Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Blaðsíða 15
Fréttir 15Helgarblað 19.–22. september 2014
„Þráum eðlilegt heimilislíf“
n Býður þingmönnum að skoða myglu n Hefur glímt við myglu í sjö ár n Yfir 100 fjölskyldur hafa flúið
É
g er að reyna að berjast fyrir
því að lögunum verði breytt
svo það lendi ekki fleiri í svona
ógöngum eins og ég,“ segir
Ásta Guðjónsdóttir sem glímt
hefur við mjög svæsinn myglusvepp
í húsnæði sínu í Álfheimum frá ár-
inu 2007. Hún og börnin hennar
tvö hafa ekki getað búið í íbúðinni
í eitt og hálft ár, enda fengu þau öll
einkenni myglusveppaeitrunar.
Búa þau núna hjá vinum og vanda-
mönnum.
Ásta er að vonum orðin lang-
þreytt á fá ekki úrlausn sinna mála,
en hingað til hafa endurbætur á hús-
inu strandað á því að aðeins 48 pró-
sent eigenda hússins vilja að gert
verði við það á meðan 52 prósent
eru á móti því. Íbúð Ástu er langverst
farin af myglusveppnum, en aug-
ljósar rakaskemmdir eru víðar í hús-
inu. Meðal annars hefur vatn lekið
inn í sameign.
Starfshópur sérstaklega
velkominn
Ásta fékk áheyrn hjá Jóni Þór Ólafs-
syni, þingmanni Pírata, nýlega og
bauð hann fyrir hennar hönd, öll-
um þingheimi í heimsókn til hennar
í dag, föstudag. Ráðherrar og starfs-
hópur sem endurskoðar lög og regl-
ur með tilliti til myglusvepps, eru
boðin sérstaklega velkomin heim
til Ástu. Vill hún sýna þeim hvernig
húsnæði, sem er nánast ónýtt af
völdum myglusvepps, lítur út. „Það
verður gaman sjá hve margir úr
starfshópnum mæta, ef það mætir
þá einhver,“ segir Ásta sem gerir sér
ekki of miklar vonir um fjölda gesta.
Farið yfir lög og reglugerðir
Starfshópurinn var skipaður í júní á
þessu ári og er hlutverk hans meðal
annars að skoða lög og reglugerðir
á sviði byggingarmála og þær kröfur
sem þar eru gerðar til byggingarvara
og við mannvirkjagerð. Þá á hópur-
inn að fara yfir eftirlit stjórnvalda og
leiðbeiningar og fræðslu til fagaðila í
ljósi þess vanda sem myglusveppur
í húsnæði getur valdið. Einnig verða
lög og reglugerðir á sviði hollustu-
hátta um gæði húsnæðis og umhirðu
tekin til skoðunar, skyldur eigenda og
umráðamanna húsnæðis í því sam-
bandi og þær leiðbeiningar sem til
staðar eru um umhirðu húsnæðis.
Starfshópurinn á að skila tillögum
sínum að úrbótum til ráðherra fyrir
1. janúar 2015
Lífsþrek fólks getur skerst
Í greinargerð með þingsályktunar-
tillögu um málið kemur fram að vit-
að sé um yfir hundrað fjölskyldur
hér á landi sem hafi þurft að yfirgefa
heimili sín í lengri eða skemmri
tíma á undanförnum árum vegna
heilsufarsáhrifa og annars tjóns af
völdum myglusvepps. Þá hafa tugir
þurft að segja skilið alfarið við hús-
næði og ef fólk er mjög viðkvæmt
fyrir myglusveppnum getur einnig
þurft að farga öllu innbúi. Í greinar-
gerðinni kemur einnig fram að í
kjölfar heilsufarsvandamála sökum
myglusvepps geti atvinnuþátttaka,
vinnuframlag og lífsþrek margra
skerst. Myglusveppatjón geti sett líf
fólks í óvissu og langan tíma geti tekið
að ná fullum styrk og sambærilegum
lífsgæðum aftur. „Svo virðist sem fá
úrræði standi fólki til boða í aðstæð-
um sem þessum og er nauðsynlegt
að stjórnvöld geri það sem í þeirra
valdi stendur til að laga nauðsynlegt
regluverk svo tekið verði tillit til þess
skaðvalds sem myglusveppur innan-
húss er og þess tjóns sem þeir geta
valdið,“ segir í greinargerðinni.
