Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Page 14
14 Fréttir Helgarblað 19.–22. september 2014
Hvarf sendiHerrans
er stórfrétt í Kína
n Íslendingum brugðið vegna málsins n Staðgengill sendiherra svarar ekki spurningum DV
S
kyndilegt hvarf kínverska
sendiherrans á Íslandi, Ma
Jisheng, vakti athygli al-
þjóðlegra fjölmiðla í liðinni
viku. Fullyrt var að hann og
eigin kona hans, Zhong Yue, hefðu
verið kölluð til Kína í byrjun ársins
og handtekin af kínverskum ör-
yggissveitum í febrúar síðastliðnum
vegna gruns um njósnir fyrir japönsk
stjórnvöld.
Kínverska utanríkisráðuneytið
hefur ekki viljað staðfesta fregnirnar.
DV greindi frá því þann 5. september
síðastliðinn að ekkert hefði spurst til
Ma síðan hann yfirgaf landið þann
23. janúar. Hjá kínverska sendiráðinu
fengust þær upplýsingar að spurn-
ingum DV varðandi málið yrði ekki
svarað eða eins og ritari sendiráðsins
sagði: „Ég er búinn að tala við fólkið
sem stýrir svona löguðu og svarið er
að þessu verður ekki svarað á þessum
tímapunkti.“
Viðmælendum DV sem þekkja
til sendiherrans er brugðið vegna
málsins. Benda sumir þeirra á að
málið virðist flóknara en látið sé í
veðri vaka í fjölmiðlum enda engar
opinberar skýringar verið gefnar.
„Þetta kemur mér nú töluvert mik-
ið á óvart ef að satt reynist,“ segir
Magnús Björnsson, forstöðumaður
Konfúsíusar stofnunarinnar Norður-
ljósa, og bætir við að Ma hafi verið
mjög þægilegur maður í alla staði.
Handtekinn sem sendiherra
Stefán Skjaldarson, sendiherra Ís-
lands í Kína, segir um stórfrétt að
ræða, „ekki bara á Íslandi, heldur á
heimsvísu, ekki síst í Kína.“ Þegar DV
spurði Stefán út í hvarf sendiherrans í
upphafi síðustu viku sagði hann: „Ég
get bara staðfest að skv. okkar bestu
upplýsingum er ekkert dularfullt við
fjarveru sendiherrans eða að fjarvera
hans tengist spillingarmálum. Fjar-
veran mun stafa af fjölskylduástæð-
um eingöngu, erfiðs heilsufars aldr-
aðra foreldra sendiherrans og óskar
hans um leyfi frá störfum til að sinna
þeim.“
Nú segir hann ljóst að hann hafi
búið yfir röngum upplýsingum: „Ég
hef greinilega ekki haft réttar upplýs-
ingar þegar ég svaraði þér um daginn,
en þær voru þær einu sem við höfð-
um þá. Nú er ljóst að þær voru óná-
kvæmar svo vægt sé nú til orða tekið.“
Arnþór Helgason, formaður Kín-
versk-íslenska menningarfélagsins
(KÍM), og vináttusendiherra Kínverja
á Íslandi, segir fréttirnar hafa komið
honum í opna skjöldu: „Þetta kemur
mér mjög á óvart vegna þess að mér
hefur fundist Ma Jisheng heldur ein-
lægur maður.“
Kínverska utanríkisráðuneytið
tilkynnti því íslenska í maí að Ma
myndi ekki snúa aftur til starfa og
að staðgengill sendiherra væri Chen
Laiping. Séu fregnir af handtökunni
í febrúar réttar, má ljóst vera að kín-
verski sendiherrann hafi verið í haldi
í um þrjá mánuði áður en staðgengill
hans tók opinberlega við embættinu.
Mögulegt er að ásakanir um njósnir
fyrir japönsk stjórnvöld sé tylliástæða
en erfitt er að ímynda sér verri glæp
en njósnir fyrir erkióvininn.
„Ég veit það ekki“
Ma Jisheng fæddist árið 1957 í Kína
og er með meistaragráðu í sagnfræði.
