Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Síða 6
6 Fréttir Helgarblað 19.–22. september 2014
Daníel Andri ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að ráðast á sambýliskonu sína
Þ
etta er mjög gott, sérstak-
lega fyrir stúlkuna. Hún er
hálfhrædd út af þessu öllu
saman,“ segir náinn ætt-
ingi stúlku sem varð fyrir
hrottalegri líkamsárás af hálfu sam-
býlismanns síns og kærasta, þann 5.
júlí síðastliðinn. Maðurinn, Daníel
Andri Kristjánsson, hefur nú verið
ákærður fyrir tilraun til manndráps
og var málið þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur síðastliðinn miðviku-
dag. Til vara er ákært fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás. Aðspurður
hvort stúlkan hræðist Daníel, svarar
ættinginn því játandi. Hann segir þó
jákvætt að málið sé komið í þennan
farveg. „Það er gott að við förum að
sjá fyrir endann á þessu ferli.“
Niðurlútur í dómssal
Daníel var viðstaddur þingfestingu
málsins fyrir héraðsdómi. „Ég kann-
ast við að hafa veitt þessa áverka. Ég
get ekki munað eftir hverjum og ein-
um þeirra. Ég ætlaði aldrei að drepa
hana,“ sagði hann fyrir þegar hann
var beðinn um að taka afstöðu til
ákærunnar.
Daníel sat niðurlútur í dómsaln-
um þegar ákæran var lesin upp og
lýsingarnar á árásinni virtust taka
bæði á hann og tvær konur sem voru
viðstaddar þingfestinguna.
Líður betur af lyfjum
Þrátt fyrir að málið sé komið í farveg
innan dómskerfisins, og að stúlkan
hafi náð að jafna sig ágætlega líkam-
lega, er hún enn mjög illa stödd and-
lega og mun þurfa að fara í gegnum
langt og strangt ferli til að ná sér. „Hún
er bara í rúst. Hún fær áfallahjálp
en verður lengi að jafna sig. Hún er
óstarfhæf, endurupplifir atburðinn
og sefur ekki,“ sagði ættinginn um líð-
an stúlkunnar í viðtali við DV í ágúst.
Aðspurður hvernig henni líði í dag
segir hann að hún sé komin á viðeig-
andi lyf og henni líði eitthvað betur af
þeim. „Hún er líka að fá mikla hjálp,
bæði hjá sálfræðingi og geðlækni.“
Stúlkan og Daníel höfðu verið í sam-
bandi í um þrjú ár áður en hann réðst
á hana í sumar, en í ljós kom eftir
árásina, að hann hafði áður sýnt of-
beldisfulla hegðun í hennar garð.
Daníel er 23 ára og hún ári yngri, þau
voru bæði í háskólanámi og að sögn
ættingjans var engin óregla á þeim
eða vesen. Bara venjulegt fólk, eins
og hann orðaði það.
Hlaut djúp stungusár
eftir brauðhnífa
Í ákærunni á hendur Daníel segir að
hann hafi veist að stúlkunni í stofunni
á heimili þeirra aðfaranótt laugar-
dagsins 5. júlí síðastliðinn „… og hr-
int henni þannig að hún féll við og þá
sparkað í andlit hennar þar sem hún
lá á gólfinu, slegið hana í andlitið og
svo inn á baðherbergi íbúðarinnar
stungið hana þremur stungum með
hnífi í hnakka, háls og kvið, allt með
þeim afleiðingum að hún hlaut djúpt
sár, um 3 sentimetra breitt aftan til á
hnakka vinstra megin, stungusár af
svipaðri breidd hægra megin á hálsi
og 5 sentimetra djúpt sár á kvið rétt
ofan og hægra megin við nafla, sem
gekk í gegnum kviðvegg hennar og
inn í kviðarhol og rifu á hægra nýra.“
Auk þess hlaut stúlkan áverka á efri
vör, sem rifnaði í sundur, brotna tönn
og fleiðursár á vinstra auga. Í samtali
við DV í ágúst sagði ættinginn stúlk-
una í raun mjög heppna að ekki fór
verr. „Eins og einn læknirinn sagði,
þá voru sem betur fer lélegir hnífar í
þessu eldhúsi. Þeir náðu ekki að fara
það langt inn. Þetta voru brauðhnífar.“
Gæti fengið 16 ára dóm
Verði Daníel fundinn sekur um til-
raun til manndráps gæti hann átt yfir
höfði sér allt að 16 ára fangelsi. Þá
krefur stúlkan hann um rúmar átta
milljónir króna í skaðabætur. Lög-
maður Daníels, Björn Bergsson, fer
fram á að málið verði tekið fyrir sem
sérstaklega hættuleg líkamsárás, en
ekki manndrápstilraun. „Það verður
væntanlega rifist um það hvort þetta
verður,“ segir ættinginn, en gerir
engu að síður ráð fyrir að málið fari
hratt í gegnum dómskerfið. „Þetta er
mjög einfalt mál, það liggur fyrir játn-
ing,“ segir ættinginn. Þá féllst Daníel
á bótakröfuna við þingfestinguna en
þótti miskabæturnar of háar.
