Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2014, Qupperneq 12
12 Fréttir Viðskipti Vikublað 24.–26. júní 2014
S
á sem upplýsti er vitni kær-
andans Hreiðars, það er að
segja þessi Jón Óttar, fyrrver-
andi starfsmaður hjá sérstök-
um. Hann sumsé er á greiðsl-
um hjá Hreiðari […] Verjandi Hreiðars
Más [Hörður Felix Harðarson] legg-
ur fram greinargerð sem unnin er af
þessum fyrrverandi starfsmanni sér-
staks um starfsaðferðir sérstaks. Ég
leyfði mér að gera ráð fyrir því að hann
hefði ekki verið að vinna frítt,“ seg-
ir Sveinn Andri Sveinsson hæstarétt-
arlögmaður spurður um uppfærslu
sem hann setti á Facebook fyrir helgi
um kæru sem Hreiðar Már Sigurðs-
son, fyrrverandi forstjóri Kaupþings,
hefur lagt fram á hendur Benedikt
Bogasyni, núverandi hæstaréttar-
dómara og fyrrverandi héraðsdóm-
ara, og Ólafi Þór Haukssyni, sérstök-
um saksóknara. Kæran er fyrir meint
skjalafals.
„Umræddur Jón Óttar Ólafsson
hefur áður verið umfjöllunarefni í
fréttum. Þannig var greint frá því að
hann hefði, ásamt öðrum fyrrverandi
starfsmanni sérstaks saksóknara,
fengið 30 milljónir króna fyrir skýr-
slu um gjaldþol Milestone sem unn-
in var fyrir þrotabú félagsins. Upp-
lýsingarnar í skýrslunni byggðu að
mestu leyti á gögnum sem þeir höfðu
aðgang að í störfum sínum hjá sérs-
tökum saksóknara. Þegar upp komst
um skýrslugerðina kærði sérstakur
saksóknari þá til Ríkissaksóknara en
embættið byggði á því að þeir hefðu
brotið trúnað í starfi. Ríkissaksóknari
vísaði kærunni hins vegar frá.“
Vann fyrir Hreiðar Má
Fréttablaðið hefur fjallað um sím-
hlerunarheimild sem Benedikt veitti
embætti sérstaks saksóknara sem
héraðsdómari árið 2010. Heimildin
var veitt til að hlera síma Hreiðars
Más. Kaupþingsforstjórinn vill
meina að Benedikt hafi falsað sím-
hlerunarheimildina þar sem hún
hafi verið veitt heima hjá Benedikt en
ekki í Héraðsdómi Reykjavíkur, líkt
og fram kom í úrskurðinum. Orðrétt
sagði í frétt Fréttablaðsins um málið í
síðustu viku: „Þvert á móti hafi þing-
haldið verið haldið á heimili dómar-
ans og skrifleg beiðni hafi ekki leg-
ið fyrir. Þá hafi Ólafur Þór ekki sótt
þinghaldið sjálfur heldur lögreglu-
menn á hans vegum. Einn lögreglu-
mannanna sem sótti hlerunarúr-
skurðinn heim til dómarans staðfestir
í samtali við fréttastofu að atvik hafi
verið með þeim hætti sem Hreiðar
lýsir.“ Annar af lögreglumönnunum
sem sótti úrskurðinn heim til Bene-
dikts eftir að þinghald hafði farið
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur var
umræddur Jón Óttar. Hvort hann var
heimildarmaður Fréttablaðsins skal
ósagt látið en vitað er að hann vann
greinargerð fyrir Hreiðar Má í Al-
Thani-málinu um rannsókn málsins.
