Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Síða 10
10 Fréttir Helgarblað 19.–22. september 2014 Þ essi kæra til ríkissaksóknara gersamlega setti líf mitt á hliðina,“ sagði Jón Ótt- ar Ólafsson, fyrrverandi starfsmaður sérstaks sak- sóknara, í forsíðuviðtali við Frétta- blaðið um liðna helgi. Viðtalið við Jón Óttar var eins konar upp- gjör hans við embætti sérstaks sak- sóknara þar sem hann starfaði til ársins 2012 þegar embættið kærði hann fyrir trúnaðar brot í starfi. Jón Óttar og kollegi hans hjá sérs- tökum saksóknara höfðu selt þrota- búi fjárfestingarfélagsins Milestone skýrslu um félagið fyrir 30 milljónir en upplýsingarnar úr skýrslunni komust þeir yfir í störfum sínum hjá sérstökum saksóknara. 30 milljónir eru á að giska fjórföld til fimmföld árslaun óbreyttra starfsmanna sér- staks saksóknara. Áður en þeir létu af störfum hjá embættinu höfðu þeir smám saman verið að færa sig meira og meira út í vinnu fyrir einkaaðila samhliða störfum sínum hjá embættinu. Einn harðasti gagnrýnandinn Síðan sú kæra var lögð fram hefur nafn Jóns Óttars komið nokkrum sinnum fram á opinberum vettvangi í tengslum við umræðu um embætti sérstaks saksóknara. Segja má að Jón Óttar hafi farið frá því að starfa hjá embættinu og yfir í að vera einn harðasti gagnrýnandi þess. Frétta- blaðið hefur, satt að segja, verið sá fjölmiðill þar sem opinberanir og gagnrýni Jóns Óttars hafa birst hvað oftast í, undir nafni eða ekki. Inntakið í viðtalinu við Jón Óttar í Fréttablaðinu er að „þrýstingurinn“ á að finna sökudólga vegna hruns- ins 2008 og refsa þeim hafi „breytt“ starfsmönnum sérstaks saksóknara og brenglað dómgreind þeirra í þeim rannsóknum sem embættið hefur stundað. „Það voru allir öskrandi á blóð og að það yrðu einhverjir sett- ir í fangelsi. Ég held að sú pólitíska pressa, fjölmiðlafár og múgæsing sem var í Guðmundar- og Geirfinns- málunum, það gerðist bara aftur. Þrýstingurinn breytti okkur öllum sem vorum að vinna í þessu,“ sagði Jón Óttar í viðtalinu. Viljinn til að ná árangri hafi látið starfsmenn sérstaks saksóknara brjóta eða brengla þau lög og þær reglur sem í gildi eru um rannsóknir á sakamálum, meðal annars þá reglu að hlera ekki samtöl verjenda og sak- borninga. Þetta hafi þó verið gert og hafi samtölin verið spiluð á fundum úr hátalara á borði. „Stemningin í kringum þetta var eins og hjá krökk- um í sælgætisbúð; nú vissu menn betur hvernig verjendur sakborninga myndu stilla vörninni upp,“ sagði Jón Óttar og benti á að hugmyndafræðin hjá embættinu væri dálítið „við gegn þeim“, eins og starfsmenn embættis- ins mynduðu lið gegn þeim sem til rannsóknar væru. Að minnsta kosti þrjú mál Á sama tíma og Jón Óttar hefur gagn- rýnt embættið harkalega hefur hann tekið að sér ráðgjafarstörf fyrir aðila sem eru til skoðunar eða rannsókn- ar hjá embættinu, eins og til dæmis Hreiðar Má Sigurðsson í Al-Thani málinu og útgerðarfélagið Sam- herja, en meint gjaldeyrisbrot þess hafa verið til athugunar um nokkurt skeið hjá Seðlabanka Íslands og síð- ar sérstökum saksóknara. Þá hefur verið greint frá því opinberlega að Jón Óttar muni nú í haust bera vitni í skaðabótamáli Pálma Haraldssonar gegn slitastjórn Glitnis sem höfðað er vegna málskostnaðar sem á hann féll út af dómsmálinu fræga í New York sem vísað var frá. Óljóst með greiðslu Jón Óttar hefur neitað því að hann fái greitt fyrir vinnu sína fyrir þessa að- ila. Í viðtali við DV í sumar í tengsl- um við umfjöllunina um vinnu hans fyrir Hreiðar Má Sigurðsson sagði hann: „Ég fæ ekki krónu frá neinum […] Ég er að gera það sem ég er að gera af því ég vil að sannleikurinn komi í ljós.