Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2014, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2014, Side 17
Fréttir Erlent 17 Fjármálamiðstöð Persaflóaríkja Í Doha hafa frá árinu 2000 verið byggð um sextíu nýtískuleg háhýsi sem flest hver hýsa fjármálastofnanir af ýmsum toga. Landið hefur það að markmiði sínu að verða eins konar fjármálamiðstöð á Persaflóanum; í krafti stöðugleika og efnahagslegra yfirburða. Hljómar kunnuglega? Vikublað 24.–26. júní 2014 Íþróttamiðstöð í steikjandi hita? Í desember 2010 var Katar valið af FIFA til að hýsa HM í knattspyrnu 2022. Þeir lofa að byggja 12 glæsileg knattspyrnumannvirki sem búin verða flóknum kælikerfum til að vernda knattspyrnumenn og áhorfendur fyrir kæfandi hitanum sem er í landinu á sumrin. Nýlega bárust fréttir af því að Katar hefði innt af hendi háar mútugreiðslur til að tryggja sér atkvæði til að halda HM. Katar hefur á undanförnum misserum tekið að sér mótshald á ýmsum öðrum stórum íþróttaviðburðum. Þrátt fyrir fjárausturinn og íburðinn hafa fregnir ítrekað borist af því að aðstæður verkamanna séu skelfilegar í Kat- ar. Farið sé með þá eins og annars flokks borgara, þeim sé haldið í vinnu gegn vilja sínum og séu margir hverjir eins konar fangar í landinu. Mannréttindi eru fótum troðin víða. Svona varð ríkidæmi katar til n Undirbúa HM í fótbolta 2022 Gríðarstór háskólamiðstöð Tekjur af olíuvinnslu hafa haldist stöðugar á meðan tekjur af gasframleiðslu hafa rokið upp á undanförnum árum. Verg landsframleiðsla hefur fyrir vikið skapað landinu gríðarlegar tekjur. Á meðal þess sem byggt hefur verið fyrir auðinn er Education City, risastórt háskólasvæði þar sem sex amerískir og tveir evrópskir háskólar eru til húsa, auk rannsóknarmiðstöðva og fræðasetra. Áhættusamar fjárfestingar Peningarnir hafa hlaðist upp á undanförnum árum í Katar. Þeim hefur að stórum hluta verið ráðstafað í vogunarsjóði og aðrar áhættusamar fjárfestingar. Katar hefur líka fjárfest í stórum alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Barclays Bank, Credit Suisse, Harrods, Porche, Volkswagen og hlutabréfum í franska knattspyrnu- liðinu Paris Saint-Germain, svo dæmi séu tekin. Katar er einn umfangsmesti eigandi hlutabréfa á heimsvísu. O sama Bin Bieber“, réttu nafni Mohammed Hadi, er einn af þeim táningum sem ferðast hafa frá Bret- landi til Íraks og Sýrlands til að taka þátt í heilögu stríði IS- IS-samtakanna, sem eru hryðju- verkasamtök sem berjast fyrir tilurð ríkis sem byggt er á sharia- lögum í Sýrlandi og Írak. Liðsmenn samtakanna hafa myrt fjölmarga í Írak undanfarn- ar vikur og segjast samtökin hafa tekið af lífi 1.700 íraska hermenn um það leyti er þeir tóku borgina Mosul. Samkvæmt breskum miðl- um eru allt að 500 Bretar í Sýrlandi að berjast fyrir ISIS. Piltarnir sem flúið hafa til Sýr- lands og Írak til að grípa til vopna fyrir ISIS eiga það sameiginlegt að vera flestir mjög góðir námsmenn. Virkir á Twitter og Instagram Hadi er átján ára en breskir fjöl- miðlar hafa skilmerkilega greint frá þeim piltum sem hafa flúið til Mið-Austurlanda til að berjast fyr- ir ISIS. Piltarnir hafa verið virk- ir á Twitter og Instagram og gefið öðrum