Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2014, Page 17
Helgarblað 19.–22. september 2014 Fréttir Stjórnmál 17
n Engar heiðursmannaafsagnir hérlendis n Vafi ekki túlkaður gegn ráðherra
Ó
líkt því sem uppi er a ten-
ingnum í nágrannalöndun-
um styðjast íslenskir stjórn-
málamenn við þá reglu um
ábyrgð þeirra að hverjum
manni sé sætt uns sekt sé sönnuð.
Þannig er þessu ekki háttað víða um
lönd eins og lesa má um í áttunda
bindi skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis.
Heiðursmannaafsagnir
Í umræðum á Alþingi síðastliðinn
þriðjudag um lekamálið og stöðu
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur inn-
anríkisráðherra vitnaði Steingrímur
J. Sigfússon (VG) í eftirfarandi texta
skýrslunnar:
„Í grunninn byggist íslensk
stjórnsýsla á „miðstýringu þar sem
ráðherrann hefur alla þræði í hendi
sér“. Ráðherrar njóta mikils sjálf-
stæðis án þess að búa við ríkar kröfur
um pólitíska og siðferðilega ábyrgð.
Þetta er slæm blanda og í raun ávís-
un á óábyrga meðferð valds. Hér-
lendis hafa ekki tíðkast svokallaðar
„heiðursmannaafsagnir þar sem
ráðherrar hafa tekið afleiðingun-
um af því að stjórnsýsla á þeirra veg-
um hefur brugðist á einn eða annan
hátt með því að segja af sér“. Í stað
heiðursmannareglunnar hafa ís-
lenskir stjórnmálamenn fremur vís-
að í sakamannaregluna sem kveður
á um að þeim eigi að vera sætt uns
sekt er sönnuð: „[S]tjórnmálamenn
[...] afsaka oftast ávirðingar sínar
með því að reglur skorti eða [...] að
enginn teljist sekur fyrr en sök sann-
ast og vafi komi sökunaut í hag. Hér
samsama þeir sig sakamanninum
og einblína á lagabókstafinn. Þeir
gefa því engan gaum að í stjórnmál-
um á önnur regla að gilda, sú að vafi
sé túlkaður gegn stjórnmálamann-
inum, því að nálægðin ein við spill-
ingu veldur trúnaðarbresti, en fullur
trúnaður er undirstaða fulltrúalýð-
ræðis.““
Höfundar þessa texta sem orða
svo vel og í hnotskurn það sem hér á
við, kjarnann í því, verða ekki sakaðir
um að hafa sett þessi orð á blað með
hliðsjón af lekamálinu því að skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis kom út
í apríl 2010.“
Erfið mál fyrir stjórnmálaflokka
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, brást við þessari til-
vitnun um heiðursmannaafsagn-
ir og sagði: „Ég vil líka segja hér
vegna þess sem sagt hefur verið um
heiðursafsagnir að þar er greinilega
mun auðveldara um að ræða en í að
komast. Og skyldi engan undra. Það
hafa allir metnað til að skila vel af
sér, eins og hefur verið komið inn á
hér, þeim embættum sem þeir hafa
tekið að sér að gegna. En við höfum
svo sem alveg dæmin á undanförn-
um árum um að maður hafi velt því
fyrir sér hvort ekki væri tilefni til af-
sagnar. Ef menn lenda til dæmis
upp á kant við 98% þjóðarinnar í al-
mennri atkvæðagreiðslu veltir mað-
ur fyrir sér hvort það gæti verið kom-
ið upp tilefni til heiðursafsagnar. Það
varð ekki.“
Hér er líklegast að Bjarni vísi til
fyrri þjóðaratkvæðagreiðslunnar um
Icesave-samninginn sem fram fór 6.
mars 2010. Af þeim sem greiddu at-
kvæði vildu 93 prósent fella samn-
inginn úr gildi og slík niðurstaða
gæti að mati Bjarna verið tilefni til
afsagnar ráðherra eða ríkisstjórnar.
Ekkert slíkt gerðist á þeim tíma. Þar
var um pólitískan ósigur þáverandi
ríkisstjórnar að ræða í einstöku máli
en engin álitamál um sekt eða sak-
leysi ráðherra.
Lögregla rannsakar
lögreglumálaráðuneyti
Árni Páll Árnason (S) hóf umræðuna
og sagði að reynt væri að leysa úr
vandræðum Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur innanríkisráðherra með því
að koma í veg fyrir að hún axlaði
ábyrgð á eigin verkum og aðstæð-
um „… og þá þurfti frekar að brjóta
upp ráðuneytið en að tryggja að
ráðherrann axlaði pólitíska ábyrgð.
