Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2014, Side 38
Vikublað 24.–26. júní 201438 Fólk
Frægir múslimar
Hálfur annar milljarður manna er íslamstrúar. Það er tæplega einn fjórði hluti mannkyns. En það er ekki bara venju-
legt fólk sem gengur Allah á hönd heldur einnig frægðarmenni. DV tók saman þekktustu múslimana í Hollywood.
Janet Jackson Söngkonan vinsæla gekk Allah á hönd áður en hún giftist viðskiptamógúlnum Wissam Al Mana. Sumir segja hana hætta í skemmtanaiðnaðinum vegna þessa. Bróðir hennar skipti einnig um trú fyrir nokkrum árum síðan. Mynd Getty IMaGes
Shaquille O'Neal
Móðir körfuknattleiksmannsins er kristin en
stjúpfaðir hans múslimi. Sjálfur ákvað hann
að taka upp siði þess síðarnefnda. Hann
hyggst fara í pílagrímsför til Mekka einhvern
tíma á næstunni.
Dave Chappelle
Grínistinn snerist til íslam árið 1998. Hann
sagði eitt sinn: ,,Þetta er ótrúlega falleg trú,
lærir þú á réttan hátt. En það krefst mikillar
vinnu.”
Mike Tyson
Boxarinn skrautlegi tók trúna í fangelsi á
tíunda áratug síðustu aldar. Hann segir hana
hafa veitt sér innri frið.
Lupe Fiasco
Tónlistarmaðurinn var alinn upp í
íslam og er enn heittrúarmaður. Í lagi sínu
,,Muhammad Walks” lýsir hann ást sinni á
trúarbrögðunum.
Kareem Abdul-Jabbar
Þessi stigahæsti körfuboltamaður NBA-
deildarinnar frá upphafi snerist til íslam
árið 1971 og hefur síðan þá verið einn helsti
talsmaður trúarbragðanna vestanhafs. Hét
áður Ferdinand Lewis Alcindor, Jr.
Akon
Rapparinn klámfengni var alinn upp í trúnni
og drekkur ekki áfengi vegna átrúnaðarins.
Muhammad Ali
Er líklega frægasti múslimi heimsins.
Þessi goðsagnakenndi boxari neitaði að
taka þátt í hernaðarbrölti Banda-
ríkjanna í Víetnam að hluta til vegna
trúarskoðana sinna. Mynd ReuteRs
Með 70 poka af heróíni
Andlát Philip seymor Hoffmans meiri harmsaga en haldið var
A
ndlát leikarans vinsæla Phil-
ip Seymor Hoffmans olli
mikilli sorg fyrr á árinu en
það virðist ekki öll sagan
hafa verið sögð. Orsök andláts-
ins var tengd við að hann hafi tek-
ið inn of stóran skammt af fíkniefn-
um sem vissulega virðist vera rétt,
en sagan er meiri harmi þrungin en
svo.
Samkvæmt lögreglu fannst
í íbúð hans 70 pokar af hreinu
heróíni, fimm lyfseðilsskyldir lyf-
jaskammtar og nokkrir pokar af
sprautum. 50 pokar af heróíni
voru óopnaðir þegar lögreglu bar
að garði. Þessar nýju upplýsingar
benda til þess að Seymor hafi ver-
ið á löngum eiturlyfjatúr og búinn
með 20 skammta.
Hann virðist hafa gert sér grein
fyrir hættunni sem áframhaldandi
neysla hans myndi skapa, en hann
sagði við vin sinn nokkrum vikum
fyrir andlátið að ef hann myndi ekki
hætta eiturlyfjaneyslu, myndi hann
deyja.
Seymor var þriggja barna fað-
ir en morguninn sem hann dó
var hann að fara að sækja börn-
in sín. Annaðhvort vissi Seymor
að hann myndi deyja við heróín-
skammtinn sem hann tók inn, eða
þá að hann ætlaði að sækja börn-
in í vímu. Börnin átti hann með
Mimi O'Donnel. Fréttir herma að
hún hafi hætt með honum vegna
sífelldrar eiturlyfjaneyslu, en hann
hafði áður verið edrú frá eiturlyfj-
um í 20 ár. n salka@dv.is
Philip seymor Hofman
Var djúpt sokkinn í neyslu.
Ár McConaughey
Hjartaknúsarinn Matthew
McConaughey heldur áfram að
sópa að sér verðlaunum. Um
helgina vann hann verðlaun sem
besti leikari í sjónvarpsþætti á
Critic´s Choice-verðlaunun-
um en það eru gagnrýnendur í
Hollywood sem velja þau. Leik-
arinn hafði meðal annars bet-
ur gegn Bryan Cranston fyrir
frammistöðuna í Breaking Bad en
Matthew var verðlaunaður fyrir
leik sinn í þáttunum True Det-
ective. Fyrr á árinu vann hann til
Óskarsverðlauna fyrir leik í aðal-
hlutverki.
Langt í land
Leikarinn Tracy Morgan slas-
aðist lífshættulega í bílslysi fyrir
skemmstu en hann er á bata-
vegi. Leikarinn var nýlega út-
skrifaður af spítala en fór beint
í áframhaldandi sjúkraþjálfun
og meðferð. Leikarinn slasaðist
illa og í yfirlýsingu frá talsmanni
hans kom fram að „þótt Tracy
haldi áfram að sýna batamerki
er enn mjög langur vegur fyrir
höndum“. Unnusta hans, Megan
Wollover, sendi sérstakar þakk-
ir til Robert Wood Johnson-hák-
sólasjúkrahússins. Leikarinn er
þekktastur fyrir hlutverk sitt í
þáttunum 30 Rock.
Kristen Steward
hyggst kæra
fyrir meiðyrði
Twilight-leikkonan Kristen
Stewart hefur hótað að kæra rit-
höfundinn Joan Rivers fyrir niðr-
andi ummæli. Í bók sinni Diary
of a Mad Diva talar hún ekki vel
um leiklistarferil Kristen.
„Margar stjörnur gera að-
eins einn hlut réttan. Auðvit-
að er Kristen Stewart ein þeirra
sem kann einungis eitt, en hún
fékk heilan feril með því að geta
fitlað við leikstjóra,“ segir Joan í
bók sinni og vísar til sambands
Kristen við kvænta leikstjórann
Rupert Sanders.
Lögmaður Kristen hringdi í
lögmann Joan og sagðist kæra rit-
höfundinn fyrir meiðyrði ef um-
mælin yrðu ekki tekin til baka.