“ Minnisblaðið sem Jón Óttar gerði snerist um hvernig lykilvitni í Al-Thani málinu, Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni, var snúið frá því að vera sakborningur í málinu yfir í að vera vitni. „Ég gerði minnisblað fyrir hann [Hreiðar Má] en ég hef aldrei þegið neina greiðslu frá þeim, að- ilum tengdum þeim, lögaðilum tengdum þeim eða neitt. Ég gerði þetta pro bono. Ég gerði þetta bara af því að mér blöskrar bara hvernig kerfið er og ég er að gera þetta af því þetta skiptir máli. Það verður ekk- ert rukkað fyrir þetta, aldrei, því um leið myndi það alltaf rýra gildi þessa framburðar.“ Í samtali við DV sagði lögmaður Hreiðars Más, Hörður Felix Harðar- son á Mörkinni, að Jón Óttar hefði unnið úttekt á rannsóknargögnun- um í Al-Thani málinu. Hann sagði að Hreiðar Már hefði verið verkkaupinn en að hann vissi ekki hvort Jón Óttar hefði fengið greitt fyrir greinar- gerðina eða ekki. „Já, ég myndi líta þannig á. En hvort það er einhver verksamningur fyrir hendi veit ég ekki. Verkkaupinn sjálfur verður eig- inlega að svara fyrir það og Jón Ótt- ar. Það er hins vegar það sem liggur fyrir að hann vann þessa skýrslu sem liggur fyrir sem dómskjal í Al-Thani málinu.“ Kæran gegn dómaranum Umræðan um vinnu Jóns Óttars fyrir Hreiðar Má kom upp í kjölfarið á frétt í Fréttablaðinu um kæru sem Hreiðar Már Sigurðsson lagði fram gegn hæstaréttardómaranum Bene- dikt Bogasyni vegna símhlerunar- úrskurðar sem hann veitti sem héraðs dómari árið 2010. Kæran var fyrir meint skjalafals vegna símhler- unarúrskurðar sem Benedikt veitti gagnvart Hreiðari Má og hefur henni verið vísað frá. Fréttin birtist á for- síðu Fréttablaðsins í júní. Í fréttinni sagði meðal annars að lögreglumenn hefðu sótt símhler- unarúrskurðinn heim til Benedikts og að þinghaldið þar sem úrskurður- inn var veittur hafi farið fram heima hjá honum en ekki í dómsal: „Þvert á móti hafi þinghaldið verið haldið á heimili dómarans og skrifleg beiðni hafi ekki legið fyrir. Þá hafi Ólafur Þór ekki sótt þinghaldið sjálfur heldur lögreglumenn á hans vegum. Einn lögreglumannanna sem sótti hler- unarúrskurðinn heim til dómarans staðfestir í samtali við fréttastofu að atvik hafi verið með þeim hætti sem Hreiðar lýsir.“ Jón Óttar vildi, í samtali við DV, ekki upplýsa hvort hann væri heim- ildarmaðurinn í málinu eða ekki. Það er að segja hvort hann væri lög- reglumaðurinn sem sótti símhler- unarúrskurðinn til Benedikts. Í við- talinu við Fréttablaðið gekkst hann hins vegar við því að vera annar lögreglumaðurinn sem sótti úr- skurðinn: „Í eitt skipti fór ég ásamt einum lögreglumanni og náði í úr- skurð heim til dómara.“ Hringing frá Hreiðari Má Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveins- son benti á það á Facebook í kjölfar- ið á birtingu umræddrar fréttar að Jón Óttar væri heimildarmaður Frétta- blaðsins og hefði unnið fyrir Hreiðar Má: „Lögreglumaður sem sat úti í bíl á meðan kollegi hans sótti umslag til dómara með úrskurð um símhlerun og er nú heimildarmaður á bak við ranga kæru um skjalafals, er á payroll hjá þeim sem kærir dómarann. Hefði ekki verið ástæða til þess að fá kannski aaaaðeins betri heimild?“ Í kjölfarið á þessari stöðuupp- færslu hringdi Hreiðar Már í Svein Andra líkt og hann greindi DV frá: „Ég skaut þessu inn og fékk í kjölfar- ið símtal frá Hreiðari. Það er svo sem ekkert leyndarmál enda var þetta ekki trúnaðarsamtal. Hann gagn- rýndi mig fyrir þetta og krafðist þess að ég tæki þetta út. Ég læt nú ekki aðra stýra því hvað ég set á þessu aumu Fésbók mína. Hann spurði mig bara hvað ég hefði fyrir mér í þessu en andmælti þessu ekki. Ég skildi þetta ekki þannig að ég hefði rangt fyrir mér í þessu. Þetta var svona efni okkar samtals.