Hann hóf störf í kínversku utanríkis-
þjónustunni árið 1988, meðal annars
sem sendifulltrúi í sendiráðum Kína í
Indónesíu og Japan. Samkvæmt frétt-
um Guardian, Reuters, NRK og fleiri
miðla á hann að hafa látið japönsk-
um yfirvöldum í té upplýsingar á
meðan hann starfaði í Japan á árun-
um 2004–2008. Ma tók við sem sendi-
herra Kína á Íslandi haustið 2012 og
þykir að sögn viðmælenda DV afar
geðþekkur maður.
DV reyndi á miðvikudag og
fimmtudag að fá svör frá sendiráði
Kína á Íslandi varðandi málið. Ritari
sendiráðsins sagðist ítrekað ekkert
vita um málið. Aðspurður hver gæti
svarað slíkum spurningum sagði
hann: „Ég veit allavega ekkert um
það núna.“ Þegar hann var beðinn
um að gefa blaðamanni símanúmer
eða netfang á staðgengil sendiherra,
Chen Laiping, bað hann blaðamann
um að senda fyrirspurn á netfang
sendiráðsins. Aðspurður hvort ein-
hverra viðbragða væri að vænta frá
sendiráðinu vegna málsins sagði rit-
arinn: „Ég veit það ekki.“
DV sendi fyrirspurn á netfang kín-
verska sendiráðsins á miðvikudag
sem stíluð var á staðgengil sendi-
herra, Chen Laiping. Þar var hann
meðal annars spurður hvort hann
vissi um afdrif Jisheng og Yue og
hvort hann hefði heyrt eitthvað frá
þeim á síðustu mánuðum. Þessi fyrir-
spurn var ítrekuð á fimmtudag. Ekk-
ert svar hafði borist þegar blaðið fór
í prentun.
Glaður með heiðursnafnbót
„Mér dettur í hug hvort þarna geti
verið um lausmælgi að ræða frekar
en beinan ásetning um að miðla
upplýsingum til Japana,“ segir Arn-
þór Helgason, formaður KÍM, sem
vonast til þess að málið fái að hafa
sinn gang í kínverska réttarkerf-
inu. Arnþór ber Ma góða söguna
en þeir ræddust stuttlega við í síma
áður en hann yfirgaf Ísland í janúar.
Menningarfélagið hugðist veita Ma
heiðursnafnbót þegar hann kæmi til
baka en hann hafði aðstoðað félagið
við að leysa ýmis vandamál sem upp
komu um það leyti sem verið var að
undirbúa sextíu ára afmæli félagsins
á síðasta ári. „Hann var mjög glaður
og sagði að þetta væri mjög gott fyrir
ferilskrána sína og að sér hefði aldrei
verið sýndur slíkur heiður,“ sagði
Arnþór í viðtali við DV þann 10. sept-
ember.
„Maður skyldi nú halda að maður
eins og Ma Jisheng sem er þetta nærri
stjórnvöldum fái eðlilega málsmeð-
ferð,“ segir Arnþór nú í samtali við
DV. „Ég ætla ekki að dæma nokkurn
skapan hlut fyrr enn, og ef maður
fréttir eitthvað af því hver dómur hans
verður, eða hvaða dóm hann fær.“ Að-
spurður hvort eitthvað annað geti
legið að baki en meintar njósnir fyrir
japönsk stjórnvöld segir Arnþór: „Ég
þori ekki að fara með það, en mið-
að við það sem hefur gengið á í kín-
verska stjórnkerfinu að undanförnu,
þá held ég að menn ætli sér nú ekki
að fara að búa til sakir á hendur fólki.“
Allt of mikið sé í húfi til þess að ráða-
menn fari fram með upplognar sakir.
