Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Blaðsíða 16
16 Fréttir Helgarblað 19.–22. september 2014
Varpar ábyrgðinni
á undirmann sinn
n Innanríkisráðherra segist hafa haft samráð við lögreglustjóra um samskiptin
H
anna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra varpar
ábyrgðinni á samskiptum
hennar við Stefán Eiríks-
son, fyrrverandi lögreglu-
stjóra á höfuðborgarsvæðinu, yfir
á lögreglustjórann sjálfan, í þriðja
svarbréfi sínu við spurningum
umboðsmanns Alþingis. Þar seg-
ist hún hafa fengið staðfestingu
frá Stefáni um að ekkert óeðlilegt
væri við samskiptin. Þá segist hún
jafnframt treysta þessu áliti undir-
manns síns enda hafi hann langa
reynslu úr stjórnsýslunni: „Ég tók
í meginatriðum sjálf ákvarðanir
um samskipti mín við L, en líkt og
áður sagði gerði ég það í samráði
við hann sem hefur langa reynslu
úr stjórnsýslunni, bæði hjá lögreglu
og fyrrum dómsmálaráðuneyti. Ég
treysti því staðfestingu hans á því
að ekkert óeðlilegt væri að ræða
ákveðna þætti málsins við hann.“
Þetta gengur í berhögg við það
sem Stefán sagði í samtali sínu við
umboðsmann. Þar upplýsti hann
um að hann hefði forðast samskipti
við ráðherrann meðan á rannsókn
lekamálsins stóð enda hefði hann
„litið svo á að meðan embætti hans
væri með umrætt mál til rannsókn-
ar gæti hann ekki verið að óska eftir
fundum með ráðherra […] Þannig
að ég leit svo á að frá upphafi og
ég gerði ríkissaksóknara grein fyr-
ir því að ég þyrfti að halda að mér
höndum hvað þetta varðaði, þessi
samskipti við ráðuneytið, meðan
sú staða væri uppi að við værum
að rannsaka ráðherra og samstarfs-
menn hennar vegna gruns um brot
á hegningarlögum.“
Ítrekuð afskipti
Hanna Birna hefur ítrekað lagt
Stefáni orð í munn, bæði í fjölmiðl-
um og í svörum sínum til umboðs-
manns, og sagt hann hafa staðfest
að engin óeðlileg afskipti hefðu
verið höfð af rannsókninni. „Stefán
hefur sjálfur ítrekað sagt það að það
hafi enginn beitt hann þrýstingi í
þessari rannsókn,“ sagði hún til að
mynda í viðtali í Kastljósi á dögun-
um. Hið rétta er að Stefán hefur
hvergi staðfest að engin óeðlileg af-
skipti hafi verið af rannsókninni, né
heldur neitað því að hann hafi verið
beittur þrýstingi, þrátt fyrir að hafa
fengið fjölmörg tækifæri til þess í
samtölum sínum við fjölmiðla.
Eins og margoft hefur komið
fram í fjölmiðlum að undanförnu,
hefur Stefán lýst ítrekuðum af-
skiptum ráðherra af rannsókninni.
Þannig hefur hann sagt ráðherra
hafa „ýtt á eftir“ lögreglunni, sett á
hana tímapressu, hellt yfir sig „dá-
góðri gusu af gagnrýni“, kvartað
undan umfangi rannsóknarinnar,
deilt á einstakar rannsóknarathafn-
ir lögreglu, gagnrýnt lögregluna
fyrir að taka og rannsaka tölvu að-
stoðarmanns hennar, beðið um að
flýta yfirheyrslum og lýst því yfir að
rannsaka þyrfti rannsókn lögreglu
og ríkissaksóknara.
Þarf ekki að hafa haft áhrif
Í þriðja svarbréfi sínu sakar Hanna
Birna umboðsmann um að „draga
upp“ mynd af samskiptum hennar
við Stefán sem ekki samræmast
hennar eigin upplifun. Ekki fæst
séð að upplifun ráðherra af sam-
skiptum við undirmann skipti
nokkru máli þegar kemur að því
hvort samskiptin standist van-
hæfisreglur stjórnsýslulaga. Björg
Thorarensen lagaprófessor sagði í
samtali við RÚV í ágúst að innan-
ríkisráðherra og lögreglustjóri ættu
aldrei að ræðast við meðan emb-
ættisfærslur á skrifstofu ráðherra
væru til rannsóknar. Slík samskipti
væru óvenjuleg og án fordæma.