“ Skýr staða Í kjölfarið á fréttinni um kæruna gegn Benedikt lagði Samherji einnig fram kæru gegn héraðsdómara, Ingveldi Einarsdóttur, vegna meintra brota gegn almennum hegningarlögum út af heimild til húsleitar sem hún veitti hjá dótturfélagi Samherja árið 2012. Sú húsleit var vegna meintra brota Samherja á lögum um gjaldeyrismál. Byggði kæran á því að ekki hefði ver- ið lagaheimild fyrir húsleitinni. DV greindi svo frá því að Jón Ótt- ar hefði einnig unnið fyrir Samherja við að greina gögn frá Seðlabankan- um um viðskipti útgerðarinnar með fisk frá Íslandi til annarra landa. Í samtali við blaðið sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja: „Við höfum verið að láta yfirfara þau gögn sem við fengum frá Seðlabanka Íslands. Þetta er mikið magn gagna sem við fengum eftir að ríkissak- sóknari ákvað að Seðlabankinn ætti að láta okkur fá þessi gögn. Jón Óttar hefur verið að vinna í því fyrir okkur að yfirfara þessi gögn.“ Jón Óttar hefur því unnið fyrir báða þessa aðila sem lögðu fram kærur gegn tveimur dómurum fyrr á árinu út af veitingu rannsóknarheim- ilda til opinberra aðila. Bæði málin sem rannsóknarheimildirnar sner- ust um eru nú til rannsóknar hjá sér- stökum saksóknara. Erfitt að fullyrða Sagan sem Jón Óttar lýsir í viðtalinu er því ekki síður sagan af því hvern- ig hann sjálfur hefur byrjað að vinna gegn því embætti sem hann starf- aði hjá áður. Hann talar um að hugs- unarhátturinn hjá embætti sérstaks saksóknara hafi verið liðskiptur, líkt og um kappleik hafi verið að ræða þar sem „við“ börðumst gegn „þeim“ – starfsmenn sérstaks gegn meintum banka- og fjárglæframönnum. Miðað við orð og athafnir hans sjálfs á liðnum mánuðum er hann hins vegar búinn að umpólast í við- leitni sinni. Í staðinn fyrir að taka sér stöðu mitt á milli embættis sér- staks saksóknara og þeirra sem emb- ættið rannsakar, líkt og virðist vera sú hófsama og skynsamlega afstaða sem hann boðar, hefur hann tekið afstöðu með þeim síðarnefndu og vinnur nú markvisst fyrir þá og með þeim – ógert skal látið að fullyrða nokkuð um greiðslur til hans vegna þessarar vinnu. Þar sem Jón Óttar starfaði hjá embættinu þá þekkir hann það vel og býr því yfir upplýs- ingum sem eftir atvikum geta skað- að embættið eða látið það líta illa út. Ekki verður annað sagt en að Jón Óttar hafi notað þessar upplýsingar og skapað umræðu um embættið og verklag þess. Á sama tíma er erfitt að gagnrýna það ef fyrrverandi starfsmenn opin- berra stofnana stíga fram og benda á og gagnrýna lögbrot eða mistök sem eiga sér stað innan þeirra. Ef slíkar ábendingar eru sannar, og settar LiðhLaupinn úr LögregLunni n Jón Óttar hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu ár út af gagnrýni sinni á embætti sérstaks saksóknara Orðinn miðpunktur Jón Óttar Ólafsson er orðinn miðpunktur í opinberri um- ræðu um embætti sérstaks saksóknara eftir að hafa starfað hjá embættinu sjálfur um nokkurra ára skeið. Greinargerð í Al-Thani málinu Jón Óttar skrifaði greinargerð fyrir Hreiðar Má Sig- urðsson í Al-Thani málinu og var vitnisburður hans liður í kæru Hreiðars Más gegn héraðs- dómaranum Benedikt Bogasyni sem síðar var felld niður. Myndin er frá réttarhöldum í Al Thani-málinu. Mynd SiGTryGGur Ari „Ég er að gera það sem ég er að gera af því ég vil að sann- leikurinn komi í ljós. ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.