Uppbrot innanríkisráðuneytisins er
svo greinilega klæðskerasaumað að
þessum flótta Sjálfstæðisflokksins frá
pólitískri ábyrgð.“
Steingrímur J. Sigfússon (VG)
átaldi það sem hann kallaði dóm-
greindarleysi í málinu. „Lögreglu-
rannsókn á ráðuneyti nánast án for-
dæma er grafalvarlegt mál, hvaða
ráðuneyti sem á í hlut. Ef hún beinist
að ráðherranum sjálfum, aðstoðar-
mönnum hans og æðstu embættis-
mönnum, hvað þá ef í hlut á sjálft
ráðuneyti lögreglu og dómsmála-
ráðuneytið sem fer með réttarfars-
mál í landinu, að það sæti rannsókn
lögreglu, undirstofnunar, er svo frá-
leit staða að ég skil bara ekki það
dómgreindarleysi, reynsluleysi eða
andvaraleysi sem þar var á ferð.“
Guðmundur Steingrímsson (Bf)
hafði eftirfarandi um breytingar á
innanríkisráðuneytinu að segja:
„Hér er skipt upp fagsviðum vegna
þess að ein manneskja hefur lent í
vandræðum með stjórnsýslulegu
ákvarðanir sínar. Það er sem sagt
ekki þjóðarhagur sem ræður ferð,
það er ekki hagur embættisins.“
Subbulegt – vandræðalegt
Helgi Hrafn Gunnarsson (Pírata-
flokkurinn) sagði það subbulegt að
brjóta upp
innanríkisráðuneytið í þeim eina
tilgangi að reyna að bjarga pólitísku
lífi eins tiltekins ráðherra. „Þvílík
pólitísk meðvirkni er til skammar.
Eina markmið þeirrar aðgerðar virð-
ist vera að halda þessum tiltekna
einstaklingi, hæstv. innanríkisráð-
herra Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,
í ráðherrastól. Mér er fyrirmunað að
ímynda mér hvaða heilvita manni
þætti það málefnaleg ástæða.“
Brynhildur S. Björnsdóttir (Bf)
sagði að leiðtogar yrðu að geta viður-
kennt vanmátt sinn, axlað ábyrgð
og stigið til hliðar: „Með því mundi
hæstvirtur ráðherra sýna auðmýkt
og styrk í senn. Það er sárt að horfa
upp á atburðarás sem verður eigin-
lega bara vandræðalegri og vand-
ræðalegri með hverjum deginum
sem líður.“
Tekur flokkurinn á málinu?
Í umræðunni síðastliðinn mánu-
dag taldi formaður Sjálfstæðisflokks-
ins Alþingi ekki réttan vettvang fyrir
innanbúðarmál í Sjálfstæðisflokkn-
um. „Ég er hins vegar sjálfur þeirrar
skoðunar að þetta sé tæplega vett-
vangurinn til að ræða um það við
formenn í stjórnmálaflokkum hvort
þeir hafi gengið nægilega eftir því við
eigin flokksmenn að þeir axli póli-
tíska ábyrgð.“
Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, taldi mikilvægt
að ráðherrar, sem eru æðstu menn
í ráðuneytum, æðstu menn fram-
kvæmdarvaldsins, missi ekki al-
mennt hæfi þegar að þeim er sótt.
Vissulega getur verið vanhæfi hvað
varðar sérstakt hæfi. Þess vegna er
farin sú leið að færa málaflokka und-
ir annan ráðherra sem er mjög eðli-
leg leið. Það yrði minni stjórnfesta ef
menn þyrftu alltaf að rjúka alla leið
út úr framkvæmdarvaldinu vegna
mála af þessu tagi. n
„Hérlendis hafa ekki
tíðkast svokallaðar
„heiðursmannaafsagnir
þar sem ráðherrar hafa
tekið afleiðingunum af
því að stjórnsýsla á þeirra
vegum hefur brugðist á
einn eða annan hátt með
því að segja af sér“.
Óábyrg meðferð valds
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Heiðursmannaafsagnir
Hanna Birna Kristjánsdóttir vék
aðstoðarmanni úr starfi og sté
til hliðar sem dómsmálaráð-
herra í lekamálinu. Telst það
nægjanlegt? Mynd SigTryggur Ari
Álitamál Hefðu Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon axlað pólitíska ábyrgð
ef þau hefðu sagt af sér eftir ósigur í Icesave-málinu snemma árs 2010?
Vandinn Sem formanni Sjálfstæðisflokks-
ins er Bjarna Benediktssyni vandi á höndum
í lekamálinu. Mynd rEuTErS