Fram kom fyrir dómi að farið hefði
verið fram á geðrannsókn á Daníel og
liggja niðurstöður fyrir. Niðurstöður
vegna DNA-sýna liggja hins vegar
ekki fyrir en gert er ráð fyrir að þær
liggi fyrir við aðalmeðferð sem fer
fram 7. október næstkomandi. n
„Það er gott að við
förum að sjá fyrir
endann á þessu ferli.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Ég ætlaði aldrei
að drepa hana“
„Þetta er mjög
einfalt mál, það
liggur fyrir játning.
Ákærður Daníel Andri Kristjánsson hefur verið
ákærður fyrir tilraun til manndráps. Til vara er hann
ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás.
Rannsókn ekki lokið
Grunaður um umfangsmikinn þjófnað frá Atlantsolíu
M
álið er varðar stórfelldan
stuld á eldsneyti frá Atlants-
olíu er enn til rannsóknar
hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu og ekki liggur fyrir
hvenær niðurstöðu er að vænta. Líkt
og DV greindi frá í apríl síðastliðnum
hefur fyrrverandi starfsmaður fyr-
irtækisins verið kærður til lögreglu
fyrir þjófnað á eldsneyti.
Maðurinn sat um tíma í gæslu-
varðhaldi vegna málsins. Hann er
sagður hafa nýtt sér sérþekkingu sína
hjá fyrirtækinu til þess að komast yfir
eldsneytið, en það var viðskiptavinur
sem kom starfsmönnum Atlantsolíu
á sporið og gerði þeim grein fyrir
hinum meinta þjófnaði.
Maðurinn starfaði hjá fyrirtækinu
um tíma var sagt upp störfum árið
2008 vegna misbrests í starfi.
Upp komst um þjófnaðinn á þessu
ári í marsmánuði, en hann mun hafa
átt sér stað á um árstímabili, frá ár-
inu 2013 og fram á þetta ár. Líkt og
DV greindi frá í vor hafði starfsfólk
Atlantsolíu grun um að ekki væri
allt með felldu, en gat ekki útskýrt
hvernig eða hvers vegna á því stæði.
Það var svo viðskiptavinur fyrir-
tækisins sem kom þeim á sporið og
skriður komst á málið. Í kjölfarið var
það kært til lögreglunnar. Sem áður
sagði er málið enn í rannsókn. Ekk-
ert liggur fyrir um það hvenær henni
lýkur og hvort eða hvenær málið fer í
ákæruferli. n
astasigrun@dv.is
Enn í rannsókn Maðurinn er grunaður um að hafa nýtt sérþekkingu sína, sem hann hafði
eftir störf sín hjá fyrirtækinu, til að stela eldsneyti.
Ljóslausir í
Ártúnsbrekku
Niðurstöður nýrrar könnunar VÍS
á ljósabúnaði ökutækja í Reykjavík
bentu til þess að 7,5% þeirra væru
annaðhvort eineygð eða alveg
ljóslaus að framan og 7% að aftan.
Fylgst var með 3.578 bílum sem
áttu leið um Ártúnsbrekkuna að
kvöldlagi. Í síðustu könnun sem
gerð var í myrkri var hlutfallið 3%.
Hér á landi er skylt að vera
með lögboðin ljós eða önnur
viðurkennd ökuljós kveikt allan
daginn. Þá er einnig skylt að nota
aðalljósin þegar skuggsýnt er
orðið eða skyggni lélegt. Niður-
stöður könnunarinnar benda til
þess að of margir ökumenn þurfi
að bæta ráð sitt og tryggja að
ljósin séu í lagi.
Full laun Gísla
mismunun
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrver-
andi aðstoðarmaður innanríkis-
ráðherra, sem ákærður er fyrir
trúnaðarbrot í ráðuneytinu, er
á fullum launum í leyfi þar til
dómsmálinu lýkur. Lögreglu-
menn í sambærilegri stöðu fá
hálf laun. Fréttablaðið greindi frá
málinu í gær.
Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna,
sagði þetta skjóta skökku við.
„Hér er alveg klárlega um hreina
mismunun að ræða gagnvart
starfsmönnum hins opinbera,“
sagði Snorri.
Samkvæmt lögum um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins
á embættismaður sem leystur er
frá störfum um stundarsakir að
njóta helmings af föstum launum
sem embætti hans fylgja. Innan-
ríkisráðuneytið segir þetta ekki
gilda um Gísla Frey þar sem hann
sé ekki embættismaður, heldur
ráðinn starfsmaður.