Gagnrýni dagblaðs
„Ég trúi því ekki fyrr en á það reyn-
ir, að kínversk stjórnvöld, í þessu nú-
tímaríki, hafi það í hyggju að ljúga
upp sökum til þess að koma fólki á
kné,“ segir Arnþór sem bendir á að
árið 2011 hafi refsilöggjöfin í Kína
verið endurbætt, meðal annars til
þess að tryggja að menn fengju eðli-
lega málsmeðferð. Mikil herferð hef-
ur verið í gangi gagnvart spilltum
embættismönnum í Kína síðan Xi
Jinping tók við forsetaembætti í mars
á síðasta ári. Sumir halda því fram
að forsetinn sé með þessum hætti að
tryggja völd sín á meðan aðrir vilja
meina að með þessu sé verið að ráð-
ast að rótum ýmiss konar spillingar-
vanda í kínverska kerfinu. Ljóst er
að almenningur bindur miklar von-
ir við þessar aðgerðir og því er það
mat margra að forsetanum megi ekki
mistakast þetta ætlunarverk sitt.
„Kína er mjög lagskipt ríki og
það getur tekið talsverðan tíma að
koma lagafyrirmælum í framkvæmd
í fjarlægustu héruðum landsins, en
dómskerfið verða Kínverjar að laga,
og ég held að það hafi verið gerð-
ar nægjanlegar ráðstafanir til þess
að við trúum því að svo sé.“ Arnþór
segir það vekja athygli að dagblaðið
Global News hafi gagnrýnt kínversk
stjórnvöld fyrir að halda slíkum mál-
um leyndum fyrir almenningi, en
þau geti verið víti til að varast. „Lægra
settir embættismenn og þeir sem
hafa verið stjórnvöldum óþægur ljár
í þúfu hafa hingað til mátt þola mikla
umfjöllun og gagnrýni í fjölmiðlum.“
Möguleg dauðasök
Geir Sigurðsson, dósent í kínverskum
fræðum við Háskóla Íslands, segir
herferðir gegn spillingu embættis-
manna hafa verið algengar innan
Kommúnistaflokksins allt frá stofn-
un Alþýðulýðveldisins og því hneigð-
ist hann til að taka þessari tilteknu
herferð mátulega alvarlega.
„Það er þó alkunna meðal al-
mennings að sukk embættismanna
á kostnað ríkisins hefur verið gríðar-
legt í gegnum tíðina. Í dag er almennt
litið svo á að embættismenn séu
spilltir og einbeiti sér fyrst og fremst
að því að maka sinn krók. Þess vegna
ríður mjög á að bæta ímynd þeirra,
enda jafngildir neikvætt viðhorf til
þeirra neikvæðu viðhorfi til flokksins
og það vilja Xi og aðrir hæstráðendur
forðast með öllu.“
Þá segist hann vona að herferðin
skrumskælist ekki í nornaveiðar á
blórabögglum eins og tíðkaðist á
tíma Maos og jafnvel að honum öll-
um. „Ég veit hins vegar ekkert um
athæfi hr. Ma en get ímyndað mér
að iðnaðarnjósnir fyrir Japana sé
dauðasök í Kína og því ekkert grín að
verða fyrir slíkum ásökunum.“ n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Hvar er Ma? Kínverska
utanríkisráðuneytið hefur
ekki svarað því hvað orðið
hefur um sendiherrann
eða hvort hann hafi verið
handtekinn fyrir njósnir.
Dæmir engann Arnþór Helgason, for-
maður KÍM, segist engan ætla að dæma fyrr
en niðurstaða fæst í málið.
Þægilegur maður Magnús Björnsson,
forstöðumaður Konfúsíusarstofnunarinnar
Norðurljósa, segir Ma hafa verið mjög þægi-
legan mann í alla staði.
Rangar upplýsingar Stefán Skjaldarson,
sendiherra Íslands í Kína, segist hafa búið
yfir röngum upplýsingum þegar hann sagði
fjarveru Ma stafa af fjölskylduveikindum.
„Ég veit hins vegar
ekkert um athæfi
hr. Ma en get ímyndað
mér að iðnaðarnjósnir
fyrir Japana sé dauðasök
í Kína og því ekkert grín
að verða fyrir slíkum
ásökunum.