Myglan var falin
Ásta segir myglusvepp geta verið
mjög falið vandamál og að fólk sé oft
lengi að átta sig á því að hann sé til
staðar, enda sé hann ekki alltaf sjáan-
legur. „Ég á gullfallega íbúð og bý ekki
eins og rotta. Það er alltaf hreint og fínt
hjá mér,“ segir Ásta sem gerði upp alla
íbúðina eftir að hún keypti hana árið
2007. „Mygla er ekki eitthvað sem þú
sérð strax. Myglan hjá mér var öll falin
í lofti og veggjum svefnherbergis.“
Áður bjó fjölskyldan í kjallaraíbúð í
sama húsi og þegar þau keyptu íbúð-
ina á hæðinni þá vissi Ásta að það
hefði verið einhver smá leki af svölun-
um á hæðinni fyrir ofan. Það stóð hins
vegar til að laga og það hvarflaði ekki
að Ástu að ástandið gæti orðið jafn
slæmt og það er í dag. „Það var búið
að segja að það væri ekkert mál að
gera við þetta en svo var framkvæmd-
unum frestað aftur og aftur og það er
enn ekki búið að gera neitt.“
Öll börnin urðu veik
Ásta starfaði sem dagmamma en öll
börnin sem voru í daggæslu hjá henni
urði óeðlilega oft veik. Hún tók sýni
úr svefnherberginu sínu og sendi
Náttúrufræðistofnun Íslands, en í því
greindist mygla. Í kjölfarið óskaði hún
eftir því að heilbrigðiseftirlitið gerði
úttekt á húsnæðinu. Var það gert en
starfsmaður úrskurðaði að börn-
unum stafaði engin hætta af raka-
skemmdum og myglu á heimilinu.
Ástu var einfaldlega ráðlagt að hafa
svefnherbergið lokað á meðan börn-
in voru hjá henni yfir daginn. Ásta og
börnin hennar voru líka farin að finna
fyrir þrálátum veikindum sem lækn-
ar fundu ekki neinar skýringar á. Það
var í raun Ásta sjálf sem áttaði sig á því
að hún væri að glíma við eitrunaráhrif
vegna myglu í húsnæðinu, eftir að
hafa leitað sér upplýsinga um ein-
kenni veikindanna á netinu.
Þjást af kvíða og streitu
Ásta vill að lögum um fjöleignarhús
verði breytt þannig að þegar ágrein-
ingur er um viðgerðir í fjölbýli og
leitað er til Húseigendafélagsins,
þá sé strax kallaður til fagaðili sem
taki út húsnæðið. Í kjölfarið sé svo
kveðinn upp úrskurður um þarf-
ar viðgerðir, ef einhverjar eru. „Það
er ólíðandi í þessum aðstæðum að
svo lítill meirihluti eigenda hússins
geti neitað viðgerðum. Að fólk þurfi
að berjast svona lengi á meðan eign-
ir þeirra skemmast enn frekar. Þetta
ákall er fyrir alla landsmenn. Ég er
ekki bara að berjast fyrir sjálfa mig,
heldur alla aðra sem eru í þessum að-
stæðum,“ segir Ásta sem vill einnig sjá
breytingar á lögum um dómkvadda
matsmenn. Hún er meðal annars
ósátt við að hafa þurft að borga tæpa
milljón króna fyrir ástandsskýrslu
sem unnin var af einum slíkum, áður
en hún fékk hana í hendurnar. „Ekki
var hægt að vinna eftir þeirri skýrslu,
en niðurstaða matsmanns var að ekki
væri hægt að segja að nauðsynlegt
væri að gera við. Niðurstaða matsins
var: ástand hússins er almennt gott.“
Ásta segir það engan veginn standast
miðað við hvernig íbúðin hennar lítur
út. „Ég hef enga unun af því að aug-
lýsa heimili mitt fyrir alþjóð. En ég
hef ekki aðra kosti í dag, þar sem ég
og börn mín erum heimilislaus, þrá-
um eðlilegt heimilislíf og að réttlæti
nái fram að ganga. Það eina sem við
eigum yfirdrifið nóg af, eru áhyggjur,
kvíði og streita,“ segir Ásta sem vonast
til þess að barátta hennar skili sér og
lögunum verði breytt til batnaðar sem
fyrst. n
Fólk bregst mismunandi
við myglusvepp
Myglusveppir, rakasæknar örverur eins
og bakteríur og efni sem gufa upp í
andrúmsloftið þegar byggingarefni eru
rök, geta hlaðist upp í lofti innandyra og
haft neikvæð áhrif á heilsu, á mismunandi
vegu. Það er til dæmis mismunandi á milli
tegunda hvaða áreiti þeir geta valdið. Hér
eru dæmi um mismunandi áhrif myglu-
svepps á fólk.
n Ofnæmisviðbrögð - í sumum tilfellum
er fólk með ofnæmi gagnvart myglu-
sveppum einkenni og eru helstu einkenni
þá: útbrot, nefrennsli, rauð augu, hnerrar,
hóstar og önnur einkenni í öndunarfærum.