leiðbeiningar um hvernig sé best að komast til Sýrlands eða Írak til að berjast fyrir ISIS. Hadi er frá Coventry og hann flúði að heiman í mars. Hann hef- ur sett allnokkrar myndir af sér á Instagram þar sem hann held- ur á AK-47 vélbyssu og er í hin- um ýmsu stellingum með öðr- um „Mujahideen-stríðsmönnum“. Foreldrar hans tilkynntu lögreglu um hvarf hans en lögreglan var áður vöruð við því að skoðanir Hadi væru að verða ansi öfgafull- ar. Er hann sagður hafa orðið öfga- maður eftir að hafa hlotið kennslu í madrassa, trúarlegum skóla, í Coventry. Imam í skólanum segist hafa haft samband við lögregluna um leið og hann fékk veður af því að Hadi væri á leið til Írak. Það tók mjög á föður Hadi þegar sonur hans hljópst á brott, en Daily Mail hefur eftir nágranna hans að hann hafi staðið tárvotur úti á götu er hann fékk fregnirnar. Vildi verða forsætisráðherra Reyaad Khan, 20 ára, vildi verða forsætisráðherra þegar hann var yngri. Honum er lýst sem ötul- um námsmanni en skólafélagi hans segir í samtali við Daily Mail að hann sé klár piltur. „Hann er snjall og hann hafði gaman af því að horfa á íþróttir. Þess vegna kom okkur vel saman. Hann var vissu- lega múslimi en virtist ekkert öfga- fullur. Ég hef reyndar tekið eftir því á Facebook síðastliðin tvö ár að hann virðist hafa orðið meiri bókstafstrúarmaður,“ segir skóla- félaginn. Reyaad vildi verða fyrsti forsætisráðherra Bretlands sem væri af asísku bergi brotinn. Annar kunningi Reyaad seg- ir þá hafa verið góða félaga, en kveðst hafa misst sambandið við hann. Kunninginn varð var við það á Facebook að Reyaad væri kominn til Írak. Í kjölfarið sendi hann honum skilaboð á Facebook og sagði: „Ertu heimskur?“ Í viðtali við Sky News er móðir hans harmi slegin og biðlar til son- ar síns: „Gerðu það, komdu aftur heim. Þú ert eini sonur minn.“ „Vil ekki sjá þá aftur“ Bræðurnir Nasser og Aseel Mut- hana, 20 ára og 17 ára, eru einnig að berjast fyrir ISIS í Sýrlandi en þeir eru búsettir í Cardiff á Englandi. Þeir eru vinir Reyaad. Faðir þeirra sagði í samtali við breska fjölmiðla að hann vildi gjarnan sjá þá í fangelsi og afneit- aði þeim. „Þeir eru ekki tengdir mér leng- ur og ég vil ekki sjá þá aftur,“ sagði Ahmed Muthana. „Ég vil gjarn- an sjá þá fara í fangelsi ef þeir lifa þetta af og koma nokkurn tímann aftur til Bretlands.“ Nasser er lýst sem afburðanemanda sem hafi kosið að ganga til liðs við hryðju- verkasamtökin í stað þess að fara í læknanám, en hann hafði fengið tilboð frá fjórum háskólum um að hefja nám. n „Osama Bin Bieber“ Drengirnir sem flúðu til Sýrlands til að ganga í hryðjuverkasamtök Símon Örn Reynisson simon@dv.is Vill ekki verða læknir Nasser Muthana, 20 ára, er fyrir miðju. Reyaad Khan er einnig tvítugur en hann er til vinstri á myndinni. Myndin er úr áróðursmyndbandi frá ISIS. „Osama Bin Bieber“ Mohammed Hadi, 18 ára, er kallaður „Osama Bin Bieber“ af öðr- um ISIS-liðsmönnum á Twitter, en hann þykir unglegur og líkur kanadíska poppstirninu. Fjöldaaftökur Liðsmenn ISIS hafa myrt fjölmarga í fjöldaaftökum í Írak undanfarið. Myndir af þeim hafa ratað á netið. „Ertu heimskur?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.