Hæstaréttarlögmenn sem DV
hefur rætt við benda á að engu máli
skipti hvort afskipti ráðherra höfðu
áhrif á niðurstöðu rannsóknar
lekamálsins eður ei, nóg sé að sam-
skiptin hafi átt sér stað: „Það þarf
ekki að hafa haft áhrif, það er nóg
að það líti út fyrir það.“ Í því sam-
hengi sé upplifun Hönnu Birnu og/
eða Stefáns málinu óviðkomandi.
Ein helsta málsvörn Hönnu Birnu
í þriðja svarbréfi hennar var sú að
samskiptin við Stefán skiptu ekki
máli þar sem ríkissaksóknari hefði
farið með yfirstjórn rannsóknar-
innar. Ríkissaksóknari hefur hins
vegar áréttað að lögreglustjórinn
hafi farið með framkvæmd rann-
sóknarinnar.
„Fullorðinn maður“
„Stefán er fullorðinn maður, hann
er lögreglustjóri í Reykjavík, við
ræddum þetta margsinnis hvernig
við ættum að hafa þetta. Stefán
ávarpaði það aldrei við mig að
þetta væri fyrir honum með ein-
hverjum hætti óeðlilegt,“ sagði
Hanna Birna í Íslandi í dag þann
26. ágúst. Eins og fyrr segir hefur
Stefán hins vegar sagt að hann hafi
forðast slík samskipti við ráðherra
meðan á rannsókn málsins stóð.
Þess má geta að þegar fjölmiðlar
kölluðu eftir viðbrögðum Stefáns
við þriðja bréfi Hönnu Birnu vísaði
hann í fyrri orð sín en vildi ekki tjá
sig frekar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
forsætis- og dómsmálaráðherra, tók
í sama streng og Hanna Birna þegar
hann svaraði fyrir málið í Kastljósi
í síðustu viku: „… Það má þó ekki
líta fram hjá því að lögreglustjór-
inn segir sjálfur að hann telji ekki
að hún hafi ætlað að hafa áhrif á
rannsóknina heldur virðist hún
fyrst og fremst hafa haft áhyggjur af
því hvaða áhrif þetta væri að hafa á
þá stofnun sem hún fór fyrir.“ Þegar
Sigmundur var inntur eftir frek-
ari svörum sagðist hann ekki telja
æskilegt að hann tjáði sig frekar um
málið á meðan hann væri ráðherra
dómsmála.
Ein helsta málsvörnin
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra hefur tjáð sig með svipuð-
um hætti og Sigmundur og Hanna
Birna. Þannig er meint upplifun
Stefáns af samskiptunum orðin
ein helsta málsvörn ráðherranna
þriggja í málinu og hluti af tilraun
til þess að gera undirmann ráð-
herra samábyrgan. Þess má geta
að lögreglustjórinn á höfuðborgar-
svæðinu er skipaður af innanríkis-
ráðherra og það var því í verka-
hring Hönnu Birnu að ákveða
hvort Stefán fengi áframhaldandi
skipun í embætti árið 2016.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Hanna Birna reynir að varpa
ábyrgðinni yfir á aðra í lekamál-
inu. Þannig má nefna að í desem-
ber bendlaði hún Rauða krossinn
við leka persónuupplýsinga þrátt
fyrir að henni hafi mátt ljóst vera
að hjálparsamtökin höfðu minnis-
blað innanríkisráðuneytisins ekki
undir höndum. Þá sagði ráðherra
nýlega að lögfræðingar innanríkis-
ráðuneytisins hefðu ráðlagt
honum hvernig ætti að haga sam-
skiptunum við lögreglustjórann.
Síðar neitaði ráðherra að veita
umboðsmanni Alþingis frekari
upplýsingar um lögfræðiálitið. n
„Ég tók í megin
atriðum sjálf
ákvarðanir um samskipti
mín við L, en líkt og áður
sagði gerði ég það í sam
ráði við hann.
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is „Ég gerði ríkis
saksóknara grein
fyrir því að ég þyrfti
að halda að mér hönd
um hvað þetta varð
aði, þessi samskipti við
ráðuneytið.
Ábyrgð varpað á undirmann Hanna
Birna varpar ábyrgðinni á samskiptum
hennar við Stefán Eiríksson ítrekað yfir á
lögreglustjórann sjálfan. Mynd Sigtryggur Ari
taka í sama streng Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson hafa tekið í sama streng og
Hanna Birna og vísað til þess að Stefán hafi ekkert við samskiptin að athuga.
Forðaðist samskipti Stefán
Eiríksson sagði í samtali við
umboðsmann Alþingis að
hann hefði litið svo á að hann
gæti ekki beðið um fundi með
ráðherra meðan á rannsókn
lekamálsins stóð. Mynd Sigtryggur Ari