Jón Óttar vill aðspurður ekki stað-
festa að hann hafi verið annar lög-
reglumaðurinn sem sótti símhler-
unarúrskurðinn. Hann segist ekki
vilja ræða málið opinberlega. Sveinn
Andri fullyrti á Facebook að Jón Ótt-
ar hefði unnið fyrir Hreiðar Má: „Mér
finnst blaðamenn stundum horfa
fram hjá kjarna máls. Lögreglumað-
ur sem sat úti í bíl á meðan kollegi
hans sótti umslag til dómara með úr-
skurð um símhlerun og er nú heim-
ildarmaður á bak við ranga kæru um
skjalafals, er á payroll hjá þeim sem
kærir dómarann. Hefði ekki verið
ástæða til þess að fá kannski aaaað-
eins betri heimild?“
Segist vilja benda
á sannleikann
Jón Óttar staðfestir aðspurður að
hann hafi unnið minnisblað um
rannsóknina á Al-Thani-málinu en
að hann hafi ekki fengið neitt greitt
fyrir það. „Ég gerði minnisblað fyr-
ir hann [Hreiðar Má] en ég hef aldrei
þegið neina greiðslu frá þeim, aðil-
um tengdum þeim, lögaðilum tengd-
um þeim eða neitt. Ég gerði þetta
pro bono. Ég gerði þetta bara af því
að mér blöskrar bara hvernig kerf-
ið er og ég er að gera þetta af því
þetta skiptir máli. Það verður ekk-
ert rukkað fyrir þetta, aldrei, því um
leið myndi það alltaf rýra gildi þessa
framburðar […] Ég var bara að gera
þetta sem greiða fyrir þá, hver svo
sem trúir því svo sem […] Ég fæ ekki
krónu frá neinum.“ Jón Óttar segir að
hvati sinn sé að benda á sannleik-
ann. „Þetta var minnisblað þar sem
ég benti á hvernig Halldóri Bjark-
ari [Lúðvígssyni, starfsmanni ] var
snúið frá því að vera sakborningur og
yfir í að vera vitni. […] Ég er að gera
það sem ég er að gera af því ég vil að
sannleikurinn komi í ljós.“
Hreiðar Már hringdi
Sveinn Andri segir að eftir að hann
setti stöðuuppfærsluna á Facebook
hafi hann fengið símtal frá Hreiðari
Má þar sem hann bað hann um að
taka færsluna af samskiptavefnum.
„Ég skaut þessu inn og fékk í kjöl-
farið símtal frá Hreiðari. Það er svo
sem ekkert leyndarmál enda var
þetta ekki trúnaðarsamtal. Hann
gagnrýndi mig fyrir þetta og krafð-
ist þess að ég tæki þetta út. Ég læt
nú ekki aðra stýra því hvað ég set á
þessu aumu Fésbók mína. Hann
spurði mig bara hvað ég hefði fyr-
ir mér í þessu en andmælti þessu
ekki. Ég skildi þetta ekki þannig að
ég hefði rangt fyrir mér í þessu. Þetta
var svona efni okkar samtals,“ seg-
ir Sveinn Andri. Eftir að Hreiðar Már
hafði komið þessari skoðun sinni á
framfæri við Svein Andra kvöddust
þeir. Sveinn Andri tók stöðuuppfær-
sluna á Facebook hins vegar ekki út
af síðunni.
Að beiðni Hreiðars Más
Lögmaður Hreiðars Más í Al-Thani-
málinu, Hörður Felix Harðarson,
segir aðspurður að það sé rétt að
Jón Óttar hafi unnið greinargerð í
málinu sem lögð var fyrir dóminn.
Hann segir að í greinargerðinni hafi
verið fjallað um vinnubrögð ákæru-
valdsins í rannsókninni á málinu.