Mjög fáir eru með ofnæmi fyrir myglu eða
innan við tvö prósent.
n Sýking - sveppasýkingar í lungum,
ennisholum, og og fleira. Sveppasýkingar
í blóði verða nær eingöngu hjá fólki sem
hefur bælt ónæmiskerfi af einhverjum
orsökum.
n Eituráhrif - algengustu áhrif myglu-
sveppa eru tengd eiturefnum sem þeir
framleiða. Það eru til margar rannsóknir
sem sýna fram á áhrif þessara eiturefna á
heilsu manna og dýra. Þessi efni komast
inn í líkamann við öndun, í gegnum
húð eða við inntöku. Eituráhrifin valda
bólguviðbrögðum í líkamanum sem gerir
það að verkum að við finnum í upphafi
til flensueinkenna. Við langvarandi áhrif
verða einkennin sterkari og ýmislegt fer
að breytast í líkamanum.
(Fengið af vef Hús og heilsu)
Einkenni sem geta komið fram
Einkenni hjá fullorðnum
einstaklingum:
n Þreyta, eða sífelldur höfuðverkur,
stundum eins og mígreni.
n Ennisholubólgur, óþægindi og síendur-
teknar sýkingar.
n Hósti, þurrkur eða sviði í hálsi, eða sviði í
lungum, hrotur,.
n Tíð þvaglát, tíður niðurgangur eða aðrar
meltingartruflanir.
n Sjóntruflanir, minnistruflanir, snerti-
skyn, doði og dofi í útlimum,ljósnæmni,
rafmagnsviðkvæmni.
n Jafnvægistruflanir,
n Kvíði, þunglyndi, svefnvandamál.
n Áreiti í slímhúð—öndunarfæri og
melting. Niðurgangur eða harðar hægðir
án skýringa.
n Þroti, bjúgur
n Húðvandamál, rauðir flekkir, þurrkur
eða útbrot.
n Liðverkir, stingir, eða aðrir óútskýrðir
verkir.
n Fæðuóþol, óþol gegn t.d. hnetum,
brauði, msg, mjólkurvörum eða öðru
(eykst).
n Þyngdaraukning eða þyngdartap án
skýringa
n Tannverkur, bólgur í tannholdi,
munnangur
n Hálsbólga á morgnanna, þyngsli yfir
höfði
n Hárlos
n Önnur einkenni eins og hjá börnum
Einkenni hjá börnum:
n Nefrennsli, hitasveiflur, eyrnaverkur,
þrýstingur í eyrum (eins og hellur),
n Hósti, astmi, lungnabólga, bronkítis
n Höfuðverkur eða einkenni frá ennis-
holum.
n Útbrot (líkt exem), þurr húð, roða í
kinnar, rauða flekki í framan, þurra bletti
eða sprungna húð, kláði.
n Sveppasýking á bleyjusvæði eða annars
staðar
nTíðar sýkingar, RS og bakteríur
nVerk í fætur eða liðamót—oft framan á
sköflungi eða í hnjám
n Magakrampi, meltingartruflanir, niður-
gangur eða harðlífi.
n Óróleiki, athyglisbrestur og einkenni
ofvirkni, einbeitingarskortur, skapbrestir.
n Í slæmum tilfellum hægist á þroska og
einkenni frá taugakerfi koma fram.
n Fæðuóþol t.d mjólkurvörur ofl.
(Fengið af vef Hús og heilsu)
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Ég á gullfallega
íbúð og bý ekki eins
og rotta. Það er alltaf
hreint og fínt hjá mér.
Heima hjá Ástu Myglusveppur á heimili Ástu var falinn í svefnherbergi hennar. Hér má
glögglega sjá miklar rakaskemmdir.
Raki Svo virðist sem leki af svölum á efstu
hæð hússins, í gegnum steypuna og inn í
íbúð Ástu.
Berst við myglu
Ásta vill ekki að fleiri
þurfi að lenda í sömu
ógöngum og hún.