum og
þekki margar stelpur sem hafa áhuga
á að keppa í þessu,“ segir Margrét
Ársælsdóttir í samtali við DV. Hún
hyggst fara til Finnlands eftir helgi
til að taka þátt í kraftlyftingakeppni.
„Mótið heitir Queen of the Castle. Ég
er að keppa í undir sjötíu kílóa flokki.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég tek þátt í
svona móti erlendis. Ég keppti í Sterk
ustu konu Íslands og endaði í þriðja
sæti. Með því vann ég mér inn sæti á
þessu móti,“ segir Margrét. Hún seg
ist vera ágætlega bjartsýn á gott gengi
í keppninni.
Margrét segir það miður að
margar íslenskar konur langi að taka
þátt í kraftlyftingakeppnum en geri
það ekki vegna þess að þær geri sér
ekki grein fyrir því að það sé hægt.
Hún segir að mögulega megi rekja
það til þess að kraftlyftingar kvenna
fái ekki eins mikla athygli og karla.
„Þetta er ekki frekar strákasport en
stelpusport. Mér finnst bara vanta
að stelpur taki eftir því að það er
hægt að vera í þessu. Ég man þegar
ég var að horfa á Sterkasta mann
heims í sjónvarpinu þegar ég var tólf
ára og þetta var það skemmtilegasta
sem ég horfði á. Mér datt aldrei í hug
að þetta væri eitthvað sem væri hægt
að æfa eins og fótbolta eða frjálsar
íþróttir þegar ég var lítil. Mér finnst
að konur eigi alveg að vera jafn mik
ið í þessu og karlar,“ segir Margrét. n
hjalmar@dv.is
Kraftlyftingar ekki karlasport
Margrét Ársælsdóttir keppir um titilinn Sterkasta kona Skandinavíu
Sterk Margrét æfir stíft
þessa dagana fyrir keppnina
í Finnlandi. Hún keppir í undir
sjötíu kílóa flokki.