„Þetta var úttekt á rannsóknargögn-
unum í málinu og hvað hægt var að
lesa úr þeim varðandi tiltekin atriði
sem hann síðar fjallar um.“ Aðspurð-
ur segir Hörður Felix að Jón Óttar
hafi ekki unnið beint fyrir lögmanns-
stofuna sem hann starfar á, Mörk-
ina, heldur hafi verkkaupinn í mál-
inu verið Hreiðar Már sjálfur. Hann
segist telja að Jón Óttar hafi ekki
enn þá fengið greitt fyrir vinnuna við
greinargerðina en reiknar með því
að hann hljóti að fá það. „Hann hef-
ur reyndar, held ég, ekki fengið greitt
fyrir þetta. Ég veit ekki annað en ég
n Fyrrverandi lögreglumaður vann fyrir Hreiðar Má n Lykilvitni í kærumáli gegn dómara
„Ég fæ ekki krónu frá neinum“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Flest málin fyrir Hæstarétt
Stór mál enn þá eftir
Á
síðastliðnum árum hafa
margir þekktir viðskipta- og
kaupsýslumenn hlotið dóma í
kjölfar ákæra hjá embætti sér-
staks saksóknara vegna mála sem
tengjast hruninu. Umræðan um
embættið skekkist raunar af því að
efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra varð hluti af því og því sér sér-
stakur saksóknari ekki eingöngu um
rannsóknir á hruntengdum málum
líkt og eftir að það var stofnað. Önn-
ur efnahagsbrotamál, stór sem smá,
eru líka komin inn á borð til embætt-
isins. Öll stóru hrunmálin hafa hing-
að til farið fyrir Hæstarétt Íslands,
hvort svo sem ákæruvaldið eða hinir
ákærðu hafa áfrýjað þeim.
Af þekktustu dómunum sem fall-
ið hafa í kjölfar rannsókna sérstaks
saksóknara á hruninu eru:
Óskilorðsbundnir fang-
elsisdómar yfir
Hreiðari Má Sigurðs-
syni, Sigurði Einars-
syni, Ólafi Ólafssyni
og Magnúsi Guð-
mundssyni í Al-Thani-
málinu. Dómarn-
ir voru frá þremur
árum og upp í fimm
og hálft. Dómun-
um hefur ver-
ið áfrýjað til
Hæstaréttar Ís-
lands.
Sýknudómar yfir Jóni
Ásgeiri Jóhann-
essyni og þrem-
ur starfsmönnum
Glitnis í Aurum-mál-
inu. Héraðsdómur
klofnaði í málinu og vildu
tveir dómarar sýkna en einn sakfella
þrjá menn af fjórum. Dómunum hef-
ur verið áfrýjað til Hæstaréttar Ís-
lands.
Fjögurra
og hálfs
árs fang-
elsis-
dómar í
Hæstarétti Íslands yfir þeim Jóni Þor-
steini Jónssyni, fyrrverandi stjórnar-
formanni Byrs, og Ragnari Z. Guð-
jónssyni, fyrrverandi sparisjóðsstjóra
Byrs, í Exeter Holdings-málinu.
Tveggja ára dóm-
ur yfir Baldri Guð-
laugssyni fyrir inn-
herjasvik og brot í
opinberu starfi.
Sýknudómur yfir
Lárusi Welding og
Guðmundi Hjalta-
syni í Héraðsdómi
Reykjavíkur og
Hæstirétti Íslands í
Vafningsmálinu.
Sektardómar í hér-
aðsdómi yfir Birki
Kristinssyni, Jóhann-
esi Baldurssyni, El-
mari Svavarssyni og
Magnúsi Arnari Arn-
grímssyni. Þeir þrír fyrstu fengu fimm
ára dóma en Magnús Arnar fékk
fjögurra ára dóm. Búast má við því að
dómunum verði áfrýjað til Hæstarétt-
ar Íslands og gaf Birkir það til dæmis
út á mánudag að hann hygðist áfrýja.
Hreiðar Már hringdi Hreiðar Már
Sigurðsson hringdi í Svein Andra Sveinsson
og gagnrýndi hann eftir að hann gagnrýndi
málflutning Jóns Steinars Gunnlaugssonar
og Benedikt Bogason.
„Pro bono“ Jón Óttar Ólafsson segist
hafa unnið pro bono fyrir Hreiðar Má Sig-
urðsson í Al-Thani-málinu.
„Ég vil
að sann-
leikurinn komi
í ljós